Tíminn - 25.01.1986, Page 8
Meira rokk í
■ r
sjonvarpinu
Poppkornið vikulega
8 Tíminn
Laugardagur 25. janúar 1986
Fergal
Sharkey
Margir urðu hissa þegar Fergal Sharkey
sagði skilið við hljómsveitina Undertones,
eftir að hafa staðið í framlínu hljómsveitar-
innar í fimm ár. En sólóferillinn heillaði og
nú hefur hann uppskorið árangur mikillar
vinnu. Allir þekkja „A Good Heart“ og nú
er það „You Little Thief“ sem ætlar að
verða fullt eins vinsælt og hið fyrrnefnda.
Vídeóið sem gert var við „A Good
Heart“ þótti hið ágætasta og ekki er það
síðra sem fylgir „You Little Thief“.
Sharkey hefur sjálfur lært töluvert í gerð
vídeómynda og segist hafa hönd í bagga við
gerð myndanna. Sviðsetningin og lýsingin
er í stórum dráttum hans hugmyndir og þar
er ekkert til sparað, eins og sést á myndinni
hér við hliðina.
Hægri hönd Sharkeys við gerð plötunnar
„A Good Heart“ var Davc Stewart, annar
helmingur Eurythmics. Fergal var búinn að
leita víða að pródúser fyrir plötuna og
margir höföu áhuga, en áhuginn beindist
fyrst og fremst að þeim peningum sem þeir
gátu grætt á honum, segir Sharkey. Hann
sagði að Dave hefði viljað vinna með hon-
um og gera sanna Sharkey plötu, án Euryt-
hmics áhrifa. Dave er það þckktur að hann
gat gert plötuna án þess að harnpa sjálfum
sér og Sharkey sló til. Reyndar segir hann
að plötuna hefði hann aldrei getað gert án
hjálpar Daves.
Þeir félagarnir hittust fyrst við eilítið
undarlegar kringumstæður. Fergal var
staddur á hóteli í Liverpool árið 1978. Þarsá
hann tígulega konu ganga út úr lyftu og
reyndist sú vera Annie Lennox. A hæla
henni kom geðveikislegur náungi með gítar
í fanginu. Hann gekk til Sharkeys og sagði:
„Hey, þú ert Fergal Sharkey, hvernig lýst
þér á þetta?“ og með það sama lék hann lag-
stúf sem þau skötuhjúin höfðu nýlokið við
að semja. Fergal óskaði þess að mennirnir í
hvítu sloppunum kæmu með spennitreyj-
una og leiddu þennan mann í burtu.
Þannig hófust kynni sem leiddu af sér ein-
hverja athyglisveröustu hljómplötu ársins
1985.
Skonrokk kemur til með að hcita
Poppkornið og nýr umsjónarmað-
ur birtist væntanlcga á skjánum um
næstu helgi.
Þetta kom fram í samtali Popp-
síðunnar viö Hrafn Gunnlaugsson
fyrir skömmu. Hann sagði að ætl-
unin væri að sýna Poppkorn viku-
lega og leggja meiri áherslu á inn-
lent efni en gert var í Skonrokki, þó
uppistaðan væri samt sem áður er-
lendar vídeómyndir. Ætlunin er að
ieggja meiri áherslu á kynningar
myndbandanna og auka fjölbreytni
til muna.
En það verður meira rokk. Nú
þegar hefur verið sýndur einn þátt-
ur í nýrri röð sem heitir „Rokkarnir
geta ekki þagnað" og verður sá
þáttur hálfsmánaðarlega og áhersla
lögð á að hljómsveitirnar sem þar
koma fram syngi á íslensku. Á móti
þeim þætti verður sýndur nýr
unglingamyndaflokkur um áhuga-
mál unglinga, sem mun heita
„Unglingurinn í frumskóginum."
Og enn er það ineira rokk. Hrafn
Gunnlaugsson sagði það sinn
draum að fá endursýningatíma ein-
hvern eftirmiðdaginn til að sýna
það unglingaefni gamalt sem sjón-
varpið ætti. í því sambandi nefndi
hann þættina „Rokkveita Ríkisins"
sem Egill Eðvarðsson gerði á árun-
um 1977-79. Þeir þættir eru núna
athyglisverð heimild um íslenska
poppsögu.
Þá höfum við það, allavega 3
unglingaþættir í viku.
Ársel
— Aid
Afríkutónleikar 22. febrúar
Félagsmiðstöðin Ársel og Hjálp-
arstofnun Kirkjunnar standa fyrir
styrktartónleikum þann 22. febrú-
ar næstkomandi. Allur ágóði tón-
leikanna rennur í Afríkusöfnunina
og bætist við þann digra sjóð sem
liggur eftir hljómplötuna „Hjálp-
um þeim“.
Enn hefur ekkert verið ákveðið
hvaða hljómsveitir muni troða upp
á tónleikunum, cn gefa á sem flest-
um hljómsveitum tækifæri til að
spila og öðlast um leið tónleika-
reynslu.
Þær hljómsveitir sem áhuga
hafa á þátttöku cru beðnar að
hafa samband við Ársel, í síma
78944, á þriðjudögum og fimmtu-
dögum milli klukkan 5 og 7.
Poppsíða Tímans hvetur allar
hljómsveitir, ungar sent gamlar til
að leggja málstaðnum lið og svo er
þetta kjörið tækifæri til að koma
sér og sínum lögum á framfæri.