Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is AÐ MINNSTA kosti 64 létust og 78 slösuðust þegar farþegarúta ók yfir tvær jarðsprengjur 200 km norður af Columbo, höfuðborg Sri Lanka, í gær. Stjórnvöld hafa kennt uppreisnarmönnum úr röð- um tamílsku Tígranna um tilræð- ið, en leiðtogar þeirra hafa hafnað aðild að atvikinu og gefið í skyn að vígahópur tengdur stjórninni hafi verið að verki. Stjórnin fyrirskipaði engu að síður loftárásir á höfuðstöðvar Tí- granna í Kilinochchi í hefndar- skyni, en árásin er sú mannskæð- asta frá því að vopnahléi var komið á milli fylkinganna árið 2002. „Þetta er villimannlegasta árás Tígranna til þessa,“ sagði Kehe- liya Rambukwella, talsmaður stjórnarinnar, í gær. „Við þurfum að taka vopnahléið til alvarlegrar endurskoðunar og hugsanlega endursemja skilmála þess.“ Tígrarnir brugðust einnig skjótt við og sendu frá sér yfirlýs- ingu þar sem sagði að „árásir á óbreytta borgara … væru undir öllum kringumstæðum óréttlæt- anlegar“. Var á ferð á svæði Sinhala Að sögn stjórnvalda var rútan á ferð skammt frá bænum Kabithi- gollewa þegar tvær jarðsprengjur sprungu með þeim afleiðingum að rútan snerist á hvolf. Á þessu svæði búa einkum Sinhalar, en þeir eru að stofni til búddistar og í meirihluta á eyjunni. Um var að ræða svokallaðar Claymore-jarðsprengjur sem Tígrarnir beita gjarnan í aðgerð- um sínum. Þeir berjast fyrir sjálf- stæðu ríki Tamíla, en þeir eru að meirihluta hindúar. Flestir farþega rútunnar voru þorpsbúar á leið til vinnu eða skóla. Er talið að um 160 til 170 manns hafi verið í rútunni, sem er hönnuð fyrir 60 farþega, þegar hún snerist á hvolf af völdum sprengnanna. Mikil spenna hefur verið á Sri Lanka að undanförnu og er óttast að vopnahléið sé að fara út um þúfur og borgarastyrjöld kunni að brjótast út á ný í landinu. Á hinn bóginn sagði Rambuk- wella í gær að þrátt fyrir að flest benti til að Tígrarnir bæru ábyrgð á atvikinu teldi hann ekki að það myndi leiða til allsherj- arátaka. „Þetta var ekki stríðs- yfirlýsing heldur hryðjuverka- árás,“ sagði Rambukwella í gær. Vipul Boteju, fyrrverandi liðs- foringi í stjórnarhernum, sagðist í gær aftur á móti efast um að hægt væri að tala um vopnahlé. „Það er ekkert vopnahlé í gildi,“ sagði Boteju. „Stjórnvöld verða hins vegar að segja að þau muni virða það, því að um leið og þau viðurkenna að því sé lokið munu brjótast út allsherjarátök.“ Á sjöunda tug fórst í sprengjuárás á Sri Lanka AP Hermenn fylgjast með umferð þar sem sprengjurnar sprungu í gær skammt frá bænum Kabithigollewa, sem er norður af Colombo. Talið er að yfir 160 manns hafi verið í rútunni, sem er hönnuð fyrir 60 farþega. AÐ SÖGN Þorfinns Ómarssonar, tals- manns norrænu eftirlitssveitanna (SLMM) á Sri Lanka, er mjög langt á milli deilu- aðila og ljóst að draga verður úr spennunni á milli þeirra eigi ástandið ekki að verða mjög al- varlegt. „Ég ræddi við dr. Pa- litha Kohona, sérlegan ráðgjafa forsetans í frið- ar- og öryggismálum, og S. Puleedevan, talsmann Tígranna, og voru þeir algerlega ósammála í öllum meginatriðum,“ sagði Þorfinnur. „Kohona fullyrðir að Tígrarnir viður- kenni ekki aðild sína að atvikinu þrátt fyrir að verksummerki bendi eindregið til þess. S. Puleedevan sagði hins vegar að víga- hópar tengdir stjórninni hefðu verið að verki, í því skyni að koma af stað keðju- verkun sem kynni á endanum að leiða til borgarastríðs.“ Ákvörðun ESB gerði illt verra Að sögn Þorfinns hafa fylkingarnar tvær frest þangað til 20. maí til að svara því hvort þær hyggist standa við ákvæði frið- arsamkomulagsins frá 2002. „Afstaða Tí- granna til Svía, Dana og Finna er afar nei- kvæð eftir að Evrópusambandið (ESB) ákvað í lok maí að skilgreina þá sem hryðjuverkasamtök,“ sagði Þorfinnur. „Þetta gæti leitt til þess að Tígrarnir gerðu árásir á eftirlitsmenn þessara þjóða, þótt slíkt sé ólíklegt. Um 40 af 60 eftirlits- mönnum SLMM á Sri Lanka eru frá þess- um þjóðum og ef þeir verða kallaðir heim gætu íslenskir og norskir starfsmenn eft- irlitssveitanna einnig fengið skipun um að yfirgefa landið. Ákvörðun ESB gerði því illt verra.“ Mikið bil á milli fylk- inganna Íslenskur eftirlitsmaður segir ástandið alvarlegt Þorfinnur Ómarsson HLUTI þess fjár sem bandarísk yf- irvöld hugðust láta renna til fórn- arlamba fellibyljanna Katrínu og Rítu, sem riðu yfir suðurströnd Bandaríkjanna í fyrrahaust, hafnaði í höndum svikahrappa. Talið er að upphæðirnar sem um ræðir geti numið allt að 1,4 milljörðum dala, sem samsvarar tæplega 106 millj- örðum íslenskra króna. Peningarnir voru meðal annars notaðir til þess að greiða fyrir miða á íþróttaleiki, sumarfrí, kynskiptaaðgerð og skiln- aðarlögfræðing. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin var af sérstakri endurskoð- unarskrifstofu bandarískra yf- irvalda (GAO). Þar segir að FEMA, stofnun almannavarna í Bandaríkj- unum, hafi í mörg hundruð tilvikum greitt út fé til svindlara úr sjóðum sem átti að nota til þess að aðstoða fólk sem átti um sárt að binda eftir að fellibyljirnir riðu yfir. Peningana áttu fórnarlömb náttúruhamfaranna að nota til þess að greiða fyrir mat, húsnæði, föt og aðrar nauðsynjar. GAO byggir niðurstöður sínar á rannsóknum endurskoðenda sem stofnunin réð til starfa á tímabilinu febrúar-júní á þessu ári. Var þeim falið að vinna með leynilegum hætti og kanna hversu auðvelt hefði reynst að svíkja fé úr neyðarsjóðum á vegum ríkisins. Stofnunin komst að þeirri nið- urstöðu að 16% allra hjálparbeiðna sem bárust eftir Katrínu og Rítu, og FEMA sinnti, væru frá svika- hröppum. Á bilinu 600 milljónir til 1,4 milljarðar dala hefðu tapast vegna þessa. Keypti hjálpartæki ástalífsins Gregory Kutz, yfirmaður sér- rannsókna á vegum GAO, skýrði bandarískri þingnefnd frá nið- urstöðum rannsóknarinnar á mið- vikudag og nefndi einstök dæmi um svik. Sagði hann að einn svika- hrappanna hefði dvalist á ferða- mannastað í Orlando á Flórída frá september og fram í nóvember í fyrra. Hefði sú dvöl kostað banda- ríska skattgreiðendur um 12.000 dali en svindlarinn hefði að auki fengið um 4.000 dali úr sjóðum rík- isins til þess að greiða fyrir hús- næði á tímabilinu. Kutz sagði einnig dæmi um að fólk hefði misnotað greiðslukort sem úthluta átti fórnarlömbum hamfaranna. Einn einstaklingur hefði notað sitt kort til þess að greiða fyrir flösku af Dom Per- ignon-kampavíni á veitingastað Hooters-keðjunnar, þar sem fá- klæddar konur þjóna til borðs. Annar maður keypti vörur fyrir 400 dali í verslun sem sérhæfir sig í hjálpartækjum ástalífsins, með greiðslukorti sem ætlað var fórn- arlömbum fellibyljanna. Og ein- staklingur sem ekki átti láni að fagna í ástalífinu eyddi 1.000 dölum í að greiða fyrir aðstoð skiln- aðarlögfræðings. Ennfremur fyllti karlmaður í Texas-ríki út 19 um- sóknir um aðstoð vegna hamfar- anna, en þá peninga nýtti hann til þess að gangast undir kyn- skiptaaðgerð. Fyllt upp í gloppur Blaðið The Los Angeles Times skýrði frá því í gær að Donna M. Dannels, einn yfirmanna FEMA, hefði sagt frammi fyrir bandarísku þingnefndinni að fjármunir sem næmu um 8.000 dölum hefðu verið notaðir með vafasömum hætti. Stofnunin ráðstafaði alls 39 millj- örðum dala til fórnarlamba fellibylj- anna. Blaðið segir Dannels ekki hafa náð að sannfæra þingmennina sem á hlýddu. Dannels tók fram að ým- islegt hefði verið gert til þess að fylla upp í þær gloppur sem verið hefðu á skipulagi því sem notað var þegar hjálparfénu var útdeilt. Móðgun við fórnarlömbin „Þetta er móðgun við fórnarlömb Katrínu og Rítu,“ hefur blaðið eftir repúblikanum Michael McCaul, sem er formaður þingnefndarinnar. „En þegar allt kemur til alls er það hinn almenni bandaríski skattgreið- andi sem geldur þessa,“ bætti hann við. Meira en 1.300 manns létust þeg- ar fellibylurinn Katrína reið yfir á suðurströnd Bandaríkjannna í ágúst í fyrra og mikið tjón varð þegar fellibylurinn Ríta skall á í september. Í kynskiptaaðgerð fyrir hjálparfé Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ENSKUR fótboltaáhugamaður fylgist með leik Englands og Trínidad og Tóbagó á risastórum skjá í miðborg Nürnberg í gær. Hann er klæddur eins og riddari frá miðöldum og bítur æstur í sverðsoddinn sem vafalaust er úr plasti. Reuters Ætla þeir að hafa þetta?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.