Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1964, Blaðsíða 3
Á myndinni til hægri sést Akkilla með Jambó, son sinn, á bakinu, en á hinni myndinni er Stebbi, faðir Jambós.
góli. Síðan komu menn að búrinu og
lyfti móðirin afkvæmi sínu upp að
netinu, svo að gestirnir mættu sjá
fegurð þess og dást að því. Hún
reyndi jafnvel að rétta eiginkonu
forstjórans ungann í gegnum netið.
Á milli karaði hún hendur og fætur
sonarins með mikilli blíðu.
Á öðrum degi eftir fæðinguna sást
unginn sjúga móður sína í fyrsta
sinn. Akkilla lá í hjólbarðanum og
hélt unganum að brjósti sér. Hann
byrjaði allt í einu að leita fyrir sér
og fann að lokum geirvörtuna og
saug hana af hjartans ánægju. Frá
þessaíi stundu gaf sonurinn alltaf
frá sér hljóð, þegar hann var matar-
þurfi.
Þegar fram liðu stundir, gerði
Akkilla tilraun til þess að mata son
sinn með skeið, en sjálf hafði hún
lært að meðhöndla slíkt verkfæri.
Þær tilraunir báru misjafnan árang-
ur. Einu sinni tókst henni þó að koma
fullri skeið upp í Jambó, en þegar
hún hóf skeiðina á loft næst, hafði
Framhald á 358. síðu.
Hér er verið að konna Jambó að matast með skeið, eins og lei kfélagar hans eldri hafa þegar lært.
1 t M I N N - SUNNUDAHSK’ AÐ
339