Morgunblaðið - 23.12.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 39
MINNINGAR
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
HRÖNN TORFADÓTTIR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtu-
daginn 21. desember.
Útför auglýst síðar.
Óskar Ingibersson
Kristín Óskarsdóttir, Mark Mcguinness,
Karl Óskar Óskarsson, Valborg Bjarnadóttir,
Jóhanna Elín Óskarsdóttir,
Ingiber Óskarsson, Natalya Gryshanina,
Ásdís María Óskarsdóttir, Þorgrímur St Árnason,
Hafþór Óskarsson,
Albert Óskarsson, Ragnheiður G. Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BJARNI ÓLAFSSON,
Herjólfsgötu 40,
Hafnarfirði,
sem andaðist á St. Jósepsspítala miðvikudaginn
20. desember, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarð-
arkirkju föstudaginn 29. desember kl. 15.00.
Fríða Ása Guðmundsdóttir,
Birna Bjarnadóttir,
Guðmundur Rafn Bjarnason, Margrét Gunnlaugsdóttir,
Ólafur Bjarnason, Golnaz Naimy,
Guðrún Erla Bjarnadóttir, Þórarinn Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SAMÚEL ÓLAFSSON
vélstjóri,
Tungu, Hvalfjarðarsveit,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 20. des-
ember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 29. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Sjúkrahús Akraness.
Fjóla Sigurðardóttir,
Linda Guðbjörg Samúelsdóttir, Guðni Þórðarson,
Ólöf Húnfjörð Samúelsdóttir, Árni Aðalsteinsson
og afabörn.
Hér sit ég og er búin
að kveikja á kerta-
stjakanum sem þið
Gestur færðuð mér;
einn þessara fallegu muna sem þú
gerðir. Það lék allt í höndunum á þér,
ég hef kveikt á þessum stjaka á
hverjum degi síðan þú fórst á spít-
alann og beðið fyrir ykkur. Við töl-
uðum um að það eina sem gæti hjálp-
að á svona stundu væri vonin.
Það eina sem við vitum um lífið er
að við fæðumst og deyjum. Enn einu
sinni er sláttumaðurinn (maðurinn
með ljáinn) á ferð í okkar litla bæ. Þá
hugsar maður hvað við höfum gert til
að verðskulda þetta en svona er lífið
og við fáum engu breytt.
Okkur óraði ekki fyrir því, Ísafold
mín, þegar ég kom til þín eins og oft
áður um verslunarmannahelgina að
þetta væri í síðasta sinn sem við
drykkjum saman kaffisopa heima
hjá þér. Þú fórst í bæinn sama dag
og komst ekki aftur.
Þú barðist eins og hetja til hinstu
stundar þó þú værir helsjúk. Það var
ekki þinn stíll að gefast upp og alltaf
varstu jákvæð og brosandi og við
gerðum góðlátlegt grín að þessu öllu
saman. Við héldum enda í vonina um
að það væri hægt að lækna þig, þú
kæmist heim og við gætum tyllt okk-
ur út á pall á fallegum sumardegi og
fengið okkur rauðvínstár. Okkur
fannst það aldrei skipta máli hvort
við fengjum okkur það fyrir eða eftir
hádegi. Nú sit ég hér og skrifa þessi
fátæklegu orð og ylja mér við góðar
minningar um okkar stundir saman.
Ísafold Þorsteinsdóttir
✝ Ísafold Þor-steinsdóttir
fæddist á Akureyri
15. maí 1944. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 6. desem-
ber síðastliðinn og
var jarðsungin í
kyrrþey að eigin
ósk 16. desember.
Síðustu vikurnar
sem þú varst á líknar-
deild var hlúð að þér
eins og kostur var.
Starfsfólkið þar er
yndislegt fólk, eins og
ég hef alltaf sagt, engl-
ar í mannsmynd.
Fólkið þitt var hjá
þér þegar þú kvaddir
þennan heim, í byrjun
aðventu, aðfaranótt 6.
desember. Ég hef velt
þessari tímasetningu
fyrir mér, þegar þú
sofnaðir í hinsta sinn,
kannski hefur þú einmitt valið hana
því þú varst svo mikið aðventu- og
jólabarn, hver veit? Gestur þinn stóð
eins og klettur við hlið þér, hann og
börnin ykkar Kristín og Steini hafa
misst mikið. Litlu ömmustelpurnar
þínar nafna þín Kate Ísafold og
Holly Lilja eiga ekki eftir að sjá
ömmu sína aftur en þær hafa afa og
Steina frænda sem eiga eftir að hlúa
að þeim eins og þeir hafa alltaf gert.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höfundur ók.)
Elsku Gestur, Steini, Kristín,
Paul, Kate Ísafold og Holly Lilja, ég
hugsa til ykkar á þessum erfiða tíma
sem nú fer í hönd. Megi Guð og góðir
englar vaka yfir ykkur og gefa ykkur
styrk til að takast á við sorgina.
Ykkar vinkona
Rán.
Elsku Ísafold, okkur tekur það
sárt að þurfa að kveðja þig svo fljótt.
Okkur er mjög minnisstætt hvað þú
varst alltaf góð við okkur. Það var
ekki langt að hlaupa yfir til þín þegar
við vorum hjá ömmu og afa á Hjalla-
brautinni og áttir þú alltaf eitthvað
gott í skál og besta djús í heimi, það
var alveg sama þó að mamma keypti
sama djús og þú, þá var þitt alltaf
betra.
Okkur systkinunum þótti alltaf
voða gaman að koma til þín og stúss-
ast eitthvað með þér, baka með þér
fyrir jólin, taka til í kompunni í kjall-
aranum og fleira... Þú föndraðir mik-
ið, saumaðir og leiraðir og eigum við
nokkur kort sem þú saumaðir í. Atli
fór með þér fyrir seinustu jól á Egils-
braut 9 í föndur og skemmtuð þið
ykkur mjög vel.
8. ágúst fæddist Sigurlaugu lítil
prinsessa og sama dag fékk hún þær
fréttir að þú hefðir verið lögð inn á
spítala, Sigurlaug kom auðvitað yfir
til þín og þú varst svo ánægð að sjá
hana. Við komum reglulega og þú
fékkst að sjá litlu dömuna stækka og
varst voða montin að vera orðin
langafasystir.
Á aðfangadagskvöld hittumst við
alltaf heima hjá ömmu og afa ef þið
Gestur og Steini voruð ekki hjá
Kristínu og fjölskyldu í Englandi og
þá var mikið spjallað og hlegið. Við
munum alltaf sakna þess að hitta þig
ekki og monta okkur af jólagjöfunum
okkar.
Fyrir ein jólin gafstu okkur systk-
inunum sinnhvorn jólasvein sem er
hægt að beygla í allar áttir, þennan
jólasvein pössum við vel upp á.
Elsku Ísafold okkar, við munum
alltaf sakna þín, við vitum að guð
tekur vel á móti þér og þú hefur það
gott með Eddu systur þinni, Sigur-
laugu langömmu og Þorsteini lang-
afa.
Saknaðarkveðja frá okkur systk-
inunum
Sigurlaug, Atli og Áslaug.
Við kveðjum hér ömm-
una okkar,
því amma er komin í frí.
Var flottari’ en færustu kokkar
og fínustu konditorí.
Við úrval af kleinum og kökum
kitlandi munnvatnið rann,
angan af ilmandi bökum
hver einasti bóndi það fann.
Og þó svo að pottormaputtar
potuðu brauð hennar í,
hún vissi að glaðværir guttar
gátu’ ekki spornað við því.
Sigga’ amma safnaði blómum,
safnið helst minnti á skóg.
Þú komst ekki að kofanum tómum,
þar kunni hún meira en nóg.
Blítt hún við blómin sín ræddi
og brosti sem útsprungin rós.
Brákaðar greinarnar græddi,
hún gaf öllu hlýju og ljós.
En allt sama lögmáli lýtur,
Sigríður Kristinsdóttir
✝ Sigríður Krist-insdóttir fædd-
ist á Öngulsstöðum í
Eyjafjarðarsveit
hinn 9. maí 1920.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu Seli
föstudaginn 8. des-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Munka-
þverárkirkju 15.
desember.
hvað lifir að endingu
deyr.
Nú amma ei borðdúka
brýtur
né bakar hún kökurnar
meir
Hér slökkti á lífs-
kveiknum kulið
sem koldimman líður um
geim.
En það sem í þoku er
hulið
þar liggur vegurinn
heim.
(Höf. ók.)
Kveðja,
Sindri, Máni og Fannar.
Í þessari stuttu
minningargrein langar mig að stikla
aðeins á því sem mér finnst hafa ein-
kennt líf og persónu móður minnar
öðru fremur, og hvernig ég hef upp-
lifað það.
Móðir mín kunni ekki að keyra bíl,
hún kunni ekki að taka lán, hún
kunni ekki að nota kreditkort, hún
kunni ekki að skrifa ávísun og hún
notaði ekki debetkort. Ekki veit ég
heldur til þess að hún móðir mín hafi
nokkurn tímann skuldað einum eða
neinum eitt eða neitt, þegar kemur
að veraldlegum hlutum. Sem sagt,
hún móðir mín var ekki neitt sérlega
veraldlega sinnuð þegar það kom að
þessum þáttum, sem flestum okkar
finnast svo sjálfsagðir að við teljum
okkur ekki geta lifað án þeirra – en
það gat hún móðir mín – og gerði vel.
En hún móðir mín kunni að baka
smákökur, hún kunni að elda mat,
hún kunni að prjóna, hún kunni að
halda heimili, hún kunni að vera góð
eiginkona og hún kunni að vera góð
móðir. Hún kunni líka að fæða og
klæða okkur öll sex systkinin, eig-
inmann og einn hund og þó svo að oft
hafi verið þröngt í búi, margt í heim-
ili og ekki úr miklu að moða, þá
skorti okkur aldrei fæði eða klæði,
María Sonja
Hjálmarsdóttir
✝ María SonjaHjálmarsdóttir
(Sonja) fæddist í
Laukhella á eyjunni
Senja í Norður-
Noregi 9. júlí 1936.
Hún varð bráð-
kvödd á heimili sínu
föstudaginn 8. des-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Vídal-
ínskirkju 15. desem-
ber.
hvernig sem á stóð –
hún móðir mín sá til
þess, vegna þess að
hún kunni það.
Móður minni var
margt til lista lagt, en
eitt kunni hún öðru
fremur en það var að
vera heil og heiðarleg í
flestu sem hún tók sér
fyrir hendur. Hún
hafði einnig mjög ein-
faldar lífsreglur að
leiðarljósi, en þessar
lífsreglur voru: vertu
heiðarlegur og sjálfum
þér nægur, sýndu kærleika og um-
hyggju í verki og ekki gleyma þeim
sem minna mega sín. Þetta kunni
hún móðir mín og þetta gerði hún al-
veg einstaklega vel, og ekki síst þá
gerði hún það af einskærri ást, alúð,
og umhyggju – okkur öllum til
handa.
Þrátt fyrir góðan ásetning og með
þessar gullnu lífsreglur móður minn-
ar í farteskinu, þá hefur mér oft orð-
ið fótaskortur á lífsbrautinni. Oftar
en ekki hef ég fótum troðið þessi lífs-
gildi móður minnar, sem eru mér
samt svo kær. Oft hef ég verið
ósanngjarn gagnvart móður minni –
og öðrum. Oft hef ég þurft að biðjast
fyrirgefningar á framferði mínu og
oft hefur mér liðið eins og ég væri
búinn að klúðra þessu lífi mínu sem
hún móðir mín fæddi og virtist henni
svo kært.
En hún móðir mín var alltaf tilbú-
in til að fyrirgefa mér. Alltaf var hún
til staðar og alltaf tilbúin til að
hlusta, og það sem mestu skipti, hún
var alltaf tilbúin til að styðja mig –
vegna þess að hún að hún var móðir
mín.
Elsku mamma, ég sakna þín sárt
og mun ávallt minnast þín sem sam-
nefnara fyrir þá ást, umhyggju og
kærleika sem líf mitt hefur þó alltaf
átt að í gegnum tíðina hjá þér. Og þín
vegna mamma, þá er ég hluti í lífi
barna minna, þeirra Monsa, Daníellu
og Elísu, og ekki síst tengdadóttur
minnar hennar Ingu og barnabarns
míns Sæþórs Helga.
Kristján Finnbogason, fósturfaðir
minn, sem ekki síður hefur verið mér
stoð og stytta í gegnum súrt og sætt,
þér votta ég mína innilegustu samúð.
konan er ekki aðeins móðir mannanna
heldur dýrlínganna, jafnvel Jesú Krists
sjálfs.
(Halldór K. Laxness)
Gísli Hjálmar Hauksson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi.
Minningargreinar