Dagblaðið - 10.01.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980—8. TBI,.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMl 27022.
Flugleiðir fækka
enn ferðum á
N-Atiantshafsleiðinni:
Fella niður
Chicagoflug
í eina viku
Vegna sivaxandi rekstrarörðug-
leika Flugleiða á Norður-At-
lantshafsleiðinni hefur nú verið á-
kveðið að fækka ferðuni fram á vor,
frá þvi sem gert var ráð fyrir i upp-
haflegu vetraráætiuninni.
Skv. upplýsingum Sveins
Sæmundssonar, biaðafulltrúa
Flugleiða, tekur breytingin gildi um
miðjan þennan mánuð og verður í
gildi i 2 mánuði, eða fram i miðjan
marz. Er þetta langdaufasti
flutningatími á leiðinni, skv. reynslu
niargra undanfarinna ára.
i vetraráætluninni frá i haust var
gert ráð fyrir þrem ferðum til New
York um ísland vikulega og upp í
fimm ferðir, vissa álagsdaga. Nú
verða tvær ferðir, eða fækkun um
eina ferð.
Þá gerði upphaflega vetrar-
áætlunin ráð fyrir tveim ferðum um
ísland til Chicago, en þær verða cin
til tvær og alveg lagðar niður vikuna
4. til 10. febrúar.
Beina flugið yfir hafið verður
óbreytt frá þvi sem það var þegar það
hófst um miðjan des., si. eða tvær
ferðir í viku á milli Luxemburg og
Chicago og ein ferð á sömu leið með
viðkomu í Baitimore.
Að sögn Sveins nýta nú öll flug-
félög alla möguleika til að hækka
sætanýtingu sina. í þvi augnamiði
hafa Flugleiðir gripið til þess að
sameina tvö og tvö flug, ef nýtingar
horfur eru slæmar. Frá því að vetrar-
áætlunin hófst taldist honum til að 17
til 18 ferðir hafi verið felldar niður
rneð þeim hætti.
-GS.
TVEIR
HÆTTU
r _____r
ATY
— sem aftur er
kominn til
gæzlustarfa á hafinu
Varðskipið Týr hélt til hafs í gær-
morgun eftir að sr. Pétur Sigurgeirs-
son hafði annazt stutta helgiathöfn
um borð. Voru skipverjar óðum að
jafna sig eftir það áfall sem at-
burðirnir um borð á mánudaginn
ollu.
Tveir vikadrengir gáfust þó upp á
frekari skipsvist. Þeir höfðu orðið
vitni að atburðarásinni í göngum
skipsins eftir að hildarleiknum lauk i
eldhúsinu og annar átti ef til vill
fótum fjör að launa.
Síðdegis í gær komu þeir til
Reykjavíkur með Gæzluvélinni á-
samt Jóni Magnússyni lögfræðingi
Gæzlunnar. Hann vildi með engu
móti að við piltana yrðu höfð nokkur
orðask ipti.
Sjóprófum lauk í gær. Ásgeir
Pétur Ásgeirsson dómforseti mun nú
ganga frá gögnum málsins sem
eru orðin mörg og mikil og senda
saksóknara.
-A.St.
Ragnar H. Ragnarsson axlar pokann
sinn á flugvellinum í gærkvöld og
Þórir Bjartmar Harðarson, aðeins 16
ára gamall, hætti einnig. Þetta var
fyrsta ferð Þóris með Tý — en hún
mun áreiðanlega seint gleymast
honum. DB-mynd: Hörður.
Einstæður fundur í Svarfaðardal:
HLUON ARA GAMLAR B
IBFARINNAN í GOSBERGI
Lögreglan á s/óð r posthússráninu í Sandgerði?
Þjófurínn um rafmagns-
töflugatinn í pósthúsid?
— rannsóknarlögreglan krefst gæzluvarðhalds yfir íbúa á efrí hæð hússins
í fyrradag handtóku lögreglu- maður þessi yrði úrskurðaður í hússins þar sem pósthúsið í Sand- anum sú skoðun að pósthússræning- úr anddyri efri hæðar hússins inn í
menn, sem unnið hafa að rannsókn gæzluvarðhald til 30. janúar. Tók - 1 : 1“r: * l'"r* ,”t"1 "A "“*u"-* • -"r
pósthússránsins í Sandgerði, heima- dómarinn sér sólarhringsfrest til að
mann um tvitugt. í gær gerði Rann- skoða gögn málsins fyrir dómsupp-
sóknarlögregla ríkisins kröfu um það kvaðningu.
fyrir Sakadómi Gullbringusýslu að Þessi ungi maður býr á efri hæð
gerði er til húsa. Var hann tekinn
ásamt öðrum manni til yfirheyrslu
skömmu eftir pósthússránið en sleppt
síðan.
Fram hefur komið hjá póstmeistar-
inn hafi annaðhvort haft lykil að
pósthúsinu eða komizt þangað inn
með öðru móti.
Nú mun hafa komið í ljós við vett-
vangsrannsókn að hægt er að komast
pósthúsið um rafmagnstöflugat í
vegg. Er hugsanlegt talið að ræningi
pósthússfjárins hafi getað notfært sér
þessa leið.
- A.St.