Dagur - 02.03.1991, Side 16
16 - DAGUR - Laugardagur 2. mars 1991
Aðalfundur hestaíþrótta-
deildar Léttis:
Sigrún Brynjarsdóttir
lilaut Funastyttnna
fyrst kvenna
- mikil starfsemi á árinu
Hestaíþróttadeild Léttis hélt
annan aðalfund sinn eftir að
deildin varð fullgildur aðili að
íþróttasambandi íslands.
Starfsemin var mikil á árinu og
hæst ber þar frábærlega vel
heppnuð þátttaka hestaíþrótta-
manna á vetraríþróttahátíð ISÍ
síðastliðinn vetur og sigur deild-
arinnar á Bikarmóti Norður-
lands, þar sem hún vann Dags-
bikarinn fimmta árið í röð.
Að venju veitti félagið nokkrum
íþróttamönnum viðurkenningu
fyrir frammistöðuna á árinu.
Sigrún Brynjarsdóttir hlaut
Funastyttuna að þessu sirini, eri
það eru verðlaun sem stigahæsti
knapi ársins hlýtur. Reyndar er
þetta í fyrsta sinn sem kona hrepp-
ir þau verðlaun. Sigrúnu var líka
veittur afreksbikar deildarinnar í
flokki ungmenna, en hún varð
íslandsmeistari í fjórgangi og
íslenskri tvíkeppni á gæðingshryss-
unni Snerru frá Skúfsstöðum í
Borgarnesi á síðastliðnu sumri.
Þór Jónsteinsson hlaut verðlaun
sem stigahæsti knapi í eldri flokki
unglinga og bóðir hans Elvar Jón-
steinsson í yngri flokki.
Þá var Magnúsi R. Árnasyni
veitt viðurkenning sem prúðasti og
snyrtilegasti knapi ársins.
Síðastliðinn laugardag stóð
deildin fyrir svokölluðu „árshá-
tíðartölti", en hestamenn héldu
árshátíð sína sama kvöld. Keppn-
in tókst vel og mátti sjá þar marg-
an knáan knapann og góðan gæð-
inginn.
Dórriarár voru Herinann fnga-
son, Hrafnhildur Jónsdóttir og
Magnús R. Árnason.
Urslit urðu þessi:
1. Sigmar Bragason og Fengur.
2. Jóhann G. Jóhannesson og
Funi.
3. Björn Sæmundsson og Djákni.
Sigrún Brynjarsdóttir og Snerra; íslandsnieistarar í fjórgangi og íslenskri tvíkeppni ungmenna 1990.
Hvað er að gerast
auglýsingadeild • Sími 96-24222
s
kilafrestur aug-
lýsinga sem eru
2ja dálka (10
cm) á breidd
e5a smáaug-
lýsinga er til kl.
11.00 daginn fyrir útgáíu-
dag, nema í helgarblab, þá
er skiiafrestur til kl. 14.00 á
fimmtudag. Allar stærri aug-
iýsingar og lit þarf a5 panta
með 2ja daga fyrirvara. í
helgarblað þarf að panta all-
ar stærri auglýsingar fyrir kl.
11.00 áfimmludag._______________
Mývatnssveit og Húsavík:
Tónleikar um helgina
Minningartónleikar um Egil
Jónsson, klarínettleikara verða í
samkomusal Barnaskólans á
Húsavík sunnudag. 3. mars nk.
kl. 17. Sömu aðilar munu einnig
halda tónleika f Skjóibrekku í
Mývatnssveit laugardaginn 2.
mars kl. 16.
Egill Jónsson fæddist á Húsa-
vík 19. mars 1921. Hann lést í
Reykjavík 15. nóv. 1971.
Foreldrar hans voru hjónin Jón
Baldvinsson, rafveitustjóri á
Húsavík, og kona hans, Aðal-
björg Benediktsdóttir. Þegar í
æsku kynntist Egill tónlist á
heimili foreldra sinna þar sem
leikið var á harmonium. Um tví-
tugt nam Egill rakaraiðn á Akur-
eyri og komst þá í kynni við
klarínetthljóðfærið sem honum
varð hugstætt upp frá því, lærði á
og lék á til hinstu stundar. Hann
nam klarínettleik við Tónlistar-
skólann í Reykjavík. Var við
Hvað skiptir máli?
Halldór og Guðmundur
ræða landsmálin
að Hótel KEA, Akureyri, þriðjudaginn 5. mars kl. 20.30.
Frambjóðendurnir Valgerður Sverrisdóttir, Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Guðmundur Stefánsson, Daníel Árnason og Guðlaug Björnsdóttir mæta á fundinn.
Allir velkomnir!
Framsóknarflokkurinn.
Traust forysta • Samstilltur flokkur
framhaldsnám í Royal College of
Music í Manchester í Englandi
og lauk þaðan prófi á undra-
skömmum tíma. Egill lék með
Halle sinfóníuhljómsveitinni á
námsárum sínum undir stjórn Sir
John Baik’erolli, hins heims-
kunna stjórnanda.
Egill lék með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands frá stofnun hennar
árið 1950 sem 1. klarínettleikari
og einleikari. Að dómi margra cr
til þekkja er Egill í hópi snjöll-
ustu tónlistarmanna íslendinga
fyrr og síðar. Upptökur með
hljóðfæraleik hans bera ótvírætt
vitni um frábæra, tæknilega
færni, töfrandi tón, þroskað og
næmt tónlistarskyn.
Flytjendur tónlistar á minning-
artónleikunum eru þeir Jón
Aðalsteinn Þorgerisson og Þor-
steinn Gauti Sigurðarson sem
báðir eiga ættir að rekja til Húsa-
víkur og m.a. að nokkru þess
vegna fengnir sem tónlistarflytj-
endur. Jón Aðalsteinn er bróður-
sonur Egils Jónssonar en amma
Þorsteins Gauta var Jóna Hall-
dórsdóttir frá Traðargerði á
Húsavík.
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson er
fæddur 1955. Hann leikur á
klarínett og hefir stundað nám
við tónlistarskóla í Reykjavík og
síðan framhaldsnám í Vín. Lék
þar m.a. í Haydn Sinfonietta
hljómsveitinni. Þá hefur hann og
leikið með Sinfóníuhljómsveit
íslands og ýmsum öðrum hljóm-
sveitum hér á Iandi svo og í
leikhúsum í Reykjavík.
Þorsteinn Gauti Sigurðarson er
fæddur 1960. Hann hefir lagt
stund á píanóleik og lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1979. Stundaði fram-
haldsnám í tónlistarháskóla í
New York og í Róm á Ítalíu.
Þorsteinn hefir víða komið fram
sem einleikari og meðleikari
bæði hér heima og erlendis.
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
„í leit að erföaefni“
- fræðslufundur um harðgerð plöntuafbrigði
þriðj udagskvöldið. Allir sem
áhuga hafa eru velkomnir.
KA-heimilið:
Kaffihlaðborð
og hlutavelta
Handknattleiksdeild KA verður
með kaffihlaðborð og hlutaveltu
í KA-heimilinu á sunnudaginn
kemur kl. 14.00.
Boðið verður upp á góðar veit-
ingar og glæsilega vinninga. KA-
menn og aðrir velunnarar félags-
ins eru hvattir til þess að mæta.
Hraðskákmót
Akureyrar
Hraðskákmót Akureyrar verður
haldið í félagsheimili Skákfélags
Akureyrar við Þingvallastræti og
hefst keppni kl. 14.
Teflt verður í einum flokki og
eru allir velkomnir, ungir sem
aldnir, en titillinn Hraðskák-
meistari Akureyrar 1991 er í
húfi.
Þriðjudaginn 5. mars næstkom-
andi verður haldinn fræðslufund-
ur á vegum Skógræktarfélags
Eyfirðinga.
Efni fundarins er ferð, sem far-
in var árið 1989 til Norðaustur-
Síberíu. Tilgangur þessarar ferð-
ar var að leita að harðgerðum
plöntuafbrigðum, sem hentað
|ætu í skógrækt og landbúnaði á
Islandi.
Þorsteinn Tómasson, forstöðu-
maður R.A.L.A., Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins, var í
þessari för og mun hann skýra frá
í máli og myndum.
Fundurinn verður haldinn í
Dynheimum og hefst kl. 20.30 á