Vísir - 20.06.1979, Qupperneq 7
VÍSIR
Miðvikudagur 20. júni 1979
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson
Kjartan L. Pálsson
deildarinnar.
Það var engu likara en að stór-
leikur væri að hefjast i Laugar-
dalnum i gærkvöldi er áhorfendur
mættuþar. Norskskólalúörasveit
lék fyrir leikinn á meðan leik-
menn liðanna hituöu sig upp, og
segja má að allar aöstæður aðrar
hafi veriðágætar til að leika góða
knattspyrnu i gærkvöldi.
En hafi menn vonast eftir góð-
um leik, þá urðu þær vonir aö
engu. Haukarnir komu greinilega
með þvi hugarfari til leiksins að
berjast og berjast, en engu var
llkara en að Framararnir héldu
að þeir þyrftu ekkert aö berjast
fyrir sigri.
En þrátt fyrir baráttu sína úti á
vellinum tókst Haukunum aldrei i
leiknum aö skapa sér hættulegt
marktækifæri, þar vantaöi ávallt
endahnútinn á. En Framarar
fengu fimm góð marktækifæri i
leiknum, og þeim tókst aö nýta
þrjú þeirra.
Marteinn Geirsson var á ferð-
inni á 20. mlnUtu meö þrumuskot
af stuttu færi sem Gunnlaugur
markvörður Hauka varði. Stuttu
siðar átti Guðmundur Torfason
þrumuskot rétt yfir, en á 33.
mlnútu tók Fram forustuna.
bá geröu Framararnir harða
hrið að marki Hauka inn i teign-
um, og var bjargaö á li'nu skotum
frá þeim Guðmundi Torfasyni og
Guðmundi Steinssyni áður en
Pétur Ormslev komst i boltann og
skoraði. Staðan i leikhlé 1:0.
A 74. minútu leiksins gerði
Gunnar Andrésson bakvörður
Haukanna mikil mistök. Hann
var að leika sér með boltann
aftasti maöur Haukavarnar-
innar, og skipti engum togum að
Jón Jensson hirti hann af honum.
Jón lék upp að endamörkum og
gaf fyrir markiö og þar skoraöi
Asgeir Eliasson með skoti af stuttu
færieftir aö bjargað haföi veriö á
linu frá Guðmundi Steinssyni.
Siðasta mark leiksins kom á 83.
minútu, og var þaö fallegasta
markleiksins. Pétur Ormslevátti
sendingu Ut á kantinn til Asgeirs
EÍIssonar sem gaf fyrir markið á
Gunnar Bjarnason sem skallaöi I
markið af stuttu færi. Gunnar lék
áöur með FH, og skoraði þarna
sitt fyrsta mark fyrir Fram.
Bestu menn Fram i gær voru
Marteinn Geirsson og Asgeir
Elisson, og Trausti Haraldsson
átti ágæta spretti. Hjá Haukunum
var Guðmundur Sigmarsson
langbestur, en Ólafur Sveinsson
vakti athygli fyrir sina miklu
baráttu.
Dómarióli Ólsen ogdæmdi vel.
gk--
STAÐAN
Staðan i 1. deild Islandsmótsins
i knattspyrnu er nú þessi:
Fram-Haukar 3:0
Keflavik ....... 5 23 09:1 7
Fram ........... 5 2 3 0 9:4 7
KR ............. 5 3 1 1 6:4 7
Akranes .........4 2 1 1 7:5 5
IBV ............ 52 1 24:3 5
Valur............4 1 2 1 5:4 4
Vlkingur........ 5 2 0 3 7:9 4
KA ............. 5 2 0 3 6:10 4
Þróttur ........ 5 1 1 3 4:9 3
Haukar ......... 5 1 0 4 3:11 2
Markhæstu leikmenn:
Sveinbjörn Hákonarson AKR. .5
Pétur Ormslev Fram ..........4
Si'ðasti leikur 5. umferðar fer
fram á Laugardalsvelli annað
kvöld og leika þá Valur og Akra-
nes.
Hallvar Thoresen — hann veröur
áfram Norömaður.
Klaus Allofs frá Fortuna
Dusseldorf varð markhæsti leik-
maðurinn i vestur-þýsku 1. deild-
inni i knattspyrnu I ár eftir harða
keppni við Klaus Fischer frá
Schalke 04.
Klaus frá Fortuna skoraöi 22
mörk á keppnistímabilinu, þar af
eitt I siðasta leiknum I deildinni á
dögunum. Klaus frá Schalke
skoraði aftur á móti ekki neitt i
sinum siðasta leik en hann var
með 21 mark i vetur — eöa einu
marki minna en nafni hans hjá
Fortuna...
— klp —
Framarar I kröppum dansi. Eitthvað sýnist okkur nU aö varnarveggurinn hafi riðlast vinstra megin, en
þaö kom ekki aösök og hættunni var afstýrt. Vfsismynd Friöþjófur
Gunnar Bjarnason fyrrum leik-
maöur FH skoraöi sitt fyrsta
mark fyrir Fram f gærkveidi.
Ef mennvilja kalia 1. deildarliö
Hauka i knattspyrnu firmaliö, þá
veröur aö segjast eins og er að i
gærkvöldi er Haukar heimsóttu
Fram I Laugardalinn mátti ekki
á milli sjá hvort liöiö var firmaiiö
og hvort liðið var eitt þeirra sem
margir spá miklum frama I
Islandsmótinu I sumar. Langtim-
um saman rikti jafnræði með liö-
unum Uti á vellinum, þar var fátt
til fegurðarauka. En þaö sem
geröi útslagiö i leiknum fyrir
Fram og tryggöi þeim 3:0 sigur i
gær var einungis þaö aö sóknar-
lotur Framara voru beittari og
betur skipulagðar, og Fram
skaust upp aö hlið Keflavikur og
KR á stigatöflunni á meðan
Haukarnir verma enn botnsæti 1.
henni standa þar i sjöunda himni
yfir þvi.
Af öörum leikjum i bandarisku
deildinni fyrir helgina má nefna
sigur Tampa Bay Rowdies yfir
San José Eartquakers 3:2 þar
sem Hollendingurinn Jan Van der
Veen og Englendingarnir Tom
Armstrong og Rodney Marsh
skoruöu fyrir Tampa Bay.
Þá sigraði Fort Lauderdale
Strikers i' leiknum gegn Houston
4:0 og sáu þeir Clive Walker
(Chelsea), Teofilio Cubillas
(Peru) og Gerd Muller (Bayern
Munchen) um að skora mörkin —
þar af Gerd Muller tvö þeirra.
Fyrrum Derby-leikmaðurinn
Jeff Bourne var einnig á skot-
skónum þegar Atlanta Chiefs
sigraði Minnesota Kicks 5:2, en i
þeim leik skoraði hann þrjú af
mörkum Atlanta...
— klp —
Hallvar hafði þá nýlega skrifaö
Klaus
kannað
skoral
FIRMALIDKT STÖÐ
FRAMARA
- En Framarar nýllu marklækliærl sln vel 09 slgruðu með 3:0
New York Cosmos
í efsta sætinu
Stjörnuliðið New York Cosmos
tók forustu I bandarisku
meistarakeppninni i knattspyrnu
með 3:2 sigri yfir Tulsa Rough-
necks fyrir helgina.
Tulsa skoraði fyrsta markið, en
Cosmos jafiiaðiogkomstyfir með
tveim mörkum Girogio China-
glia, en Dennis Tueart jafnaði
aftur fyrir Cosmos. Sigurmarkið
komsvoþegarein minúta vareft-
ir af leiknum og sá Antonio Car-
bognai um það. Var þaö hans
fyrsta mark með New York Cos-
mos.
Vel yfir 30 þúsund manns komu
tii aðhorfa á leikinn á heimavelli
Tulsa og var þetta metaðsókn
þar, en hvert metiö af öðru hefur
verið slegið i bandarisku knatt-
spyrnunni nú i sumar hvað að-
sókn varöar, og eru þeir sem að
Heiinn varð að
gefa honum frl
Norskir knattspyrnuáhuga-
menn önduðu léttar nú i vikunni,
þegar yfirmenn norska hersins
tilkynntu að þeir hefðu oröið viö
fjölmörgum óskum um að kalla
ekki þekktasta knattspyrnumann
Noregs um þessar mundir til her-
þjónustu.
Var það Hallvar Thoresen, sem
er atvinnumaður með hollenska
1. deildarliðinu Twentee En-
schede, en honum hafði verið
skipað að koma heim til að gegna
herþjónustu eins og aörir ungir
Norðmenn.
undir nýjan 2 ára samning við
Twentee, og sagöist ekki rifta
honum til að fara I herinn. Hafði
hann á orði að afsala sér rikis-
borgararétti I Noregi og sækja
um hollenskan rikisborgararétt I
staðinn ef honum yrði skipað að
mæta til herþjónustu.
Var það þungt á vogaskálunum
hjá hernum er málið var tekið
fyrir, þvi þar með heföu Norö-
menn misst sinn besta landsliös-
mann I knattspyrnu og þvi var
honum gefin herþjónustan eftir...
-klp-