Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 12

Dagblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981. WEBIABIÐ írjálst, óháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjöri: Sveinn R. EyjöHsson. Ritstjðri: Jðnas Kristjánsson. Aðstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjóri: Ómar Valdimarsson. Skrif stof ustjóri ritstjómar Jóhannes Reykdal. Iþróttin Hallur Símonarson. Menning: Aðalsteinn IngóHsson. Aðstoðarfréttastjóri: Jónas Haraldsson HandHt AsgHmur Pélsson. Hönnun: Hilmar KaHsson. Blaðanwnn: Anna Bjarrjaaon, AUi flúnmr Halldónaon, Atli Stainarsson, Asgeir TAmasson, Bragi Sig urflsson, Oflra Stelánadóttlr, Elin Alborudóttir, Qisli Svsn Einarsson, Gunnlaugur A. Jflnsson, lng.i Huld Hákonardflttir, Kriátján Már Urn srsson, Sigurflur Svorrisson. Ljósmyndir: Bj^nleif jr ^jamleifsson, Einar Úlason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Porri Sigurflsson og Svalnn Þonnóðseon. SkHfstofustjóri: Ólafur EyJóHsson. GjaldkeH: Þráinn ÞorieHsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halldórs son. DreHingarstjóri: Valgerður H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siðumúla 12. Affgreiösla, áskríftadeild. auglýslngar og skrifstofur ÞverhoW 11. Aöalsimi blaðsins er 27022 (10 Knur). Setning og umbrot Dagblaðið hff., Siðumúla 12. Mynd» og plötugerö: Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., SkeHunni 10. Áskriftarverð áfnánuði kr. 70,00. Verö i lausasöki kr. 4.00. Vextir eru að hækka Voru vextir ekki lækkaðir 1. marz? Þannig kunna menn að spyrja, þegar þeir sjá fullyrt, að vextir séu að hækka. Menn kunna að vitna til þess, að ríkis- stjórnin hafi beitt sér fyrir eitt prósent lækkun útlánsvaxta að meðaltali um síðustu mánaðamót. En bankamenn segja aðra sögu. Vextir fara hækkandi en ekki lækk andi. Formlega er allt í lagi með fullyrðingu stjórnvalda um, að vextir hafi verið lækkaðir á útlánum. Þeir, sem hafa tekið vbda og hin almennu vaxtaaukalán, verða varir við lítilsháttar lækkun vaxta á þeim. Reyndin verður önnur, þegar á heildina er litið. Almenningur í landinu mun veita því athygli, þegar leitað er eftir Iáni, að bankakerfið mun í vaxandi mæli krefjast þess, að fólk taki lán með fullri verð- tryggingu í stað þeirra lánaforma, sem verið hafa algengust. Því mun svo fara, að fólk mun raunverulega greiða hærri vexti en áður. Vextir hafa verið lækkaðir á lán- um, sem fólk getur almennt ekki fengið. Vaxtalækkun- in 1. marz er „núll og nix”. Ríkisstjórnin hét því í efnahagsáætlun sinni um ára- mótin, að stefnt skyldi að „almennri” lækkun vaxta hinn 1. marz. Þetta átti að vera þáttur í að létta almenningi áhrif sjö prósent kjaraskerðingar, sem verða skyldi vegna niðurskurðar verðbótahækkunar á laun. Ríkisstjórnin ákvað einnig i áramótaráðstöfunum sínum, að taka skyldi upp sparireikninga með fullri verðtryggingu, sem aðeins þyrfti að binda til sex mánaða í stað tveggja ára áður. Bankamenn sögðu, að búast mætti við, að mikið af innlánum yrði flutt yfir á hina nýju sparireikninga. Af því leiddi að sjálfsögðu, að bankarnir yrðu að greiða hærri innlánsvexti en áður, þegar á heildina væri litið. Ekki væri til staðar slíkur hagnaður i bankakerfinu, að unnt væri að greiða sparifjáreigendum mun hærri vexti en fyrr, án þess að bankarnir fengju einnig meiri vexti fyrir það fé, sem þeir lánuðu út. Nú hafa stjórnvöld staðið að annarri aðgerð, sem einnig leiðir til hækkunar innlánsvaxta. Það er fjölgun vaxtadaga á vaxtaaukainnlánum. Vegna þess fá eigendur þeirra reikninga meiri vexti eftir árið. Ríkisstjórnin var engu að síður staðráðin í að hvika ekki frá yfirlýstri stefnu um „almenna vaxtalækkun” 1. marz. Sú vaxtalækkun skyldi framkvæmd í orði, þótt ekki væri grundvöllur fyrir framkvæmd hennar á borði. Með málamyndaaðgerðum skyldi fá menn til að halda, að útlánsvextir hefðu verið lækkaðir 1. marz. Lýst var yfir, fyrir tilstilli Seðlabankans, að meðal lækkun útlánsvaxta þann dag hefði verið eitt prósent. í raun höfðu bankamenn haft sitt fram. Banka- kerfíð mun einfaldlega í náinni framtíð afla sér auk- inna tekna til að mæta hækkun vaxta á sparifé með því að knýja lántakendur til að taka lán með fullri verðtryggingu. Sem fyrr stefnir í að verðbólgan í ár verði meiri en vextir af óverðtryggðum inn- og útlánum. Því er í raun einnig verið að hækka vexti á útlánum. Frá Bolungarvik. í Grunnskóla Bolungarvíkur — Dagblaðið „skerst í leikinn” Þessa dagana er Dagblaðið að gerast virkur þátttakandi í skóla- málaumræðu á Íslandi. Svo hefur reyndar brugðið við áður, að blaðið hefur séð sig knúið til að leggja orð ! belg þegar sigið hefur á ógæfuhliðina í menntunarmálum einstakra héraða og kaupstaða. Hella, Grindavík, Grundarfjörður, nú er komið að þvi að leysa vandamálin vestur í Bolungarvik. Þrátt fyrir hinn mikla áhuga Dagblaösmanna á skólamála- umræðu, þá er það aðeins einn þáttur þeirra mála sem virðist ná nefi þeirra, það eru svokölluð samskiptavandamál einkum milli kennara og skólastjóra. Ég hef aldrei rekist á hlutlæga eða faglega umræðu um skólamál, enda er það víst ekki hiutverk blaða á borð við Dagblaðið að fara i saumana á þvi sem gæti varðað hag og heilsu tslands í framtiðinni I þvi sem heitir fræðsla og uppeldi „unga ísiands”. En það eru takmörk fyrir öllu og þrátt fyrir að mestur hluti vinnudags þeirra Dagblaðsmanna fari í að snapa slúður viðs vegar um land þá lýtur slúðríö þó enn einhverjum siða- reglum með blaðamannastéttinni. Það fyrsta sem heyrðist af Bolungarvíkurmálum var hiö hríka- legasta slúöur eins og I þessum dúr: Foreldrar segja, sögur ganga um, altalað er, þaö er á hvers manns vörum og svo frv. Þar er enginn borinn fyrir neinu nema annar máls- aðilinn. Sjöunda febrúar treikvart síöa um Bolungarvíkurmál og fyrir- sagnir: „Óþolandi framkoma af hálfu skólastjóra.” Ekkert nema rógurog lygi. Síðan bókanir skólanefndafundar og bréf annars málsaðila til fræðslu- stjóra, atriöi sem ekkert hafa I fjöl- Kjallarinn Finnbogi Hermannsson miðla að gera, allra síst til að höggva á hnút þann sem þarna hefur verið riðinn. Á þennan hátt hefur Dagblaðið skipað sig sáttasemjara í einni skóla- deilu á fætur annarri og kennara- stéttin á orðið um sárt aö binda og skólaumdæmi hafa séð á eftir hæfu fólki. Sáð hefur verið fræjum tor- tryggni og óvildar um ókomin ár á ýmsum þessum stöðum og drýgsti sáðmaðurinn er Dagblaðið. Ég sagði hér að framan, að kennarastéttin væri farin að bera sig illa undan Dag- blaðinu og ég hef eitthvað fyrir mér i því. Þetta kom einmitt til umræðu á þingi Kennarasambands Vestfjarða hér á Núpi í haust og getur Dagblaðið vel við unað.Ekki vegna þess aðþetta sé vottur um áhrif blaðsins og virð- ingu í þjóðlífinu, heldur staðfesting á því að Dagblaðið er orðið verkfæri og gróðrarstia rógs og illmælgis I landinu og menn telja sig ekki lengur óhulta á síðum þess. Þarna er jafnan slegið á þær tilfinningar mannlegs eðlis sem hlakka yfir óförum annarra, Þórðargleði, en þeir sömu öðlast einatt nokkra sjálfsupphafn- ingu þá andrá sem lesið er, og lesningin er ófarir meðbræðra, þeirra sem skrikað hafa út af braut meðal- hegðunar í einhverri mynd. Skólinn hefur þá sérstöðu að hann hefur tengsl í hlutfalli við nemendafjölda sinn. Er hann þvi ákjósanlegt viðfangsefni í þeim gráa leik Dag- blaðsins þar sem mannorð ereinskis virði. Ber þar jafnan vel í veiði ef eitthvað bregður út af, en það hefur sannarlega ekki háð Dagblaðinu að kanna þær aðstæður sem kennara- stéttin býr við all víða af hálfu um- hverfis og það gæti hugsanlega verið vatn á myllu einhvers þriðja aðila, að allt logaði i illdeilum I einum skóla. En forsendur Dagblaðsútgáfunnar byggjast ekki á hlutlægri rannsókn eða könnun í þessu tilfelli á skóla og umhverfi, heldur á þeim mannlegu þverbrestum sem einna gleggstir koma fram í raunsæisskáldsögunni hjá Gesti Pálssyni: Hræsnin og yfir- drepsskapurinn situr þar í hásæti og rær fram í gráð sjálfsupphafningar yfir óförum litilmagna og óláns- manna. Finnbogi Hermannsson Núpi. „Ég hef aldrei rekizt á hlutlæga eða fag- lega umræðu um skólamál...”

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.