Þjóðviljinn - 13.11.1976, Qupperneq 3
Laugardagur 13. nóvember 1976 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3
V-þýskir umhverfisverndarmenn í baráttuhug
Hyggjast hindra byggiiigu
kjamorkuvers með valdi
HAMBORG 12/11 Reutcr —
Baráttumenn fyrir umhverfis-
vernd hvöttu stuðningsmenn
sina i dag til þess að taka með
valdi á sitt vald svæði, þar sem
fyrirhugað er að byggja nýtt
kjarnorkuver. Dreifðu um-
hverfisverndarmenn flug-
blöðum með hvatningum i þessa
átt i Brokdorf, norðvestur af
Hamborg. Sterkur vörður er um
byggingarsvæðið og auk þess er
það umgirt gaddavir. en um-
hverfisverndarmenn hvetja til
þess að sú girðing sé rifin niður,
hvað sem yfirvöld segja.
A morgun eru fyrirhugaöar
mótmælaaðgerðir gegn bygg-
ingu atómstöðvar þessarar og
er búist við að um 20.000 manns
taki þátt i þeim. Fyrir tveimur
vikum hrakti lögregla, sem
beitti kylfum og táragasi, um
300 mótmælamenn frá bygg-
ingarsvæðinu, sem siöan hefur
verið viggirt rammlega bæöi
með gaddavir og virkisgröf.
Vaxandi andstaöa er i
Vestur-Þýskalandi gegn rikj-
andi stefnu i kjarnorkumálum,
og telja margir að þeirri stefnu
sé framfylgt meira af kappi en
forsjá með tilliti til slysahættu.
Viðrœður Bandarikjanna og Víetnams:
Ekki búist við
skjótum árangri
Benn — aðalsmaður sem afnema
vill árhundraða gömul sérréttindi
stéttarbræðra sinna.
Krafist
afnáms
lávarða-
deildar
Ihaldsmenn þar
þvælast fyrir
stjórnarfrumvörpum
LUNDGNUM 12/11 Reuter —
Anthony Wegdwood Benn, ráð-
herra i bresku stjórninni og einn
af leiðtogum vinstri arms Verka-
mannaflokksins, krafðist þess I
dag að lávarðadeild breska
þingsins yrði lögð niður. Kvaðst
Benn, sem sjálfur er aðalsmaður
að uppruna en lagði niður lá-
varðstitilinn til að geta setið I
neðri málstofunni, ekki vera i
vafa um að núverandi efnahags-
leg vandræði Bretlands stöfuðu
ekki sist hvað af svo frumstæðri
og ófullnægjandi stofnun, sem lá-
varðadeildin væri. Sagði hann
ennfremur að deildin væri ólýð-
ræðisleg i eðli sinu og ætti hún þvi
að hverfa.
Lávarðadeildin var stofnuð á
þrettándu öld og hafa allir lá-
varðar landsins rétt til setu i
henni og eru ekki kjörnir. thalds-
menn eru þar alltaf i meirihluta
og veldur það rikíSstjórn Verka-
mannaflokksins miklum vand-
ræðum um þessar mundir, þar eð
lávarðadeildin beitir aðstöðu
sinni til að hindra samþykkt
frumvarpa um þjóðnýtingu og
fleira.semstjórnin eraðreyna að
koma i gegnum þingið og ætlar
með þvi að tryggja sér stuðning
verkalýðssamtakanna. Þar á
meðal er um að ræða frumvarp
um atvinnutryggingu fyrir
hafnarverkamenn. Einnig reyna
lávarðarnir að sjá til þess að
gróðravænlegar skipaviðgerða-
stöðvarséu teknar út af lista flug-
véla- og skipasmiðaiðnaðarins,
sem stjórnin hyggst þjóðnýta.
íhaldsmenn kalla þessi frumvörp
rikisstjórnarinnar „öfgafullan
sósialisma.”
Neto sakar
Suður-Afríku
um íhlutun
LUNDtJNUM 12/11 — Agostinho
Neto, forseti Angólu, sakaði
stjórn Suður-Afriku um það i dag
að ástunda ásælni á angólsku
landi og að skipuleggja skæruár-
ásir inn I Angólu. Hann sagði enn-
fremur að Angóla fyrirhugaði
ekki að senda her inn i Namiblu
(Suðvestur-Afriku).
P.W. Botha, varnarmálaráð-
herra Suður-Afriku, sagöi i gær
að Suður-Afrika myndi snúast til
gagnsóknar af öllu afli ef ang-
ólskar hersveitir réöust inn i
Namibiu. Taldi Neto að þessar
hótanir stöfuðu af þvi að suður-
afriskir valdhafar hefðu ruglast i
riminu vegna stuönings Angólu
við SWAPO, sjálfstæöishreyfingu
Namibiu. Ennfremur er haft eftir
Neto að suðurafriska stjórnin noti
hjálp Kúbu og Sovétrlkjanna við
Angólu sem átyllu til aö senda
vopnaöa flokka „undir forustu is-
raelsmanna’* inn i landið.
PARÍS 12/11 —• Fulltrúar Banda-
rikjanna og Vletnams hófu i dag
formlegar viðræður með það fyrir
augum að koma á eðlilegu stjórn-
málasambandi milli rikjanna.
Aðalatriðin i viðræðunum eru sú
krafa Bandarikjanna að viet-
namar geri grein fyrir örlögum
um 770 bandariskra hermanna.
TÖKÍÓ 12/11 Reuter —
Sovéska þotan af gerðinni
Mig-25 sem flogið var til
Hakódate i Norður-Japan á
dögunum, hefur nú verið
flutt til hafnarinnar Hitatsji i
sem skráðir eru týndir eftir Víet-
namstriðið, og krafa Vietnams
um tæknilega aðstoð Bandarikj-
anna sem bætur fyrir eyðilegg-
inguna, sem Bandarlkjaher olli I
landinu.
Bandarikin segjast viljug til að
veita umrædda aðstoð en gera
frekari upplýsingar um hina
þrettán pörtuni, en þaðan á
að flytja hana sjóleiðis til
Sovétrikjanna. Embættis-
menn og sérfræðingar flug-
herja Bandarikjanna og
Japans hafa kynnt sér flug-
vélina mjög vandlega.
týndu hermenn að skilyrði fyrir
aðstoðinni, svo og þvi að þau taki
upp stjórnmálasamband við Viét-
nam. Samkvæmt fréttum frá
Sameinuðu þjóðunum hyggjast
Bandarikin enn beita neitunar-
valdi i öryggisráðinu gegn þvi að
Vietnam fái aðild að Sameinuðu
þjóðunum, en það hafa þau þegar
gert tvívegis.
Viðræðurnar fara fram i villu i
útborginni Neuilly-sur-Seine, sem
var áður aðsetursstaður sendi-
nefndar Þjóðfrelsishreyfingar
Suður-Vietnams i Frakklandi.
Gert er ráð fyrir að þær taki
langan tima og er haft eftir
bandariskum sendiráðsmönnum
að ekki sé þess að vænta að neitt
þoki áleiðis I þeim fyrr en Jimmy
Carter flytur i Hvita húsið, en það
gerir hann 20. jan. n.k.
Enrico Berlinguer, leiðtogi
italskra kommúnista — I annað
sinn bjargaði flokkur hans lifi
rikisstjórnarinnar.
Kommúnistar
og sósíalistar
bjarga stjórn
Andreottis
RÓM 12/11 Reuter— Minnihluta-
stjórn kristilegra demókrata
undir forystu Giulios Andreotti
hélt velli á þingi i dag er atkvæði
voru greidd um traustyfirlýsingu
stjórninni til handa. Fékk stjórnin
249 atkv., 37 voru á móti en 267
sátu hjá.
Bjargaði þessi mikla hjáseta
llfi stjórnarinnar og stóðu að
henni einkum flokkar kommún-
ista og sósialista. Talsmenn
flokka þessara beggja lýstu yfir
meiri eða minni óánægju með
efnahagsráðstafanir stjórnar-
innar, en kváöust láta hjá liöa að
greiða atkvæði gegn henni með
tilliti til þjóðarhags og sérstakra
kringumstæðna.
Ráðstafanir stjórnarinnar, sem
hún telur að séu óhjákvæmilegar
til að stöðva verðbólguna, sem nú
nemur 18% á ársgrundvelli, eru
meðal annars þær að hækkað er
verð á olíu, rafmagni, póst- og
simaþjónustu. Þetta er i annað
sinn, sem kommúnistar og sósia-
listar gefa stjórn Andreottis lif
með hjásetu; i fyrsta sinn gerðist
það i ágúst s.l.
Svíþjóð:
Umdeilt ritfrelsis-
fmmvarp samþykkt
LUNDI 12/11 frá Gisla Gunn-
arssyni, fréttaritara Þjóðvilj-
ans.
í fyrradag var samþykkt I
sænska þinginu mjög umdeilt
frumvarp um rit- og prentfrelsi
og greiddu þingmenn Vinstri-
flokksins-kommúnista (VPK)
einir atkvæði gegn þvi, en all-
margir þingmenn sátu hjá.
Frumvarpið var upphaflega
lagt fram af rikisstjórn sósial-
demókrata og voru allir stjórn-
málaflokkar þvi i fyrstu sam-
mála og einnig höfðu félög
blaðamanna, rithöfunda, blaða-
eigenda og bókaútgefanda lýst
yfir samþykki sinu við það.
Hinsvegar jókst andstaða gegn
frumvarpinu eftir þvi sem á leið
og bent var á neikvæðar hliðar
þess. Kom svo um siðir að VPK
skipti um afstöðu og snerist
gegn frumvarpinu og hið sama
hafa .samtök prentara gert, en
þau eru róttækust allra sænskra
verkalýðsfélaga. Rithöfundar
og blaðamenn gerast einnig
stöðugt meir á báðum áttum um
gildi frumvarpsins.
I umræðunum benti einn
þingmanna Vinstriflokksins-
kommúnista, Jörn Svensson,
sem er i frjálslyndari armi
flokksins á fimm neikvæðar
hliðar frumvarpsins en tók að
visu fram að það hefði einnig já-
kvæðar hliðar. Það atriði frum-
gegn vaxandi
andstöðu
vinstrimanna
og frjálslyndra
varpsins, sem flestum mun lit-
ast verst á, er að samkvæmt þvi
er sérstökum embættismanni,
justikansler, sem er einskonar
einkalögfræðingur rlkisvalds-
ins, falið aö ákveða hvort höfða
skuli mál gegn blaði, sem hefur
gerst sekt um subbuleg skrif
gegn yfirvöldum að dómi þeirra
sjálfra, en áður þurfti úrskurð
dómsmáiaráðherra til slikrar
málshöfðunar. Það sem mesta
andstöðu hefur vakið við þessa
grein frumvarpsins og jafn-
framt frumvarpið i heild er aö
núverandi justikansler, Ingvar
GullnSs, er mjög óvinsæll meðal
vinstrisinnaðra og frjálsiyndra
manna almennt. Að dómi þeirra
á hann að baki næsta vafa-
saman feril og eftir honum eru
meðal annars höfð ummæli eins
og þau, að prentfrelsið komist i
hættu ef yfirvöld láti hvers-
konar „óábyrgum ’’ mönnum
liðast að birta hverskonar „ó-
ábyrg” skrif, þar eð slikt muni
verða óvinsælt hjá „ábyrgum”
borgurum. Tortryggnin gegn
GullnSs er slik að dómsmála-
ráðherra fann sig knúðan til að
heita þvi að bera undir rikis-
stjórnina ef til þess kæmi að
þessu atriði laganna yrði beitt.
Þá er það umdeilt atriði i
frumvarpinu að samkvæmt þvi
getur fyrrnefndur embættis-
maður fyrirskipað lögreglunni
að gera blöð og heimildir upp-
tækar og fjalli dómstóll um það
eftir á, en áður þurfti úrskurð
dómstól eða rikisstjórnar til
slikra lögregluaðgerða. Enn má
nefna að ef blöð hegða sér illa að
dómi yfirvalda, er nú e.’:ki ein-
ungis^. hægt að lögsækja
ábyrgðarmenn þeirra, heldur
og alla sem hlut eiga að máli i
sambandi við blaðið, meira að
segja er hægt að lögsækja
prentara fyrir að prenta subbu-
leg skrif. Þannig er hinu opin-
bera ákæruvaldi gefin heimild
til að velja úr stórum hópi
manna þann eða þá sem það vill
lögsækja. Þá hefur verið rýmk-
uð heimild rikisvaldsins til að
gera upptækt það, sem það
álitur að sé til skaða fyrir öryggi
rikisins, og þurfa þá ekki
njósnirfyrirerlend riki að koma
til. Hefði þetta atriöi verið i gildi
Lars Werner, leiðtogi Vinstri-
flokksins-kommúnista. Flokkur
hans tók upphaflega afstöðu
með frumvarpinu, en snerist
siðan gegn því.
þegar blaðið FIB-Kulturfront
ljóstraði upp IB-hneykslinu um
árið, hefði samkvæmt þvi verið
hægt aö gera blaðið upptækt
eins og það lagði sig.
Það sem einkum olli þvi að
frumvarpið fékk svo mikið fylgi
i upphafi mun hafa verið að
samkvæmt þvi eru almenn á-
kvæði um ritfrelsi og prentfrelsi
skýlausari en áður var.
Frumvarp þetta er upphaf-
lega tilkomið vegna IB-málsins.
1 þvi var FIB-Kulturfront dæmt
samkvæmt lagagrein, sem sett
haföi verið inn i lögin í allt
öðrum tilgangi og þótti sú máls-
meðferð, sem Ingvar GullnSs
átti hlut að, svo hneykslanleg
að jafnvel hægrisinnaðir lög-
fræöingar mótmæltu. Varö
þetta til þess aö umrædd laga-
grein var felld úr gildi og taldi
þá rikisstjórnin þörf á nýrri lög-
gjöf um þessi mál.
Mig-25-þotan send heim