Tíminn - 24.06.1977, Blaðsíða 10
10
Föstudagur 24. júnl 1977
............ ..............
Þaö er einkenni vorra ’.ima,
aö æskan og hipparnir eru lellt
að verða eldri, að ekki sé nu tal-
að um ungu rithöfundana, skáld
in og málarana. Mörg vigi i alla
á hverju ári. Núna siðast. j>< gar
Jóhannes Geir, listmálari \erö-
ur fimmtugur, og okkur ci þaö
ljóst, að timinn æðir áfrar., —
unga fólkið fer bráðum aö veröa
gamalt.
Jóhannes Geir Jónsson list-
málari er fæddur 24. i" á
Sauðárkróki, sonur Jóu> Þ.
Björnssonar, skólastjóra þar og
konu hans Geirlaugar
Jóhannesdóttur. Þetta fólk <.r af
frægum ættum, þar sem mikiö
er af gáfuðu og listrænu lólki.
Jóhannes Geirhóf snemma aö
mála. Hann stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri 1943-
1945, en hætti þá langskólanámi,
vafalaust mörgum til hrelling-
ar. Sama ár hóf hann nam i
Handiða — og myndlistarskól-
anum i Reykjavik, þar sem
hann var til 1948. Veturinn
1948-1949 var hann svo nemandi
i Lisl 'háskólanum i Kaup-
mann.'höfn, en hefur siðan
starfaö i Reykjavik, fyrst i
nokkur ár á teiknistofu Stefáns
Jónssonar, arkitekts, bróður
sins, en siðan hefur hann starfað
sem listmálari i Reykjavik.
Sér á parti
Það er ekki svo auðvelt að rita
frambærilega grein um
Jóhannes Geir og hafa ekkert
við höndina, hvorki ritaðar upp-
lýsingar, myndir, né greinar,
aðeins stopul kynni og slæmt
minni.
Þó má slá einu föstu, út frá
listíræðilegu sjónarmiði, og þá
með tsland i huga, að Jóhannes
Geir hafi ávallt verið sér á
parti. Hann kemur til starfa,
þegar islenzk myndlist leysist
skyndilega upp i sjálfri sér, i
góða list og vonda. Sérfræðing-
ar, sem kunna nyja öfluga rök-
ræðu, taka þá þjóðina tii bæna
og byrja að segja henni til.Ab-
straktlistin náðf yfirhöndinni,
ogum tima rikti strangur skóli i
opinberu iistlifi. Þeir sem mál-
uðu figurativar myndir, voru
með fáum undantekningum
settir i yzta myrkur. Samt fengu
nokkrir gamaldags málarar að
fljóta með, einkum þó ef þeir
voru dauðir. Á fingrum annarar
handar mátti siðan telja þá sem
nutu náöar, þótt lifandi væru.
Einn þeirra var, merkilegt
nokk, Jóhannes Geir.
Hann lét ekki segja sér fyrir
verkum.
Þótt mikið sé búið að skamma
þá sem innleiddu abstraktlist á
islandi — of oft með réttu, eink-
um fyrir strangleika og skort á
allri viðsýni, þá hafa sennilega
engir menn menntað þjóðina
betur á stuttum tima, en einmitt
þeir. Myndlist var naumast til,
þannig séð, á islandi fyrir
þeirra daga. Aðeins var til dálit-
ið af mönnum, sem máluðu fall-
skrá, þar sem Indriði G. Þor-
steinsson rithöfundur skrifar
ágæta grein um sveitunga sinn
Jóhannes Geir. Þar stendur
m.a. þetta: ,-,Timaskeiðin á list-
ferli Jóhannesar Geirs hafa
einkum markazt af tvennu.
Annars vegar hefur verið um að
ræða hægfara þróun I gegnum
dökkt skeið málverka, þar sem
baráttan viö eitt einstakt þeirra
gat staðið mánuðum saman.
Þetta dökka timabil einkenndist
öðrum þræði af endurtekning-
um og blæbrigðamun sömu eða
likra fyrirmynda, og gagnrýn-
inm afstöðu höfundarins til
þeirra. Ókunnugum hefði hún
getað komið fyrir sjónir sem
upphaf einskonar kreppu. En
þótt hægt miðaði og uppihöld
væru nokkur stöfuðu þau ekki af
öðru en viöleitni listamannsins
til sjálfsmótunar. Gagnrýni
hans á eigin verk var næsta
miskunnarlaus á þessum tima,
og er ekki laust við aö sumar
hinna eldri mynda beri nokkurn
vott þunglyndis, enda getur
ungum listamönnum þótt tiðin
kviðavænleg þegar þeim finnst
aldrei nógu vel gert.
Annar þeirra þátta, sem
markað hafa timaskeið á list-
ferli Jóhannesar Geirs eru
pastelmyndirnar. Lengi vel
snerist gagnrýni hans um oliu-
verkin. Aftur á móti var honum
allt ljúfara i hendi, þegar hann
málaði með pastellitum (krit).
Og þau urðu nokkuö löng skeiðin
á listferlinum, þegar einungis
pastelmyndir urðu til. Þær
beindu honum svo aítur yfir til
oliuverkanna, og nú um sinn
hefur hann einkum sinnt þeim.
Það voru pastelmyndirnar sem
færðu Jóhannes Geir af hinu
dökka, þrautafulla og gagn-
rýnda skeiöi oliuverkanna frá
fyrsta áratugnum á listferli
hans, og nú hefur hann kveðið
þessar tvær ágætu aðferðir við
myndgerðina i sátt. Yfirleitt
vinnur Jóhannes Geir þannig að
fyrst gerir hann litla pastel-
mynd af viðfangsefninu, sem
hann vinnur siðan upp I oliu.
Þessi aðferð lætur honum vel.
Hann er fljótur með fyrirmynd-
ina og getur notað til fullnustu
birtu stundarinnar: hinörfleygu
skuggaskil I landi veðrabrigð-
anna, ogfesti liti þau atriðisem
liða hjá. En svo auðveld sem
gerð frummyndanna er honum
og notkun pastels, getur hann
enn verið nokkuð lengi aö koma
fyrirmyndinni yfir i oliu. Gætir
þar eflaust hinar miklu sjálfs-
gagnrýni, sem um eittskeið var
næsta mikilsráöandi i verkum
hans.”
Gaman væri að sjá þessa
merkilegu sýningu, fá hana suð-
ur fyrir þá sem eiga ekki
heimangengt. En hvað um þaö,
við héróskum Jóhannesi Geir til
hamingju með afmælið og Skag-
firðingum til hamingju með
sýninguna og spáum fjölmenni.
Jónas Guðmundsson
JÓHANNES GEIB,
FIMMTUGUR
Jóhannes Geir viö eitt verka sinna
egar myndir — eða ljótar og við
það sat. Þessir þröngsýnu menn
boðuðu nefnilega þegar öllu var
á botninn hvolft frjálslyndi,
nýja myndhugsun i landinu,
hvort sem þeim eða þjóðinni lik-
aði betur eða ver. Sést það bezt
á þvi, aö nú rikir frjálslyndi um
listastefnur á Islandi og heift-
inni hefur að mestu blætt út,
nema hjá örfáum mönnum, og
söfnum, þar sem hún er inn-
gróin.
Myndlist Jóhannesar
Geirs
Jóhannes Geir var ekki ginn-
keyptur á nýjungar. Hann hafði
sjálfstæðar skoðanir og fór eigin
götur, hljóður og einn. Myndir
hans voru kröftugar og dular-
fullar. 1 þeim var mikið af hon-
um sjálfum. minna af Paris og
Kaupmannahöfn. Þung fjöll,
svört mold og ólgandi hafið,
sem þrumaði og söng. Veðurfar
og landkostir.
Lika fé bænda, afveituskurð-
ir, sem ristu sundur mjúkt hold-
ið i andiiti landsins. Ræktuð tún
og malarhaugar. Fólk sem var i
önnum.
1 hverri mynd, svo að segja,
var sál.
Auðvitað málaði hann lika
vondar myndir, dálitið billegar.
Seljanlegar myndir á vondum
timum, en þó ótrúlega fáar, og
gegnum tiðina fer þeim óðum
fækkandi.
Myndlistin hefur aðeins fært
honum stöðug átök, likt og þeg-
ar róið er úr sömu vörinni ár
eftir ár: á sama báti, i sama
brimrassi. Myndirnar hafa að-
eins breyzt tilfinningalega, ekki
tæknilega.og bátur hans gengur
allt árið til fanga. Við sjáum
kalt landið stynja undir snjó og
stöðugum vindnúningi, sjáum
flugið i ánni á vorin, sumar-
regnið og hið rauöa haust, þegar
sumarið deyr óvenju hægt. En
nóg um það.
Og nú er Jóhannes Geir
fimmtugur. Hvaö um þaö?
Er komið haust. Varla. Enn er
uppskerutið, langar nætur og
ljósar.
Sýningin á Sauðárkróki
í liiefiii af afmæii Jóhaiuiéaai
Geirs, stendur nú yfir á Sauðár-
króki yfirlitssýning á myndum
hans.
Sýningin er i Safnhúsinu á
Sauðárkróki og stendur dagana
15.-26. júni'. Mjög vel er vandað
til þessarar sýningar, og m.a.
var gefin út vönduð sýninga-
fólk í listum
Stórt
hundrað
Norð-
manna
gistir
Skagafjörð
As — Mælifelli — Liðlega hundr-
að og tuttugu manna hópur
norsks bændafólks var hér á
ferö og gisti viðs vegar i sveit-
um Skagaf jarðar. Annaöist
Búnaðarsamband Skagfirðinga
skipulagningu og efndi tii mat-
arveizlu i Miðgarði er útiend-
ingarnir höfðu skoöaö Viði-
mvrarkirkju og byggðasafnið i
Glaumbæ.
Þórarinn Magnússon cand
agr. á Frostastöðum hélt ræðu i
Miðgarðiog sagði frá islenzkum
landbúnaði, en Matthias
Eggertsson, kennari á Hólum,
var leiðsögumaður hópsins. Orð
var á gert hve heimafólk og
norsku gestunum gekk vel að
tala saman. Veður var hið feg-
ursta og virtust Norðmennirnir
njóta' ferðarinnar hið bezta.
söngvakeppni i Vin á siöasta
sumri, og hlaut þar mjög góða
dóma.
Danska sjónvarpið fékk kór-
inn til þess aö flytja nokkur lög i
sjónvarpsdagskrá siðastliöið
gamlárskvöid, vegna ágætrar
’frammistöðu kórsins i söngva-
keppninni. Söngskrá körsins i
tslandsferðinni eru þjóðlög,
negrasöngvar og lög eftir Bach,
Bellman, Mozart, Nielssen,
Gunnar R. Sveinsson og fleiri.
Kórinn kemur fyrst fram i
Reykjavik laugardaginn 25. júni
kl. 5i Háteigskirkju á tónleikum
á vegum M.H. ásamt fleiri flytj-
endum og syngur Agnus Dei eft-
ir Sven Ahlin. Sunnudaginn 26.
júni syngur kórinn i Skálholti og
hefjast tónleikarnir kl. 5. sið-
degis. Mánudaginn 27. júni
verður kórinn i Skjólbrekku i
Mývatnssveit og daginn eftir
verða tónleikar i Húsavikur-
kirkju. A báðum þessum stööum
hefjast tónleikarnir kl. 21.
Miðvikudaginn 29. júni verða
tónleikar kl. 21 i Tjarnarborg i
Ölafsfirði, en lokatónleikar
kórsins hérlendis verða i Akur-
eyrarkirkju 30. júni kl. 20.30.
Móttöku og skipulagningu
ferðarinnar hér annast: A Suð-
urlandi kór Menntaskólans við
Hamrahlið, en á Norðurlandi fé-
lagar úr Passiukórnum og Tón-
listarskólanum á Akureyri.
Biandaði kórinn frá Sjálandi sem er á söngferðalagi hérlendis um þessar mundir.
Danskur kór í söngför
KS-Akureyri- Blandaður kór frá
skólabænum Haslev á Sjálandi
verðurá söngferðalagi um and-
iö, dagana 24. júni til 3. júii
:"ctkomandi. Kórinn svr.gur
Reykjavik, Skálholti, Mývatns-
sveit, Húsavík, óláfsfirði og á
Akureyri. Kórfélagar eru 34 á
aldrinum 15-32 ára og stunda
i • *’• x a þegar lokið námi
við menntaskólann i Haslev.
Kórinn liefur farið víða, m.a.
Iialdið tónleika i Austurriki,
Póllandi og Sovétrikjunum.
Kórinn tók þátt i alþjóðlegri