Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á einu og hálfu árihafa skuldir heim-ilanna í banka- kerfinu, hjá Íbúðalána- sjóði og hjá lífeyrissjóðum aukist um 186 milljarða króna. Þetta er 25% skuldaaukning. Í árslok 2003 námu lán- veitingar viðskiptabank- anna til heimilanna um 188 milljörðum króna. Skuld- irnar breyttust lítið fram- an af síðasta ári og um mitt ár voru þær komnar upp í 192 milljarða. Fyrir réttu ári hófu bankarnir að bjóða upp á lán til íbúðakaupa og við það stórjukust lánveitingar bankanna til heimil- anna. Lánin stóðu eins og áður segir í 188 milljörðum um áramót en voru ári síðar komin upp í rúm- lega 306 milljarða og hálfu ári síð- ar (í lok júní sl.) námu þessar lán- veitingar 433 milljörðum. Stór hluti þessara lánveitinga er til kominn vegna þess að fólk hefur greitt upp lán hjá Íbúðalánasjóði og tekið ný lán hjá bönkunum. Heildarútlán Íbúðalánasjóð námu 447 milljörðum í ársbyrjun 2004, en námu í lok júní sl. 389 millj- örðum. Sjóðsfélagalán lífeyris- sjóðanna hafa lítið breyst á þessu tímabili, en þau nema núna sam- tals um 90 milljörðum. Í ársbyrjun 2004 námu lán heimilanna hjá bönkunum, Íbúða- lánasjóði og lífeyrissjóðunum 726 milljörðum. Um síðustu áramót höfðu þessi lán hækkað um u.þ.b. 100 milljarða og námu 828 millj- örðum. Skuldirnar hafa aukist enn hraðar það sem af er þessu ári, en þær námu í lok júní sl. rúmlega 912 milljörðum. Í skýrslu sem Íbúðalánasjóður kynnti í sumar kemur fram að sjóðurinn sé með 56% markaðs- hlutdeild í húsnæðislánum. Hlut- deild bankanna sé 31% og lífeyr- issjóðanna 13%. Markaðurinn að ná jafnvægi Velta á fasteignamarkaði jókst mikið eftir að bankarnir hófu íbúðalán. Samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins voru 164 íbúðir seldar á höfuðborgarsvæð- inu síðustu viku ágústmánaðar í fyrra. Í byrjun október, þegar bankarnir voru komnir inn á markaðinn af fullum krafti, voru hins vegar seldar 298 eignir á einni viku á höfuðborgarsvæðinu. Markaðurinn hefur róast mikið síðan, en á einni viku um miðjan ágúst sl. voru seldar 136 fasteignir á höfuðborgarsvæðinu. Björn Þorri Viktorsson, formað- ur Félags fasteignasala, segir að markaðurinn sé að leita jafnvægis. Það taki lengri tíma nú en áður að selja eignir. Segja megi að ástand- ið á markaðinum í fyrra haust og framan af þessu ári hafi verið óeðlilegt. Eignir hafi selst á nokkr- um dögum og verðið hækkað stöð- ugt. Nú sé að komast meira jafn- vægi á markaðinn. Eftirspurn eftir húsnæði sé eftir sem áður mikil. Árið 2004 var 10.045 kaupsamn- ingum um fasteignir þinglýst við embætti sýslumannanna á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta er 18,7% aukning frá árinu 2003. Það sem af er árinu hefur rúmlega 6.000 kaupsamningum á höfuðborgar- svæðinu verið þinglýst. Mikill munur er orðinn á bruna- bótamati fasteigna og markaðs- verði, en brunabótamatið tekur mið af byggingavísitölu, sem hefur hækkað svipað og verðbólga síð- ustu mánuðina, en markaðsverð hefur hins vegar hækkað gríðar- lega að undanförnu. Björn Þorri segir að þetta hafi samt ekki valdið kaupendum fasteigna auknum erf- iðleikum við að fá lán því að eftir að viðskiptabankarnir hófu að lána til kaupa á íbúðahúsnæði hafi sveigj- anleiki í lánaviðskiptum aukist. Gríðarlegur munur á bruna- bótamati og markaðsverði Bankarnir hafa ekki samræmd- ar reglur um lánveitingar til fast- eignakaupa. Björn Þorri segir að bankarnir leggi sjálfstætt mat á lánshæfi viðskiptavina og þetta mat skipti ekki síður máli en lána- reglurnar. Bankarnir miði hins vegar í meginatriðum við bruna- bótamat að viðbættu lóðamati. Þegar brunabótamatið sé lágt eigi lántakendur hins vegar kost á að kaupa viðbótartryggingu. „Munur á brunabótamati og markaðsverði er gríðarlegur í mörgum tilvikum. Það er í sjálfu sér ósköp eðlilegt því að bruna- bótamat á samkvæmt nýjum reglum ekki að endurspegla mark- aðsverð eignar. Matið á að endur- spegla byggingarkostnað að teknu tilliti til fyrninga vegna aldurs eignarinnar. Lóðarverð, sem er orðið mjög hátt hlutfall af bygg- ingarkostnaði, er ekki tekið inn í brunabótamatið. Það eru bara hin efnislegu gæði sem tekin eru inn í matið. Brunabótamatið er því um margt úrelt viðmiðun, ein og sér, fyrir lánveitendur.“ Björn Þorri segir hins vegar að þessi mikli munur á brunabóta- mati og markaðsverði fasteigna hafi ekki aukið vanda íbúðakaup- enda. Þvert á móti hafi þetta vandamál minnkað eftir að við- skiptabankarnir komu inn á íbúða- markaðinn. Fréttaskýring | Skuldir heimilanna jukust hratt í kjölfar íbúðalána bankanna Heimilin auka lántökur Fasteignaverð hefur hækkað mjög mikið. Mikill munur á brunabóta- mati og markaðsverði  Brunabótamat endurspeglar byggingarkostnað ef hús brenn- ur. Matið tekur ekki tillit til verð- mætis lóðar eða þess verðmætis sem hlýst af staðsetningu. Matið breytist árlega í samræmi við breytingar á byggingarkostnaði og breytist auk þess mán- aðarlega í takt við bygginga- vísitölu. Á síðustu 12 mánuðum hækkaði byggingavísitala um 4,3% en fasteignaverð á höfuð- borgarsvæðinu hefur á sama tíma hækkað um 40%. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Skuldir heimilanna hafa aukist um 25% á einu og hálfu ári eða um 186 milljarða ÞESSIR krakkar reyndu sig við nýju hreystibrautina í Mosfellsbæ, en hún var tekin í gagnið á menningar- og útivistardögum sem haldnir voru í bænum um helgina. Brautin er við íþróttamiðstöðina að Varmá og geta gestir í hreyfingarhug nú tekið á því í brautinni að loknu skokki eða áður en farið er í sund. Brautin er tvískipt þannig menn geta líka keppt í henni og um helgina vígðu frægir hreystikappar, þeir Ívar Guð- mundsson og Arnar Grant, brautina með æsispenn- andi keppni, auk þess að bekkjarkeppni var haldin á milli grunnskólabarna. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri segir braut- ina hafa virkað eins og segull á krakkana og að þau hafi sýnt ótrúlega hæfni í henni. „Við litum á þetta sem sniðuga viðbót við íþrótta- virkin að Varmá. Mosfellsbær er mikill íþrótta- og útivistabær enda stutt í ósnortna náttúruna og öflugu íþróttastarfi haldið uppi fyrir alla aldurshópa í bæn- um,“ segir Ragnheiður. Morgunblaðið/Kristinn Hreystibraut fyrir hrausta Mosfellinga STJÓRN Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH) hefur í fyrsta sinn birt hálfsársuppgjör sjúkrahússins og kemur þar fram að rekstur þess sé nokkurn veginn í jafnvægi. Um tímamót er að ræða því ekki hefur áður tíðkast, að opinber stofn- un birti slíkt uppgjör. Í uppgjörinu kemur m.a. fram að spítalinn glími við erfiða greiðslustöðu vegna upp- safnaðs halla fyrri ára. Þá kemur fram, að íbúum landsins hafi fjölgað, sérstaklega eldri borgurum en aukn- ar lífslíkur feli í sér flóknari með- ferðir sjúklinga. Þá segir að samein- ing spítalanna í Reykjavík hafi skilað styrkari spítala þótt hlutfall af fjár- lögum ríkisins til LSH hafi lækkað eftir sameininguna. Gjöld 79 milljónir umfram tekjur Gjöld á fyrri helmingi ársins námu 14.367 milljónum króna en tekjur hafi verið 14.288 milljónum króna. Voru gjöldin því 79 milljónum króna umfram tekjur. Nemur það minna en einu prósenti af rúmlega 14 millj- arða króna veltu. Hins vegar kemur fram að greiðslustaða LSH hafi verið erfið vegna uppsafnaðs halla frá fyrri ár- um. Eru skammtímakröfur LSH samkvæmt efnahagsreikningi 694 milljónir króna og hafa þær aukist um 50 milljónir frá áramótum. Skammtímaskuldir sjúkrahússins eru hins vegar rúmir 1,9 milljarðar. Segir í uppgjörinu, að tölurnar sýni glöggt, að greiðslustaðan sé erfið þrátt fyrir ríflega hálfs milljarðs króna flýtigreiðslu frá ríkissjóði. Geri slæm greiðslustaða og myndun dráttarvaxtakrafna á LSH samskipti við birgja erfiðari. Jafnvægi í rekstrarkostnaði Þá kemur fram, að þrátt fyrir að jafnvægi hafi náðst hafi þurft að lækka rekstrarkostnað um 3% á síð- asta ári. Hafi markmiðið náðst að einum þriðja. Í ár þurfi hins vegar að lækka rekstrarkostnað um 2% og er stutt eftir að það náist. Aðeins tvö svið sýna kostnað utan fjárheimilda, en það eru lyflækningasvið I og slysa- og bráðasvið. Er ástæðan fjölgun hjartaþræðinga og krans- æðavíkkana til að ná niður biðlistum, fleiri sjúklinga á legudeildum vegna flensufaraldurs og fjölgun á göngu- deildum og slysa- og bráðamóttöku. Flest önnur svið LSH eru í samræmi við fjárheimildir. Hætt við valaðgerðir vegna flensu Í uppgjörinu kemur fram, að vegna flensufaraldurs á fyrstu mán- uðum ársins hafi þurft að hætta við valaðgerðir sökum þess að sjúkling- ar, sem lögðust inn, voru ýmist með flensu eða vegna þess að öll legurými voru upptekin vegna flensu, sem lagðist þungt á sjúklinga spítalans, sérstaklega aldraða. Lífslíkur hafa aukist hér á landi og hefur þeim sem eru eldri en 67 ára fjölgað mikið, sérstaklega á höfuð- borgarsvæðinu. Segir í skýrslunni, að auknar lífslíkur feli í sér flóknari meðferð sjúklinga á hverju ári og bendi allt til þess að kostnaður muni vaxa að raunvirði samfara bú- setuþróun og breyttri aldurssam- setningu þjóðarinnar. Þá sé gert ráð fyrir því í alþjóðlegum spám, að fjölgun verði í ákveðnum sjúkdóms- flokkum, t.d. sé gert ráð fyrir því að krabbameinssjúklingum fjölgi ár- lega um 5%. Feli það í sér hækkun kostnaðar í heilbrigðisþjónustu. Styrkari spítali eftir sameiningu Stjórn LSH segir rekstrarkostnað hafa nánast staðið í stað frá samein- ingu spítalanna í Reykjavík þrátt fyrir lækkun af fjárlögum ríkis til spítalans. Sýna stjórnunarupplýs- ingar að í kjölfar sameiningar hafi náðst umtalsverð framleiðniaukning sérgreina. Starfsfólki hafi fækkað og vöktum sömuleiðis. Þá hafi dregið úr yfirvinnu. Auk þessa hafi útboðum fjölgað og breyting á innkaupum fyr- ir spítalann breyst til muna, sem miði að því að draga úr kostnaði. Þá segir, að sameining sérgreina sé á lokastigi og búið sé að endurskipu- leggja starfsemina að miklu leyti. Leiti spítalinn eftir því að laða sig að breyttri aldurssamsetningu og bú- setuþróun í landinu. Hálfsársuppgjör LHS birtist í fyrsta sinn Rekstur spítalans nánast í jafnvægi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.