Fálkinn - 30.01.1963, Blaðsíða 32
hlýtur að hafa skilið eitthvað af samtali
okkar á enskunni og komizt að þeirri
niðurstöðu, að það ætti að handtaka
hann. Síðustu skipti hans við lögregl-
una höfðu skilið eftir opið sár í huga
hans. Hann sleit höndina lausa úr taki
mínu og þaut út á götuna með hálf-
kæfðu ópi. Poncho-inn lá eftir við fæt-
ur mína. Lögreglumaðurinn hrópaði á
eftir honum. Það hvein í hemlum. Eitt-
hvað skall hart á malbikið. Nístandi
konuóp yfirgnæfði öll önnur hljóð.
Pepe var dreginn upp á gangstéttina.
Ég lagði höfuð hans í kjöltu mína og laut
niður að honum.
— Pepe, hvíslaði ég. —- Heyrirðu til
mín?
Hann opnaði augun. Þau störðu fram-
hjá mér og í gegnum mig. Þau voru
sem þakin grárri slikju. Skyndileg
vissa skelfdi mig. Dauðinn hafði þegar
sett mark sitt á hjarðsveininn frá E1
Flaco.
Varir hans bærðust. Hann ætlaði að
segja eitthvað. Ég lagði eyrað að vör-
um hans og heyrði ógreinilega:
— Que será de mi? ....
Mig sveið í augun.
— Pepe, þú átt að vera hjá mér,
hvíslaði ég að honum. — Heyrir þú?
Þú átt að vera hjá mér .... og koma
með heim. . . Skyndilegur svipur
hugarléttis fór yfir blóðugt andlitið:
— Vamos, amigo .... vamos con Díos.
.... Hann andvarpaði, síðasta, létt
andvarpið.
Ég skammast mín ekki fyrir, að ég
lagði munninn að kinn Pepes og grét:
— Við skulum fara með guði........
Pepe og ég höfðum vafalaust mjög
ólíkar skoðanir á hugtakinu „guð“. En
í hinztu kveðju hans heyrði ég ekki
hið venjulega spánska orðtæki, heldur
einlæga trú hans á framtíðinni ....
ásamt með mér.
Ég huldi hinn unga, en þó svo gamla,
gamla Pepe með hans eigin slitna
poncho.
Kvenþjóðin
Framhald af bls. 26.
hvít sósa búin til. Síldarvefjunum rað-
að ofan í sósuna og þær látnar sjóða
í sósunni í 10—15 mínútur. Gott er að
krydda sósuna með sítrónusafa. Borið
fram með soðnum, heitum kartöflum.
Steikt síld.
1 kg. síld.
4 msk. hveiti.
V2 tsk. salt.
Vs tsk. pipar.
100 g. smjörlíki.
Síldin hreinsuð og beinin tekin úr
henni. Dálitlu salti stráð á flökin.
Hveiti, salti og pipar blandað saman,
smjörlíkið brúnað á pönnu, síldunum
velt upp úr hveitiblöndunni og þær
steiktar við meðalhita í nál. 10 mínút-
ur. (Einnig er hægt að velta síldinni
upp úr eggi og brauðmylsnu). Steikta
síldin borin fram með kartöflusalati eða
soðnum kartöflum og lauksósu. Einnig
er gott að skreyta síldina með steiktum
eplum og tómötum (steikt á sömu
pönnu eftir síldinni) eða brúnuðum
lauk (steiktur á undan síldinni).
Steikt síld í kryddlegi.
1 dl. sjóðandi vatn.
1 dl. sykur.
2 dl. edik.
V2 tsk. pipar.
8 steiktar síldar.
2 laukar.
Sykur og vatn soðið saman, ediki og
pipar blandað saman við, suðan látin
koma upp. Kælt. Hellt yfir steiktu síld-
arnar, látið bíða nokkrar klst. Borið
fram með laukhringum, sem raðað er
ofan á síldina. Einnig er gott að bera
lauksósu með og svo kartöflur.
Steikt síld með súrum rjóma.
1 kg. síld.
3 msk. hveiti.
Vi tsk. pipar.
1 tsk. salt.
32
FALKINN