Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 117

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 117
KRISTIN HELGA GUÐMUNDSDOTTIR ist í kennslustofunni, s.s. umræðna o.fl., vettvangsferða og heimanáms. Einnig þarf að hafa í huga „upphafsástand nemenda", svo sem skilning á innihaldi, áhuga, getu o.fl. Þá þarf að huga að innihaldinu, að námskránni og kennsluathöfnum, þ.e. undir- búningi, skipulagningu og því sem gerist í kennslustofunni, svo sem innleggi, fyrir- lestrum, umræðustjórnun, leiðbeiningum, samskiptum o.fl. Að lokum þarf að hafa námsmat í huga. Nám í anda hugsmíðahyggjunnar Frá því að fjarkennsla með hjálp tölvutækninnar hófst hafa menn velt fyrir sér þeirri spurningu hvernig best sé að hanna námsumhverfi í fjarnámi. Þeirri spurningu er að einhverju leyti svarað með því að vísa til námskenninga og kennslufræði sem nú- tímaskólastarf byggist á. Þær eru m.a. atferlisfræði, vitsmunasálfræði og þróunarsál- fræði Jean Piagets sem er að vissu leyti grunnur að hugsmíðahyggju. Hugtakið félagsleg hugsmíðahyggja (e. social constructivism) þróaðist út frá kenn- ingum Jean Piagets. Kenningar Lev Vygotskys um félagslegt samspil einstaklingsins, umhverfis og menningar eru taldar hafa haft áhrif á þróun félagslegrar hugsmíða- hyggju (Kearsley, 1994b). Samkvæmt Lev Vygotsky á þróun mannlegrar greindar rætur að rekja til menningar sem byggist á samskiptum þar sem tungumálið gegnir mikilvægu hlutverki (Hsiao, 1996; Þuríður Jóna Jóhannsdóttir, 2001:59). Lev Vygotsky fjallaði jafnframt um hugtak sem hann nefndi þroskasvæði (e. zone of proximal development). Hann vísar þar til þeirra verkefna sem nemandi getur ekki unnið óstuddur, en er fær um að leysa með aðstoð einstaklings, leiðbeinanda eða jafningja sem stendur honum framar (Shaffer, 2002). Að mati Lev Vygotskys næst há- marksárangur þegar leiðbeinandi miðar stuðning sinn við hæfileika nemandans hverju sinni. Hugmyndin um stuðning eða vinnupalla (e. scaffolding) byggist á aðferð sem notuð er til að styðja nemanda við eigið nám (Wood, Bruner og Ross, 1976). Leiðbein- andi hagar stuðningi sínum í samræmi við getu nemandans hverju sinni til þess að hann hafi hag af aðstoðinni og skilningur hans aukist. Markmiðið með „vinnupöll- um" er að sá sem er verið að aðstoða vinni sem stærstan hluta verkefnisins og komist sem næst ytri mörkum þroskasvæðis síns við úrlausnina (Shaffer, 2002:248-249). Þegar námsumhverfi er hannað í anda hugsmíðahyggjunnar þarf það að vera nemendamiðað þannig að áhersla sé lögð á að styðja og leiðbeina nemendum í eigin þekkingarleit. Til þess er ætlast að nemendur samþætti nýjar hugmyndir fyrri þekk- ingu og smíði eigin skilning á fyrirbærum á eigin forsendum með hjálp samnemenda og kennara (Kearsley, 1994a; Kearsley, 1994b). David Jonassen (1997) telur að nem- endur verði að setja sér sín eigin markmið og bera ábyrgð á eigin námi. Námsum- hverfið þarf að vera fjölbreytt, auðugt og hvetjandi. Verkefni þurfa að vera raunhæf og niðurstöður sýnilegar. Hlutverk kennarans er að skapa slíkt námsumhverfi, leið- beina nemendum og vera nemendum fagleg fyrirmynd. Kennarar þurfa að hvetja til samvinnu og samræðna í opnu samfélagi námsumhverfisins (Jonassen og Rohrer- Murphy, 1999). 115
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.