Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hvað segirðu gott? Ég er bara nokkuð hress, takk fyrir það! Mállaus prins eða vinsæll útigangsmaður? (spurt af síðasta aðalsmanni, Anítu Briem leikkonu) Fer eftir landi og borg, hugsa samt mállaus prins. Kanntu þjóðsönginn? Að sjálfsögðu. Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert? Um síðustu helgi skrapp ég til Svíþjóðar í tvo daga. Uppáhalds maturinn? Margt og mikið, flest allt sem konan mín og mamma gamla elda! Bragðbesti skyndibitinn? American Style. Besti barinn? Salatbarinn hjá Ingvari í Faxafeni. Hvaða bók lastu síðast? In Pursuit of Excellence, mjög góð bók. Hvaða leikrit sástu síðast? Cabarett. En kvikmynd? Mission impossible 3, mæli ekki með henni. Hvaða plötu ertu að hlusta á? Hlusta yfirleitt á ipod- inn minn og þá fer mest eftir skapi hvað ég hlusta á. Uppáhalds útvarpsstöðin? X-FM, þeir Capone-bræður eru snillingar. Besti sjónvarpsþátturinn? 24, Friends o.fl. Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveru- leikaþætti í sjónvarpi? Nei, það gæti ég ekki hugsað mér. G-strengur eða venjulegar nærbuxur? Venjulegar fyrir mig, takk, g- fyrir konuna! Helstu kostir þínir? Það verða aðrir að dæma um. En gallar? Er ekki gott að vera með sama svar hér? Besta líkamsræktin? Fer eftir skapi, ef ég er reiður er gott að hlaupa og lyfta annars er mjög gaman að taka léttan fótbolta eða körfubolta í góðra vina hópi. Hvaða ilmvatn notarðu? Man ekki hvað það heitir, sorrí! Ertu með bloggsíðu? Ó nei, held að hún yrði ekkert rosalega spennandi. Pantar þú þér vörur á netinu? Sjaldan en kemur fyrir. Flugvöllinn burt? Hvert? Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hvað er með þetta veður hérna? Íslenskur aðall | Guðjón Valur Sigurðsson „Hvað er með þetta veður?“ Morgunblaðið/RAX „Ef ég er reiður er gott að hlaupa og lyfta, annars er mjög gaman að taka léttan fótbolta eða körfubolta.“ Það mun mikið mæða á aðalsmanni vikunnar á morgun, en þá spilar hann með íslenska landsliðinu í handknattleik gegn Svíum í síðari leik liðanna um laust sæti á HM á næsta ári. Íslendingar unnu yfirburðasigur í fyrri leiknum og nú er bara að vona að slíkt hið sama gerist í Laugardalshöll á sjálfan þjóðhátíðardaginn. STÓRSVEIT Nix Noltes heldur tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld og leikur að vanda þjóðlaga- tónlist frá Búlgaríu og Balk- anskaga. Sérstakur gestur hljómsveit- arinnar að þessu sinni verður Böðvar Brútal, sem mun syngja nokkur lög með henni á jiddísku. Hljómsveitin hefur margoft komið fram og leikið austur- evrópska tónlist, en þó er end- urnýjunin ör. Lögin að þessu sinni eru glæný og engin þeirra voru á síðustu plötu hljómsveitarinnar Orkídeur Havaí. Að sögn Eiríks, eins af fjöl- mörgum meðlimum Stórsveitar Nix Noltes, var hljómsveitina farið að klæja í puttana að fá að spila, en einnig vakti fyrir þeim að spila með nýjum dúetti, skipuðum þeim Kriu Brekkan úr MÚM og Avey Tare, söngvara hljómsveitarinnar Animal Collective. Þau munu spila og syngja frumsamin lög á gítar og píanó. Erlendur plötusnúður byrjar að spila skömmu eftir að húsið verður opnað kl. 22. Avey og Kria spila um 23 leytið og Stórsveitin byrjar svo um klukkutíma síðar. Fjörið stendur svo fram eftir kvöldi eða þangað til „allir eru dottnir niður“, að sögn Eiríks. Aðgangseyrir er 700 kr. Morgunblaðið/Eyþór Stórsveit Nix Noltes mun einungis leika ný lög í kvöld. Tónlist | Stórsveit Nix Noltes og vinir í Þjóðleikhúskjallaranum Spilað þar til allir detta niður SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK Leitið Sannleikans - Hverju Trúir Þú? eee S.V. MBL. eee VJV - TOPP5.is eee D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" eee V.J.V.Topp5.is FULL AF LÉTTLEIKANDI GÁLGAHÚMOR ÞAR SEM ROWAN ATKINSON (MR BEAN & LOVE ACTUALLY) ER Á HEIMAVELLI. AÐRIR LEIKARAR , KRISTIN SCOTT THOMAS (FOUR WEDDINGS AND A FUNERAL), MAGGIE SMITH (HARRY POTTER) OG KVENNAGULLIÐ PATRICK SWAYZE. GRÍNHROLLUR BEINT Í ÆÐ. SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ KEEPING MUM kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA. DA VINCI CODE kl. 8 B.I. 14.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 B.I. 14.ÁRA. SHAGGY DOG kl. 6 MI : 3 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.I. 14.ÁRA. KEEPING MUM kl. 5:45 - 8 B.I. 12 ÁR 16 BLOCKS kl. 10:10 B.I. 14 ÁR X - MEN 3 kl. 5:45 B.I. 12 ÁR POSEIDON kl. 8 B.I. 16 ÁR THE DA VINCI CODE kl. 10 B.I. 14 ÁR SLITHER kl. 8 - 10 B.I. 16.ÁRA. SHE´S THE MAN kl. 8 POSEIDON kl. 10 B.I. 14.ÁRA. LEPJULEGASTI GRÍNHROLLUR ÁRSINS ER KOMINN. FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR ENDURGERÐINA AF „DAWN OF THE DEAD“ eee VJV, Topp5.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.