Ægir - 01.01.1953, Qupperneq 15
Æ G I R
9
Vélsmiðjan lílettur i Hafn-
ar/irði hefur smíðað skreið-
arpressur, er hafa reynzt
vel. 1‘ressur þessar kosta
um 50 þús. kr. Hér cr birl
mijnd af þessari pökkunar-
lH’l- T. v. er búið að leggja
fiskinn í pressuna, en ekki
búið að loka henni. T. li.
er verið að pressa fiskitin.
að jarðslaga, þá er ekki um annað að
ræða heldur en taka fiskinn niður og inn
í gott hús, ef ekki er hægt að stafla honum
úti á góðum stað, undir góðri vatnsheldri
yfirbreiðslu. Hvort sem gert er, þarf að láta
vel undir fiskinn, stafla honum í þunna
stafla og láta loftið leika sem bezt í gegn.
°ft viH fiskurinn færast saman í hjöll-
unum í rokum og jafnvel færast rárnar
Hka til í stórviðrum. Þetta þarf auðvitað
að laga strax og veðrinu hefur slotað.
Brotni rár eða ef hjallar falla niður,
þarf að bæta úr því sem fyrst, a. m. k.
hengja fiskinn strax upp aftur.
Hvernig eiga geymsluhús fyrir skreið
að vera?
Geymsluhús fyrir skreið þurfa að vera
rúmgóð og björt, vera rakalaus og hafa
mjög góða loftræstingu. Þrátt fyrir það,
að loftið þurfi að geta leikið sem bezt í
gegnum slík hús, t. d. á meðan fiskurinn
er að brjóta sig, sem kallað er, eða jafna
sig eftir að hafa verið tekinn inn á vorin
og fyrri hluta sumars, þá þurfa þau einnig
að vera þétt og vera svo útbúin, að auð-
velt sé að loka þeim vel fyrir utan að kom-
andi raka, þegar úti loftið er rakt, eins og
oft er t. d. á haustin. Þá er svo hætt við, að
fiskurinn vilji mygla. En þegar veðrið er
þurrt, þarf loftið að leika sem mest gegnum
fiskinn.
Hér á landi hafa braggar eða birgða-
skemmur verið notaðar nokkuð og yfir-
leitt gefizt vel. Steinhúsin hafa ekki reynzt
eins vel, sízt ef þau eru einnig notuð fyrir
saltfisk. Salt ætti aldrei að koma nálægt
skreið. Geymsluhús fyrir skreið þurfa að
vera örugg fyrir rottum, sem sækja mjög
í hana og valda oft rniklu tjóni, einkum þó
á ráskerðingi.
Skreiðin er fyrirferðarmikil og þarf því
mikið geymslurúm. Það mun láta nokkuð