NT - 27.09.1985, Blaðsíða 6
auglýsingar
varahlutir
varahlutir
Hedd hf.
Skemmuvegi M-20 Kópavogi
Varahlutir - ábyrgð - viðskipti
Höfum fyrirliggjandi varahluti í flestar
tegundir bifreiða, m.a.
Galant 1600 árg 79
Subaru 1600 árg 79
Honda Civic árg 79
Datsun 120 Aárg 79
Mazda 929 árg 77
Mazda 323 árg 79
Mazda 626 árg 79
Mazda 616 árg 75
Mazda818árg76
Toyota M II árg 77
Toyota Cressida 79
Volvo 343 árg 79
Range Rover árg 75
Bronco árg 74
Wagoner árg 75
Scout II árg 74
Cherokee árg 75
Land Rover árg 74
Villis árg '66
Ford Fiesta árg '80
Wartburg árg '80
Lada Safir árg '82
Toyota Corolla árg 79 _ Lada Combi árg '82
Toyota Carina árg 74 ’ Lada Sport árg '80
Toyota Celica árg 74
Lada 1600 árg '81
Volvo 142 árg '74
Saab 99 árg '76
Saab 96 árg '75
Cortina 2000 árg '79
Scout árg '75
V-Chevelle árg 79
A-Alegro árg '80
Transit árg '75
Skodi 120 árg '82
Fiat 132 árg 79
Fiat 125 P árg '82
F-Fermont árg 79
.F-Granada árg 78
; Datsun Diesel árg 79
Datsun 120 árg 77
Datsun 180 B árg 76
Datsun 200 árg 75
Datsun 140 J. árg 75
Datsun 100 Aárg 75
Daihatsu
Carmant árg 79
Audi 100 LS árg 76
Passat árg 75
Opel Record árg 74
VW 1303 árg 75
C Vega árg 75
Mini árg 78
Ábyrgð á öllu, allt inni þjöppumælt
og guf uþvegið. Vélar yf irfarnar eða
uppteknar með allt að 6 mánaða
ábyrgð. ísetning ef óskað er.
Kaupum nylega bíla til niðurrifs og
jeppa. Staðgreiðsla. Opið virka
daga frá kl. 9-19 laugardaga kl.
10-16. Sendum um land allt.
Hedd h.f. síma 77551 og 78030
Reynið viðskiptin
ökukennsla
Kenni á Audi ‘82. Nýir nemendur
geta byrjað strax og greiða aðeins
tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst
réttindi. Æfing í borgarakstri. Lærið
þar sem reynslan er mest. Greiöslu-
kjör, ennfremur Visa og Eurocard.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
Aðalpartasalan
Sími 23560
Autobianci 77 BuickAppalo’74
AMCHornet'75 HondaCivic’76
AustinAllegro’78 Datsun100A’76
Austin Mini 74 Simca1306’77
■'Chevy Van 77 Simca1100'77
ChevroletMalibu'74 Saab99 73
Chevrolet Nova 74 Skoda120L'78
DodgeDart'72 Subaru4WD'77
Dodge Coronet 72 Trabant 79
Ford Mustang 72 Wartburg 79
FordPinto’76 ToyotaCarina’75
Ford Cortina 74 ToyotaCorolla'74
FordEscort’74 Renault4'77
Fiat 131 77 Renault5 '75
Fiat 132 76 Renault12'74
Fiat 125 P 78 Peugout504’74
Lada1600'82 Jeppar
Lada1500’78 Wagoneer'75
Lada1200'80 RangeRover’72
Mazda323'77 Scout'74
Mazda 929 '74 Ford Bronco 74
Volvo 145 74
VW1300-1303 74
VW Passat 74
Mercury Comet '74
Ábyrgð á öllu, kaupum bíla til
niðurrifs, sendum um land allt.
Opið virka daga frá kl. 9-19,
laugardaga frá kl. 10-16. Aðal-
partasalan Höfðatúni 10, sími
23560.
BIIMÍIGA
REYKJAVÍK:
AKUREYRl:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
HÖFN HORNAFIRÐI:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
til sölu
Vörubílar
Hiab-550-76, kr. 120 þ. Hiab-950-2
útsk. kr. 25 þ.
Scania-140-77 kr. 700 þ. Benz-1617-
77 kr. 670 þ.
Benz-1619-77 kr. 750 þ. Krana skófla
300 I. kr. 25 þ.
6 arma krabbi kr. 50 þ. Toppgrindur.
Uppl. í síma 687389.
örfáar
sekúndur
- > öryggis
' ~ skyni
„JU^ROAR
Hefur það '
bjargað þér
ilas®0*"
2
Effco þurrkjan gerir ekki við
bilaða bíla
En hún hjálpar þér óneitanlega að halda bílnum
þínum hreinum og fínum, bæði að innan og utan
Það er meira að segja svolítið
gaman að þrífa með Effco þurrk-
unni. Því árangurinn lætur ekki á
sér standa. Rykið og óhreinindin
legga bókstaflega á flótta. Þú getur
tekið hana með í ferðalagið eða
sumarbústaðinn. Það er aldrei að
vita hverju maður getur átt von á.
Oft er svigrúm lítið í tjaldi eða
sumarbústað, má því ekki mikið út
af bera til þess að allt fari á flot, ef
einhver sullar eða hellir niðuf, En
það gerir ekkert til þegar Éffco
þurrkan er við hendina.
Já, það er fátt sem reynist Effco
þurrkunni ofraun.
il^effco-þjurrkan
UXIH t 5TERK r----- <“^1
43
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og varahlutaverslunum.
Föstudagur 27. september 1985 6
Utlönd
13. loftárásin á Kharg:
Irakar stöðva olíu-
útflutning frá íran
Bahrain-Keuter
■ íranar neyddust til að stöðva
olíuútflutning sinn frá Kharg-eyju
eftir loftárás Iraka á útflutningsmið-
stöðina þar í gær.
Hátt í níutíu prósent af öllum
olíúútflutningi írana fóru í gegnum
útflutningsstöðina á Khargeyju en
útflutningur þaðan hafði dregist mik-
ið saman á undanförnum vikum
vegna loftárása íraka, Loftárás íraka
í gær var sú þrettánda frá því 15.
ágúst síðastliðinn. í seinustu viku
tókst þeim að eyðileggja meirihlutann
af útskipunaraðstöðu Irana á eyjunni
og síðan hafa þeir gert þrjár árásir
sem hafa aukið enn meira á eyðilegg-
inguna.
Talsmaður írakíska hersins í Bag-
dad sagði að fjórum tonnum af
sprengiefni hafi verið varpað á Kharg-
eyju í gær. Hann sagði markmið
árásarinnar hafa verið að halda við
eldum sem kviknað hefðu í fyrri
árásum.
Áðuren útflutningar frá Khargeyju
stöðvuðust alveg höfðu íranar selflutt
olíu þaðan til liafnar í Sirrieyju sem
er of langt í burtu frá írak til að
írakískar flugvélar geti flogið þangað
til árása. Nú liggja fjögur írönsk
risaolíuskip við Sirrieyju með um 10
milljón tunnur af olíu sem mun duga
til að halda olíuútflutningnum gang-
andi í allt að tíu daga.
Þar að auki flytja (ranar um
200.000 tunnur af olíu á dag frá
öðrum höfnum. En sá útflutningur
dugar skammt til að standa straum af
hergagnainnflutningi írana og öðrum
innflutningi. Þeim er því lífsnauðsyn
að opna aftur höfnina á Khargeyju.
Það verður greinilega ekki létt verk
þar sem íranar hafa þegar látið við-
skiptavini sína vita að þeir geti ekki
staðið við olíusölusamninga á næst-
unni og í fyrsta lagi eftir miðjan
október.
íranar hafa hótað því að stöðva
allar siglingar út úr Persaflóa um
Ómansund ef írökum tekst að stöðva
oiíuútflutning þeirra. Geri þeiralvöru
úr þessari hótun sinni er nær öruggt
að önnur Persaflóaríki munu blanda
sér í átökin milli írana og íraka.
Bretland:
Kerfi tveggja flokka
á síðasta snúningi?
Verður drottningu stillt upp við vegg?
■ Skoðanakannanir sem gerðar
hafa verið í Bretlandi undanfarnar
vikur bcnda eindregið til þess að
kosningabandalag Frjálslynda flokks-
ins og Sósíaldemókrata njóti fylgis
flestra kjósenda um þessar mundir.
Margir fréttaskýrendur telja að þetta
sé ekki síst afleiðing af óvinsældum
stjórnar íhaldsflokksins og svo sundr-
ungunni innan Verkamannaflokks-
ins. Sagt er aö raunverulegt fylgi
bandalagsins yrði minna og kæmist
víða illa til skila vegna einmennings-
kjördæmanna. En þó svo að Frjáls-
lyndi flokkurinn og Sósíaldemókratar
fái líklega ekki flest þingsæti í sinn
hlut þá er hugsanlegt að bandalag
þeirra komist í oddaaðstöðu milli
stóru tlokkanna tveggja.
Forystumenn kosningabandalags-
ins, þeir Steel og Owen, hafa lýst því
yfir að fari svo að hin 650 þingsæti
skiptist þannig á flokkana að um
oddaaðstöðu þeirra verði að ræða, þá
muni þeir berjast gegn hverri þeirri
minnihlutastjórn sem reynt verður að
Viðskipta-
halli í
Sovét-
ríkjunum
Mo.skva-Rcuk'r
■ Viðskiptahalli Sovétmanna við
vestræn ríki og Japan nam 3,07 mill-
jörðum dollara (125 milljörðum ísl.
kr.) fyrstu sex mánuði þessa árs.
Þetta er mikil breyting frá því á
sama tímabili fyrir einu ári þegar
viðskiptahagnaður Sovétmanna við
útlönd nam 772 milljónum dollara.
Viðskiptahallinn nú stafar meðal ann-
ars af miklum korninnflutningi þeirra
frá Bandaríkjuhum. Viðskiptahalli
Sovétríkjanna við Bandaríkin nam
þannig 2,2 milljörðum dollara á öðr-
um ársfjórðungi ársins.
Vestur-Þjóðverjar eru stærsti við-
skiptaaöili Sovétmanna á Vesturlönd-
um. Þá koma Finnar, Frakkar,
Bandaríkjamenn, Japanar, ítalir og
Bretar.
Viðskipti Sovétmanna við önnur
sósíalísk ríki voru nokkurn veginn í
jafnvægi en þeir náðu nokkrum vöru-
skiptahagnaði við ríki þriðja heims-
ins.
setja á laggirnar án fyrri samninga við
baridalagið. Talsmenn stóru flokk-
anna hafa svarað þessu fálega, enda
um óráðna framtíð að tefla, en það
væri hyggilegt fyrir þá að hafa slíkan
möguleika í liuga.
í kjölfar þessarar umræðu hafa
vaknað spurningar um það hvað
drottningin ætti að taka til bragðs ef
henni væri gert að ákveða upp á sitt
sjálfdæmi hverjum væri falin stjórnar-
myndun. Þar að auki er ekki ljóst
hvort að drottningin getur rofið þing
og efnt til nýrra kosninga í trássi við
vilja þingflokka eða á hinn bóginn
neitað að rjúfa þing. Það gerðist
síðast árið 1832 að Vilhjálmur IV
neitaði að undirrita þingrofstilkynn-
ingu en frá þeim tíma hefur breskur
þjóðhöfðingi ekki komist í þá aðstöðu
að þurfa að taka sjálfstæða ákvörðun
í þessum efnum. Þó svo eigi að heita
að Elísabet II ráði sjálf pólitískum
gjörðum sínum, þá er málum raun-
verulega háttað þannig að ótvíræðar
staðreyndir, eins og t.d. þingmeiri-
hluti, eða ráðleggingar ráðandi
stjórnmálamanna vega þyngst í em-
bættisfærslu hennar.
Það verður því athyglisvert að,
fylgjast með því sem gerist á vettvangi
breskra stjórnmála ef sú staða kemur
upp að kosningabandalagið verður í
oddaaðstöðu og stóru flokkarnir tveir
neita að starfa með því. Hvað gerir
drottning t.d. ef hún hefur falið Neil
Ki nnock, formanni Verkamanna-
flokksins, stjórnarmyndun og minni-
hlutastjórn ílokksins er felld á þingi.
Gæti hún neitað Kinnock um þingrof
og nýjar kosningar? Nú er að bíða og
sjá.
■ Lendir Elísabet II hugsanlega í
þeirri aðstöðu að þurfa að reiða sig
eingöngu á eigin dómgreind í pólitísk-
um efnum eftir næstu þingkosningar?
Papandreou:
Sovétnjósnirspilla
ekki Sovétvináttu
Aþcna-Reuler
■ Andreas Papandreou for-
sætisráðherra Grikkja sagði á
fundi sósíalistastjórnar sinnar í
gær. sem var sjónvarpað. að
handtaka þriggja Grikkja, sem
hafa verið kærðir fyrir njósnir í
þágu Sovétríkjanna, ætti ekki
að spilla vináttu Grikkja og
Sovétmanna.
Papandreou sagði fáránlegt
að spá vinslitum milli Grikkja
og Sovétmanna vegna þessa
máls. Hann ásakaði stjórnar-
andstæðinga um pólitískt sið-
leysi en þeir hafa haldið því
fram að fleiri njósnara væri að
finna innan gríska stjórnkerfis-
ins.
Tveir hinna handteknu eru
rafeindasérfræðingar og einn er
lautinant í sjóhernum.
Papandreou kvartaði yfir því
að Bandaríkjamenn skyldu ekki
enn hafa gefið grísku leyniþjón-
ustunni leyfi til að yfirheyra
sovéska stjórnarerindrekann
Sergei Bokhane sem sveik yfir
til Bandaríkjanna í maí sfðast-
liðnum. Hann ersagður búa yfir
ýmsum upplýsingum um njósnir
Sovétmanna í Grikklandi