Morgunblaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 33
AÐALSTÖÐVAR
Almannavarna Íslands
verði á Keflavík-
urflugvelli. Undir
stjórn Almannavarna
komi öryggismál,
Landhelgisgæslan og
Ratsjárstofnun, sem
verði einnig með sínar
bækistöðvar á Kefla-
víkurflugvelli. Al-
mannavarnir séu sjálf-
stæð stofnun, sem fær
sitt lögboðna umboð
og valdsvið frá löggjafarvaldinu eins
og Ríkisendurskoðun. Öll öryggis-
mál komi undir valdsvið Almanna-
varna, er tekur til yfirstjórnunar s.s.
jarðskjálfta, eldgosa, flóða og ann-
arra náttúruhamfara. Hinar vel
þjálfuðu sveitir hinna ýmsu hjálp-
arstofnana myndu þar gegna veiga-
miklu hlutverki og verða hluti af
launuðu starfsliði Almannavarna.
Þá hafi Almannavarnir yfir að
ráða fjölmennum sérhæfðum sveit-
um öryggisvarða, sem hægt er að
beita gegn hvers konar hryðjuverk-
um og hafa hemil á ofbeldis-
aðgerðum mótmælenda, m.a. vegna
alþjóðlegra ráðstefnuhalda. Allar
slíkar aðgerðir skulu framkvæmdar
í samráði við yfirstjórn löggæsl-
unnar.
Starfsmannafjöldi einstakra
starfsdeilda stofnunarinnar yrði
ákvarðaður samkvæmt tilskipun og
mati yfirstjórnar Almannavarna.
Verknáms og þjálfunar örygg-
issveita yrði leitað hjá þeim ríkjum
sem best falla að okkar umhverfi og
aðstæðum.
Valdajafnræði
Þessar tillögur bein-
ast líka að því að skapa
jafnvægi um völd þess-
ara málaflokka, sem
eru nú í höndum Rík-
islögreglustjóra og
dómsmálaráðherra.
Það er hluti af lýðræð-
inu að eðlileg valddreif-
ing ríki um stjórnsýslu
löggæslunnar í landinu.
Efling löggæslunnar
varðandi fíkniefna- og
umferðarmál er löngu tímabær, en
fjölgun lögreglumanna til að gegna
öryggismálum undir stjórn Ríkislög-
reglustjóra er ekki rétta leiðin.
Sjálfstæð stofnun Almannavarna
sem fær lögboðið vald sitt beint frá
Alþingi er lýðræðinu samboðin varð-
andi varnarmál þjóðarinnar.
Tillögur um breytingar á
valdsviði Almannavarna
Kristján Pétursson varpar fram
hugmyndum um breytingar á
starfssviði Almannavarna
Kristján Pétursson
» Sjálfstæð stofnun Almannavarna, sem
fær lögboðið vald sitt
beint frá Alþingi, er
lýðræðinu samboðin
varðandi varnarmál
þjóðarinnar.
Höfundur er fyrrverandi
deildarstjóri.
Í LESBÓK Morgunblaðsins
hinn 9. des. birtist grein eftir Ólaf
Hjálmarsson verkfræðing um Tón-
listarhús og ráðstefnumiðstöð
(TR). Egill Ólafsson, formaður
Samtaka um tónlistarhús, svaraði
á sama vettvangi og birtist svar
hans viku seinna. Hér skal aðeins
nokkrum atriðum
bætt við og þá helst
varðandi það sem
Austurhöfn-TR getur
upplýst.
Stærð
tónlistarsalar
Hönnun aðaltónlist-
arsalarins í TR er
miðuð við 1.800
áheyrendur, en þar af
eru 200 fyrir aftan
svið í sætum sem
einnig má nota fyrir
kóra. Um það bil
helmingur áheyrenda
fær sæti á þrennum
svölum þannig að
tæpur helmingur sæta
er á svölum en um
það bil 800 á neðsta
gólfi. Fjarlægð frá
stjórnanda hljóm-
sveitar að aftasta
vegg verður þannig
minni en í Há-
skólabíói, sem tekur
um 1.000 manns í
sæti.
Ólafur telur að hljómgæði sin-
fónískra tónlistarsala sé best ef
stærð þeirra er miðuð við 900–
1.200 sæti. Artec, hinn bandaríski
ráðgjafi Austurhafnar varðandi
hljómburð, telur hins vegar að
auðveldast sé að ná mjög góðum
hljómburði fyrir sinfóníska tónlist í
1.600–2.000 manna sal. Er þá mið-
að við sali sem eru svipaðir að lög-
un eins og áformað er í TR.
Aðrir hljómburðarsérfræðingar
sem rætt hefur verið við hafa nefnt
svipaðar tölur, t.d. 1.400–2.000.
Þeim ber saman um að þegar
stærðin sé miðuð við meira en
2.200–2.400 áheyrendur sé orðið
erfiðara að ná fram fyrirtaks
hljómburði. Til gamans má geta
þess að margir miða við þá við-
miðun að rúmtak salar skuli vera
u.þ.b. 10 m3 á áheyranda. Í til-
lögum Artecs er sú stærð 11,5–12
m3 á sæti.
Í hönnun allra salanna í TR er
lögð mikil áhersla á hljóðeinangrun
og hljóðdempun þannig að ekki
heyrist í loftræstikerfi, rennandi
vatni í pípum, rafmagnsspennum
og öðru þvílíku, auk þess sem tvö-
faldar hurðir eru við alla innganga.
Þessar kröfur eru alltaf strangar,
en strangastar fyrir aðalsalinn.
Þegar vel tekst til verður nálægð
hljóðsins í svona sal ótrúlega mikil
og heyrist hljómlist afar vel um
allan salinn.
Ómrými
Ólafur virðist telja að ómrýmin
séu sérstaklega gerð vegna raf-
magnaðrar tónlistar. Þannig hefur
það ekki verið kynnt fyrir Austur-
höfn, enda þarfir sígildrar tónlistar
einatt efst í huga Artec og þeir sal-
ir, sem Artec hefur hannað með
ómrýmum og þekktastir eru, eru
mest nýttir fyrir sígilda tónlist.
Má þar nefna KKL í Lucern,
Symphony Hall ( CBSO) í Birm-
ingham og meyerson Symphony
Centre í Dallas, Texas. Nýlega
bættist einn slíkur við í Costa
Mesa í Californíu. Hann kallast
Renee and Henry Segerstrom
Concert Hall í Orange County
Performing Arts Centre og hefur
fengið mjög góða dóma.
Ómrýmin eru
möguleiki til að auka
rýmd salarins um allt
að 35–40% og eru á
öllum hliðarveggjum á
bak við svalirnar. Þau
lokast með þungum
hurðum og þegar þær
eru allar lokaðar er
salurinn eins og hann
væri án ómrýma
hljómburðarlega séð.
Því hljómmeiri sem
hin flutta hljómlist er
þeim mun meira eru
ómrýmin opnuð að
öðru jöfnu. Sé flutt
mikið mögnuð tónlist
er líklegt að valið sé
að opna rýmin og
dempa óminn með
teppum sem renna má
niður bæði fyrir fram-
an ómrýmin og inni í
þeim sjálfum. Það er
því vafalaust rétt hjá
Ólafi að í Lathi séu
rýmin opnuð þegar
mögnuð rokktónlist er
flutt, en það er engan
veginn eina notkun þeirra því
notkun þeirra er fjölbreytileg.
Kynning og umræða um TRH
Kynning og umræða er alltaf af
hinu góða en nú er verið að hanna
TR af fullum krafti og fram-
kvæmdir hafnar. Allar umræður
um grundvallarforsendur eru því
að baki. Austurhöfn hefur ekki
verið falið að leysa fullbúna fram-
tíðaraðstöðu til óperuflutnings og
hefur þar af leiðandi ekki lagt
mikið fram í umræðu um það mál.
Í Tónlistarhúsinu á hins vegar að
vera aðstaða til konsertflutnings
óperutónlistar og óperuflutnings
með takmörkuðum sviðsbúnaði.
Hefur verið full sátt við stjórn Ís-
lensku óperunnar um hvernig sú
aðstaða er út frá þeim forsendum
sem gefnar eru. Hljómsveit-
argryfja verður af fullri stærð,
snúningssvið á sviði og hljóm-
burður ágætur, en engin hliðarsvið
eða flugturn eins og í leik- og óp-
eruhúsum.
Viðsemjandi Austurhafnar,
einkaframkvæmdaraðilinn Portus,
mun með dótturfélögum sínum
eiga og reka húsið. Þar á bæ verð-
ur hugsað fyrir kynningarmálum
og markaðssetningu. Portus hefur
lagt verulega vinnu í að yfirfara
nýtingarmöguleika og búnað húss-
ins með metnaðarfullum hætti.
Ekkert bendir til að meiri áhersla
verði lögð á ráðstefnuhald en upp-
haflega stóð til. Aðstaðan í húsinu
verður góð og ættu allir að leggj-
ast á eitt um að nýta hana sem
allra best og með margvíslegum
hætti.
Hljómgæði
Tónlistar- og
ráðstefnuhúss
Stefán Hermannsson fjallar um
Tónlistar- og ráðstefnuhús og
svarar umfjöllun í Lesbók
» Aðstaðan íhúsinu verð-
ur góð og ættu
allir að leggjast
á eitt um að
nýta hana sem
allra best og
með marg-
víslegum hætti.
Stefán Hermannsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Austurhafnar-TR.
ÁSKRIFTARSÍMI 569 1100
Afskræmd
„Sendi skjálftabylgjur
um þjóðfélagið“
- Guardian
„Rauf ævafornan þagnarmúr
... í Sádi-Arabíu.“
- Sunday Times
MÁL RANIUAL-BAZ HAFÐI
VÍÐTÆK ÁHRIF Í HEIMA-
LANDI HENNAR:
Jólatilboð!
DUX 1001 með Duxiesta yfirdýnu
og fótum 90x200cm
Fullt verð kr. 174.500 · Tilboð kr 150.000
Duxiana Royal Gæsadúnssæng 140x200cm kr 34.980
Duxiana Royal koddi 50x70cm að vermæti kr 11.800
fylgir frítt með hverri sæng.
Borðlampi kr 59.000
Gólflampi kr 79.000
Hágæða sængurfatnaður frá GANT
Egypsk bómull · 15%afsl
Ármúla 10 • Sími: 5689950
Kodd
i
fylgir
frítt
með