Fréttablaðið - 20.05.2011, Page 25

Fréttablaðið - 20.05.2011, Page 25
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þ að besta við starfið er að finna þakklæti nemend- anna auk þess sem ein- tóm gleði umlykur fólkið hér í Listaháskólanum,“ segir Mar- grét Þóra Þorláksdóttir sem ásamt Andreu Guðmundsdóttur rekur mötuneyti í Listaháskóla Íslands. Nýlega var gefin út matreiðslubók- in Hundrað og fimm með 105 upp- skriftum úr þeirra fórum en mötu- neytið reka þær einmitt í stofu 105. „Nemendur og starfsfólk skól- ans var oft að koma að máli við okkur og biðja um uppskriftir að hinu og þessu og hvetja okkur til að gefa út bók. Svo fannst okkur að slík bók gæti verið upplagt lokaverkefni nemanda í grafískri hönnun með áhuga á ljósmynd- un,“ upplýsir Margrét en ritstjóri, hönnuður, umbrotsmaður og ljós- myndari bókarinnar er Rut Ing- ólfsdóttir. Bókinni er skipt eftir virkum vikudögum. Í mánudagskaflan- um eru súpur, síðan koma koll af kolli grænmetisréttir, kjötréttir, sjávarréttir og síðan ýmislegt gott í föstudagskaflanum. „Við ákváð- Andrea Guðmundsdóttir og Margrét Þóra Þorláksdóttir úr mötuneyti LHÍ hafa gefið út matreiðslubók. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 4 kjúklingabringur, skornar í litla bita salt og pipar 1 dl barbecuesósa Steikið kjúklingabitana og kryddið. Hellið sós- unni út á pönnuna og látið malla í smástund eða þar til gegnum- steikt. Kælið. Salat blandað salat rauðlaukur tómatar papríka vínber, skorin í tvennt fetaostur Blandið öllu í skál eða fat og setjið kjúklinginn saman við. Berið fram með tortilla- flögum. BARBECUE-KJÚKLINGASALAT Réttur 102 í bókinni um strax í upphafi að bjóða upp á hollan og heimilislegan mat sem eldaður væri frá grunni,“ segir Margrét en þegar þær Andrea tóku við mötuneytinu fyrir um fjórum árum hafði ekki verið slíkt í skólanum í nokkur ár. Þeim vin- konum var afskaplega vel tekið og hefur hróður þeirra borist víða. „Það er alltaf að fjölga hjá okkur en í hádeginu á degi hverjum koma til okkar í kringum 50 til 70 manns,“ segir Margrét og tekur fram að bókin fáist í Eymunds- son og víðar. solveig@frettabladid.is Bíla- og tækjasýning verður í Fífunni í Kópavogi á laugardag og sunnudag. Þar verður að finna nýjustu bílana á markaðnum en einnig verða frumsýndar nýjar gerðir bíla. Ofursportbíllinn Porsche 911 Speedster verður á sýningunni en hann var fluttur sérstaklega til landsins vegna hennar. Opið er frá 11 til 18 báða dagana. 105 réttir úr stofu 105

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.