Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 37 MINNINGAR ✝ Ásrún Jónsdótt-ir fæddist á Ein- arsstöðum í Reykja- dal 20. júlí 1917. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Seli á Akureyri 10. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Þóra Sigfús- dóttir, f. á Hall- dórsstöðum 15. október 1893, d. 14. apríl 1979, og Jón Haraldsson, f. á Einarsstöðum 6. september 1888, d. 18. apríl 1958, bóndi á Einarsstöðum. Systkini Ásrúnar voru Haraldur, f. 1912, látinn, Sigfús, f. 1913, látinn, Einar, f. 1915, látinn, Sig- urður, f. 1920, látinn, Jón, f. 1922, látinn, Kristinn, f. 1926, látinn, Björn, f. 1928, látinn, Aðal- steinn, f. 1932, Sig- ríður, f. 1933, og Sólveig Rósa, f. 1937. Ingimar, hálf- bróðir, f. 1909, lát- inn. Ásrún stundaði nám við bæði Hér- aðsskólann á Laug- um og Húsmæðra- skólann á Laugum. Seinna var hún um tíma ráðskona við Héraðsskólann. Hún vann í nokkur ár við sauma- skap í Reykjavík, en lungann úr starfsævi sinni stóð hún fyrir heimili á Einarsstöðum. Útför Ásrúnar verður gerð frá Einarsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú er hönd að hægum beði hnigin eftir dagsins þrautir. Signt er yfir sorg og gleði, sætzt við örlög, - nýjar brautir. Biðjum þess á blíðum tónum berast megi þreyttur andi endurborinn ljóss að landi lofandi dag með ungum sjónum. (Jón Haraldsson) Elsku móðursystir mín, Ásrún Jónsdóttir, kvaddi þennan heim á af- mælisdegi mínum og tvíburasystur minnar, Guðrúnar Jónu. Fyrst í stað var mér sorg í huga en er leið á dag- inn sættist ég við brottfarardag hennar. Hennar tími var kominn. Rúna mín var mér afar kær og átti ég yndislegan dag með henni fyrir tveimur vikum síðan, dag sem ég nú geymi sem dýrmæta minningu. Rúna mín var orðin mjög veikburða og hún sagði mér að sálin hennar væri orðin þreytt. Þegar ég var að alast upp dvaldi Rúna mín mikið á heimili foreldra minna yfir vetrartímann og á hverju einasta sumri til tvítugs fór ég norð- ur til hennar og dvaldi þar yfir allt sumarið. Eftir að ég varð fullorðin fór ég aldrei norður án þess að heim- sækja hana og gerði mér oft sérferð- ir til þess eins að sjá hana og hitta. Við fráhvarf hennar hafa því orðið viss þáttaskil í lífi mínu. Rúna var afar trúuð kona og bæn- heit. Hún hafði líka þann hæfileika að getað spáð í bolla og voru margir sem til hennar leituðu til að fá upp- ljóstrað um hvað framtíðin bæri í skauti sér. Allar þær bænir sem ég kann kenndi Rúna mér. Ég var í miklu uppáhaldi hjá henni eins og við systur allar og í dag er ég stolt af því. Henni var mikið umhugað um börn okkar systra og allar fallegu gjafirn- ar sem hún gaf okkur eru okkur svo kærar. Jólin voru sá tími þegar stóru kassarnir bárust að norðan fullir af fallegum gjöfum frá henni og oftast hafði hún búið þær flestar til sjálf. Í dag eru til á mínu heimili dúkar, vas- ar og fleira sem hún gerði. Hlutir sem nú hafa fengið enn meira gildi. Rúna vildi alltaf vera svo fín, í fal- legum fötum og með fallega skart- gripi. Hún var fagurkeri og heims- kona. Hún lét sér mjög annt um sitt gamla heimili og það var henni mikil sorg að sjá það í þeirri eyði sem það er í nú. Rúna var mikil tilfinningavera og viðkvæm, en gat verið ákveðin ef því var að skipta. Ég er sátt er ég kveð hana nú, þess fullviss að nú hefur hún fengið að hitta ástina sína aftur og verið leidd að litla húsinu við lækinn. Er ég kveð Rúnu mína þakka ég fyrir allan hennar velvilja í minn garð og dætra minna og bið almættið að varðveita sálu hennar. Anna Þóra. Móðursystir mín, hún Ásrún Jóns- dóttir, eða Rúna eins og við kölluðum hana, er látin. Rúna mín hefði orðið 89 ára 20. júlí næstkomandi og því búin að skila góðu ævistarfi. Samt er það alltaf erfitt þegar ástvinir okkar deyja þó svo að við hefðum vitað hvert stefndi og gengið í gegnum sorgarferli í þó nokkurn tíma. Ég var svo lánsöm að geta heimsótt Rúnu mína fyrir um þremur vikum síðan, setið hjá henni dagstund og kvatt hana á minn hátt og sú stund er mér í dag mikils virði. Rúna hafði mikið dálæti á okkur systrunum og lét hún það óspart í ljós bæði við okkur og annað fólk. Ég held að ég geti fullyrt það að allir sem þekktu Rúnu mína, vissu hverjar dætur Rósu voru og sumir hafa haft orð á því núna eftir andlát hennar að hún hafi kallað okk- ur englana sína. Ég er stolt af því að hafa verið í uppáhaldi hjá þessari merkiskonu. Rúna var alltaf mikill fagurkeri, hafði mikið dálæti á blómum og fal- legum hlutum. Það veitti henni mikla gleði að gefa gjafir og oft tók það hana árið að undirbúa jólagjafir og var það þá oftast eitthvað sem hún föndraði eða útbjó sjálf. Ég man það alveg frá því ég var lítil stelpa að eft- irvæntingin eftir að fá að opna pakk- ana frá Rúnu á jólunum er tilfinning sem ég verð að viðurkenna að ég hef hreinlega saknað síðustu árin, eða frá því að hún hætti að geta gert þetta sjálf. Rúna var mjög trúuð kona, sat mikið í bænahringjum og hafði mikla hæfileika til að lesa í bolla og þeir voru ófáir sem hún las í bolla fyrir. Einnig var Rúna mjög ættfróð og ljóðelsk. Rúna dvaldi oft lengi á heimili for- eldra minna þegar ég var lítil stelpa. Hún átti mikinn þátt í uppeldi okkar systra og það var henni mikið kapps- mál að við kynnum bænirnar. Hún lagði mikla áherslu á að við reyndum alltaf að finna það góða í fari hvers og eins. Það var hennar trú að eftir að þessu jarðneska lífi lyki, tæki ann- að líf við og hún beið lengi eftir því að fá að komast yfir landamærin eins og hún sjálf orðaði það gjarnan. Ég er sannfærð um að nú hefur verið tekið vel á móti henni Rúnu minni og loks- ins hefur hún fengið að hitta stóru ástina í lífi sínu, foreldra sína og aðra sem hún hafði þráð lengi að hitta. Í dag kveð ég með miklum söknuði og eftirsjá þessa merku konu sem nú hefur kvatt þennan heim, en í leið- inni þakka ég henni fyrir samfylgd- ina, alla hennar ást og umhyggju sem hún hefur sýnt mér og börnun- um mínum í gegnum árin. Elsku Rúna, ég bið guð og alla góðu englana að varðveita þig og passa. Þín Jóhanna. ÁSRÚN JÓNSDÓTTIR rúm verði minna eftir því sem tíminn líður. Það er sagt að tíminn lækni öll sár og það sár sem var höggvið í sál okkar, án alls fyrirvara, grói eftir því sem tíminn líður. Elsku drengurinn okkar, auga- steinn foreldra sinna, systur og litla drengsins og vinur okkar, við óskum þér góðrar ferðar til þess staðar sem þú ferð til og við öll förum til í fyll- ingu tímans. Loks er dagsins önn á enda, úti birtan dvín. Byrgðu fyrir blökkum skugga, björtu augun þín, Ég skal þerra tár þíns trega, tendra falinn eld, svo við getum saman vinur syrgt og glaðst í kveld. Lífið hefur hendur kaldar, hjarta ljúfur minn. Allir bera sorg í sefa, sárin blæða inn. Tárin falla heit í hljóði, heimur ei þau sér. Sofna, vinur, svefnhljóð meðan syng ég yfir þér. Þreyttir hvílast, þögla nóttin þaggar dagsins kvein. Felur brátt í faðmi sínum fagureygðan svein. Eins og hljóður engill friðar yfir jörðu fer. Sof þú væran, vinur, ég skal vaka yfir þér. (Kristján frá Djúpalæk.) Guð fylgi fjölskyldu þinni í gegn- um erfið spor. Kveðja. Steinþóra og fjölskylda. Það var sl. miðvikudagsmorgun 6. júní að ég sat með kaffibollann minn í rólegheitum og hlustaði á Berglindi dóttur mína æfa verkin sín á flyg- ilinn. Þetta var góð stund sem allt í einu var rofin. Dyrabjöllunni var hringt og ég sá að Kata systir var að koma með litlu barnabörnin sín í heimsókn. Ég sá það strax á henni að það var ekki allt með felldu. Þvílík harmafregn. Hann Halli Palli syst- ursonur minn var dáinn. Hvað hafði gerst? Hann hafði lent í bílslysi ásamt góðum vini sínum og dáið sam- stundis. Þvílíkt högg og þvílík sóun. Hallgrímur Páll var glæsimenni með mikla útgeislun. Hann fékk margar gáfur í vöggugjöf sem hann fór vel með. Það sést best á því hvað menntun hans var fjölbreytt sem og lífshlaup hans. Hann útskrifaðist frá Hótel- og veitingaskólanum og Fisk- vinnsluskóla Íslands. Hann var hálfnaður með nám í lögfræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst en tók sér hlé vegna þess að hann þurfti að ganga frá ákveðnum málum. Hann hafði vald á mörgum tungu- málum og var að læra rússnesku og spænsku. Hann kom mér að mörgu leyti á óvart þegar ég komst að því að hann hafði mikinn áhuga á heim- speki. En það sem stendur hjarta mínu næst er söngurinn. Hann hafði yndislega og hljómmikla baríton- rödd. Ég hefði viljað að hann hefði farið meira út á þá braut og lært að syngja. Hann hafði allt með sér, útlit, fas og rödd. Mörgum er enn í fersku minni þegar þessi fallegi drengur söng til mín í fimmtugsafmæli mínu. Þar kom hann mörgum á óvart, því að fáir vissu að hann Halli Palli hefði sönggenið í röddinni. Mér finnst ég hafa átt mikið í hon- um Halla Palla og ég veit að Sverri mínum finnst það líka. Hann kom stundum í heimsókn til okkar og þær stundir voru gæðastundir. Ég veit að Halli Palli gaf meira en hann tók, það segja allar þær heimsóknir, símtöl, gjafir og blóm sem borist hafa í Arn- arnesið síðustu daga. Það er alveg yf- irþyrmandi. Elsku Hanna mín og fjölskylda. Guð gefi ykkur styrk og kraft til að ganga í gegnum þessa miklu sorg. Við stórfjölskyldan gerum allt sem í okkar valdi stendur til þess að hjálpa ykkur og styðja. Soffía, Sverrir, Berglind og Hanna Soffía. Hávaxinn og herðabreiður með heimsins fallegasta bros, stríðnis- glampa í augum og undurfallega söngrödd. Hláturmildur húmoristi með svo ískalda og hárbeitta kímni- gáfu að það næstum hélaði í herberg- inu undan bröndurunum. Réttsýnn og rökfastur skoðanamaður með stórar tilfinningar og höfðingi heim að sækja. Dugnaðarforkur til vinnu með sterka ævintýraþrá sem leiddi hann í ótrúlegustu ferðalög og svað- ilfarir um heim allan. Sögumaður mikill sem kunni listina að krydda frásögnina þannig að áheyrandinn gat verið viss um að alla vega 60% sögunnar væri sönn. Þannig var frændi minn, hann Halli, sem nú er látinn langt um aldur fram. Þrátt fyr- ir fjögurra ára aldursmun vorum við Halli alltaf vinir og það skipti engu hversu langt leið á milli heimsókna, það var alltaf eins og við hefðum hist síðast í gær. Bæði forfallnir kvik- myndaáhugamenn frá unga aldri svo við fórum oft saman í bíó og gátum rætt efni myndarinnar langt fram á nótt. Stundum vorum við ógurlega ósammála og gátum þráttað eldheitt fram og til baka um menn og málefni en enduðum alltaf rifrildin með hlátrasköllum og glettnislegu stríðn- isbrosi. Faðmlag frá Halla frænda var alltaf hlýtt og þétt – ekkert fals, bara sönn væntumþykja. Ég á eftir að sakna þessara stunda. Halli frændi er dáinn. Ég trúi fréttunum ekki enn og langar aldrei að trúa þeim. Elsku Hanna, Dunsi, Elísa Björk og Guðmundur Gabríel, megi Guð styrkja ykkur á lífsins erfiðustu stundu. Minningin um góðan dreng lifir í brjóstum okkar allra og það er ég viss um að þessi nýjasti og glæsi- legasti engill verður fenginn til að leiða fjöldasöng í partíum í himna- ríki. Halli er lagður í enn eina langferð- ina, þá lengstu til þessa – góða ferð, elsku frændi. Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir. Elsku besti frændi minn. Ljós- hærði litli drengurinn. Ég man svo margar stundir frá því fyrir mörgum árum síðan. Ég unglingsstúlka heima á Suðureyri við Súgandafjörð. Við yngstu systkinin heima hjá mömmu og pabba. Elstu systur mín- ar orðnar stórar og búnar að hleypa heimdraganum. Systur mínar, Hanna og Soffa, fóru á vertíð til Vestmannaeyja eftir áramótin 1971. Um vorið komu þær til baka. Ég man hvað mamma og pabbi hlökkuðu mikið til að sjá þær. Hanna og Soffa komu heim með strák frá Húsavík. Hann var þá kær- asti Hönnu. Hann Guðmundur Hall- grímsson. Hanna var þá ólétt og átti dreng um haustið sem skírður var Hallgrímur Páll. Hann var ekki stór þegar hann fæddist sem fyrirburi. Ég man hann samt svo lítinn og svo stóran. Það skiljast leiðir í lífinu, vinurinn minn. Faðmlagi þínu gleymi ég aldr- ei né hversu fallega þú söngst. Ég hef átt mjög bágt síðan ég frétti að þú værir ekki lengur á meðal okkar. Elsku frændi minn, megi guð vera með þér, ég veit að þú ert núna hjá fólkinu þínu sem er farið yfir móðuna miklu. Ég bið guð að vera með þér og varðveita þig. Þess óskar þín frænka, Guðbjörg Sigríður. Elsku frændi. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Það er sárt að kveðja en við vitum að þú fylgist með og trúum því að við hittumst síðar. Hvíl í friði, elsku frændi. Elsku Gummi, Hanna, Elísa, Guð- mundur Gabríel og ættingjar okkar allir, megi góði Guð styrkja okkur í þessari miklu sorg. Guðmundur Karl og fjöl- skylda, Jónína og fjölskylda. Elsku Halli minn. Nú kveð ég þig vinur með klökkva og þrá, því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá, er sofna ég síðasta blundinn. (Hugrún.) Takk fyrir allt sem þú varst mér. Það sem var okkar er og verður svo. Megi góður Guð vera með okkur öll- um. Guð blessi minningu þína, elsku frændi. Sólveig Halla (Lollý). Elsku Halli. Nú ertu farinn frá okkur langt fyrir aldur fram. Þetta kom sem reiðarslag þegar fréttin barst að þú hefðir látist í bílslysi. Minningarnar hrönnuðust upp og myndin sem við geymum í huga okk- ar er fallegasta myndin sem til er á jörðinni. Þú varst og verður alltaf nánasti og besti vinur okkar. Við er- um búin að rifja upp allar góðu stundirnar í Sólheimunum, hvað þú komst alltaf með mikinn kærleika og frið, þegar þú eldaðir yndislegu mál- tíðirnar, þar sem þú varst snilldar- kokkur enda útlærður og við tölum nú ekki um friðarstundirnar við kertaljós. Alltaf gast þú gefið okkur góð og dýrmæt ráð sem við munum muna eftir þegar eitthvað bjátar á. Við minnumst þín sitjandi inni í stofu þar sem þú gast fengið okkur til að gleyma stund og stað. Hjartað þitt var stórt og gefandi og ávallt hafðir þú tíma til að koma við ef mikið lá við. Þú varst sannur vinur. Þegar ég greindist með krabbamein þá varst þú fyrsti maður til að sýna mér styrk og það sem þú hefur gert fyrir okkur í gegnum mín veikindi er ómetan- legt, þú varst algjör klettur, elsku Halli. Hláturinn þinn hljómar í eyrum okkar og fallega brosið þitt sjáum við og geymum með okkur. Það var fyrir rétt mánuði síðan að við komum og heimsóttum ykkur feðga upp í sumarbústað, sem var þinn griðastaður. Við áttum yndis- legan dag með ykkur og litli engillinn þinn bræddi hjörtu okkar, hans miss- ir er mikill og við biðjum góðan guð að vernda hann og styrkja. Elsku Halli, við trúum því að þú sért kominn á betri stað í lífinu og að þú munir vaka yfir okkur hinum. Við elskum þig. Við biðjum góðan guð að vernda og styrkja Guðmund, Jóhönnu, Elísu, Guðmund litla og alla aðra ættingja og vini og viljum kveðja þig, elsku Halli, með þessum orðum. Loforð guðs: Ég hef aldrei lofað að brautin sé bein og gullskrýddir vegir alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar, á göngunni til him- insins helgu borgar. En lofað ég get þér aðstoð og styrk og alltaf ljósi þó leiðin sé myrk. Mundu svo, barn mitt, að lofað ég hef að leiða þig sjálf- ur hvert einasta skref. Hvíl þú í friði, engillinn okkar. Þínir vinir, Björk og Áki.  Fleiri minningargreinar um Hall- grím Pál Guðmundsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Sigríður Arngrímsdóttir; Björn, Trausti, Brynjar, Björg, Jónas og Ólöf; Íris; Karl Garðarsson; Gunnar Valur Sveinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.