Dagblaðið - 17.09.1975, Page 7
Dagblaðiö. Miðvikudagur 17. september 1975.
7
Erlendar
f réttir
Pygmie-
vopn CIA
Bandariska ieyniþjónustan CIA
eyddi þremur milijónum dollara
og 18 árum til framleiðslu á ban-
vænu eitri og örsmáum vopnum á
borð við eitursprautandi penna.
„Pennunum” var ætlað að notast
til að skjóta eiturörvum i fórnar-
lömb, scm einkis áttu sér von.
Þetta kom ma. fram i yfir-
heyrslum yfir VVilIiam Colby, yf-
irmanni CIA, I Washington i gær.
Colby sagði, að 37 mismunandi
eiturtegundir hefðu fundizt i
rannsóknarstofu leyniþjónust-
unnar fyrr á þessu ári.
í yfirheyrslunum dró Colby upp
úr pússi sinu litinn, svartan
penna, knúinn rafhlöðum.
„Penni” þessi er fær um að
sprauta eitriogdrepa fórnarlamb
i 100 metra fjarlægðf'ieiri vopn af
svipuðu tagi eru til i vopnabúrum
leyniþjónustunnar og mun ekki
einsdæmi eða bundið við Banda-
rikin ein.
Utanaðkomandi öfl á bak
við uppreisnina á Tímor
segir ástralskur þingmaður
Ástralskur öldungadeildar-
þingmaður, sem átti fund með
leiðtogum Fretilin-hreyfingar-
innar á Austur-Timor i gær, sagð-
ist fullviss um, að upphaf átak-
anna á eynni hafi verið valda-
ránstilraun, sem stjórnað var ut-
an frá.
Þingmaðurinn, Arthur Gietzelt,
sagði að valdaránstilraunin, sem
kom af stað bardögum i portú-
gölsku nýlendunni, hafi ekki verið
„innlend tilraun”, jafnvel þótt
Alþýðufylkingin UDT hafi i upp-
hafi verið ásökuð um að hafa
staðið á bak við tilraunina.
Gietzelt kom til Dili á Timor i
gær ásamt tveimur kollegum sin-
um. Voru þingmennirnir i einka-
heimsókn til að kynna sér ástand-
iðaf eigin raun. Gietzelt ræddi i
einrúmi við forseta Fretilin,
Francisco Xavier do Amaral, og
tvo háttsetta félaga i miðstjórn
Fretilin i nærri tvo tima.
„Okkur voru sýnd skjöl, sem
tekin voru Ur opinberum hirzlum
eftir að Fretilin náði völdum,”
sagði þingmaðurinn. „Þau sýna,
að portUgalska stjórnin hér og
aðrir hagsmunahópar i Ástraliu
og Jakarta — auk viðskiptahópa i
Japan — hafi átt hlut að máli. öll
undirbUningsvinna og skipulag
virðist hafa verið i bezta lagi.”
Leiðtogar Fretilin hafa ævin-
lega haldið fram, að byltingar-
tilraunin 11. ágúst hafi komið
bardögum af stað á milli UDT og
Fretilin, enda hafi hinir fyrr-
nefndu rekið baráttu sina á and-
kommUniskum áróðri og móður-
sýki.___________________
Sjá grein
um ástandið
á Tímor
á bls. 9
Arqentína:
NÝI FORSETINN GERIR
SIG HEIMAKOMINN
Bráðabirgðaforseti
Argentinu, Italo Luder, hefur
hafizt handa við að gera breyt-
ingar á rikisstjórn landsins.
Virðist sem-aðgerðir hans miði
að þvi að hressa upp á ásjónu
stjórnarinnar eftir skelfileg
veikleika- og óvissumerki á
undanförnum mánuðum.
Aðeins þremur dögum eftir að
hann tók við embætti af Mariu
Estellu Peron, lét Luder nýjan
innanrikisráðherra og nýjan
varnarmálaráðherra sverja sér
embættiseiða.
Reuter hefur eftir háttsettum
heimildum i Buenos Aires, að
bráðabirgðaforsetinn hyggist
gera frekari breytingar á
stjórninni. Þykja afgerandi að-
gerðir hans benda til þess, að
hann verði annað og meira en
„bráðabirgðaforseti” á meðan
Peron endurheimtir andlega og
likamlega heilsu sina.
Þá hefur nýr yfirmaður her-
af lans verið skipaður og er hann
sagður þess albúinn að hefja
fullt strið við atkvæðamikla
skæruliðahópa i landinu. Hefur
hann lýst þvi yfir, að með „rétt-
um” aðferðum verði búið að
þurrka alla vinstrisinnaða öfga-
hópa út fyrir áramót.
Mikil óöld hefur verið rikjandi
i Argentinu að undanförnu og
hafa 443 verið myrtir af pólitisk-
um ástæðum það sem af er ár-
inu.
Dýr frá fornöld finnast íSíberfu
Sovézkir visindamenn
hafa fundið leifar af
mammút og mörgum
öðrum fornaldardýrum
frosnum i jörðu i Sibe-
riu. Segir i frétt frá Tass
í morgun, að svo virðist
sem dýrin séu i veiði-
gildru frá fornsöguleg-
um timum.
Israel biður stjórn USA
um langdrœgar eldflaugar
Varnarmálaráðherra
ísraels, Shimon Peres,
kom til Washington í morg-
un með langan innkaupa-
lista. Á listanum eru vopn
af ýmsu tagi, m.a. eld-
flaugar, sem hægt verður
að skjóta frá israel á
egypzkar borgir.
Ford forseti staðfesti í
gær, að ísrael hefði farið
fram á vopn af þessutagi.
Hann vildi ekki staðfesta,
að Bandaríkjastjórn hefði
lofað í sraelsmönnum
þessum vopnum, en minnti
á, að stjórn USA hefði til
þessa séð ísraelum fyrir
nýtízkulegum vopnum og
myndi gera það í framtíð-
inni.
Þá skýrði Kissinger ut-
anríkisráðherra frá því i
Orlando í Flórida i gær, að
Bandaríkjastjórn myndi
biðja þingið um allt að 2300
milljón dollara fjárveit-
ingu til efnahags- og hern-
aðaraðstoðar við Israel.
Hann sagði einnig, að
stjórn sín myndi styðja
samninga á milli ísraelsog
Sýrlands.
Shimon Peres (t.v.) fylgist með undirritun Slnalsamkomulagsins. t staöinn fengu tsraelsmenn loforð
Kissingers um umtalsverða efnahags- og hernaðaraðstoð.
12000 kommónistar
á fundi í Lissabon:
Hœgri menn koma
í veg fyrir
myndun stjórnar
— segir Cunhal
Portúgalski kommún-
istaleiðtoginn Alvaro
Cunhal sakaði hægriöflin
í landinu í gærkvöldi um
að koma í veg fyrir
myndun ríkisst jórnar
með þátttöku kommún-
ista.
í ávarpi til rúmlega
12.000 stuðningsmanna á
fundi í nautaatshringnum
i Lissabon varpaði Cun-
hal og fram þeirri spurn-
ingu, hvort hægriöflin í
landinu væru að reyna að
koma á rammri hægri
stjórn. Var gerður feiki-
lega góður rómur að máli
foringjans.
Þrátt fyrir að settur
forsætisráðherra
Portúgals, Azevedo, hafi
kynnt stefnu stjórnar
Æöstu yfirmenn stjórnmálahreyfingar portúgalska hersins á fundi. A
endanum spörkuðu þeir Goncalves, svo hægt væri aö mynda stjórn —
en það gengur ekki átakalaust.
sinnar á laugardaginn
var, hefur enn ekki tekizt
að mynda nýja ríkisstjórn
og er ekki gert ráð fyrir
að ráðherralisti verði
lagður fram í dag.
Ford Bandaríkjaforseti
sagði í gær í viðtaii við
bandaríska blaðið Chi-
cago Sun-Times, að
bandatíska leyniþjónust-
ah CIA hefði engin meiri-
háttar afskipti af þróun
mála i Portúgal. Sagði
forsetinn, að Portúgal
hefði nýlega skipt um
stefnu, tekið andkomm-
úníska stefnu vegna við-
vörunar sinnar á NATO-
fundi i maí, þess efnis að
Bandaríkjastjórn myndi
ekki líða kommúnista-
stjórn í Portúgal.