Þjóðviljinn - 30.03.1985, Qupperneq 6
ÍÞRÖTHR
Helgar-
sportid
Fimleikar
íslandsmeistaramótið 1985 verður
haldið í Laugardalshöll í dag og á
morgun. Keppni hefst kl. 14 báða
dagana. f dag verður keppt í frjálsum
æfingum - fjölþraut, en á morgun eru
úrslit á einstökum áhöldum. Meðal
keppenda verða unglingameistararn-
ir ’85, Hanna Lóa Friðjónsdóttir og
Arnór Diego Hjálmarsson, fslands-
meistararnir ’84, Hulda Ólafsdóttir
og Davíð Ingason, Kristín Gísladóttir
sem var fslandsmeistari 1983, Guð-
jón Gíslason sem var unglingam-
eistari 1984 og Atli Thorarensen sem
kemur frá Svíþjóð til að taka þátt í
mótinu.
Júdó
Kraftlyftingar
íslandsmót hins nýstofnaða
kraftlyftingasambands fer fram í
Garðaskóla í Garðabæ i dag og hefst
kl. 10 með keppni í 67,5 kg, 75 kg og
82,5 kg flokkum. Þar eru meðal kepp-
enda Kári Elísson og Halldór Eyþórs-
son. Kl. 13 hefst keppni í kvenna-
flokkum en alls eru 11 konur meðal
37 keppenda. Kl. 15 hefst síðan
keppni í þyngstu flokkunum. Par eru
samankomnir kraftajötnar á borð við
Jón Pál Sigmarsson, Torfa Ólafsson,
Hjalta Árnason, Víking Traustason
og Hörð Magnússon.
Sveitakeppni drengja fer fram í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í dag
og hefst kl. 15. Þetta er síðasta mót
vetrarins hér heima.
Skíði
Öldungamót
göngu „öðlinga”
um helgina.
alpagreinum og
fer fram á ísafirði
Knattspyrna
Fylkir og Víkingur mætast á
Reykjavíkurmótínu kl. 14 í dag á
gervigrasinu í Laugardal. Annað
kvöld leika síðan Fram og Þróttur kl.
20.30.
„Svona gerum við í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar þegar við mætum ofjörlum
okkar í handknattleik". Sveinn Bragason sýnir dolföllnum Basic, markverði
Sabac, létta gólfæfingu með knött. Kuzmanovski, Vukovic og Jón Erling Ragn-
arsson flygjast með. Mynd: E.ÓI.
Evrópukeppni
Algerir ofjarlar
Sabac stakk afíseinni hálfleik og vann FH 30-21 í Höllinni.
Snilldarfléttur júgóslavnesku meistaranna
Víkingar leika síðari leik sinn við Barcelona í undanúrslitum Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik í dag. Leikið er í Barcelona, og eftir hin frækna sigur
Víkinga í Höllinni um síðustu helgi, 20-13, eru þeir hársbreidd frá sjálfum
úrslitaleiknum í keppninni. Vonandi verður spænski þjálfarinn í svipuðu skapi í
dag og hann var um síðustu helgi þegar E.ÓI tók þessa mynd af honum.
„Metalo Plastica, Metalo Plast-
ica“, kyrjaði dyggur stuðnings-
maður júgóslavnesku meista-
ranna Metaloplastica Sabac ró-
lega en reglubundið - milli þess
sem hann staupaði sig á tappa úr
koníaksflösku. Af og til kom
„bravó“ - þegar átrúnaðargoðin
sýndu eitthvað snjallt - sem þau
gerðu oft í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Islandsmeistarar FH
voru óralangt frá því að vinna
upp 15 marka tap úr fyrri
leiknum - þegar upp var staðið
hafði Sabac unnið öruggan sigur,
30-21 - ótrúlega fyrirhafnarlítið.
Liðið leikur á ný til úrslita um
Evrópubikarinn - á öðru var vart
hætta eftir fyrri leikinn, en FH-
ingar eiga hrós skilið fyrir
frammistöðu sína í keppninni í
vetur - þeir hittu einfaldlega fyrir
algera ofjarla sína í undanúrslit-
unum.
Hafnfirðingarnir voru þó
greinilega ákveðnir í að selja sig
dýrt. Þeir héngu í júgóslavnesku
snillingunum allan fyrri hálf-
leikinn, jafnt var á flestöllum
tölum uppað 10-10. FH yfir 1-0,
3- 2 og 9-8, á milli komst Sabac í
4- 6 sem var mesti munur fyrstu 29
mínúturnar. En í kjölfar furðu-
legra brottrekstra FH-inga á lok-
amínútu hálfleiksins komst Sabac
í 10-13.
FH barðist áfram, skoraði tvö
fyrstu mörk seinni hálfleiks og
síðan stóð 13-14, en þá var það
búið. Sabac tók á öllu sínu (að
vísu er erfitt að sjá einhver tak-
mörk á þeirra getu) og komst í
19-13. Þarmeð var engin keppni
lengur, Júgóslavarnir sýndu
hverja snilldarfléttuna á fætur
annarri og síðustu mínúturnar
léku bæði lið með skiptimennina í
aðalhlutverkum. Ixakovic, sá
ótrúlegi hornamaður, var meira
að segja farinn að spjalla við júg-
óslavneska útvarpsmanninn í
beinni útsendingu þremur mínút-
um fyrir leikslok!
Já, tilraunir FH-inga voru
kæfðar í fæðingu. Öflug vörn Sa-
bac klippti á skytturnar og gerði
allan sóknarleik vandræðalegan.
Best gekk að prjóna sig í gegnum
horn og línu, þar var Jón Erling
Ragnarsson í aðalhlutverki og
Þorgils Óttar Mathiesen einnig
framan af. Jón Erling og Sverrir
Kristinsson markvörður komust
best FH-inga frá leiknum og
Kristján Arason stóð fyrir sínu,
gekk illa að komast áleiðis sjálf-
um en átti margar góðar sending-
ar sem gáfu mörk.
Um lið Sabac dugir eitt orð -
stórkostlegt! Það leikur líkast til
betur en júgóslavneska landslið-
ið, enda með 8 landsliðsmenn,
Ólympíumeistara, innanborðs.
Mörk FH: Kristján 4 (1v), Hans Guö-
mundsson 4, Þorgils Óttar 3, Jón Erling 3,
Valgaröur Valgarösson 2, Guðjón Guö-
mundsson 2 (1 v), Guöjón Árnason 2 og
Sigþór Jóhannesson 1.
Mörk Sabac: Vujovic 8 (2v), Isakovic 7
(1 v), Mrkonja 5 (1v), Portner 2, Vukovic 2,
Kuxmanovski 1, Ignjatovic 1 og Cvetkovic
1.
Dönsku dómararnir Wölkh og
Mortensen dæmdu þokkalega.
Handbolti
KA í 1. deild
Fylgir Framupp. PórAk. fallinn. Þór
Ve. vann Stjörnuna í Eyjum.
KA tryggði sér í gærkvöldi sæti
í 1. deild karla í handknattleik
með því að sigra HK 18-17 í úr-
slitum efri hluta 2. deildar sem
leikinn er í Hafnarfirði nú um
helgina. Fram og KA leika því í 1.
deild að ári - en á meðan tapaði
hitt Akureyraliðið, Þór, fyrir Ár-
manni í fallkeppninni í Selja-
skóla, 31-22, og er fallinn í 3.
deild.
Úrslit í gærkvöldi, en þá var
leikin fyrsta umferð af þremur í
síðari hluta úrslitakeppninnar í
neðri hluta 1. deildar, 2. og 3.
deild karla:
1. deild-neðri hluti
Stjarnan-Þór Ve...............20-22
Þróttur-Breiöablik............36-33
Þór getur enn haldið sér uppi á
kostnað Stjörnunnar eftir sigur í
hörkuleik. Þróttur hefur 19 stig,
Stjarnan 15, Þór V. 12 og Breiða-
blik 3 stig. Leikið er í
Vestmannaeyjum.
2. deild-efri hluti
KA-HK.........................18-17
Fram-Haukar...................21-21
Fram og KA eru þá með 29 stig
hvort, HK 22 og Haukar 16 stig.
2. deild-neðri hluti:
Fylkir-Grótta.................22-20
ÁRmann-ÞórAk..................31-22
Ármann hefur 16 stig, Grótta
13, Fylkir 12 og Þór Ak. 7 stig.
Leikið er í Seljaskóla í Reykja-
vík.
3. deild
IR-Týr........................20-16
Atturelding-lA................24-21
Afturelding 7 stig, ÍR 5, ÍA 4
en Týr ekkert. Leikið er í Selja-
skóla.
-VS
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN