Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNARLÍF ÚR VERINU ÁLVERÐ gæti lækkað enn frekar á næstu misserum vegna aukins fram- boðs hráefnis, eða um allt að 20%. Þetta kom fram hjá Richard Evans, forstjóra Alcan, móðurfélags álvers- ins í Straumsvík, í viðtali við Bloom- berg-fréttastofuna í vikunni. Frá þessu er greint í Vegvísi Landsbankans og bent á að heims- markaðsverð á áli hafi lækkað mikið síðustu vikurnar eftir að hafa náð sínu hæsta gildi í 19 ár í byrjun maí sl. Álverð er nú um 2.500 dollarar tonnið eftir að hafa náð hámarki í 3.185 dollurum fyrir rétt um mánuði. Haft var eftir Evans hjá Bloomberg að lækkun niður í 2.000 dollara væri ekki óraunhæf. Mikil eftirspurn kæmi í veg fyrir að verðið færi miklu neðar. Fram kemur í Vegvísi að lækkanir undanfarið séu raktar til hækkandi vaxta um allan heim sem dragi úr hagvexti auk þess sem margir telji að hækkanir hrávöruverðs að und- anförnu hafi verið óraunhæfar. Greiningardeild Landsbankans bendir á að ekki séu allir sammála um áframhaldandi verðlækkanir. Þannig hafi talsmaður Russian Al- uminum sagt nýverið að álverð muni hækka á næstunni og meðalverð árs- ins verði um 2.500 dollarar. Þá hefur Alcoa tilkynnt að fyrir- tækið ætli að auka fjárfestingar sín- ar í Kína. Gerir Alcoa, sem reisir nú álver í Reyðarfirði, ráð fyrir að fjár- festingar í Kína fjórfaldist á næstu átta árum. Forstjóri Alcan spáir frekari lækkun álverðs ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF hækkuðu í Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan hækk- aði um 1,07% og var lokagildi hennar 5.413 stig. Alls nam veltan á hluta- bréfamarkaði 2.281 milljónum króna. Mest hækkuðu bréf Dagsbrúnar, eða um 1,82%, bréf Glitnis hækkuðu um 1,76% og bréf KB banka um 1,64%. Bréf Atlantic Petroleum lækkuðu mest eða um 1,55%, þá bréf Marels um 1,46% og bréf Flögu um 0,77%. Hlutabréf hækka ● SAMRUNI Icelandic umbúða ehf. og Valdimars Gíslasonar hf. mun að mati Samkeppniseftirlitsins ekki hafa skaðleg samkeppnisleg áhrif og verður ekki aðhafst af þeim sökum. Tilkynnt var um samrunann 13. mars sl. og þar kom fram að samlegð- aráhrif yrðu aðallega við sölu á um- búðum fyrir matvæli, s.s. kjöt og fisk. Telur Samkeppniseftirlitið að með samrunanum muni fyrirtækin styrkja stöðu sína í þessum við- skiptum, en ekki það mikið að það skaði samkeppni á markaðnum. Ekki aðhafst vegna umbúða ● SEÐLABANKI Sviss hækkaði í gær stýrivexti bankans um 0,25 prósent- ur og eru meðalvextir bankans nú 1,5%. Bankinn spáir því að í ár verði hagvöxtur í Sviss rúmlega 2,5%, sem er heldur meira en bankinn spáði í mars sl.. Svissneski seðla- bankinn hækkar vexti BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson athafnamaður og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, verða meðal ríflega 30 fyrirlesara á ráðstefnu sem tímaritið Forbes stendur fyrir í Kaupmannahöfn eftir helgi. Verða þeir í hópi fjölmargra þekktra forstjóra stórfyrirtækja og athafnamanna í Evrópu, auk þess sem Ritt Bjerregaard, borgarstjóri Kaupmannahafnar, Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur, og Jóakim Danaprins verða meðal við- staddra. Eigandi tímaritsins og að- alritstjóri, Steve Forbes, verður einnig gestur á ráðstefnunni. Þar er ætlunin að ræða strauma og stefnur í heimi viðskipta og efna- hagslífs, með sérstakri áherslu á Evrópu og hvaða tækifæri eru helst í boði fyrir þá heimsálfu í alþjóðavæð- ingunni. Björgólfur Thor Björgólfsson Kári Stefánsson Meðal ræðumanna á ráðstefnu Forbes PHOENIX fjárfestingar ehf. hafa selt dótturfyrirtækið Laugarakur ehf. til nýstofnaðs félags, Laugar- ness ehf. Með sölunni fylgir öll uppbygging á 335 íbúðum og hús- um í hinu nýja Akrahverfi í Garða- bæ, en það er yfir 70% af öllum framkvæmdum á svæðinu, að því er kemur fram í tilkynningu frá Phoenix um söluna. Þetta er eitt stærsta einstaka byggingarverkefni sem selt er í einu lagi, eða yfir 45 þúsund fer- metrar af byggðu íbúðarhúsnæði. Samkvæmt áætlun sem Phoenix fjárfestingar hafa áður gefið frá sér er áætlað að núvirði fram- kvæmdanna sé yfir 12 milljarðar íslenskra króna fullbyggt. Sam- kvæmt mati Deloitte, sem unnið var fyrir Phoenix í febrúar sl. og stutt matsgerðum tveggja annarra fyrirtækja, var þávirði fram- kvæmdanna áætlað á sjötta millj- arð króna. Verktakinn að uppbygg- ingunni í Akrahverfi er byggingarfélagið Kambur ehf. Kaupverðið er trúnaðarmál, en söluferlið og kaupin á Laugarakri hafa verið unnin og fjármögnuð í gegnum Glitni. Hið nýja félag, Laugarnes ehf., er í eigu hóps fjár- festa sem síðar verða tilgreindir. Nýir eigendur að bygging- arverkefninu í Akrahverfi Akrahverfi í Garðabæ Laugarnes tekur við uppbyggingu á 335 íbúðum og húsum í hinu nýja hverfi. Framkvæmdir í hverfinu metnar á 12 milljarða króna – yfir 45 þúsund fermetrar af íbúðarhúsnæði FÆREYSKA útgerðin Framherji SP/f, sem er í þriðjungseigu Sam- herja hf., hefur keypt tog- og nóta- skipið Krúnborg af útgerðarfélag- inu Eiler Jacobsen. Gengið var frá sölu skipsins í síðustu viku en skipið verður afhent Framherja í dag. Kristján Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri Samherja, var staddur í Færeyjum af þessu til- efni í gær og í samtali við Morg- unblaðið sagði hann Krúnborg vera mjög burðarmikið skip. „Skipið er 82 metra langt, 14 metra breitt og getur borið 3.200 tonn af fiski í kælitönkum. Það var smíðað í Noregi árið 1999 en fyrir tveimur árum var það lengt um tæpa átta metra,“ segir Kristján. Að sögn Kristjáns fylgdu allar veiðiheimildir með í kaupunum og verður skipið gert út innan fær- eysku lögsögunnar á kolmunna, loðnu og makríl. Fyrir gerir Fram- herji út frystitogarann Akraberg FD-10, en félagið hefur leyfi til veiða við Færeyjar, í Barentshafi í norskri og rússneskri lögsögu og á Reykjaneshrygg. Kristján segir engin áform um að selja Akraberg í kjölfar kaupanna á Krúnborg. Kaupverðið er trúnaðarmál, en í frétt á vef færeyska útvarpsins er því haldið fram að Framherji hafi greitt meira en 185 milljónir fær- eyskra króna fyrir skipið og veiði- leyfi, eða rúma 2,3 milljarða króna. Þær fréttir voru hins vegar hvorki staðfestar af kaupendum né selj- endum. Hlutdeildarfélag Samherja í Færeyjum kaupir Krúnborg Krúnborg Skipið er 82 m langt, 14 m breitt og með mikla burðargetu; lík- lega er það með fullfermi þegar þessi mynd er tekin, eða 3.200 tonn.                        !"# $%%&$      ' () *(#&                               +, -$ ./(01 "2 3"&+ "2 ,(/% ./(01 "2 4 %% -!/ ./(01 "2  56/7# "2 8 ./(01 "2 3 5 ./(01 "2 .3$,#$/ 6 #%$ "2  019$#5 4 #% "2 8 #6 #%$ :3 # "2  /&3 "2 ( $+   $(# "2 ,/ 0;0/<40/= /> ?>/"26 #%$ "2 @0/ "2      -$(# ./(01 "2 A4 ./ #$ "2 A ;1$=? # "2  '+&3 #$+ ./(01 "2 B &/?$ "2 C ,3 #,$+ &,/(3&0; /D55$#5 ;$=,!=$# "2 E$##30,!=$# "2  !  "# $%&3$ D? "? /= / "2  3>,0/"F3 5 0=0/3 # -"2 " $%  & 'G H= , -$=%2-&/=               < < < < < < < < 4/&D,$#5 "/> "D// -$=%2-&/= < <  < < < < < < < < <  < < < < < I  J I <J I  J I  J I J I J < I J I J < I <J I J I J I <J I <J < < < < I <J < < < < < A&$3 /-$=%$1,$  5$# $36(= H 3(%  5K  01 3 2  2 2 2 2 2  2  2 2 2 2 2 2 2   < < <  < < < < <                < < <   < <                        < <  E$=%$1,$ H 972 %/2 A2 L , 050# /3$,$ ?!3$ -$=%$1,      < < < < < < < <
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.