Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2002, Page 4
Fréttir
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002
DV
Sjómannadagsráð auglýsir leiguíbúðir í Hafnarfirði:
Aðeins fyrir kvótakónga
og toppskipstjóra
- segir sjómaður á eftirlaunum. Vöxtum að kenna, segir framkvæmdastjóri
Dýrar íbúöir
Þaö mun kosta ellilífeyrisþega allt aö 145 þúsund krónur á mánuöi aö Þúa í
þessum leiguíÞúöum sem veriö er aö Ijúka viö i Hafnarfiröi. Aö auki þurfa
leigutakarnir aö greiöa afnotarétt sem er allt aö 7,3 milljónir króna.
„Það er ekki fyrir aðra en kvóta-
kónga eða toppskipstjóra að standa
undir kaupum á þessum íbúðum," seg-
ir Einar Grétar
Bjömsson, 73 ára
fyrrverandi háseti
og matsveinn, sem
ætlaði að sækja
um leiguíbúð í fjöl-
býli sem er að risa
í Hafnarfirði.
Hann hugsaði
sér gott til glóðar-
innar og sótti um
leiguíbúð sem Sjó-
mannadagsráð í Reykjavík og Hafnar-
flrði er með í byggingu í Hafharfírði í
nafni Naustavarar. Einar Grétar, sem
sjálfur er varamaður í Sjómannadags-
ráði, hafði hugsað sér að eiga þar
áhyggjulaust ævikvöld í skjóli Hrafn-
istu. Þegar hann sá verðskrána vegna
íbúðanna sagðist hann hafa orðið
þrumu lostinn því tveggja herbergja
íhúð kosti 73 þúsund krónur á mánuði
auk þess að leigutaki verði að greiða
rétt tæpar 4 milljónir króna i afnota-
rétt. Vilji fólk hafa aðgang að bíla-
geymslu kostar það rúmar 13 þúsund
krónur til viðbótar. Samtals sé því leig-
an 86 þúsund krónur á mánuði. Sjálfúr
hafi hann til ráðstöfunar 70 þúsund
krónur á mánuði þegar talin séu eftir-
laun úr lífeyrissjóði og ellOaun.
„Þetta boðar ekki annað en áhyggju-
fullt ævikvöld. Ég á því ekki einu sirmi
fyrir leigugjaldinu fyrir utan það að
þurfa að eiga fyrir neyslu. Þetta er því
ekki hægt og ég er hættur viö en skil
ekki fyrir hveija er verið að byggja.
Þeir gera sér enga grein fyrir þvi hvað
eldra fólk hefur til ráðstöfúnar. Sjálfir
eru þeir sem ráða ferðinni með mörg
hundruð þúsund krónur á mánuði,"
segir hann.
íbúðimar sem Naustavör auglýsir
til umsóknar fyrir sjómenn á eftirlaun-
um era frá því að vera tveggja her-
bergja, 65,5 fermetra og upp í að vera
113 fermetrar. Dýrustu íbúðimar með
bílastæði kosta þá sem leigja 145 þús-
und krónur á mánuði. Þar þurfa íbúar
að auki að greiða 7,3 milljónir króna í
afhotarétt. Einar Grétar segist hafa
fengið viðbrögð annarra sjómanna
vegna þessa.
„Þetta er ekkert annað en okur að
mati manna. Þessir menn hljóta að
standa í þeirri meiningu að við eldri
borgarar séum almennt í stjóm Sim-
ans eða Strætó," segir hann.
Ásgeir Ingvarsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannadagsráðs, segir kostn-
aðinn vera vegna þess hve vextir séu
háir i landinu og byggingarkostnaður
þess vegna hár. Hann segir að íbúðim-
ar séu ekki eingöngu ætlaðar sjómönn-
um á eftirlaunum en þeir hafi þó hugs-
anlega ákveðinn forgang.
„Við erum að hyggja fyrir alla þá
sem era 60 ára og eldri. Fermetraverð-
ið er í meðallagi en svona er bygging-
arkostnaðurinn í dag,“ segir Ásgeir og
bendir á að fermetratala íbúðanna segi
ekki allt þar sem tveir samkomusalir
séu í húsinu auk lyftu.
Aðspurður hvort eðlilega hafi verið
staðið að framkvæmdunum segir Ás-
geir aðhald hafa verið varðandi fram-
kvæmdfrnar. Hann staðfesti þó að
framkvæmdimar hafi ekki verið boðn-
ar út.
„Við sömdum við fyrirtækið Hús-
virki sem áður hafði byggt fýrir okkur.
Þeir samningar vora að visu gerðir
þegar svakaleg þensla var á byggingar-
markaði. Þetta hefur komið vel út,“
segir Ásgeir. -rt
Einar Grétar
Björnsson.
Mislæg gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar
Verkiö er á áætlun og mannvirkiö á aö vera tilóúö til notkunar 1. júlí.
Mislæg gatnamót á Vesturlandsvegi:
Umferö hleypt á
mannvirkið 1. iúlí
- samkvæmt aætlun, segir Jonas Snæbjörnsson
1 haust fór vinna við gerð mislægra
gatnamóta Víkurvegar og Vesturlands-
vegar í fuilan gang. Uppsteypu brúar
lauk fyrir áramótin en samkvæmt
verksamningi er ráðgert að hleypa um-
ferð á mannvirkið 1. júlí nk.
Það era verktakafýrirtækin Svein-
bjöm Sigurðsson ehf. og Jarðvélar sf.
sem vinna verkið. Samkvæmt samn-
ingi sem undirritaður var sl. sumar á
það að kosta 390.741.000 krónur. Er það
fýrir utan hönnunarkostnað og eftirlit
Vegagerðin ráðgerir að í heild kosti
þessi gatnamót fullbúin um 450 milljón-
ir króna. Framkvæmdin er hins vegar
samvinnuverkefiii Vegagerðarinnar og
Reykjavíkurborgar. Mun Vegagerðin
greiða um 60% af kostnaðinum en
Reykjavíkurborg um 40%.
Brúin sem þama um ræðir á að
tengja saman Víkurveg úr Grafarvogs-
hverfmu og Reynisvatnsveg sem liggur
yfir í nýja Grafarholtshverfið. Þá verða
einnig gerðar afreinar og aðreinar með
slaufúm og tengibrautum sem og und-
irgöng fýrir gangandi umferð.
Að sögn Jónasar Snæbjömssonar hjá
Vegagerðinnni er verkið allt samkvæmt
áætlun en þó heldur á undan áætlun ef
eitthvað er þrátt fýrir tafir í haust. HKr.
Finnur Ingólfsson, formaður viðræðunefndar um álver á Austurlandi:
Arðbært verkefni sem ætti
að vekja áhuga fjárfesta
- en reynslan sýnir að ekkert er í höfn fyrr en við undirritun
„Mér líst ágætlega á að taka við
þessu. Ég tel mjög mikilvægt að
hægt verði að byggja upp stóriðju á
Austurlandi sem nýti raforkuna úr
Kárahnjúkavirkjun og er tfibúinn
að leggja mitt af mörkum til þess aö
svo geti oröið," segir Finnur Ingólfs-
son, seðlabankastjóri og fyrrverandi
iðnaðarráðherra, en hann hefur ver-
ið skipaður formaður viðræðu-
nefndar sem ætlað er að hefja könn-
unarviðræður við nýja fjárfesta í
fyrirhuguðu álveri í Reyðarfirði.
Finnur treystir sér ekki til þess
að meta líkumar á að samningar
takist um verkefnið. „Sagan sýnir
okkur að samningar um stóriöju
eru aldrei i hendi fyrr en búið er að
undirrita þá. Þaö hefur hins vegar
verið unnið mikið að þessu, verk-
efnið er orðið tiltölulega vel skil-
greint og ég vona að fyrir-
tæki sem eru að velta fyrir
sér fjárfestingu í áliðnaðin-
um sýni því áhuga. Þaö er
enginn vafi á að þama er
um mjög arðbært verkefni
að ræða. Hvers vegna
skyldu slík fyrirtæki ekki
hafa áhuga á að taka þátt í
arðbæru verkefni?" Finnur
ítrekar þó að samningar séu
ekki í hendi fyrr en við undirritun;
framtíðin verði að skera úr um
hvort árangur næst.
„En þessi álheimur er tiltölulega
lítill. Það vita mjög margir af þessu
verkefni og þeim undirbúningi sem
hér hefur verið í gangi. Ég á von á
að erlendir fjárfestar sýni málinu
áhuga og setji sig í samband við
okkur. Og við setjum okkur vitan-
lega í samband við þá sem
við vitum að hafa áhuga til
þess að kanna hvort flötur
sé á samstarfi,“ segir Finn-
ur.
Sem kunnugt er hefur
Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra nefnt fjögur
fyrirtæki sem helst komi til
greina sem nýir fjárfestar í
álveri fyrir austan. Finnur
segir að þetta séu allt stórfyrirtæki
sem gætu komið sjálfstætt að verk-
efninu, óháð Noral-verkefninu. Sum
þeirra hefðu hins vegar jafnvel
áhuga á að koma aö verkefninu í
samstarfi við einhvem annan stór-
an aðila; nýjan fjárfesti eða jafnvel
Norsk Hydro ef svo ber undir.
Ekki er hægt að segja til um þaö
nú við hvem verður rætt fyrst. Hins
vegar liggur fyrir að eitt af því
fyrsta sem viðræðunefndin undir
forystu Finnst mun gera er að ræða
við íslensku fjárfestana sem ætluðu
að leggja fé í Noral-verkefnið. „Það
verður eitt af fyrstu verkefnunum.
Við þurfum að meta þessa nýju
stöðu meö íslensku fjárfestunum og
sjá hvar þeirra áhugi liggur núna,“
segir Finnur. Ekki er ljóst hvort eða
hve mikið forsendur fyrir verkefn-
inu breytast. „Það má vel vera að
einhver hafi áhuga á að koma að
Noral-verkefninu eins og þaö lítur
út í dag,“ segir Finnur. „En ef nýr
aðili kemur að þessu á breyttum
forsendum, til dæmis varöandi þá
tækni sem beitt yrði í bræðslunni
og fleira, er ljóst að hefja yrði samn-
ingaviðræður við hann alveg frá
grunni.“ -ÓTG
Rnnur
Ingólfsson.
Fyrsti leikurinn
Yljumshinov, forseti FIDE, leikur
fyrsta leiknum í einvígi Ruslan
Ponomariov og Chen Zhu.
Einvígi heimsmeistara:
Zhu sigraði Pono
Þau tíðindi gerðust í Dubai að
heimsmeistari kvenna í skák, Chen
Zhu frá Kína, sló út heimsmeistara
karla, Ruslan Ponomariov. Skákein-
vígi þeirra er ný keppni á vegum
FIDE og það verður að segjast að
þessi úrslit koma mjög á óvart. Sjálf-
sagt hefur verið mikill fógnuður í
Kínaveldi og víðar og að þessi við-
burður skuli gerast í arabalandi þar
sem réttindi kvenna era fótumtroðin
verður að segja að komi vel á vondan.
Þau tefldu tvær atskákir og Pono tap-
aði 0,5-1,5. Chen Zhu varð heims-
meistari kvenna um leið og Pono
vann sinn heimsmeistaratitil. -HK
VG í Kópavogi:
Óvíst um framboð
Vinstri hreyfingunni, grænu fram-
boði í Kópavogi hefúr enn ekki tekist
að koma saman lista til sveitarstjómar-
kosninga. Vinnuhópur hefur haldið
nokkra fundi en árangurs. Helsta
vandamálið er að Þórir Steingrímsson
rannsóknarlögreglumaður krefst þess
samkvæmt heimildum DV að fá fýrsta
sætið. Þetta vilja Hafsteinn Hjartarson
formaður og hópur sem honum fýlgir
að málum ekki fallast á en bjóða Þóri
annað sætið á listanum eða allt þar fýr-
ir neðan. Þeir sem formanninum fýlgja
að málum vilja fá Ólaf Þór Gunnarsson
lækni til að leiða listann. Síðast var
haldinn fundur í vinnuhópi vegna
framboðsins í fýrrakvöld þar sem deilt
var um málið. Hafsteinn formaður
staðfesti aðspurður að framboðsmál
væra í uppnámi.
„Það era mikil átök vegna framboðs-
mála og óvist að við komum saman
lista,“ segir Hafsteinn. -rt
Slasaðist illa í
Viðeyjarstofu
Karlmaður sem var að störfum á
þaki Viðeyjarstofu í gær slasaðist
illa þegar hann féll af þakinu og um
5 metra niður á stétt við húsiö.
Maðurinn rann fram af þakinu og
lenti á fótunum þegar hann kom
niður. Hann mun hafa fótbrotnað á
báðum fótum og einnig var talið að
hann hefði handleggsbrotnað.
Sjúkraflutningamenn úr Reykjavík
sóttu hann og fluttu hann sjóleiðina
til lands og á sjúkrahús. -gk
Reyndu innbrot
í ráðuneyti
Ungt par hugðist ráðast til inngöngu
í menntamálaráðuneytið við Ingólfs-
stræti skömmu eftir miðnætti í nótt og
hafði spennt upp glugga á húsinu þeg-
ar einhver styggð kom að því.
Vaktmenn í húsinu urðu varir við
innbrotstilraunina og létu lögreglu
vita. Hún var snögg á vettvang og hafði
hendur í hári parsins nærri ráðuneyt-
inu. Fólkið fekk að gista fangageymslu
í nótt og þurfti síðan að gefa skýringu
á gerðum sínum í morgun. -gk
Innheimtustofa
í gjaldþrot
Gjaldþrotaskiptum vegna Juris,
lögfræði- og innheimtustofu, er lok-
ið, að því er lýst er í Lögbirtingi.
Lögfræðistofan var úrskuröuð gjald-
þrota í maí árið 2000 og skiptastjóri
þá skipaður. Hann hefur nú lokið
skiptum en engar eignir fundust
upp í lýstar kröfur sem námu 55
milljónum auk vaxta og kostnaðar.
Rekstur lögfræðistofunnar hófst í
Hafnarfirði árið 1994 en er nú allur.