Dagblaðið - 24.07.1981, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1981.
/*
Veðrið
Gert er ráð fyrir euöveetanátt um
aiit land, rigningu á Suflur- og Veetur-
landi en þurrt að meetu á Auetur- og
Noröaueturiandi.
Klukkan 6 var auetan 1, eúld og 12
etig í Reykjavlt, eunnan 6, ekýjað og
12 etig á Gufuekálum, euðveetan 5,
aúld og 12 etig á Galtarvita, eufl-
auatan 3, ekýjafl og 19 atig á Akur-
eyri, hasgviðri, akýjafl og 11 atig á
Raufarhöfn, haegvlflri, rigning og 8
atig á Dalatanga, veatan 1, akýjafl og
13 atig á Hflfn og norflveatan 2, eúld
og 11 stig á Stórhflffla.
í Þórshflfn var skýjafl og 10 stig,
skúrir og 17 stig I Kaupmannahjflfn,
skúrir og 14 stig (Osló, rigning og 10
stig f Stokkhólmi, skýjafl og 12 stig (
London, lóttskýjafl og 14 stig ( Ham-
borg, rigning og 11 stig ( Paríe, heifl-
skirt og 15 stig f Madrid og léttskýjafl
og 12 stig (Llssabon.
V |
Andlát
Gunnar Jónsson lagerstjóri, sem lézt
19. júli sl., fæddist 14. janúar 1913 á
Eyrarbakka. Foreldrar hans voru Jón
Ásbjörnsson og Þórunn Gunnars-
dóttir. Árið 1927 fluttist Gunnar með
foreldrum sínum til Reykjavíkur. Hann
fór ungur til sjós, fyrst á togara, en
síðar á skip Eimskipafélags íslands.
Árið 1942 hætti hann sjómennsku en
réðst þá sem efnisvörður hjá Lands-
smiðjunni og vann þar til dauðadags.
Árið 1940 kvæntist Gunnar Sigrúnu
Hjaltadóttur og áttu þau 2 börn. Hann
verður jarðsunginn í dag.
Hildur Jónsdóttir frá Þykkvabæjar-
klaustri, sem lézt 13. júlí, sl., fæddist
10. ágúst 1890 á Þykkvabæjarklaustri í
Álftaveri. Foreldrar hennar voru Jón
Brynjólfsson og Sigurveig Sigurðar-
dóttir. Hildur lauk ljósmóðurprófi árið
1911 og þjónaði hún Álftaveri til 1945
sem Ijósmóðir. Árið 1912 giftist Hildur
Sveini Jónssyni. Hófu þau búskap að
Þykkvabæjarklaustri árið 1920 en árið
1945 fluttust þau að Skeggjastöðum í
Mosfellssveit þar sem þau bjuggu til
1950. Þá fluttust þau að Pétursstöðum
við Grafarholt og þar bjó Hildur til
dauðadags. Þau Hildur og Sveinn áttu
7 börn.
Halldóra Bæringsdóttir frá tsafirði,
sem lézt 15. júlí'sl., fæddist 26. nóvem-
ber 1912 að Dynjanda í Grunnavik-
urhreppi við Isafjarðardjúp..
Halldóra bjó lengst af á ísafirði og
síðustu árin vann hún á vefstofu
Guðrúnar Vigfúsdóttur á ísafirði.
Halldóra var gift Ágústi Guðmunds-
syni og áttu þau 5 börn. Hún verður
jarðsungin frá ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 25. júlí kl. 14.
Sölvi Blöndal, sem lézt 11. júli sl.,
fæddist 25. desember 19101 Reykjavík.
Foreldrar hans voru Haraldur Blöndal
og Margrét Auðunsdóttir. Sölvi ólst
að mestu upp hjá Sölva Thoisteinssyni
og Sigriði Bjarnadóttur konu hans.
Árið 1931 varð Sölvi stúdent frá
Menntaskólanum i Reykjavik. Hann
las fyrst lögfræði við Háskóla íslands
en hélt síðan til Svíþjóðar og nam þar í
Stokkhólmsháskóla og Uppsalahá-
skóla. Lauk hann prófi frá
Stokkhólmsháskóla í stjórnmálafræði,
hagfræði og heimspeki árið 1941. Frá
1945-’48 starfaði Sölvi sem hag-
fræöingur hjá Nýbyggingarráði og
Fjárhagsráði og siðan hjá Trygginga-
stofnun ríkisins. Árið 1973 fluttist
hann til Sviþjóðar þar sem hann bjó
siðan. Árið 1939 kvæntist Sölvi Elsu
Hedberg og áttu þau 7 börn. Hann var
jarðsunginn í gær.
Málfriflur Úlafsdóttir, sem lézt 7. júlí
sl., fæddist 27. janúar 1900á Þorgauts-
stöðum í Hvítársíðu í Borgarfirði.
Foreldrar hennar voru Ólafur Davíðs-
son og María Sæmundsdóttir. Árið
1921 giftist Málfríður Markúsi Einars-
syni og eignuöust þau tvo syni. Markús
lézt árið 1941 og bjó Málfríður þá
lengst af hjá syni sínum, Ólafi, en
siðustu árin bjó hún í Hátúni lOb.
Málfríður var jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju 15. júlí sl.
Haukur Erlendsson, deildarstjóri, sem
lézt 14. júlí sl., fæddist 24. desember
1915 í Reykjavfk. Foreldrar hans voru
Erlendur Pálmason og Hrefna Ólafs-
dóttir. Árið 1931 lauk Haukur gagn-
fræðaprófi og lagði siðan stund á nám í
loftskeytafræði og lauk því námi árið
1933. Var hann loftskeytamaður á
togurum í mörg ár. Árið 1945 réðst
hann til Landssíma íslands sem loft-
skeytamaður við Reykjavík-radíó. Árið
1946 gerðist Haukur varðstjóri við
radíó-flugþjónustuna í Gufunesi og
vann þar til 1962 en þá hóf hann störf á
skrifstofu Landssímans. Árið 1969
varð Haukur deildarstjóri í Gufunesi
þar sem hann starfaði til dauðadags.
Árið 1940 kvæntist Haukur Ágústu
Ahrens og áttu þau þrjá syni.
I
GÆRKVÖL0I
mr
I
GÆRKVÖLDI
Kyrrlátt kvöld og leiðinlegt
Mikið asskoti hitti Ari T rausti .
Guðmundsson naglann þráðbeint á:
hausinn þegar hann spilaði lag Bubba
Morthens, „Kyrrlátt kvöld”, í
þætti sinum I gærkvöldi. Þetta var svo
kyrrlátt kvöld og svo yfirgengilega
skratti leiðinlegt. Eitthvert leiðinlegasta
kvöld sem undirritaður hefur upplifað í
langan tíma. Og allt skal það skrifáð á
hljóðvarpsgarminn sem fékk að lulla í 6
klukkustundir samfieytt, ,til leiðinda
aðallega. Ég hélt á tímabili að eitthvert
stórmennið hefði hrokkið upp af án
þess að ég hefði tekið eftir i fréttunum.
Þóttist þó vel hafa hlustað enda dag-
skrárliðurinn sem hófst klukkan 7 sá
bezti á kvöldinu. Ég meina að dag-
skrárlokunum undanskildum.
Það var sem sé klukkan 6 sem ég
drattaðist heim úr vinnunni eftir að
hafa lagt lykkju á leið mína og farið
niður í bæ að afla fanga fyrir komandi
helgi. Ég bið ríkisstjórn þessa lands
lengstra orða að nota þær krónur sem
hún fékk í kassann í grunn nýja út-;
varpshússins, ef vera kynni að flýta
mætti fyrir þar. Það er annars sama
hversu mikið aum alþýða hér reynir að
lappa upp á kassann þann og dæla
aurum sinum í gegnum kaup á þriggja
pela flöskum, enginn veit hvaö um
verður. En hvað megum við ekki þola
hér sunnan fjalla nú þessa dagana,
mjólkin verri en allt sem vont er, svo
ekki er um annað að ræða en leita til
rikisins að slökkva þorstann. En það
var þetta með hljóðvarpið. . . ég er
nú annars að reyna að gleyma því!
Það fyrsta sem ég heyrði í hljóð-
varpinu í gærkvöldi var útvarps-
maðurinn ágæti, Þorgeir Ástvaldsson,
að kyrja sumarlag sitt. Lagið er ágætt
í sjálfu sér en engin stórpoppari er
kappinn að mér finnst. Hann ætti að
halda sér að venjulegu talmáli og það
ætti Hermann Gunn að gera líka. Það
er ekki sama að vera góður útvarps-
maður og góður söngvari. En kannski
ætla útvarpsmenn að fara að leggja
þetta fyrir sig, væri nú ekki alveg dá-
samlegt að sjá sjálfan stjórann Andrés
kyrja geggjað popp? Ég vildi gefa
mikið fyrir að heyra slíkt!
Samstarfsvettvangur þeirra Sigmars
Arabíufara og Ástu 0-flokks var hinn
þolanlegasti. En af hverju þarf Sigmar
að stynja þessi býsn þegar hann ber
fram spurningar sínar? Það er engu
líkara en hann sæki þær allar niður á
gólf og rogi þeim með erfiðismunum
upp á borðið! Einhvern veginn reyndist
þetta léttara fyrir Ástu samstarfskraft
— eða hvað það heitir að vera í
þriðjungsvinnu einungis. Liklega er ég
þá bara blaðamannskraftur, enda
aðeins starfandi sumarmánuðina fjóra.
Vonandi fer ég þó ekki á einhvern
blaðamannakraftstaxta hjá stéttar-
félaginu fyrir því, sosum ekki að vita
upp á hverju þessir menn finna.
Hvort sem það var tilviljun eður ei,
þá var farið til arabalanda í
firruntudagsleikritinu. Þetta var heldur
þunglamalegur draumur að mér fannst,
ekkert alveg galinn. Róbert var þar í
tvígang á leiðinni uppí til fagurra
kvenna þegar einhver bölvaður
slordóninn kom og stöðvaði allt
saman. En þetta var nú bara draumur.
í lokin fékk þessi reyndi leikari að
fljúga fram af hengiflugi og varð það
hans bani en það var draumur líka. Allt
var þetta ósköp kyrrlátt og átakalitið,
ódýrt endurtekningarefni fyrir blanka
stofnun.
Þá var komið að Ara Trausta með
sitt kyrrláta rabb um jökla, hvernig
þeir myndast og svoleiðis. Þetta var
fræðandi fyrir þá sem hafa andann í,
minn var einhvers staðar víðs fjarri
þegar hér var komið sögu. Það vantaði
einhvern léttleika í sköpunarverkið ti!
að úr yrði eftirminnilegur þáttur.
Einhver Kari Lövaas söng klukkan
tíu og auðvitað harla kyrrlát lög ef svo
má segja. Það bezta viðþennan lið var
þegar þulur, eftir að hafa sagt frá því
að söngkonan hefði farið með hlutverk
í Töfraflautunni, sagði að eftir þá
„sviðsraun” hefði henni áskotnazt
þetta eða hitt. Þar varð sviðsreynsla
því að sviðsraun og orðið raun
hæfði kvöldinu vel.
Yfir útvarpssöguna hleyp ég,
nenni ekki að fylgjast með langlokum
sem þeim, nema eitthvað alveg sér-
stakt sé, eins og til dæmis Brynjólfur
með Mann og konu. En á fyrrum
læriföður minn Njörð P. Njarðvík
hlustaði ég að minnsta kosti með
öðru eyranu. Nú loksins er sá maður
kominn á rétta hillu. Hér í eina tíð
reyndi hann að berja inn í mig og
mína líka vondum, sænskum bók-
menntafræðum, eins og Indriði G.
myndi segja, og gekk treglega.
Ástæðan meðal annars sú að í þeim
tímum var sofið vært og rótt. Það er
með hann Njörð, röddin í honum er
bara þannig að engin lifandis leið er
að hanga vakandi nema í stuttan tima
þar sem hún herist. Ég verð því að
hrósa útvarpsráði sérstaklega fyrir að
koma auga á þá bráðsnjöllu lausn að
láta hann tala landsmenn inn í
draumalandið á fimmtudögum. Og
svo spilar hann yfirleitt góða og
notalega tónlist. Njörður minn, vertu
þama sem lengst!
Ekki get ég svo skilið við þetta
hjal að ekki sé minnzt á hann Sigurð
skáksérfræðing sem sneri aftur.
Hann ætti að hafa einkaleyfi á
slikum fréttum í hljóðvarpi. Og svo
eru það orðin öll sem vaða uppi í út-
varpinu kvölds og morgna og ætlað
er að ná til Guðs, að ég held. Ég er
alveg handviss um að þetta niður-
bælda og mærðarlega væl nær ekki
einu sinni hálfa leið upp í Hallgríms-
kirkjuturn. Þetta er ömurlegt í alla
staði!
Nóg er komið og kyrrláta og
leiðinlega kvöldið í gærkvöldi leið.
Það veit sá sem allt veit, að ég ætla i
Óðal í kvöld!
Jón Baldvin Halldórsson
Einar Sigurðsson, Varmahlið Eyja-
fjöllum, sem lézt á Vífilsstöðum 19.
júlí, verður jarðsunginn frá Ásólfs-
skálakirkju 25. júli kl. 14.
Aðalbjörg Stefánsdóttir, Kleppsvegi
44, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju 27. júlí kl. 15.
Sigurður Eyjólfsson, Fálkagötu 34, lézt
í Borgarspítalanum 22. júlí.
Gísli Styff, Skálagerði 3, lézt 21. júlí sl.
Ragnhildur Ásgeirsdóttir, Sólvallagötu
51, lézt í Landspítalanum 22. júli.
Bóthildur Helgadóttir, Njálsgötu 33 B,
er látin.
Ingþór Guðlaugsson, lögregluþjónn á
Selfossi, lézt 23. júli sl.
Breytingar á starfi
hússtjórnarskólanna
Á vegum menntamálaráöuneytisins hefur verið unniö
að þvi að undanförnu að skipuleggja og aðlaga nám í
hússtjórnargreinum og hannyrðum breyttum
aðstæðum og kröfum um nýja kennsluskipan.
Breytingin er i því fólgin að nú er unnt að taka
ákveðna áfanga i þessum greinum og tengja þá öðru
námi i fjölbrautaskólum og sem valgrein til stúdents-
prófs í menntaskólum.
Hústjórnarskólarnir geta nú skipulagt kennslu sina
með ýmsu móti, t.d. með mismunandi löngum
námskeiðum, en gefið nemendum sínum kost á því að
safna sér ákveðnum fjölda námseininga sem að fullu
ber að viðurkenna í fjölbrautaskólum komi nemandi
inn í skólann á hússtjórnar- eða handmenntasvið. Á
sama hátt á nemandi sem er í menntaskóla að geta
nýtt sér nám af þessu tagi til stúdentsprófs, en þeim
sem hyggja á kennaranám með hústjórn eða
hannyrðir sem valgrein er þetta nám nauðsynlegt.
En meginhlutverk hússtjórnarskóla er að veita hag-
nýta fræðslu í hússtjórnar- og hannyrðagreinum eftir
aðstæðum á hverjum stað og eftirspurn eftir náminu.
Þess vegna starfa skólarnir með mismunandi hætti.
Najsta skólaár er ráðgert að skólarnir gefi kost á
námi sem hér greinir. Hússtjórnarskólarnir á
Varmalandi og Laugarvatni munu báðir veita heilsárs
hússtjórnarnám en auk þess gefa kost á hálfsárs námi
fyrir þá nemendur sem kjósa að takastyttri námsá-
fanga annaðhvort í hússtjórnar- eða hannyrða-
greinum.
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
Á haustönn verður um að velja styttri námskeið af
ýmsu tagi, m.a. áfanga til stúdentsprófs. Á vorönn
veröur gefinn kostur á 5 mánaöa oámskeiði í hús-
stjórn og vefnaði auk nokkurra kvöldnámskeiða í
matreiðslu og fatasaumi.
Hússtjórnarskólinn Ósk á ísafirði
Styttri námskeTð og áfangar til stúdentsprófs. Kcnnsla
fyrir grunnskólanemendur eftir því sem við verður.
komið.
Hússtjórnarskólinn á Löngumýri
Gert er ráð fyrir aðskólinn annist hússtjórnarkennslu
fyrir grunnskóla eftir þvi sem við verður komið og
styttri námskeið.
Hússtjórnarskólinn á Akureyri
Námskeið af ýmsum gerðum og lengdum. Áfangar til
stúdentsprófs.
Hússtjórnarskólinn á Laugum
Á haustönn styttri námskeið og hússtjórnarkennsla
fyrir nemendur annarra skóla á staðnum. Á vorönn
4ra mánaða námskeið í hússtjórnargreinum.
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað
Kennsla fyrir nemendur i grunnskólum á Austurlandi
og á vorönn 4ra mánaða námskeið i
hússtjórnargreinum.
Styrkjum úthlutað úr
Menningar- og framfarasjóði
Ludvig Storr
Nýlega hefur verið úthlutað styrkjum úr Menningar-
og framfarasjóði Ludvig Storr. Þetta er í fyrsta sinn,
sem úthlutað er styrkjum úr sjóðnum, en hann var
stofnaður árið 1979. Tilgangur hans er eins og stendur
í skipulagsskrá „að stuðla að framförum á sviði
jarðefnafræði, byggingariðnaðar og skipasmiða með
því að styrkja visindamenn á sviði jarðefnafræða,
verkfræðinga, arkitekta, tæknifræðinga og iðnaöar-
menn til framhaldsnáms, svo og að veita styrki til
rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í þessum
greinum”.
Að þessu sinni var úthlutað tveim styrkjum úr
sjóðnum. Verkfræðistofnun Háskóla íslands fékk
styrk að upphæð kr. 60.000 til kaupa á skráningar-
búnaði fyrir vindtæknilegar mælingar og Gunnar
Birgisson verkfræðingur hlaut styrk að upphæð kr.
40.000 til rannsókna á islenzkum hraunjarövegi til
undirstöðugerðar, en þær rannsóknir eru liður i
doktorsnámi hans við háskólann í Missouri i Banda-
ríkjunum.
Arnarf lug býður upp
á útsýnisflug í sumar
í sumar hefur Arnarflug tekið upp þá nýbreytni að
fara daglega í tvö útsýnisflug, þó svo að lágmarksfjöldi
farþega hafi látið skrá sig. Ef óskað er geta farþegarnir
látið sækja sig í útsýnisflugið og hefur félagið 9 sæta
bifreið til að annast þá flutninga. Farnar verða tvær
ferðir á dag ef veður leyfir. Sú fyrri er farin kl. 8 og er
flogið til Vestmannaeyja. Eyjarnar eru skoðaðar og
mun Páll Helgason sjá um að kynna eyjarnar fyrir far-
þegum. Komið verður til Reykjavíkur um hádegi.
Þessi ferð kostar$84 eða 627,14 krónur. Siðari ferðin
er farin kl. 14. Þá er flogið yfir Þingvelli, Gullfoss og
Geysi, áfram lyfir Eyjafjallajökul og til Vestmanna-
eyja. Ekki er þó lent i Eyjum, heldur er haldið til
Reykjavíkur aftur. Þetta útsýnisfiug tekur um 2 klst.
og kostar$'92 eða 686,87 krónur. Eins og gefur að
skilja er ekki farið í útsýnisfiug nema veður og skyggni
leyfi.
Fjölbrautaskóli
á Selfossi
I haust tekur til starfa fjölbrautaskóli á Selfossi undir
stjórn hins nýráðna skólameistara, Heimis Pálssonar.
Skólinn tekur við af framhaldsdeild Gagnfræða-
skólans og Iðnskólanum á Selfossi. Þá er í athugun að
starfrækja öldungadeild.
Innritun nemenda er að mestu lokið en náms-
framboði er lýst nánar í auglýsingum.
Hönnun skólamannvirkja stendur yfir. Þar er
ráðgert að taka megi í notkun 90(L ferm af 1. áfanga
skólahúss haustið 1983 Fyrirsjáanleg eru mikil
þrengsli nasstu 2irin.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferflamanna
Nr. 137 — 23. júll 1981 gjaldoyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7,456 7,476 8,224
1 Starlingspund 13,857 13,894 15,283
1 Kanadadollar 6,138 6,154 6,789
1 Dönsk króna 0,9751 0,9777 1,0755
1 Norsk króna 1,2205 1,2238 1,3462
1 Seensk króna 1,4341 1,4380 1,5818
1 Finnskt mark 1,6423 1,6467 1,8114
1 Franskur franki 1,2822 U856 1,4142
1 Bolg. franki 0,1866 0,1871 0,2058
1 Svissn. franki 3,5437 3,5532 3,9085
1 Hollenzk florina 2,7437 2,7611 3,0262
1 V.-þýzktmark 3,0541 3,0623 3,3686
1 ítöisk líra 0,00615 0,00616 0,00678
1 Austurr. Sch. 0,4346 0,4368 i* 0,4794
1 Portug. Escudo 0,1162 0,1165 ’* 0,1271
1 Spánskurpesetí 0,0761 0,0763 0,0839
1 Japansktyen 0,03186 0,03195 , 0,03515
1 IrsktDund 11,130 11,160 i 12,276
SDR (sérstök dráttarréttindi) 8/1 8,4496 8,4723
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
A