Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 15 ERLENT kemur næst út 10. september, fullt af spennandi efni um listina að gera vel við sig og sína í mat og drykk. Meðal efnisþátta í næsta blaði eru: • Góðgæti í saumaklúbbinn • Girnileg haustveisla • Sumarveiðin úr íslenskum ám • Náttúruleg salöt • Spænsk víngerð ásamt ýmsum sælkerafróðleik. Auglýsendur! Pantið fyrir miðvikudaginn 7. september. Allar nánari upplýsingar veitir Sif Þorsteinsdóttir í síma 569 1254 eða sif@mbl.is Íslenskir friðargæsluliðar hafaverið við þjálfun í Noregi síð-ustu vikurnar en nú líður sennað því að þeir haldi til Afgan- istans á vegum Atlantshafs- bandalagsins (NATO). Þar bíða þeirra krefjandi en að mörgu leyti spennandi verkefni en hinu verður ekki á móti mælt að talsverð hætta er þeim samfara. Engum blandast nefnilega hugur um að það getur brugðið til beggja vona í Afganistan, stoðkerfi og stofnanir samfélagsins eru einfaldlega ekki til staðar eftir átök undanfarinna ára, öryggi er ábótavant og lög og regla gilda víða alls ekki. Margir binda vonir við að þing- kosningar sem eiga að fara fram í Afganistan 18. september nk. komi til með að hafa jákvæð áhrif á þróun mála, en þær marka lokaskref Bonn- ferlisins svokallaða; þ.e. þeirra ákvarðana sem teknar voru á fundi um framtíð Afganistans í Bonn síðla árs 2001 eftir að Bandaríkjamenn höfðu unnið sigur á herjum talib- anastjórnarinnar. Og hvað NATO varðar binda menn miklar vonir við uppbyggingarsveitirnar sem Íslend- ingar verða brátt hluti af í Afganist- an – að minnsta kosti var mikið talað um þær á fundum sem ég sótti í höf- uðstöðvum bandalagsins í Brussel. Afganistan er stórt land, um 650.000 ferkílómetrar, erfitt yfir- ferðar og íbúarnir um 28,5 milljónir. Sex manna teymi sem halda út í sveitir landsins í því skyni að kanna ástandið og ræða við heimamenn – en þannig hafa fulltrúar utanrík- isráðuneytisins kynnt væntanleg verkefni Íslendinga í Meymana í norðurhluta landsins og Chaghchar- an í vesturhlutanum – virðast í því ljósi, og þegar hafðar eru í huga aðr- ar aðstæður sem ég nefndi í inn- ganginum, ekki geta skipt sköpum hvað varðar framtíðina. En í höfuðstöðvum NATO í Bruss- el halda menn því engu að síður fram að margt hafi áunnist í Afganistan, NATO hafi fyrir sitt leyti fært út kví- arnar í samræmi við óskir þarlendra ráðamanna og aðstoði nú varðandi öryggi í næstum helmingi landsins. Þetta hljóti að teljast þónokkuð. Víðast hvar sé öryggi þokkalegt, þó að enginn beri á móti því að sums staðar, einkum í suðurhlutanum þar sem talibanar eru hvað sterkastir, sé ástand mjög ótryggt. Hefur ofbeldi raunar færst í vöxt síðustu vikur og mánuði – ekki hafa jafnmargir bandarískir hermenn fallið í Afgan- istan frá lokum stríðsins við talibana 2001 – í aðdraganda kosninganna. „Þetta er ekki auðvelt verkefni, svo sannarlega ekki,“ sagði Victoria Nuland, sendiherra Bandaríkjanna hjá NATO, á fundi sem ég sótti með henni í Brussel. „En það skiptir miklu máli að vel takist til, NATO hefur lagt mikið undir.“ Kjörsókn í forsetakosningum í fyrra og væntanleg þátttaka í þing- kosningunum sýni að Afganar séu sama sinnis. „Áhuginn á lýðræði, hungrið eftir slíkum breytingum, fer vaxandi. Það er jákvætt,“ segir hún. Nuland eins og aðrir háttsettir embættismenn í höfuðstöðvum NATO, sem ég hitti að máli, reyna hvað þeir geta að mála jákvæða mynd af þróun mála og auðvitað einkum og sér í lagi af framlagi bandalagsins. Þeim finnst ekki að NATO hljóti það hrós sem það eigi skilið fyrir störf sín í Afganistan. Þetta skýrir kannski hvers vegna ég er einmitt á leiðinni til Afganist- ans eftir stutt stopp í Brussel. Bandaríkjamenn hafa haft frum- kvæði að því að bjóða ellefu blaða- mönnum frá jafnmörgum Evr- ópulöndum í NATO-ferð til Afganistans, gefa þeim þar með tækifæri til að sjá sjálfir hvað áunn- ist hefur – eða aflaga farið. Frá Mars eða Venus Victoria Nuland er nýkomin til starfa í Brussel, er átjándi sendi- herra Bandaríkjanna hjá NATO. Hún á áhugaverðan feril að baki, hefur síðustu tvö árin verið Dick Cheney varaforseta til ráðgjafar í þjóðaröryggismálum en er þó ekki pólitískt skipuð í núverandi embætti sitt, hún er diplómat að upplagi. Þetta segir ekkert um hvort hún fylgir hinum umdeilda Cheney að málum eður ei, eðli málsins sam- kvæmt er það einfaldlega starf henn- ar að framfylgja utanríkisstefnu þeirra stjórnvalda sem eru við völd þar vestra á hverjum tíma. En það er annað sem vekur at- hygli mína þegar ég virði fyrir mér ferilsskrá hennar. Nuland er nefni- lega gift Robert Kagan, fræðimanni og dálkahöfundi The Washington Post, en síðast þegar ég heimsótti höfuðstöðvar NATO í Brussel – sum- arið 2002 – var mikið rætt manna í millum um grein sem Kagan hafði þá nýlega skrifað þar sem hann færði rök fyrir því að grundvallarmunur væri á Evrópumönnum og Banda- ríkjamönnum að því er varðar af- stöðu til utanríkis- og öryggismála. „Evrópumenn eru frá Mars en Bandaríkjamenn frá Venus,“ skrif- aði hann ef mig misminnir ekki (þ.e.a.s. ef ég er ekki að snúa hlut- unum við). Meiri samhljómur er hins vegar með bandamönnum á vettvangi NATO nú en sumarið 2002. Að minnsta kosti virðast allir þeir, sem við hittum í Brussel, á sama máli að því er varðar Afganistan og verk- efnið þar; hermennirnir tíu þúsund, sem NATO hefur á vettvangi undir merkjum ISAF-sveitanna, eru þar að vinna mikilvægt starf sem skipt getur sköpum. Það verður forvitnilegt sjá hvort heimsókn okkar til Afganistans stað- festir þessa kenningu. Meir um það síðar. Áleiðis til Afganistans VIÐHORF Eftir Davíð Loga Sigurðsson í Brussel david@mbl.is NATO leggur áherslu á að vel hafi miðað fram á við í þessu stríðshrjáða landi Morgunblaðið/Eyþór Fyrsti hópur Íslensku friðargæslunnar sem fara mun til Norður- og Vestur-Afganistans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.