Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Miðborgin | Pálmasalurinn á Hótel Borg hefur fengið allnokkra andlitslyftingu að und- anförnu, en nú í vikunni var þar opnaður nýr veitingastaður sem nefnist Silfur og rekinn er af fyrirtækinu 101 Heild sem einnig rekur m.a. Sjávarkjallarann, Thorvaldsen og Sólon. Þar sem Hótel Borg er friðað hús þurfti við hönnun staðarins að huga að því að vernda hluti sem þykja merkilegir frá byggingar- og menning- arsögulegu sjónarmiði. Andrés Þór Björnsson innanhússarkitekt fékk það vandasama hlutverk að endurhanna salinn og færa til nútímahorfs. Andrés lauk mastersnámi í innanhússarkitektúr árið 2004, frá ISAD innanhússarkitektaskólanum í Míl- anó, og rekur í dag fyrirtækið AE Design ásamt konu sinni, Evu Ingimarsdóttur. Þegar blaðamaður leit inn á Hótel Borg ásamt ljósmyndara í gær var ljóst að salurinn hefur tekið miklum breytingum, þó vissulega megi sjá ákveðnar tengingar við gamla tím- ann. Aðspurður segir Andrés það einmitt hafa verið ákveðna hugsun að blanda gamla stílnum og útlitinu saman við nýmóðins lausnir, þannig séu nýir hvítir stólar í sama stíl og gömlu stól- arnir og í loftinu hanga ljósakrónur í gömlum stíl með nýtísku skermum. Meðal þess sem ekki mátti breyta voru loft- og súlulistar salarins, sem upphaflega voru gylltir en hafa nú fengið silfurlitinn sem staðurinn er kenndur við auk þess sem loftið hefur haldið upprunalegum stíl fyrir utan að hafa verið málað. Einnig mátti ekki fjarlægja speglaveggina í rýminu svo þeir voru byggð- ir inn á bak við falskan gifsvegg sem síðan hefur verið bólstaður með hvítu leðri og silf- urhnöppum. Auk þessa var skipt um gólfefni og í stað korksins, sem áður var á gólfinu, settir gegnheilir eikartíglar í stíl við tíglana sem einkenna loftið; Jóhannesarstofa, sem þjónar sem koníaksstofa, hefur verið vegg- fóðruð með silfruðu blómaveggfóðri og bar- inn var færður og hann ásamt súlum salarins og nýjum innbyggðum örnum klæddur með íslensku hraungrýti. Veggirnir voru málaðir dökkgráir og úr loftinu hanga stálkeðjur sem brjóta upp rýmið í annars vegar veit- ingarými og hins vegar barsvæði og setu- stofu. Ætti að höfða til allra Spurður hvort eitthvað hafi komið honum á óvart í því hvað mætti gera í friðuðu húsnæði nefnir Andrés að honum hafi komið þægilega á óvart að leyft hafi verið að saga niður úr glugg- unum þremur sem snúa að Dómkirkjunni, sem geri það kleift að opna út á góðviðrisdögum. Aðspurður segist Andrés alveg búast við blendnum viðbrögðum almennings við breyt- ingunum á Pálmasalnum, að minnsta kosti til að byrja, enda þyki mörgum vænt um Borgina og vilji helst halda hlutum þar óbreyttum. Seg- ist hann hafa haft að markmiði við hönnun sína að staðurinn gæti höfðað til allra. „Við ákváðum þannig að taka smávegis áhættu og poppa hann vel upp og við erum sannfærðir um að þessi staður muni verða aðalstaðurinn í dag, bæði með tilliti til matargerðar og útlits,“ segir Andrés. Nýmóðins lausnir í bland við gamlan stíl Morgunblaðið/Kristinn Andrés Þór Björnsson innanhússarkitekt fékk það vandasama hlutverk að færa Pálmasalinn til nútímahorfs. Auk silfurlitarins eru svartur, hvítur og grár áberandi í hinu nýja útliti. Jóhannesarstofan sem þjónar sem koníaks- stofa hefur verið veggfóðruð með silfruðu blómaveggfóðri. Inn um bogadregnu dyrnar sést inn í Pálmasalinn. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞAÐ eru fallegir litir í sýning- unni; það má segja að þetta sé sumarsýning. Enda hefur hitastig- ið á Akureyri hækkað um 10 gráð- ur síðan ég kom!“ segir Sigurður Árni Sigurðsson sem í dag opnar myndlistarsýningu í DaLí, nýju galleríi neðarlega í Brekkugöt- unni. Sigurður er Akureyringur, burt- fluttur, og hefur ekki sýnt í fæð- ingarbænum síðan 2001 þegar Ketilhúsið var opnað. „Ég er í því að opna sýningarrými hér í bæn- um! Mér fannst það kærkomið tækifæri þegar þær buðu mér að sýna hérna,“ segir hann og á við eigendur þessa nýja gallerís; DaLíurnar – en þær eru Dagrún Matthíasdóttir og Sigurlín M. Grétarsdóttir, nýútskrifaðir mynd- listarmenn sem keyptu húsnæðið við Brekkugötu og ætla að inn- rétta vinnustofur á sama stað. „Ástandið er mjög gott á Ak- ureyri, hér eru mörg sýning- arrými, hvert með sínar áherslur, þannig að fjölbreytnin er mikil. Staðsetningin er líka frábær; bæj- aryfirvöld eru að reyna að teygja miðbæinn alveg út að Glerártorgi en galleríistarnir eru búnir að þessu; það er skemmtileg samfella frá Listasafninu í Gilinu alveg út að Gallerý Plús nyrst í Brekkugöt- unni.“ Það sem Sigurður býður gestum upp á í DaLí er sería af vatns- litamyndum máluðum á þessu ári og því síðasta og olíumálverk frá sama tíma. Olíumálverkin eru á sömu nót- um og undanfarin ár; áfram leikur með málverkið og rými þess, eins og Sigurður orðar það. Vatnslitamyndirnar eru úr stórri seríu. Sigurður sýndi hluta hennar í París fyrr á árinu og myndir úr seríunni eru nú á sýn- ingu í Hong Kong. Sýningin verður opnuð kl. 17 í dag. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Litadýrð Sigurður Árni Sigurðsson undirbýr sýninguna í gær. Hitastigið hefur hækkað síðan ég kom! BJÖRN Gíslason og Ægir Örn Leifsson hlutu fyrstu verðlaun í ný- sköpunarsamkeppni sem Upphaf ehf. á Akureyri gekkst fyrir. Verð- launin hlutu þeir fyrir hugmyndina Myndabankann en verkefnið snýr að miðlægri vistun ljósmynda fyrir einstaklinga og fyrirtæki auk ann- arrar virðisaukandi þjónustu. Upphaf kynnti samkeppnina í apríl síðastliðnum og rann um- sóknafrestur út þann 10. maí. Alls bárust 34 umsóknir í keppnina og valdi dómnefnd þrjár af þeim í verðlaunasæti. Björn og Ægir Örn fengu 300 þúsund krónur í verðlaun. Önnur verðlaun, 200 þúsund krónur, hlaut Steinn Sigurðsson fyrir hugmyndina „Xtremer jeppa- sett fyrir kit áhugafólk“ og þriðju verðlaun, 100 þús krónur, hlaut Hugrún Ívarsdóttir fyrir hugmynd- ina „Mynstrað munngæti“. Upphaf er fjárfestingarfélag í eigu KEA sem sinnir framtaks- og nýsköpunarverkefnum og tekur meðal annars þátt í þróun og út- færslu viðskiptahugmynda, frum- framleiðslu og fyrstu skrefum markaðssetningar. Markmið félagsins með þessari samkeppni var að hvetja frum- kvöðla til að koma hugmyndum sín- um á framfæri og kanna vænlega fjárfestingarkosti á sviði nýsköp- unar. Vinningshöfum í nýsköp- unarsamkeppni Upphafs er í fram- haldinu frjálst að vinna með hugmyndir sínar á hvaða vettvangi sem þeir kjósa. Verðlaunahafar Björn Gíslason, Steinn Sigurðsson og Hugrún Ása Hall- dórsdóttir sem tók við 3. verðlaununum fyrir hönd Hugrúnar Ívarsdóttur og Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Upphafs. Verðlaun fyrir hugmynd að miðlægri vistun ljósmynda Fjölmennar samkomur í Höllinni HIN árlega MA-hátíð verður haldin í Íþróttahöllinni á Ak- ureyri í kvöld og verður mikið um dýrðir að vanda þegar mörg hundruð manns úr afmæl- isárgöngum frá MA koma sam- an og gera sér glaðan dag. Um framkvæmd hátíðarinnar sjá 25 ára stúdentar, stúdentar frá MA árið 1981. Boðið verður upp á hátíð- arkvöldverð og fjölbreytta skemmtidagskrá, sem afmæl- isárgangar leggja til, og síðan verður dansleikur þar sem hljómsveitirnar Í svörtum föt- um og Sælusveitin spila fyrir dansi. MA-stúdentar koma um lang- an veg til þess að hitta skóla- systkinin í aðdraganda út- skriftar nýstúdenta 17. júní. Að venju munu eins árs stúdentar hittast í Íþróttahöllinni og taka niður hvíta kollinn á miðnætti. Sömuleiðis er vitað um að 5 ára stúdentar ætli að hittast og gera sér glaðan dag, einnig 10 ára, 25 ára, 30 ára, 40 ára, 50 ára og 60 ára stúdentar. Aðgöngumiðar verða seldir á hátíðina í Íþróttahöllinni í dag kl. 13–17. MA verður svo slitið með at- höfn í Höllinni kl. 10 árdegis 17. júní. Rúnar Skákmeistari Norðlendinga RÚNAR Sigurpálsson varð á dögunum Skákmeistari Norðlendinga 2006 en mótið var haldið á Akureyri. Röð efstu manna í opna flokknum varð: 1. Rúnar Sigurpálsson 6 v. af 7 mögu- legum, Stefán Bergsson 5 v., Sveinbjörn Sigurðsson 4,5 v. Rúnar varð líka hrað- skákmeistari Norðlendinga: 1. Rúnar Sig- urpálsson 13 v. af 14, Stefán Bergsson 10 og Ágúst Bragi Björnsson 10. Söguganga | Gengið verður um verk- smiðjuhverfið á Gleráreyrum sunnudaginn 18. júní. Lagt verður af stað frá bílastæðinu sunnan við Glerártorg. Þorsteinn E. Arn- órsson verður leiðsögumaður sem fyrr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.