Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2000, Síða 52
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
/
60
Tilvera
DV
Við viljum - við getum!
Hljómsveitarstarf byggt
á bjartsýni
Thorshov skoles Musikkorps
frá Noregi hefur
starfaö í 28 ár.
Lúðrasveitin Thorshov
skoles Musikkörps heldur
tónleika ásamt hljómsveit-
inni Pluto í dag og á morgun
í Ráðhúsi Reykjavíkur kl.
15-17. Fyrst flytur Thorshov
skoles Musikkorps fjöl-
breytta dagskrá en síðan
leikur hljómsveitin Plútó
fyrir dansi.
Allir eru velkomnir i ráð-
húsið til að hlusta á þetta
frábæra tónlistarfólk sem
hefur að einkunnarorðum
Við viljum - við getum!
Aögangur að tónleikum í
ráðhúsinu er ókeypis.
Dagana 27. september til 4.
október er stödd hér á landi
lúðrasveitin Thorshov skoles
Musikkorps frá Noregi. Lúðra-
sveitin er skipuð 70 þroskaheft-
um hljóðfæraleikurum á aldrin-
um 10-40 ára.
Thorshov skoles Musikkorps
er fyrsta lúðrasveitin sem ein-
göngu er skipuð fötluðum hljóð-
færaleikurum. Hún hefur haldið
hljómleika víða og er vel þekkt i
Evrópu. Sveitin hefur oft komið
fram með lúðrasveitum atvinnu-
manna sem þurfa þá að vinna
með sveitinni á hennar forsend-
um með því að tileinka sér
merkjakerfi sveitarinnar. Að
sögn stjómanda lúðrasveitarinn-
ar fer þar fram aðlögun ófatlaðra
að fötluðum eða nokkurs konar
öfug blöndun.
Hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra
starfar danshljómsveitin Plútó.
Hún hefur leikið víða hér álaridi
og farið í hljómleikaferð rn’.a. til
Danmerkur. Plútó kemur fram
sem gestgjafi lúðrasveitarinnar
meðan á íslandsdvölinni stend-
Danshljómsveit
Plútó hefur leikið víöa hér á landi og fariö í hljómleikaferö m.a. til Danmerkur.
Harold Pinter sjötugur:
Afmælis-
veislan í
beinni
Þann 10. október
næstkomandi fagn-
ar eitt merkasta
leikskáld okkar
tíma, Harold Pint-
er, sjötugsafmæli
sínu. Af því tilefni
mun eitt af hans
fyrstu verkum, Af-
mælisveislan,
verða leiklesið á
Stóra sviði Borgar-
leikhússins næst-
komandi sunnudag, 1. október kl. 14.
Afmælisveislan er samvinnuverkefni
Borgarleikhússins og Útvarpsleikhúss-
ins og verður flutningurinn sendur út
beint á Rás 1. Hér er því komið einstakt
tækifæri fyrir fólk sem hefur dreymt um
að fylgjást með framkvæmd og útsend-
ingu útvarpsleikrits. Það er Lárus Ýmir
Óskarsson sem leikstýrir en leikarar eru
Gísli Alfreðssori, Gísli Rúnar Jónsson,
Hjalti Rögnvaldsson, Katla Margrét Þor-
geirsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Ólafur
Darri Ólafsson.
Harold Pinter fæddist í verkamanna-
hverfi í East End í London og fékk leik-
listaráhuga strax i skóla þar sem hann
lék m.a. Macbeth og Rómeó. Eftir leik-
listarnám í RADA starfaði hann í nokk-
ur ár sem leikari, einna helst i Shakespe-
are-sýningum en 1957 skrifaði hann
fyrsta leikrit sitt, Herbergið, eftir pöntun
leiklistarnema við háskólann í Bristol.
Eftir hann liggur fjöldi leikverka, meðal
þeirra þekktustu eru Húsvörðurinn,
Heimkoman, Afmælisveislan og Tungl-
skin. í tilefni afmælisins verður síðar í
mánuðinum sérstakt kvöld til heiðurs
Pinter í Borgarleikhúsinu.