Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is EKKI er útilokað að kaup Flugfélags Vestmannaeyja á rekstri innanlands- flugs Landsflugs gangi eftir. Þetta staðfesti Valgeir Arnórsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Vest- mannaeyja, í gær en komið hefur fram í Morgunblaðinu að Landsflug rifti kaupsamningnum 13. júní sl. vegna þess að Flugfélagi Vestmanna- eyja hafði ekki tekist að fjármagna kaupin. Valgeir segir að riftun samningsins hafi komið sér mjög á óvart enda hafi verið gengið frá útborgun daginn áð- ur, eða mánudaginn 12. júní. Jafn- framt hafi fjármögnun kaupanna ekki verið lokið. Ferðaþjónustan verður illa úti „Lögfræðingar okkar eru að fara yfir þetta mál en ég vonast til að menn séu tilbúnir til þess að klára þetta. Við hefðum getað gert það ef þetta hefði ekki komið upp,“ segir Valgeir. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest- manneyjum, segir að þetta ferli megi ekki taka marga daga því samgöngur séu í uppnámi á meðan. Hann tekur þó fram að það skipti ekki máli hver sjái um flugið svo framarlega sem verð og sætaframboð á flugleiðinni Vestmannaeyjar – Reykjavík sé við- unandi. Svo hafi hins vegar ekki verið undanfarið og það séu fyrst og fremst vonbrigði að eygja enga möguleika í stöðunni. Aðspurður segir Elliði að það sé fyrst og fremst ferðaþjónustan sem verði illa úti á meðan ástandið sé með þessum hætti. „Það er algerlega ljóst að við erum að brenna inni með ferðamannatíma- bilið og þar er verulega mikið undir. Öll markaðssetning seinasta árs er í uppnámi en það er nánast hver ein- asta helgi hér fullbókuð í allt sumar og langt fram á haust. Það segir sig sjálft að komist fólk ekki þá kemur það ekki,“ segir Elliði og bendir á að íbúar Vestmannaeyja geti vart litið á flug til Reykjavíkur sem almennings- samgöngur. Elliði hefur rætt við samgöngu- ráðuneytið vegna málsins og segir að þar á bæ sé skilningur á stöðu mála. „Ég hef trú á því að þar sé fullur vilji til að leggjast á árarnar með okk- ur til þess að bæta þetta ástand.“ Óvíst hvort riftun Lands- flugs á samningi standi Bæjarstjóri segir flugsamgöngur til Vestmannaeyja í uppnámi Morgunblaðið/Sigursveinn Þórðarson. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum, segir ekki skipta máli hver sjái um flugið svo fremi sem verð og sætaframboð á flugleiðinni sé viðunandi. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÓLAFUR Þór Ólafsson, bóndi á Valdastöðum í Kjós og formaður Veiðifélags Laxár, veiddi fyrsta laxinn í opnun Laxár í Kjós í gærmorgun. Tók lax- inn, sem var átta punda hængur, í rennunni neðan við Laxfoss sunnanverðan. Einn lax til kom upp úr ánni á fyrstu vakt, en hún var þá að sjatna eftir að hafa vaxið mikið og skolast um nóttina. Opn- unarhollið í Laxá vígði jafnframt nýtt og glæsilegt veiðihús, sem reist var í vor norðan við barnaskól- ann, þar sem veiðimenn hafa snætt til þessa. „Þetta er ekki bara breyting fyrir veiðimenn sem hingað koma, heldur breyting fyrir sam- félagið í Kjósinni,“ sagði Gísli Ásgeirsson, einn nýrra leigutaka árinnar. „Það hefur lengi staðið til að byggja en verið styr um hvernig ætti að haga því, en nú er húsið komið og allir ánægðir.“ Veiðihúsið er einingahús, tæpir 600 fm. Gömlu svefnskálarnir verða notaðir fyrir starfsfólk og þvottahús, en nýja húsið, sem er með tólf svefn- herbergjum sem öll snúa að ánni, stórum matsal og setustofu, verður alfarið nýtt fyrir gesti. „Þeg- ar við komum hér að var hluti samkomulagsins við landeigendur þess eðlis að breyting yrði á allri aðstöðu fyrir veiðimenn. Húsið er ódýrara en menn gera sér grein fyrir, hluti af samkomulag- inu var að byggt yrði hús sem yrði á skynsamlegu verði en gott í alla staði.“ Glæsilegt veiðihús vígt við Laxá og er það mikil breyting á aðstöðu fyrir veiðimenn Fyrsti laxinn úr Kjósinni Morgunblaðið/Einar Falur Ólafur Þór Ólafsson, bóndi á Valdastöðum, með fyrsta laxinn sem veiddist í Kjósinni í ár. HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt pilt á 17. ári til greiðslu 130 þúsund kr. fyrir brot gegn umferðarlögum og nytjastuld. Hann þarf að greiða tæpar 138 þús- und krónur í sakarkostnað og er gef- ið að sök að hafa í mars sl. farið inn í bifreið og ekið henni en þá komu lög- reglumenn að honum. Pilturinn flúði en lögreglumenn hlupu hann uppi. Hann bar því við að hann hefði farið inn í bílinn til þess að hlýja sér. Lykl- arnir voru í kveikjulásnum, en hon- um tókst ekki að koma bílnum í gang. Hann tók í handbremsuna og bíllinn rann þá af stað. Hann var mjög ölv- aður og óvanur að drekka áfengi. Í niðurstöðu dómsins kemur fram, að vínandamagn í blóði piltsins mældist 1,40%. Var hann auk sektar sviptur ökurétti í 12 mánuði, en pilt- urinn hóf nýlega æfingaakstur. Freyr Ófeigsson dómstjóri kvað upp dóminn. Eyþór Þorbergsson, fulltrúi lögreglustjórans á Akureyri, sótti málið, en Árni Pálsson hrl. varði piltinn. Dæmdur fyrir ölvunarakstur ♦♦♦ HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm yfir Stefáni Hjaltested Ófeigs- syni, 29 ára, fyrir kynferðisbrot gegn ungri stúlku. Í héraði fékk hann tveggja og hálfs árs fangelsi og þótti Hæstarétti hafið yfir vafa að hann hefði gerst sekur um háttsemi sem honum var gefin að sök. Ákærða er gert að greiða stúlkunni 900 þús. kr. í miskabætur og um 500 þús. í áfrýj- unarkostnað. Stefáni var gefið að sök að hafa í nóvember 2004 þröngvað stúlkunni til samræðis við sig og annarra kyn- ferðismaka hann setti fingur í enda- þarm hennar. Skýrði stúlkan frá því að hún og vinkona hennar hefðu ver- ið gestkomandi í íbúð ákærða. Eftir að vinkonan yfirgaf samkvæmið hefði ákærði skyndilega breyst í hegðun. Hann hefði komið aftan að henni og stungið fingri í endaþarm hennar, þrýst henni upp að vegg og tekið hana kverkataki. Hefði ákærði nauðgað henni og sett getnaðarlim sinn í leggöng og endaþarm hennar. Skv. skýrslu neyðarmóttöku LSH samræmdust áverkar á stúlkunni vitnisburði hennar og taldi fjölskip- aður héraðsdómur frásögnina trú- verðuga. Frásögn ákærða væri ekki trúverðug og framburður hans fyrir dómi ekki að öllu leyti samhljóða framburði til lögreglu. Tveggja og hálfs árs fangelsi fyr- ir nauðgun ♦♦♦ HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur sýknað karlmann á fimmtugsaldri af ákæru um kynferðisbrot gegn dótt- ur sinni og vísað bótakröfu hennar frá dómi. Vinnubrögð lögreglu við rann- sókn málsins voru gagnrýnd af dóm- endum. Dóttir mannsins, sem nú er þrettán ára, sakaði hann um að hafa nauðgað sér í ágúst 2004 þegar þau voru ásamt annarri dóttur mannsins, stjúpsystur stúlkunnar, stödd í ferðalagi. Stúlkan greindi frá meintri nauðgun rúmu ári eftir atburðinn, þá fyrir námsráðgjafa í grunnskóla sínum og í kjölfarið tók rannsóknarlögreglumaður skýrslu af stúlkunni undir stjórn héraðsdómara. Í vitnisburði stúlkunnar kemur fram að þau hafi verið stödd í svefn- skála. Stúlkurnar hafi sofið í koju, hún sjálf í efri kojunni, en maðurinn á gólf- inu. Stúlkan bar að hún hefði vaknað við að faðir hennar lá ofan á henni og hefði nauðgun átt sér stað. Hann hefði sagt að hún ætti að láta vita ef „það“ yrði óþægilegt og þá myndi hann hætta. Eftir smástund hefði hún sagt föður sínum að hætta sem hann hefði gert og yfirgefið kojuna. Leiðandi spurningar Spyrillinn bað þessu næst um nánari lýsingu á nauðguninni og spurði þá spurninga sem gáfu mögu- leika á tveimur svörum. Þannig spurði hann hvort stúlkan hefði fund- ið fyrir getnaðarlim föður síns, hvort það hefði verið hart eða mjúkt og hvort limurinn hefði verið inni í stúlk- unni þegar hún vaknaði. Síðustu spurningunni svaraði stúlkan játandi. Í niðurstöðu dómsins segir ákæru- valdinu í óhag að þegar stúlkan bar vitni var hún hvorki áminnt um sann- sögli né gengið úr skugga um að hún þekkti muninn á réttum og röngum vitnisburði. Auk þess hefði spyrillinn leitt hana áfram þegar kom að mik- ilvægustu staðreyndum málins, í stað þess að leita eftir sjálfstæðum skýr- ingum stúlkunnar. Í framburði kvensjúkdómalæknis kom einnig fram að ytri kynfæri stúlkunnar hefðu reynst eðlileg við skoðun og meyjarhaft órofið. Taldi læknirinn afar ólíklegt að samræði hefði verið haft við stúlkuna. Ákærði neitaði ávallt sök og kvaðst ekki skilja hvers vegna stúlkan bar á hann slíkar sakir. Þótti dómendum framburður hans trúverðugur en ým- islegt í vitnisburði stúlkunnar hefði ekki fengið stoð í gögnum málsins eða vætti vitna, því hefði ekki verið önnur niðurstaða tæk en að sýkna ákærða. Vettvangur ekki rannsakaður Dómendur töldu auk þess ákæru- valdið bera halla af því að lögregla hefði ekki rannsakað ætlaðan brota- vettvang. Ekki hefði verið staðreynd stærð skálans, né styrkleiki kojunnar auk þess sem myndir af vettvangi voru ekki teknar. Jónas Jóhannsson kvað upp dóm- inn, með honum í dómi sátu Jón Finn- björnsson og Sigrún Guðmundsdótt- ir. Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari sótti málið en Örn Clausen hrl. varði manninn. Karlmaður sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn dóttur sinni Dómendur gagnrýndu vinnu- brögð lögreglu við rannsóknina HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands hef-ur dæmt 18 ára pilt í 30 daga skil- orðsbundið fangelsi fyrir brot gegn umferðarlögum og eignaspjöll. Hann skal greiða 270 þúsund kr. í sekt auk sakarkostnaðar, sem er 52 þúsund krónur. Pilturinn var sviptur öku- réttindum í þrjú ár. Í september sl. braut hann 21 rúðu í Grunnskóla Borgarness en sama dag var hann jafnframt handtekinn eftir að hafa ekið á umferðarskilti. Var ákærði grunaður um ölvun við akstur og reyndist vínandamagn í blóði hans vera 2,25‰. Í mars sl. var ákærði aftur grunaður um ölvun við akstur, en þá ók hann á ljósastaur í Borgarnesi. Mældist vínandamagn í blóði piltsins 2,74‰. Kristinn Halldórsson, settur hér- aðsdómari, kvað upp dóminn. Hjör- dís Stefánsdóttir, fulltrúi lögreglu- stjórans í Borgarnesi, flutti málið af hálfu ákæruvaldsins. Sekt fyrir ölvunarakstur og eignarspjöll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.