Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 13
ÞOLINMÆÐI aðstandenda og eig- enda bresku verslanakeðjunnar Somerfield er sögð fara þverrandi og þeir sagðir langeygir eftir að raunveruleg tilboð berist frá þeim tveim hópum hugsanlegra fjárfesta sem sagðir eru hafa augastað á keðj- unni. Hóparnir tveir hafa verið að skoða bækur Somerfield frá því í mars síð- astliðnum, en engin tilboð hafa enn borist. Í frétt breska blaðsins Tele- graph um málið segir að getgátur séu uppi um að hóparnir eigi í vand- ræðum með að fjármagna tilboðin. Er þeim möguleika jafnvel velt upp að annar hvor hópurinn muni hætta alfarið við kaupin. Greining- araðilar eru hættir að mæla með kaupum á bréfum Somerfield og einn mikilsvirtur sérfræðingur hef- ur mælt með því að skjólstæðingar hans haldi sig frá bréfunum. Paul Smiddy sagði í bréfi til skjól- stæðinga að fyrr á árinu hefði verið útlit fyrir samkeppni um Somer- field, sem gerði bréf félagsins álit- legan fjárfestingarkost, en nú sé hætta á að aðeins verði einn hugs- anlegur kaupandi og það boði ekki gott fyrir gengi bréfanna. Flókin samsetning Upphaflega hafði verið búist við tilboðum í júní eða júlí, en nú er ekki búist við tilboði fyrr en í september í ár. Annar hópurinn, sem leiddur er af fasteignafyrirtækinu London & Regional, fær fjármagn sitt frá fjár- festingarfyrirtækinu Nomura, sem sagt er hafa djúpa vasa, og talsmað- ur hópsins segir fjármögnun kaup- anna vel á vegi stadda. Hinn hópurinn inniheldur verð- bréfafyrirtækið Apax, fjárfestingar- fyrirtæki í eigu Barclays-banka, og athafnamanninn Robert Tchenguiz. Baugur Group var í þessum hópi, en hætti þátttöku í kjölfar þess að ákæra var gefin út á hendur æðstu stjórnendum þess. Þessi hópur er sagður eiga í erfiðleikum með fjár- mögnun, sérstaklega vegna þess að samsetning hans er flókin og það hafi valdið töfum í samningaviðræð- um við Royal Bank of Scotland. Somerfield lang- eygir eftir tilboðum MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF STURTUR & BLÖNDUNARTÆKI Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 525 0800 • www.badheimar.is Mánudaginn 29. ágúst kl. 20.00 Laugarnes og Langholt - Laugum, Sundlaugavegi 30. Búum til betri borg Velkomin á hverfafund um framtíð Reykjavíkur: Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismannawww.betriborg.is ● SIGURÐUR B. Halldórsson hæstaréttarlög- maður hefur hafið störf á Acta lög- mannsstofu sem einn af eigendum stofunnar. Acta lög- mannsstofa veitir einstaklingum, fyrir- tækjum og stofn- unum alhliða lögfræðilega ráðgjöf. Sigurður lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands 1993. Hann öðlaðist héraðs- dómslögmannsréttindi 1998 og hæstaréttarlögmannsréttindi 2005. Sigurður B. Halldórsson Hefur störf hjá Acta lögmannsstofu FRJÁLSI fjárfestingarbankinn hagnaðist um 230 milljónir eftir skatta á fyrra helmingi ársins á móti 221 milljón á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 14,2% á móti 15,7% í fyrra og kostn- aðarhlutfall bankans hækkaði úr 25% í 35,5% og segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands að hana megi rekja til aukinna umsvifa og eins hækkunar launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar. Heild- arútlán og kröfur á bankans á lánastofnanir námu tæpum 27,8 milljörðum króna og hækkuðu um 62% á tímabilinu og niðurstaða efnahagsreiknings var 29,5 millj- arðar króna og hækkaði um 67% frá síðustu áramótum. Góðar horfur síðari hluta árs Í tilkynningu bankans segir að horfur á síðari hluta ársins séu góðar og að búast megi við áfram- haldandi hækkun útlána og stækk- un efnahagsreiknings. Vaxtamunur Frjálsa fjárfesting- arbankans lækkaði úr 4,3% í fyrra í 2,4% og er skýringin fólgin í breyttri reikningsskilaaðferð (samstæðureikningsskil) auk mik- illar samkeppni á útlánamarkaði en vextir útlána hafa lækkað mik- ið frá því í lok júní í fyrra. Eig- infjárhlutfall Frjálsa fjárfesting- arbankans var 24,4% á móti 33,4% í fyrra en lágmarkshlutfall er 8% samkvæmt lögum. Framlag á af- skriftareikning útlána lækkaði úr 100 milljónum í fyrra í 37,8 millj- ónir og er ástæðan að lítið hefur verið um útlánatöp og vanskila- hlutfall lækkað mikið frá áramót- um en um 98% af útlánum bank- ans eru nú tryggð með fast- eignaveði. Mikil útlánaaukn- ing hjá Frjálsa AP almannatengsl ehf. hafa gert samstarfssamning við alþjóðlega fyrirtækið Edelman sem er eitt stærsta sjálfstæða almannatengsla- fyrirtækið í heimi, með um 1.900 starfsmenn í 42 löndum, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá AP. Edelman er rótgróið fyrirtæki og á meðal viðskiptavina þess eru mörg stærstu fyrirtæki heims. Í tilkynn- ingunni segir að með samstarfinu séu AP almannatengsl orðin hluti af neti almannatengslaskrifstofa um allan heim og geti boðið viðskiptavin- um fjölbreytta þjónustu á alþjóðleg- um vettvangi. Þá verði víðtækur gagnagrunnur Edelmans á sviði al- mannatengsla og markaðsrann- sókna aðgengilegur fyrirtækinu. Edelman, sem stofnað var af Dan Edelman í Bandaríkjunum fyrir 53 árum, býður þjónustu á öllum svið- um almannatengsla, en hjá fyrir- tækinu er m.a. unnið að ímynd fyrirtækja og vörumerkja, fjár- festatengslum, fjölmiðlatengslum, krísustjórnun, viðburðastjórnun, hönnun og útgáfu, samfélagslegri ábyrgð og innri samskiptum. Edel- man hefur unnið til fjölda verðlauna á sínu sviði en á meðal viðskiptavina Edelman má nefna Microsoft, Uni- lever, Johnson&Johnson, Boeing, PepsiCo., Samsung, DuPont og UPS auk fjölda annarra leiðandi fyrir- tækja. AP almannatengsl veita einstak- lingum, fyrirtækjum og stofnunum alhliða ráðgjöf á sviði samhæfðra markaðssamskipta – almanna- tengsla, fjárfestatengsla, viðburða- stjórnunar o.fl. Hjá fyrirtækinu starfa um tíu manns. AP almanna- tengsl í samstarf við Edelman MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Hive: „Í tilefni af fréttum um kaup Símans á öllu hlutafé Skjás 1 (Íslenska sjón- varpsfélagsins) vill Hive koma eft- irfarandi á framfæri: Hive hefur ítrekað bent sam- keppnisyfirvöldum á þá óeðlilegu og skaðlegu hegðun Símans, sem markaðsráðandi aðila á fjarskipta- markaði, að beita Skjá 1 sem drátt- arklár fyrir ADSL-væðingu Símans. Þetta lýsir sér m.a. á þann hátt að Enski boltinn stendur einungis til boða fyrir ADSL-viðskiptavini Sím- ans gegn 12 mánaða bindisamning um ADSL-þjónustu. Nú hefur komið fram í fjölmiðlum að Síminn hefur fjárfest fyrir hátt í einn milljarð króna í Skjá 1 í þess- um tilgangi. Hive telur að umrædd- ar fréttir staðfesti misbeitingu Sím- ans á fjárhagslegum styrk sínum sem fyrirtækið hefur öðlast í krafti einkaréttar og yfirburðastöðu á fjarskiptamarkaði. Hive telur að í ljósi þessara upplýsinga eigi Sam- keppnisyfirvöld að endurskoða ákvörðun sína frá því í vor, þar sem samruni Símans og Skjás 1 var heimilaður, og banna alfarið sam- runa fjarskipta- og fjölmiðlafyrir- tækja. Hive vill ennfremur benda á þann fáránleika að þeir landsmenn sem áhuga hafa á enska boltanum geti einungis horft á hann ef þeir eru í viðskiptum við Símann um fjar- skiptaþjónustu. Þannig kemur Sím- inn í veg fyrir þau sjálfögðu réttindi að almenningur geti valið sér hag- stæðustu fjarskiptaþjónustuna óháð þeirri sjónvarpsstöð er þeir kjósa að horfa á. Sé þetta fordæmi látið viðgangast, mun það leiða til veru- legrar hækkunar á verði fjarskipta- þjónustu.“ Hive gagnrýnir kaup Símans Óbreyttir vextir í Svíþjóð ● SÆNSKI Seðlabankinn hefur til- kynnt að stýrivextir verði áfram óbreyttir eða 1,5%. Bankinn gerir aft- ur á móti nú ráð fyrir meiri aukningu þjóðarframleiðslunnar og betri stöðu á vinnumarkaði á næstu árum. Gert ráð fyrir að verðbólga verði áfram lág í Svíþjóð en hinn mikli vöxtur þjóðar- framleiðslunnar ásamt háu olíuverði hefur þó orðið til þess að verðbólgu- væntingar til lengri tíma litið eru meiri en áður. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI Hagnaður SPK 135 milljónir ● HAGNAÐUR á rekstri Sparisjóðs Kópavogs (SPK) nam 135 milljónum króna eftir skatta samanborið við 35 milljónir á sama tímabili 2004 og var afkoman umfram væntingar. Arðsemi eigin fjár var 39% á ársgrundvelli en var 11,3% á sama tímabili 2004, og er þetta mesta arðsemi í sögu sjóðs- ins. Hreinar rekstrartekjur námu 399 milljónum samanborið við 271 milljón á sama tímabili 2004 og hreinar vaxtatekjur námu 215 milljónum sam- anborið við 143 milljónir á sama tíma- bili 2004. Heildareignir SPK námu 13.730 milljónum 30. júní samanborið við 10.870 milljónir í árslok 2004, sem er 26,3% aukning. Á tólf mánuðum frá 30. júní 2004 hafa heildareignir SPK aukist um 5.185 milljónir eða 60,7%. Útlán námu um 9,7 milljörðum króna 30. júní. Eigið fé 30. júní nam 775 milljónum og var eiginfjárhlutfall á CAD-grunni 13,7%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.