Fréttablaðið - 20.05.2011, Síða 12

Fréttablaðið - 20.05.2011, Síða 12
20. maí 2011 FÖSTUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Mengun brennisteinsvetnis frá jarðhitavirkjunum Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur segir heilsufarsógn stafa frá brennisteinsvetni frá jarðhitavirkjunum og gagnrýnir nýja frummats- skýrslu vegna jarðhitanýt- ingar á Hengilssvæðinu. Orkuveita Reykjavíkur metur fjárfestingarkostn- að við nýjan hreinsibúnað í Hellisheiðarvirkjun á allt að tíu milljarða og gerir til- raunir með nýja tækni. Eftir að nýting jarðhita var aukin á Hellisheiði hefur mælst mun meiri styrkur brennisteinsvetnis á höfuð- borgarsvæðinu og í sveitarfélögun- um í nágrenni virkjunarinnar. Bor- ist hafa kvartanir frá íbúum um óþægindi vegna sterkrar lyktar af brennisteinsvetni. Í viðtali við Fréttablaðið í gær lýsti Árný Sigurðardóttir, hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, frummatsskýrslu vegna áætlaðr- ar vinnslu Orkuveitu Reykjavík- ur við Gráuhnúka sem illa unn- inni og lýsti furðu sinni yfir því að ekki væri fjallað sérstaklega um nálægð virkjunarsvæðisins við fjöl- mennustu byggðakjarna á landinu. Orkuveitan hyggst nýta jarðhita frá Gráuhnúkum til að bæta 45 MW við gufuaflsvirkjun sína á Hellis- heiði, en heilbrigðiseftirlitið telur að vinnslan geti aukið brennisteins- magn í lofti um fjörutíu prósent. Fjarri lagi Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga- fulltrúi OR, bendir á að magn brennisteinsvetnis muni ekki aukast vegna Gráuhnúka nema að því tilskildu að svæðið verði sér- staklega gjöfult og ný vél verði sett upp í Hellisheiðarvirkjun. Hvað útreikninga Heilbrigðiseftirlitsins varðar sýnist Eiríki að þær hljóti að miðast við uppsetningu tveggja nýrra véla sem verða teknar í notk- un í haust og þann möguleika að þriðja vélin bætist við. Frummats- skýrslan, sem er ástæða gagnrýn- innar, tekur hins vegar aðeins til jarðhitanýtingar við Gráuhnúka. Að jarðhitanýting þar auki magn brennisteins í lofti um fjörutíu pró- sent segir Eiríkur útilokað. Reglugerð í fyrrasumar Svandís Svavarsdóttir umhverfis- ráðherra setti reglugerð um leyfi- legan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti í fyrrasumar á sama tíma og loftmengun frá Hellisheið- arvirkjun var í hámæli. Rök ráð- herra fyrir því að setja reglugerð- ina voru að hennar sögn sú óvissa sem ríkir um heilsufarsáhrif af langvarandi innöndun brenni- steinsvetnis og því taldi hún nauð- synlegt að setja mörkin þannig að almenningur fengi notið vafans. Einnig eiga mörkin að koma í veg fyrir lyktarmengun og var talið nauðsynlegt að setja heilsuverndar- mörkin við fimmtíu míkrógrömm í rúmmetra að meðaltali á 24 klukku- stundum. Mörk Alþjóðlegu heil- brigðisstofnunarinnar (WHO) eru 150 míkrógrömm og eru sett með tilliti til mögulegra bráðaáhrifa á augu en ekki til langtímaáhrifa á heilsu fólks sem býr við þessa mengun að jafnaði. Í reglugerð umhverfisráðherra er fyrirtækjum gefið aðlögunar- tímabil þannig að til að byrja með verður leyfilegt að fara fimm sinn- um á ári yfir fimmtíu míkróg- ramma mörkin en frá og með júlí 2014 verður það óheimilt. Það er til marks um hversu alvar- lega málið horfir við ráðuneyti umhverfismála því þar er verið að meta hvort setja þurfi fyrir- tækjum sérstök losunarmörk sem yrðu strangari en mörk um leyfi- legan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Samorka, samtök orku- og veitu- fyrirtækja á Íslandi, taldi að við- miðunarmörk WHO ættu að gilda hérlendis og lýsti vonbrigðum sínum með hve ströng reglugerð Svandísar er. Forsvarsmenn Sam- orku fullyrtu í fjölmiðlum að los- unarmörkin væru sett á pólitískum forsendum en ekki faglegum og myndu hafa gríðarlegan kostnað í för með sér fyrir fyrirtækin. Hvað hefur Orkuveitan gert? Í fréttatilkynningu OR í gær kemur fram að verið sé að vinna úr umsögnum vegna fyrirhugaðr- ar jarðhitanýtingar við Gráuhnúka. „Sérstaka athygli vekja athuga- semdir og ábendingar þeirra aðila sem eftirlit hafa með loftgæðum á höfuðborgarsvæðinu [Heilbrigðis- eftirlit Reykjavíkur] og eru starfs- menn OR að fara sérstaklega yfir þann þátt,“ segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að niðurstöður mælinga sýni að brennisteinsvetni hafi verið innan marka reglugerð- arinnar frá þeim tíma sem hún var sett, en OR hefur komið upp þrem- ur nýjum mælistöðvum til að mæla brennisteinsvetni í andrúmslofti. Eiríkur segir að jafnframt vinni OR að því að þróa nýja tækni til að vinna gegn mengun enda sé róið að því öllum árum að uppfylla skil- yrði reglugerðarinnar óháð stækk- un Hellisheiðarvirkjunar. Í því augnamiði er tilraunaverkefni í gangi þar sem gas er skilið frá guf- unni. „Í stöð við virkjunina er verið að gera tilraunir með að blanda brennisteinsvetninu við affallsvatn sem leitt er niður í niðurrennslis- holur. Ef þetta gangi verður hægt að mæta kröfum reglugerðarinnar með mjög hagkvæmum og skilvirk- um hætti.“ Aðrar lausnir eru mjög dýrar, en í ákvæðum starfsleyfa fyrir atvinnurekstur sem kann að valda mengun af völdum brennisteins- vetnis skal beita bestu fáanlegu tækni til að hamla loftmengun. Slíkur búnaður hefur ekki verið settur upp í Hellisheiðarvirkjun. Samkvæmt mati OR er fjárfest- ingarkostnaður slíks búnaðar einn til 3,6 milljarðar á hver 90 MW. Ef dýrasti kosturinn yrði valinn fyrir Hellisheiðarvirkjun myndi upp- setning búnaðarins fara yfir tíu milljarða auk rekstrarkostnaðar upp á 600 milljónir á ári. Tæknin sem OR er að þróa liggur í millj- arði í fjárfestingum og 300 millj- ónum í rekstri, skili hún tilætluðum árangri. Eiríkur segir að skili tilrauna- verkefnið ekki tilætluðum árangri verði ráðist í fjárfestingar á hreinsi búnaði, enda sé ekki um neitt annað að ræða en mæta kröfum reglu gerðarinnar. Spurður hvort staða OR leyfi slíkar fjárfestingar segir Eiríkur það ekki skipta máli. OR muni mæta þeim kröfum sem fyrirtækinu séu settar varðandi mengun. Spurður af hverju OR setti ekki upp „bestu fáanlegu tækni“ strax þegar Hellisheiðarvirkjun tók til starfa segir Eiríkur að kröfur um útblástur hafi breyst mikið frá þeim tíma. Nú sé horft til þess að mæta kröfum reglugerðar umhverfisráð- herra sem tekur gildi að fullu árið 2014. „Besta“ fáanlega tækni Rétt er að hnykkja á því að við hreinsun brennisteinsvetnis úr gufu, sama hversu dýr eða fullkom- inn búnaðurinn er notaður, falla til óæskilegar aukaafurðir eins og brennisteinssýra. „Það þarf þá að farga þessum efnum og við erum að reyna að þróa betri lausnir,“ segir Eiríkur. „Það má því spyrja hvort hreinsunarbúnaður sé fullkominn ef hann skilur þetta eftir og býr til ný viðfangsefni í umhverfislegu tilliti.“ Kaupa þarf hreinsibúnað ef ný tækni skilar engu GUFUSTRÓKAR Á HELLISHEIÐI Nálægð byggðar við jarðhitavirkjanir veldur áhyggjum en við losun gufu sleppur brennisteinsvetni út í andrúmsloftið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is DAM TASLAN NÆLONVÖÐLUR DAM NEOPREN- VÖÐLUR RON TOMPSON NEOPRENVÖÐLUR. RON THOMPSON HYDROWAVE ÖNDUNARVÖÐLUR OG SKÓR SCIERRA CC3 ÖNDUNAR- VÖÐLUR OG SKÓR MAD NEOPREN- VÖÐLUR Í FELULITUM VORTILBOÐ AÐEINS 6.995,- PAKKATILBOÐ AÐEINS 24.900,- VORTILBOÐ AÐEINS 13.995,- PAKKATILBOÐ AÐEINS 29.900,- VORTILBOÐ AÐEINS 11.995,- KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050 MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 9 TIL 16 VORTILBOÐ AÐEINS 16.995,- RON THOMPSON + OKUMA KASTVEIÐIPAKKI SCIERRA EMERGER FLUGUVEIÐIPAKKI REDINGTON CROSSWATER FLUGUVEIÐIPAKKI RON THOMPSON + OKUMA SAFANI KASTVEIÐIPAKKI DAM HNÍFASETT 3 góðir hnífar, stál og skurðarbretti í tösku DAM TÖKUVARI Þegar fiskur tekur gef- ur tökuvarinn frá sér hljóð og ljósmerki. AÐEINS 24.900,- AÐEINS 19.990,- AÐEINS 5.995,- AÐEINS 8.895,- TILBOÐSVERÐ 11.895,- VERÐ 16.990,- AÐEINS 1.695,- SILUNGAFLUGUR STRAUMFLUGUR SPÚNAR MAKRÍLL OG ORMARAÐEINS 220,- AÐEINS 290,- AÐEINS FRÁ 299,- Þu færð beituna í veiði- ferðina í Sportbúðinni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.