Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Qupperneq 105

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Qupperneq 105
HANNA RAGNARSDOTTIR erlendu barnanna ágætlega að áherslum skólans á einstaklingsmiðað nám og sér- sniðnar námskrár. Wen wen hefur þó verið það stutt í þeim skóla þegar þetta er skrif- að, að ekki er ljóst hvernig henni muni vegna. Hins vegar hafa framfarir hennar ver- ið góðar fyrsta hálfa árið og líðan hennar virðist góð. UMRÆÐA OG ÁLYKTANIR Hér hefur verið fjallað í stuttu máli um viðhorf foreldra fjögurra barna til skólakerf- isins eins og þau birtast í viðtölum, skólastarf og viðhorf kennara sem áhrif geta haft á skólagöngu og námsferli erlendra barna, svo og hugmyndafræði og stefnu ein- stakra skóla og þann grunn sem kemur fram í aðalnámskrám. Hér að neðan verður fjallað um samspil skólamenningar og heimamenningar m.a. með hliðsjón af erlend- um rannsóknum. í niðurstöðum fyrrgreindrar rannsóknar Brooker (2002) nefnir hún m.a. að afstaða barna til náms litist af reynslu og væntingum foreldra og börnin frá Bangladesh geti notið góðs af mikilli áherslu fjölskyldnanna á nám. Á móti komi hins vegar þættir í undirbúningi barnanna fyrir skólagöngu sem fari ekki vel saman við uppeldisfræði- lega orðræðu skólans. Þar komi t.d. til ólíkar hugmyndir foreldra um leik. Brooker nefnir að flestar enskar fjölskyldur viðurkenni leikinn sem námsleið, en fjölskyldur frá Bangladesh líti hins vegar á leikinn sem fyrirbæri sem er ekki varanlegt og á ekki að hvetja til. Heima eyði börnin tíma í að fylgjast með og læra af foreldrum sínum. Þegar foreldrar frá Bangladesh undirbúi börn sín á meðvitaðan hátt fyrir skólann vænti þeir þess að hreyfiaflið sé ekki skemmtun og ánægja, heldur vitund um þá skyldu sína að leggja hart að sér og læra. Enskir foreldrar viðurkenni aftur á móti yf- irleitt uppeldisgildi leiksins og veiti börnunum m.a. aðgang að leikjum, snældum og leikföngum líkum þeim sem skólinn notar. Hvað má lesa út úr ofangreindum viðtölum við foreldra um þá þætti sem hér hafa verið ræddir? Fyrst ber að geta þess að skólakerfi á íslandi er ólíkt skólakerfi í Englandi, þar sem börn byrja þar fyrr í grunnskóla. Hins vegar líkist starf í undirbún- ingsbekk sem getið er í rannsókn Brooker mjög almennu leikskólastarfi á íslandi, með svipaðar áherslur á leik barna. Foreldrar Yusufs og Leru hafa nokkuð ólíka af- stöðu til leikskólans; byggist hún, að því er virðist, að nokkru leyti á ólíkri reynslu þeirra, menntun, menningu og trúarbrögðum. Afstaða foreldra Yusufs til leikskólans virðist byggjast á skilningi þeirra á tilgangi leikskólastarfs annars vegar og á trúar- legri afstöðu þeirra hins vegar. Móðir Yusufs leggur áherslu á félagsskap og sam- skipti við börn. Hún lítur á leikskólastarf sem undirbúning fyrir líf í samfélagi almennt fremur en markvisst skólastarf, nám eða undirbúning fyrir grunnskóla. Henni finnst í lagi að hafa barnið heima ef leikskólastarfið einhverja daga tekur ekki tillit til trúarbragða fjölskyldunnar eða efasemdir um það vakna. Hún leggur mikla áherslu á að Yusuf sé ungur, hann sé nú áhorfandi og síðar muni hann læra gildi trú- ariðkunar. Þetta viðhorf samsvarar viðhorfi fjölskyldnanna frá Bangladesh um að heima fylgist börnin með og læri af foreldrum sínum. Móðir Yusufs virðist ekki leggja mikið upp úr leik sem námsleið og hann ber lítið á góma í viðtalinu. 103
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.