Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MERKILEGAR hljóðupptökur frá frumbernskuárum Stuðmanna, sem talið var að hefðu glatast, komu í leitirnar fyrir tilviljun nú 35 árum síðar og verða gefnar út á hljóm- diski […] Að sögn Jakobs Frímanns Magnússonar eru þetta fyrstu og einu upptökurnar sem líta dagsins ljós með upphaflegum forsöngvara Stuðmanna, Gylfa Kristinssyni.“ Svo hljóðaði frétt í Morg- unblaðinu þann 1. apríl síðastliðinn. Vakti fundurinn á upptökunum mikla athygli, enda saga Stuðmanna orðin ein sú lengsta og merkilegasta í íslenskri poppsögu. En eins og dagsetningin gefur til kynna er fréttin ekki alsönn: „Aprílgabbið var það að þetta væru gamlar upptökur. Þær voru hins vegar, og eru, nýjar,“ segir Val- geir Guðjónsson einn upphaflegra Stuðmanna – eða Frummanna eins og þeir kalla sig nú – en hinir eru Jakob Frímann Magnússon, Gylfi Kristinsson og Ragnar Daníelsson. „Lögin er að vísu misný. Þau elstu eru ekki jafngömul hljómsveitinni en ég get ímyndað mér að þarna séu lög sem eru 20 ára gömul – sem þykir nokkuð virðulegur aldur fyrir lag. Fyrsti rótari Stuðmanna Valgeir, sem á flest lögin á nýju plötunni Tapað, fundið, segir að hugmyndin að útgáfunni hafi komið upp fyrir að verða tveimur árum þegar hinir upprunalegu Stuðmenn voru fengnir til að spila í fimmtugs- afmæli hjá Erni Andréssyni. „Örn er aldavinur okkar og státar af þeirri nafngift að vera fyrsti rótari Stuðmanna en þeirri stöðu gegndi hann þegar sveitin kom fyrst fram á árshátíð Menntaskólans í Hamra- hlíð, fyrir 35 árum. Við komum sam- an í afmæli Arnar í svolitlu gamni og bríaríi en eftir flutninginn þótti þetta vera líklegt til að taka á sig áhugaverða mynd – fyrir fleiri en þá sem þarna voru staddir í afmælinu. Stuttu síðar fórum við að huga að efni og Gylfi og Ragnar lögðust á sínar árar, ég á mínar og svo lagði Jakob til eitt lag af mikilli hógværð því hann er mjög öflugur lagasmið- ur.“ Voru lögin þá þegar til eða voru þau samin sérstaklega fyrir plöt- una? „Bæði og … ég átti sum af þess- um lögum til en önnur samdi ég sér- staklega með þetta verkefni í huga. Það er alltaf voðalega hvetjandi að hafa ástæðu til að semja efni. Þá er maður yfirleitt duglegri en ella.“ Tekið upp í LA Liggurðu á miklu efni? „Já, ég á heilmikið efni sem ég hyggst fara að vinna úr og koma í farveg – eða farvegi réttara sagt. Ég hef aldrei stundað það mikið að semja fyrir aðra en ég get hugsað mér að gera meira af því. Það er oft leitað til mín og ég bregst sjaldnar við en ég er beðinn.“ Tapað fundið er hljóðrituð í Track Records Studio í Los Angeles og þar komu nokkrir af reyndustu hljóðfæraleikurum rokksögunnar við sögu. „Við veltum ýmsum hljóðverum og tónlistarmönnum fyrir okkur en þarna er allt það besta til staðar. Við fengum til að mynda einn fræg- asta trommara rokksins, Jim Kelt- ner og bassadrottninguna á áttræð- isaldri, Carol Kaye til að leika inn á plötuna og svo lagði Keltner til vin sinn sem er einn öflugasti „session- “hljóðfæraleikari Los Angeles og hefur unnið með öllum meðlimum Stones og fleirum og hann hentaði þessu verkefni aldeilis frábærlega. Leika 17. júní Það má heyra mikinn unglinga- anda svífa yfir vötnum á plötunni, bæði í laga- og textasmíðum. Settuð þið ykkur í sérstaka stellingar? „Já, já. Við gerðum það. Við geng- um í þennan aldingarð sem við lifð- um og hrærðumst í kringum 1970 þegar hljómsveitin varð til og við tókum mið af því sem við vorum að hlusta á. Bítlarnir voru við það að hætta þarna og síðan hafði hippa- bylgjan mikil áhrif á mann. Þannig að það er eilítið sólskin og eilítill poppandi í þessum lögum sem við höfum á langri leið lært að umgang- ast af virðingu.“ Frummenn áttu sögulega end- urkomu í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum um verslunarmanna- helgina síðustu og vöktu mikla kátínu tónleikagesta. Á morgun koma þeir saman aftur og leika fyrir þjóðhátíðargesti í miðborginni. „Við ætlum að taka nokkur lög 17. júní og svo sjáum við til. Ef tími og kraftar leyfa munum við hugsanlega gera eitthvað meira, það er alltaf skemmtilegast að leika fyrir framan lifandi fólk. Svo veltur það nú svolít- ið á því hvaða viðtökur platan fær, hvort við leggjum í aðra lögn. Þetta var mjög fljótt og skemmtilegt sam- starf og ævintýri líkast frá a til ö.“ Í aldin- garði æsk- unnar Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Frummenn komu fram ásamt Stuðmönnum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um síðustu verslunarmannahelgi. Tónlist | Hinir upprunalegu Stuðmenn senda frá sér plötuna Tapað, fundið Hljómsveitin Stuðmenn var stofnuð í kringum árshátíð MH fyrir um 35 árum. Á myndinni sést í hvað stefndi. Sími - 564 0000Sími - 462 3500 eee S.V. MBL. Mögnuð endurgerð af hinni klassísku The Omen ! RV kl. 6, 8 og 10 The Omen kl. 10 B.i. 16 ára 16 Blocks kl. 8 B.i. 14 ára X-MEN 3 kl. 6 B.i. 12 ára RV kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 The Omen kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára X-Men 3 kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Da Vinci Code kl. 5, 8, og 11 B.i. 14 ára Da Vinci Code LÚXUS kl. 5, 8, og 11 Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.40 Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 3.40 ROBIN WILLIAMS 1 fjölskylda. - 8 hjól. Engar bremsur. Komdu í fyndnasta ferðalag sumarsins. Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum! Á 6. degi 6. mánaðar árið 2006 mun dagur hans koma. Þorir þú í bíó? Yfir 51.000 gestir!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.