Menntamál - 01.10.1946, Blaðsíða 16
118
MENNTAMAL
Anna Hlöðversdóttir sjötug
Anna Hlöðversdóttir er
fædd í Vallaneshjáleigu á
Fljótsdalshéraði 29. sept.
1876. Hún stundaði nám í
kvennaskólanum í Ytri-Ey
1894—96. 1897 giftist hún
Sigurði Jónssyni frá Set-
bergi í Nesjum og bjuggu
þau lengst af á Reyðará
í Lóni. Þar lézt Sigurður
1917, en Anna bjó áfram
með sonum sínum, unz
hinn elzti þeirra, Geir,
tók við búsforráðum.
Anna gerðist farkenn-
ari í Lóni 1928. Hefur hún
síðan kennt þar eða ann-
ars staðar í Austur-
Skaftafellssýslu. Hún hefur verið með afbrigðum áhuga-
söm í starfi sínu og gefið gaum að nýjum kennsluaðferð-
um, svo að hún gæti náð sem beztum árangri í hvívetna.
Kennaranámskeið og kennaraþing hefur hún sótt flest-
um öðrum betur og notað tímann vel.
Anna og Sigurður maður hennar eignuðust 6 syni.
Einn þeirra, Þórhallur trésmiður, er látinn, Geir býr á
Reyðará, en 4 eru starfandi kennarar: Stefán í Reykja-
vík, Hlöðver skólastjóri á Siglufirði, Ásmundur, alþingis-
maður, í Nesjahreppi og Hróðmar í Hveragerði.
Er það eins dæmi í íslenzkri skólasögu, að kona sé
starfandi kennari og 4 synir hennar samtímis, en það
hefur Anna verið síðastliðin 10 ár. Ó. Þ. K.
Anna Hlöðversdóttir.