Ægir - 01.01.1953, Qupperneq 12
6
Æ G I R
J..UJM.LM-EN6D1R.
^.UJfcLUUNGDlC.
:<r>-1 1 <> 1 t -4> 1 1 xj> 1 1
—I <&H—MH—HJH—\-*&
<3> I I ‘<t>- I I
hfr I I <> i í 4>< I «3> I
-<j>-| | >0-1 Hj>l lxj>l l*Þ
Gerð III.
Langa. ■—• Hún er yfirleitt rásltorin. Sé
urn að ræða óflatta löngu, þá er það aðeins
smálanga fyrir Afríkumarkað.
Blálanga. — Hún er nær einungis fyrir
Afríkumarkað og er yfirleitt ráskorin. Um
hana gildir annars flest hið sama og venju-
lega löngu.
Ýsa. — Hún er alltaf hert óflött. Af henni
hefur mjög lítið verið hert hér á landi.
Hvernig á að haga aðgerð, hreinsun og
þvotti?
Aðgerðin þarf að fara fram um leið og
fiskurinn kemur á land.
Ekki má rista fram úr þeim fiski, sem
ætlaður er til herzlu, en rista skal aftur
úr gotrauf á öllum óflöttum fiski um 1
þuml. eða svo. Kviðarholið þarf að opn-
ast alveg og hreinsa skal vandlega í burtu
allar leifar af innyflum, lifur og annað
þessháttar. Enn fremur skal hreinsa vand-
lega í burtu allt hnakkablóð. Gæta skal
þess að skadda ekki sundmagann á nokk-
urn hátt. Hann á að vera heill og hreinn.
Sé fislcurinn þveginn í kösum, skulu hafð-
ar grindur nokkuð ofan við botninn, svo
að hreistur og óhreinindi setjist undir
grindurnar á botninn. Það er mjög áríð-
andi að hafa nóg vatn og að hreinsa nægi-
lega vel og oft úr kösunum.
Allan ufsa þarf að hreistra vel og vand-
lega. Þegar fiskurinn er ráskorinn, skal
sérstaklega gæta eftirfarandi atriða:
1. Að taka hrygginn alveg að ugga-
beinunum, en ekki aðeins að mænugöng-
unum.
2. Að taka hrygginn a. m. k. 2 liðum
aftur fyrir blóðdálk.
3. Að láta balcuggann alltaf vera með
þunna flakinu, þ. e. því, sem dálkurinn
er ekki í.
4. Að láta kviðuggann fylgja dálkflak-
inu nema e. t. v. á stórum fiski, scm hætt
er við að rifni og detti niður af ránum.
Þá má aftasti kviðugginn einnig vera með
þunna flakinu, því til styrktar.
5. Að skera fiskinn hæfilega langt aftur,
hvorki of eða van.
6. Sé fiskurinn hnakkaflattur, þá gætið
þess, að skera ekki lengra aftur bak-
megin en þangað, sem hryggurinn er tek-
inn sundur, því að annars skerst dálkur-
I