Dagblaðið - 10.01.1980, Side 5
DAGBLAÐID. FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980.
Einstæður fundur í Svarfaðardal?
MILUONARA GAMLARBEINA-
LEIFARINNAN í GOSBERGl
— Furðulegt að bein geti lent innan í hrauni, segir Helgi Hallgrímsson náttúrufræðingur
á Akureyri
„Hér er um merkilegan fund að
ræða, það er óhætt að segja. Mér
virðist beinið úr spendýri, hval eða
sel. Það hefur komið upp með gosi á
sinum tíma,” sagði Helgi Hallgríms-
son náttúrufræðingur á Akureyri i
samtali við Dagblaðið.
Beinið sem hér um ræðir fannst í
Svarfaðardal í sumar og á sér líklega
sögu sem talin verður í milljónum
ára. Blaðið Norðurslóð, máigagn
Svarfdælinga, skýrir svo frá að
hjónin Aðalsteinn Óskarsson og
Sigrún Guðbrandsdóttir hafi verið
stödd hátt uppi í Grundargili í miðri
sveitinni. Þau sáu fallegan agat-
krystall í stórum steini og hugðust ná
honum lausum með hamri sem var
með í för.
Steinninn hrökk í sundur við
hamarshöggið og kom í ijós inni í
honum Ijósleitir, rauðkenndir hlutir
engu líkari en leifar beina úr
einhverju dýri.
Fundurinn er nú á Náttúrugripa-
safninu á Akureyri og bíður þess að
fróðir menn um steingervinga líti á
hann.
Reynist hér vera raunverulegar líf-
rænar leifar, sem lent hafa inni í gos-
bergi, eru þær margra milljóna ára
gamlar. Að finna slíkt og þvilíkt á
íslandi er einsdæmi.
„Það er furðulegt að bein geti
lent inni í hrauni eins og i þessu
tilfelli,” sagði Helgi Hallgrímsson.
„Hraunið hefur verndað beinið og kalk er horfið og það sem eftir er lik-
það er merkilega nýlegt að sjá. Allt ist einna helst froðuplasti.”
Einhvern tima hefur þetta mögulega verið hryggjarliður i sel eða hval.
Helgi sagði að í Surtsey hefðu Slikt hefði einnig fundist í Skamma-
fnndist skeljar innan í sandsteini. dalskömbum í Mýrdal. -ARH.
Beinaleifarnar i steinum eins og þær fundust f sumar. Einsdæmi er að finna
lifrænar leifar f gosbergi á íslandi.
Pönk, Þursar
og Kjarabót
— í tónlistarkokkteil á
Kampútseuhljómleikum
Pönkgrúppurnar Fræbblarnir og
Snillingarnir, Söngsveitin Kjarabót og
4/5 hlutar Þursaflokksins ásamt fleir-
um. Þannig er uppskriftin að tónlistar-
kokkteilnum sem blandaður verður og
fram borinn á tónleikum i Austur-
bæjarbíói laugardaginn 9. febrúar kl.
14.
Hljómleikarnir eru liður i hjálpar-
starfinu við bágstadda í Kampútseu.
Allir sem fram koma gefa vinnu sina.
Þá gefur Austurbæjarbíó eftir leigu og
starfsmenn biósins sina vinnu. Hljóm-
bær sér skemmtikröftum fyrir græjum
til að koma framleiðslu sinni áleiðis í
hlustir áheyrenda.
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur veg
og vanda af undirbúningi og fram-
kvæmd samkomunnar. Kynnir verður
Guðmundur Einarsson, framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunarinnar.
-ARH.
Samanburður á
efnahagstillögunum
Verðbólgan verður minni en kjara-
skerðingin meiri eftir því sem menn
færa sig niður þá töflu, sem hér fylgir.
Hún er samanburður á þeim leiðum í
efnahagsmálum, sem til umræðu eru i
stjórnarmyndunarviðræðunum.
Fyrst er tekin óbreytt stefna og síðan
leið Framsóknar, sem veldur minni
kjaraskerðingu en meiri verðbólgu en
leiðir hinna flokkanna. Yrði leið
Alþýðuflokks farin mundi verðbólga
enn minnka en kjaraskerðingin aukast.
Þá koma tvær hugmyndir, sem sjálf-
stæðismenn hafa sett fram og mundu
draga mest úr verðbólgunni en jafn-
framt auka kjaraskerðinguna miðað
við hinar tillögurnar. Annars vegar er
hjá sjállstæðismönnum sú hugmynd að
fresta ákveðnum visitölustigum til 1.
sept, hins vegar að taka visitöluna alveg
úr sambandi til 1. september DB hefur
áður greint nánar frá öllum þessum til-
lögum.
HH.
Verðb. 1980 Vcrðb. 1981 Rýrnun kaup- máttar Rýrnun ráðst. • tekna
• Óbreytt stefna 50% 50% 4,6% 3,6%
• Leið Framsóknar 38% 19% 5,2% 4,2%
• Leið Alþýðuflokks 34% 19% 7,2% 6,2%
• Hugmynd sjálfstæðismanna um frestun 15 verðbótastiga 31% 18% 10,7% 8,2%
• Hugmynd sjálfstæðismanna um „vísitöluna úr sambandi” 28% 18% 11,8% 8,2%
GERtÐ
REYFARAKAUP
Opið frá kl. 9-7 fimmtudag
föstudag og laugardag
VERKSM/ÐJU-
ÚTSALAN
á bak við gam/a Litavershúsið —
Grensásvegi 22.