Morgunblaðið - 23.12.2006, Page 52
52 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG TRÚI ÞESSU EKKI! ÉG ER LOKSINS
KOMINN Á STEFNUMÓT MEÐ ELLEN OG
HÚN VEIT EKKI EINU SINNI HVER ÉG ER
ÞETTA KVÖLD
GÆTI EKKI ORÐIÐ
MIKIÐ VERRA!
VILTU
VEÐJA?
ÉG HELD
AÐ LAUF
SÉU
KLIKKUÐ!
ÞAU ERU AÐ DRÍFA SIG SVO
MIKIÐ AÐ FALLA TIL JARÐAR,
EINS OG EINHVER SEM GETUR
EKKI BEÐIÐ EFTIR ÞVÍ AÐ
KOMAST AÐ HEIMAN
EF AÐ ÉG VÆRI LAUF, ÞÁ
TÆKIST ÞEIM ALDREI AÐ FÁ
MIG TIL ÞESS AÐ SLEPPA
TRÉNU! ÉG MUNDI VÆLA OG
GRÁTBIÐJA UM VÆGÐ...
TRÉÐ MUNDI
ÖRUGGLEGA
SKAMMAST SÍN!
ER ENNÞÁ
BÝFLUGA Á
MÉR?
ÉG SEGI
EKKI! ÞÚ
KALLAÐIR
MIG FÍFL
FYRIRGEFÐU,
ÞÚ ERT EKKI FÍFL.
ER BÝFLUGAN
ENNÞÁ
Á MÉR?
NEI GOTT, ÞÁ ÆTLA... ÉG VARAÐ MEINA:
„NEI, HÚN
ER Á ÞÉR.“
ÞAÐ ER
ÖFUGUR
DAGUR
ÞÚ VEIST AÐ „ÖFUGI
DAGURINN“ ER BÚINN Á
MIÐNÆTTI?
„JÁ“
FÓLK SEGIR AÐ MAÐUR EIGI AÐ
FARA SNEMMA AÐ SOFA OG VAKNA
FYRIR ALLAR ALDIR, ÞVÍ
„MORGUNSTUND GEFUR GULL Í MUND“
EN ÞEIR SEM
FARA SNEMMA
AÐ SOFA...
MISSA AF ÖLLU ÞVÍ
SKEMMTILEGA SEM
GERIST Á BARNUM!
HVERNIG GENGUR
GRÍMI AÐ HJÁLPA
ÞÉR AÐ BERA ÚT
PÓSTINN?
EKKI
MJÖG
VEL...
Á TVEGGJA
MÍNÚTNA
FRESTI VERÐUR
HANN EITTHVAÐ
SKRÍTINN
OJJ! ÞAÐ ER DAUÐUR
FISKUR Í VATNINU, ÉG
ÆTLA AÐ KOMA MÉR
HÉÐAN!!
ÞETTA ER EKKI DAUÐUR
FISKUR, ÞETTA ER GÖMUL,
EINNOTA BLEYJA
OJJJ!!
ÉG ÆTLA
AÐ KOMA
MÉR
HÉÐAN!
HEYRÐIR ÞÚ
HVAÐ HANN SAGÐI?
HANN VILL FÁ
ALVÖRU VINNU!
ÞAÐ
VILJA
ÞAÐ
FLESTIR
ÞAÐ REYNA
ALLIR AÐ NOT-
FÆRA SÉR
GAMALMENNI
EINS OG MIG
EF ÞETTA ER
EITTHVAÐ
VANDAMÁL, ÞÁ
FER ÉG BARA
ÞAÐ ÞARF ALLTAF ALLT
AÐ SNÚAST UM ÞIG!
Börn styðja börn er yfir-skrift þróunarverkefnissem Utanríkisráðherrahefur sett á laggirnar.
Verkefnið er unnið með Matvæla-
áætlun Sameinuðu þjóðanna (World
Food Program) og felst í því að fyrir
hvert íslenskt grunskólabarn er
veittur styrkur til að greiða fyrir
skólamáltíð fyrir eitt skólabarn í
Úganda og Malaví, og munu því alls
um 45.000 börn njóta góðs af verk-
efninu. Kostnaður af Börn styðja
börn-verkefninu nemur 110 milljón-
um króna á ári, en verkefnið er til
tveggja ára, og kemst Ísland með
framlagi sínu í hóp þeirra fimm þjóða
sem mestum framlögum veita til
Matvælaáætlunar SÞ miðað við
höfðatölu.
Jón Erlingur Jónasson er sendi-
ráðunautur í utanríkisráðuneytinu:
„Verkefnið er mjög stórt að umfangi
miðað við önnur þróunarverkefni Ís-
lendinga sem unnin eru í samvinnu
við alþjóðastofnanir, og nær til mik-
ils fjölda barna,“ segir Jón Erlingur.
„Matvælaáætlun SÞ hefur sýnt mik-
inn og góðan árangur af verkefnum
sínum og fer vel með það fjármagn
sem henni er veitt, en starf Matvæla-
áætlunarinnar er háð gjafafé frá
ríkjum og hefur utanríkisráðuneytið
viljað auka stuðning Íslands við
verkefni hennar.“
Næringarástandi barna er ákaf-
lega áfátt í Úganda og Malaví, en Ís-
land hefur sinnt ýmsum þróunar-
aðstoðarverkefnum í þessum löndum
með tvíhliða samvinnu, og var það
með hliðsjón af því, og í samráði við
Þróunarsamvinnustofnun Íslands og
Matvælaáætlun SÞ sem ákveðið var
að verkefnið skyldi beinast að börn-
um í þessum tveimur löndum.
Staðgóð máltíð hvern dag
Eins og fyrr segir er aðstoðin veitt
í því formi að máltíðir eru veittar í
skólanum, hvern dag: „Börnin fá því
mat ef þau koma í skólann, en fyrir
mörg þeirra er þetta eina staðgóða
máltíðin sem þau snæða yfir daginn,“
segir Jón Erlingur. „Rannsóknir
hafa sýnt að með þessum hætti fjölg-
ar þeim börnum sem sækja skóla en
þannig tekst bæði að bæta heilbrigði
barnanna og auka menntun þeirra.“
Jón Erlingur nefnir að verkefni af
þessum toga gagnist stúlkum sér-
staklega: „Meirihluti þeirra barna,
sem ekki ganga í skóla í þróunar-
löndum, er stúlkur. Verkefni sem
þetta eykur skólasókn meðal
stúlkna, en búið er að sýna fram á að
stúlkur sem ganga í skóla eru í helm-
ingi minni hættu á að smitast af HIV
og helmingi minni líkur eru á að börn
þeirra verði vannærð,“ segir Jón
Erlingur. „Einnig eignast stúlkur
sem ganga í skóla að jafnaði helmingi
færri börn en þær sem ekki njóta
menntunar, og börn þeirra eru að
sama skapi líklegri til að sækja
skóla.“
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóð-
anna er stærsta mannúðarstofnun
heims og dreifði á síðasta ári skóla-
máltíðum til 21,7 milljóna barna í 74
löndum. Í heild úthlutaði Matvæla-
áætlunin matvælum til 96,7 milljóna
manna í 82 löndum. Nánari upplýs-
ingar má finna á slóðinni
www.wfp.org/schoolfeding.
Þróunaraðstoð | Börn styðja börn: Skóla-
máltíðir handa börnum í Úganda og Malaví
Máltíðir handa
45.000 börnum
Jón Erlingur
Jónasson fæddist
í Reykjavík 1959.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MH
1979, BS-gráðu í
líffræði frá Há-
skóla Íslands
1983 og Cand.-
Scient. í stofn-
vistfræði frá Óslóarháskóla 1987.
Jón Erlingur vann við markaðs- og
þróunarmál í sjávarútvegi og var
síðar aðstoðarmaður landbúnaðar-
ráðherra. Hann hóf störf sem sendi-
ráðunautur við utanríkisráðuneytið
árið 1999. Jón Erlingur er kvæntur
Védísi Jónsdóttur hönnuði og eiga
þau tvö börn.
UNDANFARIÐ hafa staðið yfir sýningar á jólaleikritinu Réttu leiðinni í
Borgarleikhúsinu. Áhorfendum var gefinn kostur á að koma með jóla-
pakka og leggja undir jólatré í forsal leikhússins sem og margir gerðu
þann tíma sem sýningar stóðu yfir, en þeim lauk um síðustu helgi.
Barna- og unglingaleikhúsið Borgarbörn afhentu svo jólapakkana til
styrktar bágstöddum börnum á Íslandi sl. mánudag. Ragnhildur Guð-
mundsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd veitti pökkunum viðtöku en Mæðra-
styrksnefnd mun svo sjá um að úthluta þeim til skjólstæðinga sinna og
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Börn hjálpa börnum