Dagblaðið - 17.09.1975, Síða 10
10
Dagblaöiö. Miövikudagur 17. september 1975.
BOLLI
HÉÐINSSON
. ----------------------------1
Útvarp kl. 17.30:
Smásaga eftir ein-
hvern fœrasta stílista
á enska tungu Evelyn Waugh
Sjónvarp kl. 21.15:
„SÚFFRAGETTUR"
KVEÐJA í KVÖLD
Siðasti þátturinn i hinum
ágæta framhaldsmyndaflokki
um baráttu „súffragettanna” i
Bretlandi um og upp úr alda-
mótum er á dagskrá sjónvarps-
ins I kvöld. A sjónvarpið mikla
þökk skilið fyrir flutning þess-
ara þátta sem hafa orðið sjón-
varpsáhorfendum hinn mesti
fróðleiksbrunnur. Þættirnir eru
framleiddir i Bretlandi i fyrra.
Má bæta þvi við að e.t.v. eigi vel
við að sýna þá núna „á kvenna-
ári”.
Við höfum fengið allgóða
mynd af baráttu kvennanna og
einnig hefur þetta að miklu leyti
verið frásögn af þeim atburðum
er skiptu sköpum i lifi þeirra
Pankhurstmæðgna, þó aðallega
frú Emmeline Pankhurst. Það
var einmitt fyrir tilstilli
Christabel dóttur hennar að hún
stofnaði WSUP (Women’s
Social and Political Union) i
október 1903.
Hún hafði áður starfað að
réttindamálum kvenna með
eiginmanni sinum, Richard
Marsden Pankhurst, er lézt
1898.
Myndin er af leikkonunni sem
leikið hefur Christabel Pank-
hurst i myndaflokknum „Sam-
an við stöndum.
—BH
Guðmundur Pálsson leikari
les smásöguna
„Morð í bígerð" í þýðingu
Ingólfs Pálmasonar
Evelyn Waugh eða Arthur
Evelyn St.John Waugh eins og
hann hét fullu nafni var fæddur
á útmánuðum árið 1903, kominn
af rithöfundum aftur i ættir
Hann ólst upp i Lundúnaborg
hvar hann var fæddur og sótti
menntun til Oxford.Hann starf-
aði að afloknu námi sem blaða-
maður og gaf út fyrstu skáld-
sögu sina 1927.
Um 1930 gerðist hann
kaþólikki (um svipað leyti og
Halldór Laxness) og skrifaði
svo seinna bækur i kaþólskum
anda.Hann hefur skrifað skáld-
sögur og smásögur með nokkuð
reglulegu millibili, og sagan
sem Guðmundur Pálsson leikari
les i þýðingu Ingólfs Pálmason-
ar er ein þeirra. Waugh hlaut
fjöldann allan af verðlaunum i
Bretlandi á rithöfundaferli sin-
um og a.m.k. ein bóka hans hef-
ur verið kvikmynduð, bráðfynd-
in bók „The loved one”, á is-
lenzku hét sú kvikmynd „Sá
heittelskaði”. Evelyn Waugh
lézt árið 1966.
^f^Sjónvarp
Miðvikudagur
17. september
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Alls konar hljómlist.
Þáttur með blönduðu
tónlistarefni. Meðal þátt-
dnn^)
Miðvikudagur
17. september
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 815 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Ingibjörg Jónsdóttir
byrjar lestur sögu sinnar „1
Bjöllubæ” Tilkynningar kl.
9.30. Létt lög á milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: Hel-
mut Walcha leikur orgel-
verk eftir Bach. Morguntón-
leikarkl. 11.00: Gary Graff-
man leikur á pianó Scherzo
nr. 2 i b-moll, Prblúdiu nr. 15
i Des-dúr, Prelúdiu nr. 24 i
d-moll og Ballötu nr. 1 I g-
moll eftir Chopin.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis”. Málfriður
Einarsdóttir þýddi. Nanna
Ölafsdóttir les (11).
15.00 Miödegistónleikar.Búda-
pest-kvartettinn leikur
Strengjakvartett op. 18 nr. 5
eftir Beethoven. Janet Bak-
er syngur lög eftir Debussy.
Gerald Moore leikur á
píanó. Mstislav Rostro-
povich og Benjamin Britten
leika á selló og pi'anó fimm
lög i þjóðlagastil eftir Schu-
mann.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjamadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
12 ára.
17.30 Smásaga: „Morö i bi-
gerö” eftir Evelyn Waugh,
Ingólfur Pálmason þýddi.
Guðmundur Pálsson leikari
les.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35. í sjónmáli. Skafti Harð-
arson og Steingrimur Ari
Arason sjá um þáttinn.
20.00 „Misa Criolla” eftir
Aricl Ramirez. Los
Fronterizos og Dómkórinn i
Del Socorro flytja ásamt
hljómsveit undir stjórri höf-
undar.
20.20 Sumarvakara. Þættir úr
hringferð. Hallgri'mur
Jónasson flytur annan
ferðaþátt sinn. b. Visna-
flokkur eftir Steingrim
Thorsteinsson og Þorstein
Erlingsson. Indriði Þ.
Þórðarson kveður. c. Miösel
Hallgrimur Jónsson frá
Ljárskógum segir frá. d.
Kórsöngur. Eddukórinn
syngur islenskt þjóðlög.
21.30 Otvarpssagan: „Ódám-
urinn” eftir John Gardner.
Þorsteinn Antonsson þýddi.
Þorsteinn frá Hamri les (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: ' „Rúbrúk” eftir Poul
Vad.Úlfur Hjörvar les þýð-
ingu sina (16).
22.35 Djassþáttur. Jón Múli
Arnason kynnir.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
takenda eru söngkonurnar
Monika Zetterlund og
Sylvia Lindenstrand, selló-
leikarinn Frans Helmersen
og hörpuleikarinn Sergio
Queras. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nord-
vision-Sænska sjónvarpið)
21.15 Saman við stöndum.
Bresk framhaldsmynd. 6.
þáttur. Sögulok. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir. Efni
5. þáttar: Sylvia fær þvi
framgengt, að kven-
réttindasamtökin opna
skrifstofu i East End og
veitir hún henni sjálf for-
stöðu. Lansbury, þing-
maður Verkamanna-
flokksins, segir sig úr flokki
sinum og berst harðlega
gegn þvi að Frjálslyndum
sé veittur nokkur stuðning-
ur, fyrr en sáttafrumvarpið
hafi verið samþykkt. Hann
býður sig fram utanflokka i
East End, en fellur.
Konurnar halda áfram
baráttu sinni, og loks er i
þinginu samþykkt
frumvarp um, að þeim kon-
um sé sleppt úr fangelsi um
tima, sem fara i hungur-
verkfall, og þannig látnar
afplána dóma sina i áföng-
um. í mótmælaskyni
ákveður ein úr hópi
kvennanna að fórna lifi
sinu fyrir málstaðinn. Hún
fleygir sér fyrir hest á
veðhlaupabraut og slasast
til ólifis.
22.30 Dagskrárlok.