Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ SÖNGKONURNAR Sigríður Bein- teinsdóttir og María Björk fengu afhentar þrjár gullplötur fyrir sölu á hljómplötunum Söngvaborg 1, Söngvaborg 2 og Söngvaborg 3 í Vetrargarði Smáralindar laug- ardaginn 27. ágúst. Söngvaborg- irnar eru langsöluhæsta barnaefni sem komið hafa út á Íslandi á síð- ustu árum. Hafa fyrstu tvær plöt- urnar selst í yfir 9.000 eintökum en sú þriðja í yfir 7.000 eintökum. Georg, sparibaukur Íslands- banka, afhenti söngkonunum barn- góðu gullplötuna, en yngstu við- skiptavinir bankans hafa verið duglegir að fylla Georg og hafa fengið Söngvaborg á geisladisk í staðinn. Upphaf Söngvaborganna var ár- ið 1995 þegar Sigríður gaf út mynd- bandið Söngvastund, þar sem hún söng og lék með börnum. Hug- myndin vatt síðar upp á sig þegar Sigríður gekk til samstarfs við Mar- íu Björk og árið 2000 kom fyrsta Söngvaborgin út. Þar komu einnig fram börn sem sungu einsöng og jafnframt var fræðslu komið að í gegnum leik og söng. Yfirskrift Söngvaborganna er að kenna og fræða börn í gegnum sönginn en hafa jafnframt af því ánægju. Söngvaborgin hefur svo komið út annað hvert ár og hefur efnið verið gert fjölbreyttara með hverju myndbandi, m.a. hafa komið gestir og ný lög af erlendum uppruna kynnt. Margt var góðra gesta hjá þeim Sigríði og Maríu á laugardaginn og mættu m.a. Masi, Georg og Svala- kallarnir. Þá sýndi Bjarni töfra- maður listir sínar og atriði var flutt úr söngleiknum Annie. Solla stirða og Halli hrekkjusvín mættu einnig á svæðið og sprelluðu með krökk- unum. Morgunblaðið/Árni Torfason María Björk og Sigga Beinteins hróðugar með gullplöturnar sínar. Sigga Beinteins og María Björk fá gullplöt- ur fyrir Söngvaborgir ÞRAUTADROTTNING Íslands- hottsins var krýnd á laugardags- kvöldið á hinni árlegu Seltjarn- arnesshátíð Stuðmanna. Birta Ben- ónýsdóttir handahlaupari hlaut flest atkvæði í netkosningu Íslands- hottsins eða 4.893. Birta er átján ára Reykjavíkurmær og einn af liðsmönnum Götuleikhússins. Á hún að öllum líkindum íslandsmet í að standa á höndum tímunum saman. Þykir hún með endemum hand- sterk en er engu að síður fíngerð vexti. Í öðru sæti var Sigurbjörg Njáls- dóttir, hnefagleypir, en hún hefur náð fádæma leikni í að sporðrenna eigin útlimum. Tóku þær báðar á móti veglegum bókaverðlaunum og hljóta jafnframt ferð með Primu Emblu á grímudansleik með Stuð- mönnum um næstu helgi, þar sem þær munu leika listir sínar. „Önnur gleypir á sér hendurnar en hin hleypur á höndum sér,“ segir Jakob Frímann Magnússon stuðmaður og veltir fyrir sér hvort hægt væri að búa til eitt spennandi atriði úr hæfi- leikum þeirra. Íslands-hottið var vettvangur fyr- ir óvenjuleg uppátæki landsmanna víðsvegar um landið og voru keppn- isgreinar allt frá einfaldri gómfimi upp í það sem flokka mætti undir flókin og íburðarmikil áhættuatriði. Bæði kynin öttu kappi í Íslands- hott keppninni, sem hófst um miðj- an júní og lauk í enda júlí. Í net- kosningunni sem fram fór í ágúst höfðu konurnar hins vegar slíka yf- irburði yfir karla, að þeir komust ekki á verðlaunapall lokaúrslitanna. Leikfimi | Birta Benónýsdóttir er þrautadrottning Íslands-hottsins Handstyrkur Birtu Benónýsdóttur hefur gagnast henni vel. Án efa Íslandsmethafi í því að standa á höndum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.