Vísir - 28.07.1973, Síða 20
vísir
Laugardagur 28. júll 1973.
Brotizt
inn á
Þing-
völlum
Afgreiöslumanninum I benzin-
siilunni viö Hótel ValhöII á Þing-
völlum brá heldur I brún, þegar
hann kom I afgreiösluskúrinn
eftir aö hafa brugöiö sér frá
andartak I fyrrakvöld.
Var búið aö brjótast inn um
dyrnar og stela um þaö bil 50
þúsundum i peningum og
ávisunum og þjófarnir á bak og
burt.
Ekki komust þeir þó langt, þvi
að erfitt var að fá bilferö til
höfuöborgarinnar og gleöinnar,
svo þeir brugöu á þaö ráð, að
setjast upp með feng sinn, á eyði-
býli i grenndinni.
Þar fundust þeir siðan og
reyndust vera tveir gamalreyndir
i faginu, og náðist megin hluti
þýfisins aftur.
—ÓG
Mikið
fugla-
dráp
Fjöldann allan af dauöum
fulgum hefur rekiö á land á Sel-
tjarnarnesi undanfarna daga og
vikur. Þaö er mál manna, aö
flest allir þessara fugla hafi ver-
iö drepnir.
Fuglar þessir eru af öllum
tegundum, jafnvel súla. Vitað er
að margir gera sér það að
„leik” að fara á bátum út á
sundin að skjóta fugla Margir
hirða þá einnig.
Vegna þess hve tiðarfarið hef-
ur verið slæmt undanfarið, er
talið að menn þessir hafi ekki
getað hirt jafnmarga fugla og
venjulega.
— ÓH.
Spellvirkjar
í Þjórsárdal
Þetta var heldur leiðinleg að-
koma — sagði Hclgi Arason, full-
trúi stöðvarstjóra viö Búrfells-
virkjun, þegar við höföum sam-
band við hann vegna skemmdar-
verka á sundlaug þeirra þar efra.
— Það varrifið niður loftnet af
neyðartalstöð, sem þarna er,
bjarghringar eyðilagðir og allt
svinað út. Auk þess var allt rifið
og tætt i nýbyggingu, sem verið er
að reisa þarna en verið er að bæta
við snyrtiherbergjum og búnings-
klefum, sem voru orðnir allt of
litlir —, sagði Helgi ennfremur.
Sundlaugin, sem er við
Rauðukamba, i um það bil 10
kflómetra fjarlægð frá Búrfells-
virkjun, hefur verið mikið sótt af
feröamönnum undanfarin sumur
og geysimikill fjöldi var þarna
siðustu sólardaga.
Aö sögn Helga er ekki vitað
hverjir voru að verki við
skemmdarstörfin, en gæzlu-
maður er þarna alla daga og
venjuleg girðing i kringum
svæðið, sem þó ekki er mannheld.
— ÓG
Sýndi á sér kynfœrin:
Afbrigðilegur maður
rœðst á stúlku
„Ég heyrði eitthvað més
fyriraftan mig og leit við.
Þá stóð hann rétt fyrir
aftan mig. Hannvarbúinn
að vera aðangra mig áður,
svo ég sagði hvasst:
„Heyrðu ég er að fara
heim" Þá sagði hann:
„Ertu ekki til í smá
gaman". Þá tók ég eftir
því að hann var með kyn-
færin úti".
Ung stúlka sem var á leiö heim
frá Veitingahúsinu Lækjarteig 2,
eða Klúbbnum, eins og það er af
mörgum kallað, varö fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að kyn-
ferðislega afbrigðilegur maður
áreitti hana. Þetta geröist á
fimmtudagskvöldið.
Ég fylltist skelfingu þegar ég sá
þetta. Hann þreif i hægri hand-
legginn á mér. En ég gat lamið
hann með vinstri hendinni á
hálsinn. Virtist ég hafa hitt á við-
kvæma taug, þvi hann hálf
vankaðist. ,,Ég skal drepa þig”,
sagði hann þá, og fór með hendina
inn á sig. Ég varð skelfinu lostinn
við tilhugsunina um aö heföi hnif
eða eitthvað annaö innan á sér.
Greip ég þvi i hárið á honum, og
ætlaði að skella honum i gang-
stéttina. Þá veit ég ekki fyrr til
en ég stend með hárkollu i hönd-
unum. Ég fylltist viöbjóöi og
fleygði hárkollunni upp i tré.
Siðan tók ég til fótanna, og hljóp
eins og fætur toguðu, þar til ég
hitti tvo stráka sem gátum fylgt
mér heim. Ekki þorði ég samt að
sofa heima um nóttina, heldur fór
til vinkonu minnar”, sagði
stúlkan I viðtali við Visi i gær.
Hún sagði að maðurinn heföi
þrivegis verið búinn að angra sig
á veitingahúsinu. Bauö hann
henni i parti, og að lokum bauðst
hann til að aka henni heim. Hún
afþakkaði allt sem hann bauð.
Þar sem hún byr skammt frá
veitingahúsinu, gekk hún heim til
sin. En á mótum Hrisateigs og
Sundlaugarvegar varð hún
mannsins vör.
Stúlkan lýsir manninum
þannig, aö hann sé um 1.70 m á
hæð. Hárkollan sem hann var
með, er ljósleit, en hans eigiö hár
er dökkleitt. Sjálfur er hann
frekar dökkur i framan, og á aö
gizka 34 ára gamall. Þegar hann
var i veitingahúsinu var hann
klæddur gulum bol, með blárri
mynd á. Aletrun á sænsku var á
bolnum.
—ÓH
Vélin
hans
Sverris
komin
,,Ég hefði aldrei komið
þessu I gegn nema með að-
stoð fjölmiðlanna og það er
timi til kominn að ýta við öllu
cmbættismannakerfinu sem
situr á öllum framförum og
breytingum hér á íslandi”,
sagði Sverrir Kunólfsson,
þegar við hringdum i hann út
af þvi að hluti gatnagerðar-
vélar hans er kominn.
Vélin hans Sverris er
komin! Hún kom með Goða-
fossi I gær. Árum saman
hefur hún verið eitt helzta
umræðuefni þjóðarinnar. Og
nú fer Sverrir af staö. —
—ÓG.
(Sverrir við vélina um borö f
skipinu i gærkvöldi. —-
Bretar að sigra í
stríðinu-tœknilega'
— segir yfirmaður á Statesman
Bretar eru að vinna þorska-
striöið er álit Lt. Cdr. Harlock,
sem kom til Hull fyrir stuttu, eftir
að hafa verið 7 vikur á tslands-
iniðum sem yfirmaður á dráttar-
bátnum Statesman. Lt. Cdr.
Ilarlock sagði, að almennt gerði
fólk sér ekki grein fyrir hversu
England væri háð útgerö. Það
væri sennilega fleira fólk háð
henni heldur en allir ibúar is-
lands.
„Ég lýsi yfir að við erum að
vinna þorskastriðið tæknilega
séð”, sagði hann. „Ég álit að her-
skipin hafi verið sérlega klók að
finna og halda i skefjum varð-
skipunum islenzku þannig, að
togararnir hafa ekki misst nema
einn og hálfan klukkutima á þeim
siðustu 3-4 vikum sem ég var þar,
og er það vegna þess hversu
vernd herskipa okkar er góð”.
Hann sagðist hafa talað við
marga skipstjóra frá Hull sem
væru mjög þakklátir fyrir vernd
herskipanna.
Fiskveiðar sagði hann, er vei
hægt að stunda undir þessum
kringumstæðum og það er ekki
nokkur ástæða fyrir þvi, að ekki
sé hægt að stunda þær undir
vernd áfram á fslandsmiðum.
Lt. Cdr. Harloek býst við að
fara fleiri ferðir fljótlega Hann
sagði, að dráttarbátarnir hefðu
gert vel. Það hefði samt ekki
gagnað nógu vel fyrr en herskip-
in komu. Togararnir hefðu misst
of mikinn tima við fiskveiðar,
vegna þess hversu oft þeir þurftu
að draga inn vörpurnar vegna
sifelldra ógnana islenzku varð-
skipanna um að skera á þær.
Nú hefur sjóherinn vernd
togaranna i hendi sér og betri
leiðir til að fylgjast með varð-
skipunum, svo að þau eigi mjög
litla möguleika, þar sem sjóher-
inn hafi snúið vopnin úr höndum
þeirra.
Vildu ekki láta Eimskip og SÍS sigla ein
lllutafé Hafskips hf„ var aukið
uin helming, upp I 54 milljónir og
samþykkt heimild til að auka það
enn i 162 milljónir á aðalfundi
félagsins i gær.
Fjölgað var i stjórn félagsins
um tvo og ráðinn nýr fram
kvæmdastjóri, Magnús Gunnars-
son, viðskiptafræðingur, sem
verið hefur skrifstofustjóri Sölu-
sambands islenzkra fiskframleið-
enda. Magnús mun sérstaklega
hafa kynnt sér starfsemi og
rekstur skipafélaga.
Margir nýir aðilar hafa gerzt
hluthafar i félaginu og stendur
hlutafjársöfnun nú yfir og er ætl-
unin að auka hlutaféð eins og
kostur er til að tryggja starfsemi
og rekstrargrundvöll fyrirtækis-
ins.
Þeir sem standa fyrir endur-
reisn Hafskips hf. munu af
ýmsum ástæðum hafa talið það
mjög óæskilegt, að starfsemi þess
legðist niður.
Munu i það minnsta ýmsir
þeirra ekki telja æskilegt, að
Eimskip og Sambandið sjái ein
um farmflutninga á sjó milli
íslands og annarra landa.
Eins og sagt var frá fyrir
nokkru hefur Hafskip hf„ verið i
verulegum rekstrarerfiðleikum
undanfarið og meðal annars var
eitt skipa félagsins kyrrsett i
Hamborg, að fyrirlagi erlendra
lánardrottna, um fimm vikna
skeiö.
Á aðalfundinum var kjörinn nýr
stjórnarformaður, Magnús
Magnússon, skipstjóri. Ytri—
Njarðvik.
Hafin er gagnger endurskipu-
lagning á starfsemi fyrirtækis-
ins, bæði fjármálum og áætlunum
Hann virtist stórslasaöur og
illa farinn, þar sem hann lá i
blóði sinu á Rauðarárstignum
maöurinn, sem ráðist var á og
barinn I götuna klukkan rétt
fyrir 10 i gærkvöldi.
Lögreglan handtók tvo pilta
skömmu siöar, sem sterklega
eru grunaðir um verknaðinn og
voru þeir hafðir i gæzlu i nótt.
Sá sem fyrir árásinni varð,
var minna slasaður en á horfð-
skipa þess. Hafskip hf„ á nú þrjú
skip, Rangá, Selá og Langá og
einnig hefur það haft Laxá á leigu
siöastliðin tvö ár. —ÓG
ist, haföi hann fengið miklar
blóönasir auk þess að hann var
nokkuð hruflaður. Fékk hann að
fara til sins heima eftir rann-
sókn á Slysadeildinni.
Af ungu mönnunum er það að
segja, að þeir munu um svipað
leyti hafa afrekað það, aö brjóta
stóra rúðu i Brautarholti 4.
Verðmæti hennar er hátt i 40
þúsund kr. að sögn kunnugra.
— ÓG.
Börðu mann og brutu rúðu