Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 11 MINNSTAÐUR Tilefni ferðarinnar var að Land-græðslufélagið við Skarðsheiði hafðiopið hús á laugardaginn í Ölveri þarsem boðið var upp á fræðslu um uppgræðsluna í máli og myndum. Segja má að frá því að verkefnið hófst hafi það gengið ótrúlega vel. Það var Guðrún Jónsdóttir, þá- verandi framkvæmdastjóri Markaðsráðs Borgarfjarðar, sem heyrði að bændur á svæð- inu hefðu áhuga á að gera eitthvað til að græða þetta land upp, enda stór hluti þess or- foka melar. Hún greip hugmyndina á lofti og bar hana undir stjórnarformann Markaðs- ráðs, Kristínu Þorbjörgu Halldórsdóttur, sem tók henni vel. Þetta var árið 1997. Hjólin fóru að snúast og árið 1998 var haldinn fyrsti sam- ráðsfundur með bændum á svæðinu og sagði Guðrún að strax hafi komið í ljós hvað bænd- ur á svæðinu voru framsýnir. Eftir þennan fund var ljóst að allir vildu halda áfram og samstillt átak Markaðsráðs, Landgræðslu rík- isins, Skógræktar ríkisins, Búnaðarsambands Vesturlands og landeigenda á svæðinu hefur skilað þessum góða og skjóta árangri. Samstaða landeigenda skipti sköpum Fram kom á laugardaginn að samstaða jarðeigenda á öllu þessi svæði hafi skipt sköp- um svo og þátttaka þeirra í verkefninu og dugnaður. Um er að ræða 17 jarðir allt frá Neðra-Skarði í Leirár- og Melahreppi að Innri-Skeljabrekku í Borgarfjarðarsveit. Árið 2000 var Landgræðslufélagið við Skarðsheiði stofnað með það að meginverkefni að vinna að landbótum á örfoka landi við Hafnarfjall. Unnið er í nánu samstarfið við Landgræðslu ríkisins með stuðningi frá Vegagerðinni og ekki síst Pokasjóði sem hefur verið að- alstyrktaraðili verkefnisins. Þórunn Pétursdóttir héraðsfulltrúi Land- græðslu ríkisins sagði að þeir sem ekki hefðu verið mikið á svæðinu tækju ekki mikið eftir breytingunum og þætti bara eðlilegt að sjá allan þennan gróður. Það væru frekar þeir sem farið hafa mikið um svæðið í gegnum tíð- ina og fylgst hafa með breytingunum sem væru undrandi á árangrinum og einnig þeir sem unnið hafa að þessari uppgræðslu. Bjartsýnustu menn trúa varla eigin augum Andrés Arnalds er einn þeirra og þótt hann segðist vera mjög bjartsýnn maður hefði hann aldrei búist við að árangur mundi nást svona fljótt. Marteinn Njálsson bóndi í Vestri- Leirárgörðum sagðist muna eftir því að þegar hann var strákur hefðu kýrnar átt það til að týnast í skóginum undir fjallinu. Einnig hefði verið mjög erfitt að smala því kindurnar vildu skjótast inn í kjarrið og erfitt var að ná þeim þaðan aftur. Marteinn er á miðjum aldri og því ekki langt síðan þetta var. Hann segir að undanhaldið hafi gerst mjög hratt og svæðið blásið upp á skömmum tíma. Nú hefði það heldur betur tekið við sér aftur. Þegar farið var að huga að aðgerðum kom í ljós að um 2.000 hektarar lands þyrftu að- hlynningar við. Aðgerðir hófust 1999 og lagt upp með þrjú meginmarkmið: Að græða upp land á stórum svæðum í grennd við Hafn- arfjall í þeim tilgangi að breyta illa förnu landi í gott nytjaland, að vernda og stuðla að frekari nýliðun birkis innan Hafnarskógar og að draga úr vindstyrk á hinum vindasama vegarkafla undir Hafnarfjalli með skjólbelta- og skógrækt. Félagið hefur síðan notið fag- legrar ráðgjafar og aðstoðar frá Landgræðsl- unni og fjárstyrks frá Pokasjóði eða Um- hverfissjóði verslunarinnar frá upphafi. Kom fram að án þess myndarlega stuðnings hefði þessi árangur ekki náðst. Landgræðslan, Skógræktin, Vegagerðin og Borgarfjarð- arsveit hafa einnig veitt verkefninu fjárstuðn- ing. Meðalþyngd dilka jókst um 2 kíló Í ferðinni á laugardaginn sást greinilega góður árangur raðsáningar og áburðargjafar í landi Fiskilækjar og einnig hvað áburðargjöf ein og sér hefur gefið góða raun við að efla gróður sem fyrir var. Á þessu landi gengur sauðfé og kom fram í máli Friðriks Aspelund skógræktarráðunautar, sem tók þátt í verk- efninu frá upphafi, að í fyrstu hefðu menn haft miklar áhyggjur af því hve sauðfé sótti í uppgræðsluna. Hjá bændunum kom hins veg- ar fram að með beitarstjórnun virðist þetta hafa verið í góðu lagi. Fé væri ekki hleypt á svæðið fyrr en gróður væri kominn vel á veg um 10. júní og engin kind færi þangað eftir réttir. Baldvin Björnsson í Skorholti, formað- ur Landgræðslufélagsins, sagði aðspurður að meðalþyngd dilka hjá honum hefði aukist um tvö kíló á síðustu árum. Hann vildi þó ekki fullyrða að það væri uppgræðslunni einni að þakka. Hafnarskógur hefur tekið vel við sér, en hann hefur alveg verið friðaður fyrir beit auk þess sem borið hefur verið á illa farna bletti innan hans. Nokkur nýliðun á sér stað, en Þórunn Pétursdóttir sagði að því miður hefði ekki tekist að ná fræjum í skóginum. Svo virð- ist sem eitthvert skordýr nái að éta innan úr fræbelgjunum. Reynt hefur verið að auka út- breiðslu Hafnarskógar með því að gróðursetja mörg þúsund birkiplöntur á Grjóteyrarhæð ofan við Hafnarskóg. Skjólbeltarækt hófst sumarið 2000, fyrst á einu erfiðasta svæðinu á Narfastaðamelum. Vegna erfiðleika við að koma beltinu þar upp hefur verið bætt í það bæði árið 2001 og 2002. Síðan hefur verið haldið áfram með skjól- beltarækt meðfram þjóðveginum. Tilraunir með sveppa- smitaðar birkiplöntur Auk þess að raðsá grasfræi hefur lúpínu einnig verið raðsáð á hluta af svæðinu. Í sumar voru svo um 6.000 birkiplöntur gróð- ursettar innan um lúpínuna. Áður en þær voru gróðursettar var þeim dýft í sérstakt sveppagums, eins og Úlfur Óskarsson líffræð- ingur kallar það. Úlfur var með kynningu á svepprótum og áhrifum þeirra og mikilvægi fyrir trjáplöntur. Hann segir samlífi svepp- róta og trjáa nauðsynlegt og með því að sjá til þess að trjáplöntur séu smitaðar með svepp- rótum fyrir gróðursetningu eigi þær auðveld- ara með að vaxa og dafna. Í bestu tilfellum næst fram þrefaldur vaxtarhraði birkiplantna á rýru landi vegna aukinnar svepprótar á plöntunum, en nokkurn tíma getur tekið fyrir plönturnar að mynda sjálfar svepprætur. Svepprætur virka eins og útvíkkun á rót- arkerfinu sem hjálpar plöntunni við að ná í næringarefni og vatn. Á móti veitir plantan sveppunum orku. Skógur vex á örfoka landi Uppgræðslan við rætur Hafnarfjalls hefur gengið betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Það sést vel frá þjóðvegi 1 að ásýnd landsins hefur tekið stakkaskiptum. Ásdís Haraldsdóttir brá sér í rútuferð með landgræðslu- fólki, bændum og fleirum til að skoða árangurinn. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Málin rædd Í skoðunarferðinni virtu þátttakendur fyrir sér þann góða árangur sem náðst hefur við uppgræðslu lands undir Hafnarfjalli. Árangur Gras og birki hefur tekið vel við sér við áburðargjöf sem beitt hefur verið. asdish@mbl.is SJÖFN Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar, segir að um það hafi verið rætt milli Starfsmanna- félagsins og fulltrúa Reykjavík- urborgar á vordögum að upp- sagnarfrestur gæslukvenna Reykjavíkurborgar hæfist þegar gæsluvöllum yrði lokað hinn 1. september. Þær yrðu á launum út uppsagnarfrestinn án þess að skila vinnu á móti. „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að þetta haldi,“ segir Sjöfn en uppsagnarfrestur gæslu- kvennanna fer eftir starfsaldri; hann er frá þremur mánuðum upp í sex mánuði. „Við höfum auk þess lagt áherslu á það allan tím- ann að enginn missi vinnu sína við þetta óski hann eftir áfram- haldandi starfi,“ bætir hún við. Aðspurð segir hún að umrætt fyrirkomulag, þ.e. að vera á laun- um út uppsagnarfrestinn án þess að skila vinnu á móti, feli í sér kjör sem séu umfram kjarasamn- inga, skv. ýtrasta skilningi þeirra. Haft var eftir Karólínu Snorradóttur formanni Félags gæslukvenna í Morgunblaðinu, að það sem gæslukonunum hafi stað- ið til boða sé enginn starfsloka- samningur heldur sjálfsögð rétt- indi sem þær eigi inni skv. kjarasamningum. „Þeir tala um að þetta sé starfslokasamningur af því að við þurfum ekki að vinna uppsagnarfrestinn,“ sagði hún meðal annars. „Þetta er kjarasamningur en enginn starfs- lokasamningur.“ Gæslukonurnar verði á launum út uppsagnarfrestinn VESTURLAND FJÖLÞJÓÐLEG æfing sprengju- eyðingarsveita, Northern Chall- enge 2005, hefst í dag, en Land- helgisgæslan stendur fyrir æfingunni í samvinnu við varnar- liðið. Markmið æfingarinnar er að líkja eftir raunverulegum hryðju- verkum sem framin hafa verið í London, Írak og Afganistan, og gefa þátttakendum kost á að æfa viðbrögð við þeim. M.a. verða æfð viðbrögð við sjálfsmorðssprengju- árásum og hryðjuverkaspreng- ingum í flughöfnum, höfnum og um borð í skipum. Sex erlendar sprengjueyðing- arsveitir taka þátt í æfingunni og að minnsta kosti 50 þátttakendur koma frá útlöndum, en auk þeirra eru u.þ.b. 50 þátttakendur frá Landhelgisgæslunni, lögreglunni á Keflavíkurflugvelli, öryggissviði Flugmálastjórnar á Keflavíkur- flugvelli og Tollgæslunni í Reykjavík auk varnarliðsins. Fjölþjóðleg sprengju- æfing haldin hérlendis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.