Morgunblaðið - 23.12.2006, Side 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 357. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
SV 20–28 m/s
NV-lands, annars
hægari. Lægir
eftir hádegi. 8–15
m/s undir kvöld. Hvessir lít-
ið eitt með kvöldinu. » 8
Heitast Kaldast
6°C 0°C
BORIÐ hefur á því að þjófar vinni
saman í hópum í Kringlunni og steli
úr verslunum, að sögn Sigurjóns
Arnar Þórssonar, framkvæmda-
stjóra Kringlunnar.
Brugðist hefur verið við þessu
með því að auka öryggisgæslu á
svæðinu auk þess sem lögregla er
sýnilegri en áður. Þá segir Sigurjón
að æ fleiri verslunareigendur ráði
sér eigin öryggisverði til að sinna
gæslu.
Hann segir að þjófnaður úr versl-
unum sé vaxandi vandamál og ekki
bundið við jólatímann. Það sé hins
vegar nýtt að þjófarnir vinni skipu-
lega saman eins og dæmi séu nú um
en Sigurjón segir að öryggisverðir í
Kringlunni hafi tekið eftir þessu á
myndböndum og út frá upplýs-
ingum starfsfólks í Kringlunni.
Morgunblaðið/Eggert
Þjófar sem
vinna í hópum
JÓN Ólafsson heimspekingur upp-
lýsir í ritdómi um nýja bók Guðna
Th. Jóhannessonar, Óvinir ríkisins, í
Lesbók í dag að fulltrúar KGB,
leyniþjónustu Sovétríkjanna, og
GRU, leyniþjónustu rússneska hers-
ins, hafi veitt honum þær upplýs-
ingar á fyrri hluta 10. áratugarins
að engin „óeðlileg“ starfsemi hefði
verið stunduð á Íslandi á vegum
þessara stofnana, „og þá var átt við
að ekki hefði verið um innlent
njósnanet að ræða“.
Jón segir að það hafi hins vegar
oft komið upp í samtölum sínum við
þessa menn að þeir virtust gefa sér
að á Íslandi væri starfandi leyniþjón-
usta. „Þegar ég sagði einum þeirra
að opinberlega væri ekki viðurkennt
að nein slík starfsemi væri stunduð í
landinu af hálfu íslenskra yfirvalda
fylltist hann aðdáun yfir því að ís-
lenskir starfsbræður hans gætu
haldið slíkri leynd yfir starfsemi
sinni. Annar sagði mér að almennt
væri litið svo á að íslenska leyniþjón-
ustan væri aðeins starfsstöð hinnar
bandarísku.“
Engin „óeðli-
leg“ starfsemi
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
ÍSLENSKA krónan veiktist um
2,9% í gær í kjölfar þess að matsfyr-
irtækið Standard & Poor’s (S&P)
lækkaði lánshæfiseinkunnir ríkis-
sjóðs og hefur krónan ekki veikst
jafnmikið frá því í febrúar og apríl
þegar lánsfyrirtækið Fitch Ratings
breytti horfum um lánshæfi ríkis-
sjóðs. Svipuð viðbrögð urðu á hluta-
bréfamarkaði en Úrvalsvísitalan
lækkaði um 1,9%.
Sérfræðingar gera ráð fyrir að
gjaldeyrismarkaðir ytra hafi ekki
náð að bregðast við að fullu og því
megi gera ráð fyrir óróleika þegar
þeir verði opnaðir eftir hátíðarnar.
Sérfræðingar S&P segja lækkun
lánhæfismats ríkissjóðs endurspegla
minnkandi aðhald í ríkisfjármálum
vegna þingkosninganna í vor; breyt-
ingar við afgreiðslu fjárlaga næsta
árs séu þensluhvetjandi á sama tíma
og brýn þörf sé á að draga úr þjóð-
hagslegu ójafnvægi.
Samhliða lækkun lánshæfismats
ríkissjóðs lækkaði S&P einnig láns-
hæfismat Landsvirkjunar og Íbúða-
lánasjóðs. Hins vegar staðfesti S&P
með sérstakri tilkynningu óbreytt
lánshæfismat Glitnis og segir bank-
ann eiga að geta haldið viðunandi
arðsemi þótt efnahagsaðstæður á Ís-
landi versnuðu.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
segist vera algerlega ósammála for-
sendum S&P og Árni M. Mathiesen
fjármálaráðherra tekur í svipaðan
streng. Greining Landsbankans seg-
ir ríkisfjármálin fá falleinkunn hjá
S&P og greining Kaupþings banka
segir aðhaldsleysi í fjárlagagerð hafa
kallað fram lækkun matsins.
S&P segir minnkandi
aðhald í ríkisfjármálum
Í HNOTSKURN
» S&P segir þensluhvetj-andi stefnu í ríkisfjár-
málum vera æ meira á skjön
við stefnuna í peningamálum
sem aftur auki líkur á harðri
lendingu.
» S&P segir erlenda fjár-þörf Íslands eina þá mestu
meðal ríkja sem hafa lánshæf-
ismat. Hún stafi af mikilli er-
lendri skuldabyrði um allt
hagkerfið ásamt miklum við-
skiptahalla.
Þensluhvetjandi
| Miðopna og 16
DANANS Jans Nordskovs Larsens var minnst í
gær við athöfn um borð í eftirlitsskipinu Tríton í
Reykjavíkurhöfn. Larsen lést við björgunarstörf
úti fyrir Hvalsnesi sl. þriðjudag.
Þeir sjö sjóliðar sem voru með Larsen í gúm-
bát sem hvolfdi við strandstað flutningaskipsins
Wilson Muuga báru kistuna að athöfn lokinni, en
hún var flutt til Danmerkur með flugvél á vegum
danska hersins.
Morgunblaðið/Kristinn
Minntust félaga síns af Tríton
LÁTIN er í Vínarborg
Manuela Wiesler
flautuleikari. Manuela
fæddist í Brasilíu árið
1955 en foreldrar henn-
ar voru austurrískir.
Hún var alin upp í Vín-
arborg og lauk þar
flautuprófi árið 1971.
Síðar stundaði hún nám
í París og víðar. Hún
fluttist til Íslands árið
1973 og bjó hér í um
áratug. Meðal viður-
kenninga sem hún hlaut
voru 1. verðlaun í nor-
rænni kammermúsík-
keppni árið 1976 og
hún sló í gegn á Tón-
listartvíæringnum í
Kaupmannahöfn 1980.
Ásamt Helgu Ingólfs-
dóttur semballeikara
hleypti hún af stokk-
unum Sumartónleik-
um í Skálholtskirkju
árið 1975 og kom þar
iðulega fram, einkum í
samleik með Helgu.
Eftir að hún fluttist af
landi brott kom hún oft
fram á Sumartónleik-
unum og þá sem ein-
leikari. Eftir að hún
fluttist frá Íslandi bjó hún og starf-
aði í Svíþjóð. Árið 1985 fluttist hún til
Vínarborgar þar sem hún bjó að
mestu til æviloka.
Manuela kom víða fram í Evrópu,
ekki síst á Norðurlöndunum en líka í
Þýskalandi og á heimaslóðunum í
Austurríki. Hún lagði sig einkum
fram um að flytja samtímaverk en
helstu tónskáld Íslendinga sömdu
fyrir hana tónverk auk margra er-
lendra tónskálda. Meðan Manúela
bjó á Íslandi var hún mikil driffjöður
í tónlistarlífinu hérlendis og gætti
áhrifa hennar víða.
Manuela Wiesler lætur eftir sig
fjögur börn.
Andlát
Manuela Wiesler
Manuela Wiesler
MIKLAR tafir urðu á flugumferð í
gær vegna veðurs og töldu flugfélög
óvíst hvort morgunflug yrði á áætl-
un í dag. Veðurstofan sendi í gær út
viðvörun vegna ofsaveðurs sem spáð
var að hæfist í nótt en myndi að
mestu verða gengið niður um hádegi
í dag. Voru björgunarsveitir allt frá
Árnessýslu og vestur með landinu
norður í Skagafjörð í viðbragðsstöðu
vegna veðursins. Kom almanna-
varnadeild ríkislögreglustjórans upp
sérstakri samhæfingarstöð til að
samhæfa vinnu slökkviliðs, lögreglu,
björgunarsveita og Vegagerð-
arinnar um landið vegna stormsins.
Ekkert var flogið innanlands eftir kl.
17 í gær og gera má ráð fyrir frekari
töfum í innanlandsflugi í dag. Milli-
landaflug hefur einnig raskast.
„Veðurhamurinn á Keflavík-
urflugvelli hefur valdið miklum töf-
um í millilandaflugi. Við sjáum fram
á töluverðar tafir á öllum flugleiðum
alveg fram á aðfangadag,“ segir
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair.
Samkvæmt spá Veðurstofu Ís-
lands hefur stormurinn einkum geis-
að á Suðvesturlandi, Vesturlandi og
Norðvesturlandi og munu vind-
hviður geta náð allt að 50 m/s. Þá
segir að lægja muni og létta til um
hádegi, fyrst suðvestantil. | 4
Spáð að vindur geti
náð allt að 50 m/s