Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 28
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn FARA SNIGLAR NOKKURN TÍMANN ÚR SKELINNI? JÁ, EN BARA Í TVEIMUR TILFELLUM HVAÐA TILFELLUM? VIÐ BRUNAÆFINGAR OG ÞEGAR VIÐ FÖRUM Á NEKTARSTRENDUR MÉR LÍST VEL Á ÞESSA FERÐ ÞÍNA ÞÁ SLEPP ÉG VIÐ AÐ GEFA ÞÉR AÐ ÉTA Í KVÖLD ÉG KÆRI ÞIG FYRIR LANDRÁÐ! HVAÐA LEIK ERTU AÐ SPILA GRÍMUR? ÉG ER AÐ BRUGGA UPPÁHALDS DRYKKINN MINN SEX FLÖSKUR AF ROMMI MEÐ EINNI SÍTRÓNU- SNEIÐ HVAÐ HEITIR HANN? „ÁVAXTA DRYKKUR HRÓLFS“ KALVIN OG HOBBES ÞJÓTA NIÐUR GÖTUNA Á 120 KÍLÓMETRA HRAÐA HOBBES GEFUR STEFNULJÓS ÞEIR FARA HRAÐAR OG HRAÐAR. HÓPUR BARNA Á LEIÐ Í SKÓLANN ÞARF AÐ VÍKJA SÉR UNDAN Í FLÝTI LÖGREGLAN ER Á HÆLUNUM Á ÞEIM. KALVIN SKRÍÐUR NIÐUR OG SKIPTIR UM GÍR HOBBES FLAUTAR GET ÉG EKKI SKILIÐ ÞIG EINAN EFTIR Í SMÁSTUND ÁN ÞESS AÐ ÞÚ LEGGIST Á BÍLFLAUTUNA! EN ÞAÐ VAR HOBBES ÞAÐ ER LEITT! ALLSEKKI, ÁSTIN MÍN ÉG HELD AÐ VON BRÁÐAR EIGI HANN EFTIR AÐ GRÁTBIÐJA OKKUR UM ÞESSAR MYNDIR MARKÚS VILL EKKI KAUPA MYNDIR AF EIN- HVERJUM SEM HANN HEFUR ALDREI HEYRT UM ÁSTIN MÍN, GETUR ÞÚ PASSAÐ Í KVÖLD? ÉG OG SIMMI ÆTLUÐUM AÐ HITTAST OG SPILA KÖRFUBOLTA ÞÁ ÞAÐ, ÞÚ HEFUR ALLAVEGA G0TT AF HREYFINGUNNI SAGÐI HÚN AÐ ÞÚ HEFÐIR GOTT AF HREYFINGUNNI OG ÞÚ SAGÐIR EKKERT! JÁ, ÉG SKAMMAST MÍN HELST EKKI HOBBES KVEIKIR Á RÚÐU- ÞURRKUNUM Dagbók Í dag er mánudagur 29. ágúst, 241. dagur ársins 2005 Víkverji hefur aldreiverið mikill áhugamaður um dýr. Sjaldan stigið fæti inn á bóndabýli, hvað þá að hann hafi verið tíð- ur gestur í fjósum eða fjárhúsum landsins. Reyndar var Vík- verji alinn upp á nær algjörlega dýralausu heimili, fyrir utan einn kött sem fékk þar vist í nokkra mánuði og ógrynnin öll af gúbbí- fiskum, sem enduðu flestir ævi sína í kló- settskálinni. Ekki skal þó ætla svo að Víkverja sé illa við dýr, alls ekki. Honum líkar bara ekki að hafa þau of nálægt sér, hann heldur sig í öruggri fjarlægð frá óðum hundum, klóruköttum, blakandi páfagaukum, sparkandi hestum, miður geðslegum köngulóm, slefandi kúm og öðrum kvikindum. Þetta hefur Víkverji komist upp með undanfarin ár, það er að segja, allt þar til nýlega. Víkverji á nefnilega kunningja sem á þrjá ketti. Þar af er ein læða sem „óvart“ varð kettlingafull í vor. Kunninginn hótaði Víkverja með því vikum saman að honum yrði gefinn kettlingur þegar hausta tæki. Víkverja hafa alltaf þótt kettir sérlega leiðinleg kvik- indi og hefur heitið sjálfum sér því að einn úr þeirra hópi fengi aldrei fæti stigið inn á heimili hans. Svo kom að því að kettlingarnir fæddust og kunninginn bauð Víkverja í heimsókn. Víkverji þáði boðið og hreinlega féll í stafi yf- ir krúttleika dýranna. Sérstaklega var einn sem honum þótti heillandi og sagðist skyldu taka hann, í góðu gríni auðvitað. Nokkrum dögum síðar hitti Vik- verji kunningja sinn á ný. Kunn- inginn spurði: „Ætlar þú að fá kett- ling.“ „JÁ,“ sagði Víkverji, alveg ósjálfrátt. „Ertu viss?“ spurði þá kunninginn. „JÁ,“ svaraði Víkverji kotroskinn á ný, og varð forviða á eigin orðum. Nú hefur kettlingurinn búið á heimili Víkverja í rúman mánuð og það verður að segjast að hann er yndislegur og efast Víkverji um að nokkurn tímann hafi verið jafnheim- ilislegt þar eins og eftir að kisi litli kom. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is            Listasafn Sigurjóns | Á sumartónleikum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld kl. 20.30 syngur Alda Ingibergsdóttir við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar lög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Jóhann Ó. Haraldsson, Jón Ásgeirsson og Sigfús Halldórsson og aríur ítölsku tónskáldanna Puccini og Verdi. Alda hefur farið með mörg hlutverk í óperum hérlendis: Fyrsta anda og einnig Næturdrottninguna í Töfraflautu Mozarts, Dísu í Galdra-Lofti Jóns Ásgeirssonar, Arzenu í Sígaunabaróni J. Strauss, Helenu fögru í samnefndri óperu eftir Offenbach og Kátu ekkjuna í samnefndri óperettu eftir Lehár. Þá hefur Alda haldið tónleika víða og komið fram sem einsöngvari með Sinfón- íuhljómsveit Íslands og ýmsum kórum og árið 2002 kom út geisladiskur með söng hennar: Ég elska þig. Morgunblaðið/ÞÖK Einsöngstónleikar Öldu MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. (Fil. 4, 5.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.