Dagblaðið - 10.01.1980, Page 28
Ekki grundvöllur
fyrir þjóðstjóm
Enginn grundvöllur hefur fundizl
fyrir þjóðstjórn. Það var samdóma
álit talsmanna Framsóknarflokks,
\ Alþýðubandalags og Alþýðuflokks,
,sem DB hafði samband við t gær-
Vvöld og í morgun.
XJÉg tel öruggt að þjóðstjórn komi
ekki til greina,” sagði forystumaður í
Alþýðuflokknum, „þótt menn séu
ekki alveg búnir að kasta þessu frá
sér.” „Það þyrfti þá eitthvað alveg
nýtt að koma fram,” sagði
forystumaður I Alþýðubandalaginu.
Sumir spáðu þvi að Geir
Hallgrimsson færi að skila umboði
sínu og líklega fengi Lúðvik Jóseps-
son, formaður Alþýðubandalagsins,
boltann næst og gerði aðra tilraun til
að mynda vinstri stjórn.
Alþýðulandalagið vinnur að til-
lögusmíði um efnahagsmál til að vera
tilbúið,ef Lúðvik færboltann.
Formenn flokkanna hittast að
nýju í dag til að ræða þjóðstjórnar-
möguleikann. Mikil fundarhöld voru
i gær, bæði i þingflokkum og
„samningafundir” milli manna úr
flokkunum, þar sem farið var yfir
efnahagstillögurnar. Hinir flokkarnir
hafa tekið illa hugmyndum, sem
segja talsmenn
vinstrí
flokkanna
fær Lúðvík
boltann?
sjálfstæðismenn hafa borið fram um
frestun verðbóta. Þeir telja sig ekki
hafa fengið nægileg svör við þeirri
spumingu, hvernig rikissjóður eigi að
afla 25—30 milljarða, sem hann
þyrfti til að standa undir bótum til
lágtekjufólks vegna kjaraskerðingar,
sem hugmyndir sjálfstæðismanna
fela í sér.
-HH.
Skaftárhlai9 í annað sinn á fimm mánuðum:
„Það ergrautur í ánni
og brennisteinsfýla”
„Jú, það er hafið Skaftárhlaup,
það byrjaði í gær,” sagði Oddsteinn
Kristjánsson bóndi í Hvammi í
Skaftártunguhreppi í morgun. „Það
er æði mikið vatn í ánni og hefur
í ánni eins og venjulega i hlaupum og
brennisteinsfýla af henni.
Það var hlaup síðast í september
og ég man aldrei eftir því að svo stutt
hafi verið milli hlaupa. Venjulega
greinilega vaxið í nótt. Það er grautur líður tæpt ár á milli þeirra. Hins veg-
ar leið óvenjulangur tími milli hlaupa
síðast eða um tvö ár og kann það að
vera skýringin á því að hún hleypur
fljótt aftur.
Það eru engin mannvirki í hættu,
a.m.k. ekki enn, en það hefur lítið
verið hægt að kanna ána í morgun
vegna myrkurs. Það má frekar búast
við því að hlaupið verði ekki stórt
vegna þess hve stutt er liðið frá
síðasta hlaupi.”
-JH.
Enn erleitað að Baldri Baldurssyni, sem hvarfskömmu fyrirjólað heimanfráséríReykjavík. Fjörur eru gengnar og víðarleitað.
DB-mynd: Ragnar Th.
Hefur hemaður Sovét í Afghanistan áhríf á skákina?
MUN HARDARI í AFSTÖÐU
OKKAR í MÁU K0RTSN0J
— segir Einar S. Einarsson forseti Skáksambands íslands
„Skoðanir mínar í þessu efni eru
satt að segja að brcytast talsvert,
m.a. vegna Kortsnoj-málsins svo-
nefnda,” sagði Einar S. Einarsson,
forseti Skáksambands íslands, er DB
spurði hann, hvort íhlutun Sovétríkj-
anna í Afganistan hefði einhver áhrif
á þá ákvörðun Skáksambandsins að'
bjóða tveimur sovézkum skákmönn-
um á Reykjavíkurskákmótið sem
hefst í lok febrúar nk.
„Það gerist þó ekkert í þessu mái í
neinu hasti. Ég á hins vegar von á
því, að ef okkur verður gert erfitt
fyrir i sambandi við þetta mót þá
verðum við mun harðari i afstöðu
okkar til Kortsnoj-málsins. Ég gæti
hugsað mér að taka þetta mál upp
innan Norræna skáksambandsins.
Hvert á Kortsnoj líka að leita annað
en til félaganna í skákhreyfingunni
um stuðning?
Við getum ekki endalaust lokað
augunum fyrir því sem er að gerast i
kringum okkur. Ef bæði er verið að
fremjamorð oghryðjuverk fyrirutan
gluggann þá fara menn nú að líta upp
frá skákinni,” sagði Einar.
-GAJ
K
Kortsnoj í Reykjavík með forseta
FIDE: Meiri harka?
frjálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 10. JAN. 1980.
Hjalti forseti íslands?
„Hef ekki átt
frumkvæði
ennþá”
„Ég get ekki neitað því að allmargir
hafa fært það í tal við mig aðigb'ði
mig fram,” sagði Hjalti Þórarinsson
yfirlæknir handlæknisdeildar Land-
spítalans er hann var spurður um
hugsanlegt forsetaframboð sitt.
„Þetta kom mér algjörlega á óvart
því ég hef ekki gengið með það i
maganum að verða númer eitt eða tvö
i þeirri baráttu. Margir menn hata
verið nefndir á undan mér og ég bíð
spenntur eftir því hvað þeir segja Ég
myndi aldrei taka þátt í neinum hama-
gangi eða iátum, það finnst mér ekki
sóma þessu virðulega embætti. En sem
sagt, ég hef ekki átt neitt frumkvæði
að þessu ennþá, ekki einu sinni rætt
um það við fjölskyldu mína og
verulegur áhugi þyrfti að koma fram til
þess að ég hygði á framboð,” sagði
Hjalti. -DS.
Fjórir með
fullfermi
Fyrstu aflatilkynningar á nýhafinni
loðnuvertíð tóku að berast
Loðnunefnd laust fyrir miðnætti sl. er
fjórir bátar tilkynntu um fullfermi á
Barðagrunni, vestur af Vestfjörðum.
Það voru ísleifur, Gullberg, Örn og
Hrafn með samtals 2 þús. tonn, sem
þeir landa í Bolungavík.
Flotinn er dreifður út af öllu
Norðurlandi og allt austur fyrir land.
Er bátarnir voru á leið þangað og
lóðuðu á einhverja loðnu á Barðanum,
höfðu skipstjórar ekki trú á að sú loðna
yrði veiðanleg, sem nú er þó komið á
daginn. Margir bátar eru nú á leið á
Barðann. -GS.
Margeir á
veika von
Margeir Pétursson vann í gær
biðskák sína við Tékkann Meduna á al-
þjóðlega skákmótinu í Prag og gerði
síðan jafntefli við Ambroz, sem einnig
er Tékki.
Hefur Margeir nú hlotið 7 vinninga
að loknum 11 umferðum og er í 2.-3.
sæti ásamt Rússanum Spilher. Efstur er
Júgóslavinn Ilic með 8 vinninga.
Jóni L. Árnasyni hefur ekki gengið
eins vel og Margeiri á mótinu og sagði
hann í samtali við Dagblaðið að töp í
tveimur fyrstu umferðunum hefðu
komið sér úr jafnvægi. Jón tefldi í gær
við sovézka stórmeistarann Vasjúkov
og fór skák þeirra í bið og er jafnteflis-
leg. Jón hefur nú4,5 vinninga.
Tveimur umferðum er ólokið á
mótinu og á Margeir enn veika von um
sigur í mótinu. -GAJ.-
LUKKUDAGAR:
10. JANÚAR 19912
Sharp vasatölva,
CL8145