Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 232. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Gleymdi stund og stað Jónas Sen hreifst af söng Hamrahlíðarkórsins | Menning Fasteignir | Hvað tilheyrir sameign í fjölbýlishúsi?  Nýtt hverfi í Mosfellsbæ Íþróttir | Yao Ming lék Íslendinga grátt  Hand- arbrotnaði í árekstri við dómarann  FH-ingar lutu í gras BORGARSTJÓRINN í New Orleans fyrir- skipaði í gær brottflutning allra íbúa borgar- innar, um 1,4 milljóna manna, en fellibylurinn Katrín stefndi þá beint á borgina. Var vind- hraðinn í honum allt að 282 km/klst. Borgarstjórinn, Ray Nagin, sagði brott- flutninginn vera einsdæmi í sögu Bandaríkj- anna en nauðsynlegan. Búist var við að Katrín skylli af fullum þunga á borgina í dag. Við það er hugsanlegt að meirihluti borgarinnar fari á kaf þar sem hún stendur að mestu leyti tvo metra undir sjávarmáli. Fari svo gæti það tek- ið nokkra mánuði að dæla sjónum úr borginni og enn lengri tíma að koma innviðum sam- félagsins svo sem rafmagns- og vatnsveitum í lag. Katrín hafði þegar í gær kostað níu manns lífið eftir að hún fór yfir Flórída-skaga á fimmtudag. Hún var þá sjötti fellibylurinn til að fara yfir Flórída frá því í ágúst á síðasta ári. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, ítrekaði einnig nauðsyn þess að íbúar New Or- leans leituðu sér allir skjóls á öruggum stöðum og lýsti yfir neyðarástandi í Louisiana-ríki. Tíu metra háar öldur Katrín var í gærkvöld flokkuð sem 5. stigs fellibylur á Safir Simpson-skalanum en það er efsta stig skalans. Vindhraði fellibylsins var þá allt að 78 metr- ar á sekúndu og honum fylgdu um 10 metra há- ar öldur. Einungis þrír aðrir fellibyljir hafa náð 5. stigi Safir Simpsons-skalans frá því mælingar hófust í Bandaríkjunum, en sá þeirra sem síð- ast fór um er fellibylurinn Andrew sem gekk yfir Flórída árið 1992 og kostaði 43 lífið og olli skemmdum sem metnar voru á um 26 milljarða Bandaríkjadollara, jafnvirði um 1.700 miljarða íslenskra króna. Annar var fellibylurinn Camille sem lagði strönd Mississippi í rúst árið 1969 og varð 256 manns að bana. Sá þriðji er bylurinn sem fór yfir Flórída Keys á verka- lýðsdeginum árið 1935, en þá fórust 600 manns. „Við stöndum frammi fyrir storminum sem við höfum lengi óttast,“ sagði Ray Nagin er hann ávarpaði íbúa borgar sinnar. Þúsundir manna hlýddu kalli borgarstjórans og flúðu New Orleans í gær en lögreglumenn stýrðu þungri bílaumferð út úr borginni. Einnig voru sett upp neyðarskýli á tíu stöð- um fyrir þá sem ekki höfðu tök á að fara. Um þúsund manns, barnafjölskyldur, snauðir og þurfandi, höfðu þegar komið sér fyrir í Super- dome, stærsta íþróttaleikvangi borgarinnar. Um alla borg mátti sjá tóm hús þar sem neglt hafði verið fyrir gluggana og sandpokum verið raðað upp við allar útidyr til að hindra að vatn kæmist þar inn. Allir starfsmenn tuttugu og eins olíuborpalls á Mexíkóflóa höfðu látið af störfum og flúið starfsstöðvar sínar, en þar fer fjórðungur allr- ar olíuframleiðslu Bandaríkjanna fram. Rúm- lega ein milljón tunna af olíu er framleidd þar daglega. Öllum íbúum New Orleans skipað að yfirgefa borgina  Fjórði stærsti fellibylurinn stefndi á borgina  Óttast var að stíflugarðar brystu Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur jse@mbl.is Reuters Umferð út úr New Orleans var þung í gær, enda var öllum íbúum borgarinnar, 1,4 milljónum manna, skipað að yfirgefa heimili sín.  Megi Guð vera | miðopna Bagdad. AFP. | Jalal Talabani, forseti Íraks, sagði í gær að stjórnarskrá landsins væri tilbúin og að hún yrði lögð í dóm þjóðarinnar. Áætlað er að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin 15. október næstkomandi. „Bræður okkar, súnní-arabar, hafa ákaft mótmælt… en enginn get- ur fullyrt að þeir tali fyrir munn allra súnníta,“ sagði forsetinn, sem er Kúrdi. Sagði hann að þegar þjóðin hefði lagt blessun sína yfir stjórnar- skrána, yrði hún að „grundvallarlög- um landsins“. „Ef þjóðin hafnar henni, þá skrifum við aðra,“ bætti hann við. Íraska þingið kom saman í gær til að ræða stjórnarskrána, en ekki var kosið um hana þar. Sheiks Humam Hammudi, sjíti, var í forsæti í stjórn- arskrárnefndinni og hann kynnti stjórnarskrárdrögin fyrir þing- mönnum áður en þau voru lesin upp- hátt. Drögin, sem sjítar og Kúrdar lögðu fram án samþykkis súnníta, kveða á um að stjórnkerfi Íraks skuli vera „lýðræðislegt sambandslýð- veldi með þingræði“, með íslam sem „aðaltrúarbrögð“. Ef tveir þriðju hlutar kjósenda í minnst þremur héruðum í Írak hafna stjórnarskránni verður hún ekki samþykkt. Súnnítar, sem eru í minnihluta í Írak, eru í meirihluta í að minnsta kosti fjórum héruðum í landinu. Stjórnarskrá Íraks lögð fyrir þjóðina  Hvert stefnir | 14 UM FIMMTÍU konur munu sitja heimsfund menningarráðherra sem hefst á Hótel Nordica í Reykjavík í dag. Þar af eru um þrjátíu menn- ingarráðherrar og fulltrúar al- þjóðasamtaka, s.s. UNIFEM. Fundurinn er haldinn í tilefni af 75 ára afmæli Vigdísar Finnboga- dóttur, fyrrverandi forseta Íslands, fyrr á árinu. Fundurinn hefst klukkan níu í dag með ávarpi Þorgerðar K. Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra. Þá flytur Vigdís Finn- bogadóttir erindi. Rétt fyrir tíu flytur Cherie Booth Blair lögfræð- ingur erindi um málefni kynjanna. Fundurinn er lokaður almenningi, nema erindi Booth Blair, sem verð- ur opið fjölmiðlum. Fimmtíu konur funda á heims- fundi ráðherra í Reykjavík Morgunblaðið/Kristinn Vigdís Finnbogadóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir og Cherie Booth Blair. Fasteignir og Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.