Tíminn - 24.06.1977, Side 7
Föstudagur 24. júnl 1977
7
Indversk
kvikmyndastj arna
Þrátt fyrir gffurlegan áhuga á kvikmyndum og þó um-
fram allt kvikmyndaleikurum, gleymist oft að taka með í
reikninginn, að kvikmyndir eru framleiddar viðar en í
Hollywood og i Evrópu. I Indlandi er mikil kvikmynda-
framleiðsla og þar eru vinsælar kvikmyndastjörnur ekki
siðuren i vestrænum löndum.Einhverra hluta vegna hafa
indverskar kvikmyndir ekki áunnið sér vinsældir i okkar
heimshluta. A meðfylgjandi mynd sjáum við vinsælustu
indversku kvikmyndastjörnuna, Shabana Azmi. Hún er 24
ára gömul, og um þessar mundir er hún svo önnum kafin,
að hún er að vinna við 25 kvikmyndir samtimis og dagleg-
ur vinnutimi hennar er 14 stundir. Falleg er hún, og við
vonum að þetta gifurlega vinnuálag gangi ekki of nærri
henni.
Lofið
ekki
of
miklu!
Fólk ætti að varast að taka of mikið upp I sig. Synnove
Roens, kennslukona i Stokkhólmi, hét þviað hún skyldi eta
stigvélin sin, sem hún hafði notað i 40 ár, ef manni hennar
héldist á atvinnu i heilt ár samfleytt. Maðurinn hennar tók
hana á orðinu, en I stað þess að eta ofan isig stóru orðin, át
hún stigvélin. Búast má við, að þrátt fyrir langa suðu, hafi
stigvélin verið hörð undir tönn, en eftir svip Synnove aö
dæma, finnst henni þetta tilvinnandi, ef maöurinn hennar
fæstekki til aðstunda atvinnu meö öðru móti!
^lÞað er i lagi ef
' Vörurnar sem ég crjtveröið er gott?
með eru verkfæri i
smákössum.
Tíma-
spurningin
Tókst þú þátt i verkföll-
um á meðan kjarasamn-
ingarnir stóðu yfir?
Margrét Sveinsdóttir, húsmóðir:
— Ég er húsmóðir og þær fara
vlst ekki I verkföll. Hins vegar
væri ég ekki á móti þvi ef það
væri hægt.
Guðbjartur Gunnarsson, bóndi:
— Bændur fara aldrei I verkföll.
Adda Björk, húsmóöir: — Nei, ég
er „bara” húsmóðir og fæ ekki að
fara i verkfall.
Valdimar Bergsson, bakara-
sveinn: — Fyrir utan einn dag, þá
fór ég ekki i verkfall.
Þórður Bergmann, bankastarfs-
maður: — Samningar banka-
starfsmanna renna ekki út fyrr en
fyrsta júli. Hvað gerist þá veit ég
ekki.
I