Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mývatnssveit | Farið var í göngur í Mývatnssveit á fimmtudaginn í leið- indanorðan slagviðri og þoku. Þann- ig viðraði ekki skemmtilega á gangnamenn að þessu sinni en leitir gengu þó vel. Hópadagurinn var svo á laugardaginn en þá koma fjall- menn með hópana til byggða. Réttað var síðan á sunnudagsmorgun í báð- um réttum sveitarinnar. Voru þetta fyrstu réttir þessa hausts á landinu öllu. Baldursheimsrétt má muna sinn fífil fegri. Veldur þar hvoru tveggja fækkun fjár og ekki síður hitt að bændur sunnan vatns eru flestir komnir með fé í lokuð hólf sem hver hugsar um og smalar fyrir sig. Á Baldursheimsrétt komu nú aðeins um 500 fjár og er það einkum fé bænda á Skútustöðum og Álftagerð- isbæjum, einnig slæðist alltaf eitt- hvað með af kindum sem Bárðdæl- ingar eiga. Féð er geymt nóttina áður í aðhaldi við réttina. Slæðingur af fólki kemur þar til réttar og minn- ist fyrri tíma þegar hátt lét þar í fé og fólki. Réttarstjóri er Eyþór í Baldursheimi Pétursson. Bald- ursheimsrétt var byggð úr stein- steypu 1934 og er einkar vel hannað mannvirki, átthyrningur. Veður var þurrt og stillt þar í gærmorgun, lág- skýjað og þoka á fjöllum. Til Reykjahlíðarréttar komu um 2.500 kindur og mikill mannfjöldi svo skiptir mörgum hundruðum. Féð er geymt nóttina fyrir í aðhaldi austan Námafjalls og hefst rekstur þaðan um kl 6 að morgni réttardags og er rekið eftir þjóðvegi. Boðið var upp á veitingar í Reykjahlíðarrétt Það þykir góð skemmtun ung- mennum, að vakna árla á réttardag- inn og reka féð til réttar. Því er lokið upp úr kl. 8 og er þá tekin hvíld til kl. 9.30 en þá hefst réttin. Réttarstjóri er Leifur Hallgrímsson í Vogum. Veður var stillt og þurrt fyrst í gær- morgun en kom með regnskúrir er á leið réttina. Á Hlíðarrétt eru veit- ingar í tjaldi, þar er hægt að fá sér kaffi eða súkkulaði og meðlæti og hefur svo verið í meir en fjóra ára- tugi. Um hádegisbil er kliðurinn hljóðnaður á Baldursheimsrétt og svo sem upp úr kl. 14 þá er allt hljóðnað á Hlíðarrétt. En bændur sýsla áfram við að flytja eða reka fé sitt heim. Þeirra bíður að velja úr hópnum sínum fé til slátrunar. Þannig líður þessi sérstaka athöfn framhjá á fáum stundum og einhver íslenskasti dagur ársins er liðinn einu sinni enn. Mývetningar réttuðu á tveimur stöðum í gær, fyrstir allra á landinu á þessu hausti Fækkun fjár setur mark sitt á réttirnar Eftir Birki Fanndal Andinn var góður meðal réttarmanna í Baldursheimsrétt í gærdag. Morgunblaðið/BFH Reksturinn kominn í Reykjahlíðarþorp. Það er tilkomumikil sjón þegar gangnamenn koma með féð til byggða. HERBERGJANÝTING á fjögurra stjörnu hótelum í Reykjavík var 12,2 prósentustigum verri í júlí- mánuði í ár en í sama mánuði í fyrra, á meðan herbergjanýting á þriggja stjörnu hótelum stendur í stað. Sérfræðingur Samtaka ferða- þjónustunnar telur m.a. hátt gengi og aukið framboð á fjögurra stjörnu hótelum hafa þessi áhrif. Meðalnýtingin á herberjum fjög- urra stjörnu hótela í júlímánuði var 76,1%, en í sama mánuði í fyrra var hún 88,3%, og er það samdráttur um 13,8%, eða 12,2 prósentustig. Nýtingin á þriggja stjörnu hótelum var hins vegar 89,9% í síðasta mán- uði, en var 89,7% í júlí 2004. „Þetta var á mjög sambærilegu róli í fyrra, 89,7% og 88,3%, þar er bara rúmlega eins prósentustigs munur á nýtingu, en í ár halda þriggja stjörnu hótelin sér, en fjögurra stjörnu hótelin dala,“ segir Þorleif- ur Þór Jónsson, hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir að skýringarnar á því að nýtingin sé verri á fjögurra stjörnu hótelum séu einkum þrjár. Í fyrsta lagi sé þar genginu um að kenna, þegar verð á hótelherbergj- um sé reiknað yfir í dollara eða aðra erlenda gjaldmiðla sé það gríðarlega hátt, og því freistist margir til að fara frekar á þriggja stjörnu hótel sem annars hefðu kosið fjórar stjörnur. Að sama skapi fari margir sem hefðu farið á þriggja stjörnu hótel á gistiheimili, og því standi þriggja stjörnu hót- elin í stað. Gestirnir súpa hveljur Í öðru lagi hefur framboð á hót- elherbergjum í hæsta gæðaflokki aukist frá fyrra ári, 165 herbergi hafi bæst við á tveimur nýjum hót- elum í vor. Að lokum segir Þorleif- ur að júlímánuður sé einfaldlega ekki besti mánuðurinn fyrir dýr- ustu hótelin, þá sé meira um al- menna ferðamenn og minna um ráðstefnugesti, og ferðamennirnir fari frekar á ódýrari hótel. Í heildina séð er þó herbergja- nýting á hótelum í Reykjavík 1,6% betri en í fyrra, ef bornar eru sam- an tölur fyrir fyrstu sjö mánuði ársins. Þorleifur segir nýtinguna skaplega, í kringum 65% að með- altali það sem af er ári, sem sé þó talsvert slakara en fyrir nokkrum árum þegar nýtingin fór hátt í 70% að meðaltali. Þó nýtingin sé skapleg segir Þorleifur að rekstrarafkoman sé þung vegna gengismála, sem geri mönnum lífið leitt, ekki sé hægt að velta auknum kostnaði út í verðlag- ið þegar erlendir gestir súpi hvelj- ur við að reikna verðið yfir í er- lendar myntir. Áberandi verri nýting var á fjögurra stjörnu hótelum í Reykjavík í síðasta mánuði miðað við júlí í fyrra Nýtingin fór niður um 12,2 prósentustig í júlí Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is FULLLJÓST var að þegar gripið var til friðunar rjúpu haustið 2003, stóð stofninn afar höllum fæti og of fljótt er að af- nema friðun nú. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun frá Fuglavernd um rjúpnaveiði. „Það hefði átt að friða rjúp- una að minnsta kosti eitt ár enn, eins og upphaflega var gert ráð fyrir,“ segir í ályktuninni. „Frið- un í tvö ár hefur skilað ótvíræð- um árangri og því mikil ábyrgð sem fylgir því að afnema frið- unina, eins og umhverfisráð- herra gerir nú. Í fyrsta skipti í meira en 50 ár virðist rjúpn- astofninn ætla að ná því flugi sem hann gerði á fyrri hluta 20. aldar. Þetta er sögulegt tæki- færi og það næsta gefst ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir 10 ár.“ Fuglavernd telur tillögur Um- hverfisstofnunar um stjórnun rjúpnaveiða vera spor fram á við, en vill ganga sem lengst í styttingu veiðitíma, og verði hann þrjár samfelldar vikur, en ekki rofinn tími eins og lagt er til. Þá leggur Fuglavernd áherslu á að rjúpnafriðland á Reykjanesi verði áfram við lýði, auk þess sem komið verði á stóru friðlandi á Norðaustur- landi og helst í öllum lands- hlutum. Félagið segist ávallt hafa hvatt til banns á sölu á villibráð og tekur eindregið und- ir tillögur um sölubann á rjúpu. Hvetur til hófsemi Fuglavernd hvetur til hófsemi og minnir á að málið snúist fyrst og fremst um velferð rjúpnastofnsins og fálkans, en ekki hagsmuni veiðimanna, skotvopnasala og ferðaþjónust- unnar. Sterkur rjúpnastofn þjóni best hagsmunum náttúru- verndar, sem og skynsamlegrar nýtingar. Fuglavernd telur of snemmt að afnema friðun á rjúpu Fjárréttir haustið 2005 Réttir Dagsetningar Auðkúlurétt í Svínavatnshr., A.-Hún. lau. 3. sept. Áfangagilsrétt á Landmannaafrétti, Rang. fim. 22. sept. Baldursheimsrétt í Mývatnssveit, S.-Þing. sun. 28. ágúst Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. sun. 18. sept. Dalsrétt í Mosfellsdal sun. 18. sept. Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. lau. 17. sept. Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. þri. 13./sun. 18. sept. Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr. lau. 10. sept. Fossrétt á Síðu, V.-Skaft. fös. 9. sept. Fossvallarétt v/Lækjarbotna, (Rvík/Kóp) sun. 18. sept. Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sun. 18. sept. Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. þri. 20. sept. Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún. lau. 10. sept. Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. lau. 17. sept. Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. mán. 19. sept. Hlíðarrétt í Bólstaðarhlíðarhr. A.-Hún. sun. 11. sept. Hlíðarrétt í Mývatnssveit, S.-Þing sun. 28. ágúst Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing. sun. 11. sept. Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn. fös. 16. sept. Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Hún. lau. 3. sept. Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn. lau. 17. sept. Illugastaðarétt í Fnjóskadal, S-Þing sun. 4. sept. Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós. sun. 18. sept. Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. sun. 18. sept. Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn. miðv. 14. sept. Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði lau. 10. sept. Ljárskógarétt í Laxárdal, Dal. lau. 3. sept. Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V.-Hún. lau. 3. sept. Mælifellsrétt í Skagafirði sun. 11. sept. Möðruvallarétt í Eyjafjarðarsveit sun. 11. sept. Nesmelsrétt í Hvítársíðu lau. 10. sept. Núparétt í Melasveit, Borg. sun. 11. sept. Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðv. 14. sept. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. sun. 18. sept. Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum lau. 17. sept. Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. lau. 17. sept. Selflatarrétt í Grafningi, Árn. mán. 19. sept. Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. mán. 19. sept. Skaftárrétt í Skaftárhr., V.-Skaft. lau. 10. sept. Skaftártungurétt í Skaftártungu, V.-Skaft. lau. 17. sept. Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. fös. 16. sept. Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. lau. 10. sept. Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. lau. 17. sept. Skarðsrétt í Bjarnarfirði, Strand. lau. 17. sept. Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mán. 19. sept. Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. sun. 18. sept. Skrapatungurétt í Vindhælishr., A.-Hún. sun. 11. sept. Staðarrétt í Skagafirði lau. 10. sept. Stafnsrétt í Svartárdal, A.-Hún. lau. 10. sept. Svarthamarsrétt á Hvalfj.strönd, Borg sun. 11. sept. Tungurétt í Svarfaðardal sun. 4. sept. Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. fös. 9. og lau. 10. sept. Valdarásrétt í Víðidal, V.-Hún. fös. 9. sept. Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. lau. 10. sept. Þórkötlustaðarétt í Grindavík sun. 11. sept. Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit sun. 11. sept. Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. lau. 10. sept. Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mán. 19. sept. Ölfusréttir í Ölfusi, Árn. mán. 19. sept.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.