Tíminn - 24.06.1977, Page 11
Föstudagur 24. júnl 1977
11
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglvsingastjóri: Steingrimur
Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindar-
götu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, slmi
26500 — afgreiðslusimi 12323 —auglýsingasimi 19523. Verð
i lausasölu kr. 70.00. Áskriftargjald kr. 1.300.00 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
Til farsældar
Þegar lokið er gerð almennra kjarasamninga
og atvinnulifið tekur aftur til starfa af fullum
burðum er ástæða til að rifja upp meginatriði
þeirrar efnahagsstefnu sem stjórnvöld fram-
fylgja i þvi skyni að standa vörð um lifskjörin i
landinu og búa i haginn fyrir framtiðina.
Aðalatriði efnahagsstefnunnar eru i fyrsta lagi
full og örugg atvinna um land allt. í öðru lagi er
stefnt að beizlun islenzkra orkulinda til að treysta
grundvöll atvinnulifsins i framtiðinni. 1 þriðja
lagi er miðað við trausta stöðu þjóðarbúsins út á
við. I fjórða lagi hefur verið stefnt að stöðugri
verðlagsþróun innan lands. 1 fimmta lagi er lögð
áherzla á áframhaldandi hagvöxt, sem að sinu
leyti verði varið til réttlátari tekjuskiptingar og
félagslegs öryggis.
Efnahagsörðugleikarnir sem þjóðin hefur átt
við að striða hafa hindrað það að unnt yrði að ná
þessum markmiðum öllum samtimis. Hins vegar
ber að minna á það að hér hefur haldizt full og
stöðug atvinna i öllum landshlutum á sama tima
og atvinnuleysi hefur herjað um flest nágranna-
lönd okkar. Atvinnuöryggið er engan veginn
sjálfsagt mál þegar illa árar. Það þarf að ber jast
fyrir þvi og leggja eitthvað i sölurnar til þess að
standa vörð um atvinnu og afkomu fólksins i
byggðum landsins þegar örðugleikar steðja að.
Beizlun islenzkra orkulinda er einnig mjög
mikilsvert stórmál, og það getur reynzt afdrifa-
rikt fyrir framtiðarmöguleika þjóðarinnar að
menn láti ekki deigan siga i þeim efnum þótt
kostnaðarsamt sé meðan á framkvæmdum
stendur.
Hjá þvi hefur auðvitað ekki farið að þessi
markmið kæmu að nokkru niður á stöðunni út á
við. En hitt er þó aðalatriðið að erlendum lántök-
um hefur verið varið til arðbærra framkvæmda
og til að mæta timabundnum erfiðleikum.
Árangur stjórnarstefnunnar kemur skýrt fram
i atvinnuörygginu um land allt og hjaðnandi
verðbólgu siðustu ár. Hagvöxtur hefur haldizt og
með láglaunabótum var farið inn á nýja braut i
kjaramálum löngu áður en hinir nýgerðu kjara-
samningar komust á dagskrá.
Mikilsvert framtiðarmarkmið, sem vegur
þyngra en peningalegar kjarabætur, er að hag-
vöxtur taki i framtiðinni stöðugt tillit til kjara-
jöfnunar annars vegar og þó einkum til um-
hverfis og náttúruvemdar hins vegar. Sá hag-
vöxtur og þær framkvæmdir eru skammgóður
vermir sem fást á kostnað framtiðarafkomu. Hér
er um að ræða slikt markmið. Þegar við stofnun
Framsóknarflokksins var það stefnumál hans að
stuðla að góðri sambúð lands og þjóðar og jafn-
vægi i þjóðlifinu.
Rikisstjórnin átti allt frá upphafi kost á þvi að
framfylgja harðari stefnu i efnahagsmálum en
hún hefur gert. Slikt hefði kostað þjóðina atvinnu-
leysi og byggðaröskun, svo sem menn þekkja frá
Viðreisnarárunum og frá nágrannalöndunum hin
siðustu ár. Rikisstjórnin valdi farsælli leið jafnr-
ar og stöðugrar uppbyggingar, og það er stefna
fyrst og fremst sem hefur treyst svo undirstöð-
urnar að nú hefur myndazt svigrúm til almennra
kjarabóta.
Nú er fyrir mestu að batanum verði einnig
varið til þess að bæta stöðuna út á við, en hann
drukkni ekki i flóði innanlandshækkana. Þjóðin
þarf nú umfram allt áframhaldandi stöðugan
efnahagsbata, aðhald i efnahagsmálum og at-
vinnu- og byggðaöryggi.
Ný stjómarskrá
í Sovétríkj unum
Engar raunhæfar breytingar gerðar á
mannréttindum sovézkra borgara
UM NOKKRA tiö hafa æöstu
ráðamenn Sovétrikjanna
verið aö undirbúa nýja stjórn-
arskrá og i siðasta mánuöi var
uppkast hennar kynnt fyrir
þjóðinni. Var uppkastinu fylgt
úr hlaði meö ræðu, sem Leonid
Brésnjef formaður stjórnar-
skrárnefndarinnar, æðsta
ráðsins, kommúnistaflokksins
og forseti Sovétrikjanna hélt.
Þar mæltist honum m.a. svo:
— Stjórnmálaleg réttindi
og frelsi sovézkra borgara eru
betur útskýrð i uppkastinu.
Kunngerð eru réttindi sér-
hvers sovézks borgara til að
taka þátt i stjórnun rikisins og
opinberra mála, og tiltekin
atriði slikrar þátttöku eru sett
fram. Málfrelsi, prentfrelsi,
þingfrelsi, fundarfrelsi eru
allt atriði sem voru i gömlu
stjórnarskránni og eru þau
endurtekin i þeirri nýju.
Mörgum kann að finnast
þessi orð leiðtogans hálf
einkennileg, þegar hugsað er
tilallra þeirra, sem hafa verið
ofsóttir fyrir að notfæra sér
þetta frelsi, en eins og kunnugt
er, þá eru það aðeins viss
verk, sem eru samþykkt i
Sovétrikjunum, flestir hefðu
haldið að mótmælagöngur
væru bannaðar o.s.frv. Ríkir
þá eftir allt saman slikt frelsi i
Sovétrikjunum, lögfest i
stjórnarskránni? Þvi svarar
Brésnjef þannig i ræðu sinni:
— Þess þarf varla að geta,
félagar, að uppkastið gengur
út frá þeirri forsendu, að
réttindi og frelsi borgaranna
getur ekki verið og má ekki
nota gegn þjóðfélagskerfi okk-
ar...
Þannig er þá varnaglinn
sleginn og uppkastið löggildir
þessi orð formanns stjórnar-
skrárnefndarinnar með loka»
setningu 39. greinarinnar.
Réttindi og frelsi, sem er
notaðaf borgurunum, má ekki
skaða hagsmuni þjóðfélags-
ins, rikisins og réttindi
annarra borgara.
ÞETTA uppkast að nýrri
stjórnarskrá er i 9 hlutum,
sem skiptast I 21 kafla og 173
greinar. Einn athyglisverðasti
hlutinn fjallar um almenn
mannréttindi og nefnist hann:
Rikið og einstaklingurinn. Þar
er m.a. eftirfarandi grein,
sem sovézkir gyðingar hafa
áreiðanlega gaman af að lesa:
Borgarar Sovétrikjanna
skulu vera jafnir i augum lag-
anna, án tillits til uppruna, fé-
lagslegrar og eignalegrar
stöðu, þjóðernis eða kynþátt-
ar, kyns, menntunar, tungu-
máls, afstöðu til trúmála,
stöðu dvalarstaðar eða ann-
arra atriða.
í annarri grein kemur fram
þessi vilji að tryggja réttindi
allra borgara án tillits til þjóð-
ernis og er sá vilji skýrður
með „hinni sósialisku alþjóða-
stefnu”.
Það er athyglisvert, að kafl-
inn sem fjallar um grundvall-
arréttindi og frelsi borg-
aranna leggur mesta áherzlu
á réttindin til að vinna, rétt-
indi til að hvíla sig og eiga fri-
stundir, fá ellilffeyri, búa i
húsi og fleiri slik réttindi.
Þannig mun hin nýja sovézka
stjórnarskrá lögfesta réttindi
þegnanna til að mega búa i
húsi, horfa á listaverk o.s.frv.
t RÆÐU Brésnjefs, en á
henni og uppkastinu sjálfu, er
þessi grein byggð, kemur
fram að vegna grundvallar-
breytinga i alþjóðamálum,
hafi það reynzt nauðsynlegt að
setja nýjan kafla i stjórnar-
skrána sem fjallar um utan-
rikismálastefnu Sovétrikj-
anna. Þar segir m.a. að stefna
Sovétrikjanna skuli byggjast á
friðarstefnu Lenins en svo
segir: Utanrikismálastefna
Sovétrikjanna skal miða að
þvi að tryggja hagstæð skil-
yrði til að byggja upp
kommúnista i Sovétrikjunum,
styrkja stöðu heims-sósialist-
ans, styðja baráttu þjóðar i
frelsisstriðum.
Þannig mun hin nýja stjórn-
arskrá Sovétríkjanna i raun
staðfesta réttindi rikisstjórn-
arinnar til að skipta sér af
innanrikismálum annarra
rikja, en svo einkennilega vill
til, að um það atriði ásaka
Sovétmenn Bandarikjamenn
mest um þessar mundir. En
munurinn hlýtur að vera sá,
að I framtiðinni hafi austan-
tjaldsmenn lagalegan rétt til
þess en vestantjaldsmenn
ekki.
Hinar miklu breytingar sem
hafa orðið á sovézka þjóðfé-
laginu eru aðalorsök þess, að
þetta uppkast hefur verið lagt
fram. Núgildandi stjórnar-
skrá er frá árinu 1936, þegar
Stalin stóð á hátindi og var
hún þvi svo mjög mótuð af
hans eigin hugmyndum, sem
að sögn munu ekki lengur
njóta álits i Sovétrikjunum.
UPPKASTIÐ hefur nú verið
lagt fyrir sovézku þjóðina,
sem á að ræða það af alvöru og
koma með tillögur til úrbóta,
ef nauðsyn ber til. Segist
Brésnjef búast við „almennri
þátttöku i umræðunum um
hina nýju stjórnarskrá frá
fjöldasamtökum”. En spurn-
ingin er, hversu mikil áhrif
slikar umræður muni hafa á
hið endanlega uppkast? Er
það líklegt , að einhver komi
til með að breyta þessu viða-
mikla verki formannsins og
forsetans? Svarið við þvi ætti
að fást, þegar stjórnarskráin
verður að lokum lögð fram.
Vandamálið er þó, að mjög
stuttur timi er til stefnu, þvi
sennilegast á hin nýja stjórn-
arskrá að ganga i gildi, þegar
haldið verður upp á 60 ára
afmæli októberbyltingarinnar
i haust.
EINS OG menn sjá af þeim
klausum, sem hér hafa verið
birtar úr uppkastinu og úr
ræðu leiðtogans, merkir ný
stjórnarskrá ekki það sama og
nýtt frelsi. Óliklega verða þvi
miklar breytingar innan
Sovétrikjánna á næstunni.
MÓL
Vcrkamenn I sovézkri vélaverksmiðju ræða uppkastið að nýju stjórnarskránni. Ætli þeim finnist
mikið koma til breytinganna, sem þar hafa verið gerðar, eða finnst þeim þetta hálf-spaugi-
legt? Það siðarnefnda hefur honum sennilega þótt sem setti upp eintakið af Moscow-News, þar sem
uppkastið birtist, en á siðunni á móti hefur liann sett grein um „Dýraleikhúsið”.
m
JS