Morgunblaðið - 23.12.2006, Qupperneq 26
lifun
26 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Æ
tli ég sé ekki
maxímalisti þeg-
ar kemur að
heimilinu – og
þegar líða tekur
að jólum hef ég þurft að setjast of-
an á sjálfa mig til þess að ná tök-
um á tjúlluðu jólaglingurskerling-
unni sem sest að í mér á
haustdögum,“ segir Kristín Helga
Gunnarsdóttir rithöfundur og hlát-
ur hennar er svo hlýr að hljóm-
urinn fyllir herbergi heimilisins
lengi á eftir. „Og ef við ætlum að
tala um húsbúnað í miðjum míni-
malismanum væri ekki úr vegi að
ræða um bókaskápa, bókahillur og
bókaherbergi sem tíðkuðust áður
fyrr í híbýlum manna en ég er ansi
hrædd um að séu ekki jafn algeng
fyrirbæri á heimilum naumhyggj-
unnar í dag. Þá er nefnilega hætt
við að mínimalisminn sé orðinn
andlegur,“ heldur hún áfram og
það er ljóst að bækur eru hennar
ær og kýr. „Bóklestur barna er
bundinn bóklestri fullorðinna. Ef
bækur eru ekki hafðar fyrir börn-
um og þau detta ekki um þær,
ganga fram hjá þeim og hafa þær í
andlitinu alla daga sem hluta af
heimilislífinu er ekki jafn líklegt
að þau hneigist til bóka. Bækur
eru svo aftur grunnur að öllum
þroska og velferð barns til fram-
tíðar svo bókaskápur eða bókahilla
á heimili er afskaplega mikið al-
vörumál,“ segir hún auðvitað al-
varleg á svip. „Ég sé samt afar
sjaldan bækur í húsbúnaðarþátt-
um sjónvarpa eða blaða. Þar má í
mesta lagi berja augum þrjú tíma-
rit í úthugsuðum en sem virðist
kæruleysislegum stafla á hvítu
borði, við hliðina glærum vasa,
sem fylltur hefur verið sítrónum.
Þetta er nú eitt af því sem angrar
mig við mínimalismann. Þess
vegna hef ég komist að þeirri nið-
urstöðu að ég sé maxímalisti,“ seg-
ir Kristín Helga – og hlær.
Hún hefur líka maxímalískt
ímyndunarafl og fer ekkert eftir
reglum. Þvottaherbergi sem var
inn af eldhúsinu breytti rithöfund-
urinn í eldhúskrók og vinnuað-
stöðu þegar hann fyrir nokkrum
árum vantaði sitt eigið sköp-
unarvé. „Ég er hér í kallfæri við
kaffikönnuna,“ segir hann kíminn
og hundarnir Emilía Fluga og
Fína Lína sperra eyrun. Þær eiga
sinn bólstað í eldhúsinu og hlusta
á tifið þegar sögur af sjálfstæðum
stelpum eins og Binnu og Fíusól
og þeirra fjölskyldulífi gusast úr
höfði húsfreyjunnar og inn í minni
tölvunnar. „Fullorðnir geta lært
mikið af börnum,“ minnir Kristín
Helga á. „Við erum alltof upptek-
inn af hvað börn geti lært mikið af
okkur. Fullorðnir ættu að ræða
meira við börn, mér leiðist þessi
sífellda aðgreining. Þess vegna
kalla ég bækurnar mínar fjöl-
skyldubækur.“
Hún er safnari í eðli sínu en líka
listræn og handlagin. Grímur frá
framandi löndum prýða eldhús-
krókinn, hún gerði veggmósaík við
arininn úr steinum úr uppáhalds-
veiðistöðunum sínum í Norðurá og
safnar nú gömlum barnabókum í
eikarbókahillurnar sem eiginmað-
urinn, Helgi Geirharðsson verk-
fræðingur, hannaði svo listavel í
borðstofuna. „Þær eru alveg ein-
stakar, ekki einu sinni naglfastar.
Ég skil ekkert í því hvernig hann
fór að því.“
Mósaíkin er þó það sem á hug
hennar allan fyrir utan skriftirnar.
„Við vorum nokkrar fyrrverandi
fréttakonur á Stöð 2 sem fyrir
nokkrum árum fórum á mósaík-
námskeið og höfum verið að dunda
okkur í þessu síðustu árin, mis-
mikið þó. Ég missti mig al-
gjörlega,“ segir Kristín Helga og
hlær sínum dillandi hlátri. „Ég er
búin að búa til stórt myndverk í
stofunni, klæða gluggakistuna þar
með mósaík, spegil og vegg í litla
baðherberginu og svo auðvitað ar-
ininn. Þetta er rosalega skemmti-
legt.“
En hvaða stefnu skyldi hún
fylgja við skreytingu jólatrésins?
„Hún er algjörlega alþjóðleg. Efst
á trénu eru englar, hjörtu og bjöll-
ur því ástin, englarnir og bjöllu-
hljómurinn eiga að rísa til himins.“
Það er svo sannarlega skemmti-
lega maxímal.
uhj@mbl.is
Skapandi
safnari með
mósaíkdellu
Kristín Helga Gunnarsdóttir vill tala um skortinn á
bókaskápum, bókahillum og bókaherbergjum í naum-
hyggju nútímatímaheimila. Rithöfundinum varð að
ósk sinni í innliti Unnar H. Jóhannsdóttur.
Í eldhúskróknum Það eru áreiðanlega fáir rithöfundar sem hafa vinnuað-
stöðu í eldhúskrók sem áður var þvottaherbergi.
Safnarinn Húsfreyjan hefur safnað ýmsu í gegnum tíðina en gamlar
barnabækur eru nú efstar á óskalistanum. Þessi er frá árinu 1963.
Áðdáandi Tíkin Emilía Fluga leggur við
eyra í eldhúskróknum ef á þarf að halda.