Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 31 11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 nokkur sæti laus 12. sýn. sun. 4/9 kl. 16 nokkur sæti laus 13. sýn. fim. 8/9 kl. 19 sæti laus ÁSKRIFTAR KORT GÓÐA SKEMMTUN Í ALLAN VETUR FJÓRAR LEIKSÝNINGAR Á 6.900 KR. 4 600 200 / WWW.LEIKFELAG.IS Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN Nýja svið / Litla svið KYNNING LEIKÁRSINS Leikur, söngur, dans og léttar veigar Su 11/9 kl 20 - Opið hús og allir velkomnir EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON Stórtónleikar Fö 2/9 kl 20 – UPPSELT Fö 2/9 kl 22:30 – UPPSELT REYKJAVIK DANCE FESTIVAL Nútímadanshátíð 1.-4. September Fi 1/9 kl 20 Játningar minnisleysingjans, IM PANZER, Postcards from home Fö 2/9 kl 20 Crystall, Wake up hate Lau 3/9 kl 15 og 17 Videoverk í Regnboganum Su 4/9 kl 14 Heima er best - Barnasýning kr. 800 Kl 20 Who is the horse, Love story Almennt miðaverð kr 2000 - Passi á allar sýningarnar kr 4000 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Lau 3/9 kl 14, Su 4/9 kl 14, Su 11/9 kl 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Lau 3/9 kl 20, Fi 8/9 kl. 20, Fö 9/9 kl 20 Lau 10/9 kl 20, Su 11/9 kl 20, Fi 15/9 kl. 20 ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN! Sala nýrra áskriftarkorta hefst laugardaginn 3. september - Það borgar sig að vera áskrifandi - Félagsstarf Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14. Bókabíllinn kl. 13.30–14, boccia kl. 10. Ath. baðþjónusta fyrir hádegi alla daga nema miðvikudaga kl. 13–16. Vinnustofa frá kl. 9, hádegismatur frá kl. 12–13. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, samverustund, fótaaðgerð. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 13–16 brids. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan er opin í dag frá kl. 10. til 11.30. Félagsvist verður spiluð í kvöld í Gullsmára kl 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Dagsferð 3. sept- ember: Fjallabak syðra, Emstrur. Ekið að Keldum og um Fjallabak syðra að Álftavatni, síðan um Hvanngil og Emstrur, komið að Markarfljótsgljúfri og ekið um Fljótshlíð. Nokkur sæti laus ath. takmarkaður sætafjöldi. Uppl. og skráning í síma 588 2111. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. almenn handavinna og tréútskurður. Frá há- degi spilasalur opinn, m.a. vist, brids og skák. Miðvikud. 31. ágúst kl. 14 er fundur hjá Gerðubergskór, nýir fé- lagar velkomnir. Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Bergi. Allar uppl. á staðnum og í síma 575 7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi – spjall – dagblöðin, kl. 10 fótaaðgerð, bæna- stund, kl. 12 hádegismatur, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Gler kl. 13. Brids kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–16, Böðun virka daga fyrir há- degi. Hádegisverður. Frjáls spila- mennska kl. 13–16. Fótaaðgerðir 588 2320. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Púttvöllur opinn alla daga. Listasmiðja og Betri stofa kl. 9– 16. Dagblöðin liggja frammi. Morg- unkaffi, hádegisverður og síðdeg- iskaffi. Félagsvist kl. 13.30. Hár- greiðslustofa, s. 568 3139. Fótaaðgerðarstofa, s. 897 9801. Ferð á Snæfellsnes 18. ágúst. Brottför kl. 9. Uppl. í s. 568 3132. Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 13– 16.45 opin vinnustofa. Rauði kross Íslands – svæðis- skrifstofa á höfuðborgarsvæði | Sjálfboðaliðar óskast í spennandi og skemmtilegt sjálfboðastarf fyrir Fataflokkun Rauða krossins. Eftirfar- andi verkefni þarfnast aukins mannafla: Afgreiðsla í verslunum Fataflokkunarinnar. Tímabundið gámapökkunarverkefni. Upplýsingar veitir Jón B. Birgisson s: 565 2425 / jon@redcross.is. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11.45– 12.45 hádegisverður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja 8.45, handavinnustofan opin, hár- greiðsla og böðun, frjáls spila- mennska kl. 13. Skráning stendur yfir í námskeið vetrarins sem eru opin öll- um og öllum aldurshópum. Uppl. í síma 411 9450. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Morgunblaðið/Ásdís HAMRAHLÍÐARKÓRINN gekk syngjandi inn í Hallgrímskirkju á laugardaginn um sexleytið og hóf þar með tónlistarveislu sem gladdi ekki aðeins eyrað heldur augað líka. Vanalega eru kórtónleikar ekki mikið sjónarspil, en á tónleik- unum í Hallgrímsirkju var brugðið út af vananum er kórinn flutti Vikivaka eftir Atla Heimi Sveins- son. „Ríður ríður hoffmann í rauð- um skóg“ sungu kórfélagarnir glaðlega og gengu hingað og þangað um kirkjuna á meðan. Virtist í fyrstu sem kórstjórinn, Þorgerður Ingólfsdóttir, væri end- anlega búin að missa öll völd yfir kórnum. En svo kom í ljós að at- riðið var meistaralega vel skipu- lagt, og sannaðist það í lokin er kórfélagarnir skiluðu sér aftur á sviðið í hárréttri röð nokkrum sekúndum fyrir lokatóninn. Þetta var frábærlega skemmtileg uppá- koma og eitt eftirminnilegasta lag- ið á tónleikunum. Tær hljómur Hamrahlíðarkórs- ins naut sín einstaklega vel í óm- ríkri kirkjunni; þó að nokkrar inn- komur væru ekki alveg fullkomnar og bassarnir hefðu mátt vera ögn kraftmeiri hér og þar, gerði það lítið til. Söngur kórsins var ávallt hreinn, en líka hljómmikill og til- finningaþrunginn og túlkunin var svo hrífandi undir vandaðri stjórn Þorgerðar að maður gleymdi ger- samlega stund og stað. Þjóðlagið Nú vil ég enn í nafni þínu í útsetningu Hafliða Hall- grímssonar var t.d. ólýsanlega fal- legt, enda voru smæstu blæbrigði mótuð af óvanalegri smekkvísi. Á raupsaldrinum eftir Þorkel Sig- urbjörnsson, sem er lítið, einfalt lag, var einnig flutt á markvissan hátt og Húm I og II fyrir kór og klarinettu eftir Atla Heimi var sérlega heillandi í meðförum kórs- ins og Gríms Helgasonar klarin- ettuleikara. Sömu sögu er að segja um lögin Vorið, það dunar eftir Þorkel, Fögnuður eftir Hauk Tómasson og Kveðið í bjargi og Vorkvæði um Ísland eftir Jón Nordal, auk nokkurra þjóð- og ættjarðarlaga, en öll voru þau túlkuð á sannfærandi máta. Fyrir utan íslensku tónlistina flutti kórinn líka Divinum Myst- erium eftir Olli Kortekangas og ...which was the son of... eftir Arvo Pärt. Fyrrnefnda tónsmíðin var fremur rislítil en var samt ágætlega sungin; hin var aftur á móti viðburðarrík og fjörleg þrátt fyrir að textinn væri ekkert annað en ættartala Krists. Meira að segja varð vart við smá húmor sem maður á annars ekki að venj- ast af tónskáldinu. Þetta voru prýðilegir tónleikar og þó ringulreið hafi virst grípa um sig í Vikivaka Atla Heimis var auðheyrt að engin agavandamál eru í Hamrahlíðarkórnum undir styrkri stjórn Þorgerðar. „Söngur kórsins var ávallt hreinn, en líka hljómmikill og tilfinningaþrunginn og túlkunin var svo hrífandi undir vandaðri stjórn Þorgerðar að maður gleymdi gersamlega stund og stað,“ segir Jónas Sen m.a. í umsögninni. Meistaralega skipulagt TÓNLIST Hallgrímskirkja Hamrahlíðarkórinn söng íslensk þjóðlög og tónsmíðar eftir íslensk og erlend tón- skáld. Stjórnandi: Þorgerður Ingólfs- dóttir. Grímur Helgason lék á klarinettu. Laugardagur 27. ágúst. Kórtónleikar Jónas Sen RÚMLEGA 150 gestir voru viðstaddir opnun sýningarinnar „VULKAN“ í sendiráði Ís- lands í Kaupmannahöfn sl. fimmtudag. Um er að ræða samsýningu Ásdísar Frímanns- dóttur gullsmiðs í Kaupmannahöfn og Mar- grétar Jónsdóttur, leirlistakonu frá Akureyri. Á sýningunni sýnir Margrét m.a. kerta- stjaka, skálar og skúlptúra og Ásdís skart- gripi úr gulli, silfri og ýmsum eðalsteinum, auk þess sem íslenska hraunið kemur tölu- vert við sögu í skartgripum hennar. „Hinn mikli áhugi Dana á íslenskri list og hönnun sýnir svo ekki verður um villst að Íslend- ingar eiga ekki síður mikla möguleika á lista- sviðinu en á sviði viðskipta í Danmörku, það sýnir sig m.a. í því að mikill meirihluta gesta sem voru við opnunina voru Danir,“ segir Margrét Jónsdóttir. Ásdís Frímannsdóttir segir Dani vera almennt forvitna um íslenska list og að íslensk náttúra höfði mjög sterkt til þeirra. „Ég held að þetta sambland frumefn- anna og listarinnar undir yfirskriftinni VULKAN hafi þess vegna hitt í mark,“ segir Ásdís. Margrét Jónsdóttir starfar á Akureyri og er með vinnu- og sýningarsal á Gránufélags- götu 48. Ásdís Frímannsdóttir hefur búið í Kaupmannahöfn sl. 13 ár og rekið þar versl- un og vinnustofu í Klosterstræde 14, í mið- borg Kaupmannahafnar. Sýningin stendur til 23. september og er opin alla virka daga frá kl. 9 til 16 í móttöku- sal sendiráðs Íslands, Strandgade 89, 1401 Kaupmannahöfn. List | Leir og skart í sendiráðinu í Kaupmannahöfn Danir forvitnir um íslenska list Margrét Jónsdóttir, Friðrik Jónsson og Ásdís Frímannsdóttir við opnun sýningarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.