Fréttablaðið - 20.05.2011, Page 16

Fréttablaðið - 20.05.2011, Page 16
20. maí 2011 FÖSTUDAGUR16 þvingaður eða neyddur til kynferð- ismaka,“ samkvæmt því er fram kemur í ritgerð Bryndísar. Stelpur í meiri hættu Rúmur þriðjungur stúlkna undir átján ára aldri sagðist hafa orðið fyrir einhverju kynferðislegu ofbeldi, eða 35,7 prósent. „Þetta er mjög hátt en er alveg innan ramma þess sem hefur verið að koma í ljós í Bandaríkjunum og víðar þar sem svipuð skilgreining er notuð. Þetta segir okkur ekki að það sé algengara hér en annars staðar en þetta segir okkur að kynferðis- ofbeldi í víðri merkingu er mjög algengt, sérstaklega meðal ung- lingsstelpna.“ Tæpur fimmtungur stráka, eða 17,8 prósent, sagðist hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og Bryndís segir að ofbeldi gegn strákum hafi verið mikið tabú og ekki síður falið. Í heildina hefur því rúmur fjórðungur, 27,3 prósent framhaldsskólanema, orðið fyrir ofbeldi af þessu tagi. Fleiri höfðu orðið fyrir ofbeldi milli þrettán til sautján ára aldurs en fyrir þann tíma. „Stúlkur eru líklegri til að verða fyrir kynferðisofbeldi en strákar og unglingar eru líklegri en yngri börn. Erlendar rannsókn- ir hafa sýnt að stelpur eru 1,5 til 2,5 sinnum líklegri til að verða þol- endur kynferðisofbeldis.“ Vissir áhættuhópar til staðar „Niðurstöðurnar sýna að kyn- ferðisofbeldi er ekki mjög breyti- legt eftir stétt og stöðu,“ segir Bryndís en segir að þó séu viss- ar vísbendingar. „Unglingar sem búa hjá einu foreldri eða hjá stjúp- foreldri eru líklegri til að verða fyrir ofbeldi, sérstaklega stúlkur sem hafa búið hjá stjúpföður. Ein af ástæðunum er talin vera sú að stjúpforeldrar séu oft gerendur. Menntun foreldra, minni menntun, spáir fyrir um meiri líkur en það eru ekki sterk tengsl þar. Sterkasti forspárþátturinn er fjölskylduerj- ur eða ofbeldi á heimili. Það eru taldar vera tvær líklegar skýring- ar á því. Í fyrsta lagi að ef það er mjög erfitt á heimilinu er líklegt að barnið fái ekki mikið eftirlit, mikilvægt er að foreldrar viti hvar barnið er og með hverjum. Sömu- leiðis ef barnið er vanrækt að ein- hverju leyti þá leitar það frekar í athygli og umbun frá öðrum full- orðnum aðilum eða öðrum sem þeir þekkja ekki mikið.“ „Þessir bakgrunnsþættir sýna að það eru vissir áhættuhóp- ar sem mætti vinna sérstaklega með til að reyna að fyrirbyggja ofbeldi þó svo að vissulega sé það þannig að mjög stór hluti þeirra sem verða fyrir kynferðisofbeldi er ekki í þessum áhættuhóp. Það dugir ekki eitt og sér því svo eru líka mjög margir unglingar sem búa við góðar aðstæður en verða samt fyrir ofbeldi.“ Afleiðingarnar misjafnar „Almennt má segja að afleiðingar kynferðisofbeldis geti verið mjög víðtækar, fjölbreyttar og mismun- andi eftir einstaklingum. Þær eru líka mismiklar og geta birst á mjög mismunandi hátt.“ Bryn- dís segir sum ungmenni upplifa mikið þunglyndi og kvíða og geti þá verið líklegri til að skaða sig og hugsa um sjálfsvíg á meðan önnur séu líklegri til að verða mjög reið og verði þá árásargjörn og fari hugsanlega út í afbrotahegðun og vímuefnaneyslu. „Stelpur eru lík- legri til að beina vanlíðaninni inn á við á meðan strákar eru líklegri til að fara út í hegðun sem bein- ist að öðrum – afbrotahegðun. Þar kemur kynjamunurinn skýrastur fram.“ Bryndís segir að munurinn milli einstaklinga sé mjög mikill. Sumir komi mjög illa út úr ofbeldi en aðrir virðist geta unnið sig út úr því svo afleiðingarnar verði sem minnstar. „Rannsóknir hafa sýnt að það eru nokkrar tegundir þátta í lífi okkar og fari okkar sjálfra sem geta hjálpað við að glíma við erfiðar aðstæður og erfiða streituvaldandi atburði eins og kynferðisofbeldi.“ Þarna spili inn í persónuleiki og að einhverju leyti líffræðilegt upplag. Þá sé fjölskylduumhverfi, góðar uppeldisaðstæður og stuðningur mikilvægir þættir sem og félags- legt umhverfi. Þá sé sjálfsmynd ungmenna að stærra leyti vernd- andi þáttur í lífi þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi en hjá öðrum börnum. Stuðningur foreldra, gott viðhorf til skóla og íþrótta- og tóm- stundaiðkun geti allir leitt til betri sjálfsmyndar sem getur verndað fyrir slæmum afleiðingum kyn- ferðisofbeldis. Félagslegt net gegnir lykilhlutverki „Tölurnar sýna að það skiptir miklu máli að börn segi frá. Hins vegar getur það skaðað eins og það getur hjálpað. Viðbrögð þess sem heyrir frásögn skiptir mjög miklu máli, og að börn fái ekki neikvæð viðbrögð.“ Annars geti það sett barnið í baklás og aukið vanlíðan. Börn sem hlust- að er á og fá stuðning við frásögn koma betur út en önnur. „Fólk sem vinnur í skólum og tómstundastarfi er í lykilhlutverki í þessum málum. Mikilvægt er því að þar sé til staðar viðbragðsáætl- un og þekking svo fólk geti beint málum í réttan farveg, það má ekki gerast að börn segi frá og svo ger- ist ekkert.“ Bryndís segir mikilvægt að sjón- um sé beint að því hvernig hægt sé að fyrirbyggja afleiðingarnar. Mik- ilvægt sé að byggja upp stuðnings- ríkt samfélag. „Það er mikilvægt að við horfumst í augu við þetta allt saman og horfum á þetta heild- stætt. Það þarf að nýta þá þekkingu sem við höfum til að vinna mark- visst gegn ofbeldi.“ Föstudagsviðtaliðföstuda gur Bryndís Björk Ásgeirsdóttir lektor við sálfræðisvið og forstöðumaður BSc náms í sálfræði HR Unglingar sem búa hjá einu for- eldri eða hjá stjúpforeldri eru líklegri til að verða fyrir ofbeldi, sérstaklega stúlkur sem hafa búið hjá stjúp- föður. V iða mesta könn- un sem gerð hefur verið á kynferðis- legu ofbeldi gegn börnum hér á landi leiðir í ljós að um fjórðungur þeirra hefur orðið fyrir einhvers konar kynferðis- legu ofbeldi fyrir átján ára aldur. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir hefur undanfarin ár unnið úr gögn- um rannsóknarinnar og skilaði doktorsritgerð í sálfræði í vor. „Þetta er rannsókn sem var gerð meðal allra framhaldsskólanema á Íslandi, í samstarfi við Barna- verndarstofu og Rannsóknir og greiningu,“ segir Bryndís, sem er lektor við sálfræðisvið og for- stöðumaður BSc náms í sálfræði hjá Háskólanum í Reykjavík. Allir framhaldsskólanemendur sem mættu í skólann daginn sem könnunin var lögð fram haustið 2004 tóku þátt. „Þetta eru ofboðs- lega góð gögn að því leyti, þetta er ekki úrtak með lágu svarhlutfalli. Þetta byggir á svörum rúmlega níu þúsund nemenda á Íslandi.“ Rannsókn á vændi upphafið „Aðdragandinn að þessari rann- sókn var önnur rannsókn sem ég gerði fyrir dómsmálaráðuneytið um vændi á Íslandi árið 2000. Ég komst að því að vændi væri til í ýmsum myndum og einn samnefn- arinn sem ég sá var að margir ein- staklingar sem voru í vændi höfðu orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku. Þannig fór ég að hafa áhuga á kynferðisofbeldi sem einni af mögulegum rótum vandamála á unglingsárum. Það eru margar ólíkar skil- greiningar á kynferðisofbeldi, og það er ein af ástæðunum fyrir því að tíðnitölur eru mismunandi.“ Skilgreiningin sem Bryndís not- aði miðar við að börn séu sautján ára og yngri og hún gerir líka ráð fyrir því að börn geti verið gerend- ur. „Nýjar rannsóknir hafa sýnt að kynferðisofbeldi getur líka átt sér stað milli unglinga. Nauðgan- ir eru augljóst dæmi um það, þar sem gerandinn er undir átján ára aldri. Skilgreiningin sem ég nota er mjög víð og þar með eru tölurn- ar háar.“ Í rannsókn Bryndísar var kynferðisofbeldi gegn einstakling- um undir átján ára skilgreint sem „að einhver hafi berað sig fyrir framan hann á ósæmilegan hátt eða káfað á líkama hans eða kyn- færum á ósæmilegan hátt, að hann hafi verið sannfærður, þvingaður eða neyddur til að snerta kynfæri einhvers eða verið sannfærður, Þriðjungur orðið fyrir ofbeldi Könnun um kynferðisofbeldi gegn börnum hér á landi leiðir í ljós að 35 prósent stúlkna og 17,8 prósent drengja hafa orðið fyrir ofbeldi af því tagi. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir hefur rannsakað þessi mál, meðal annars bakgrunn, afleiðingar og verndandi þætti í lífi unglinga. Hún sagði Þórunni Elísabetu Bogadóttur frá doktorsrannsókn sinni. BRYNDÍS BJÖRK ÁSGEIRSDÓTTIR Hugmyndin að rannsókninni kviknaði þegar Bryndís Björk var að vinna að rannsókn um vændi fyrir dómsmála- ráðuneytið árið 2000. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Drukkin 3+ Vímuefna- neysla Sjálfsvígs- hegðun Sjálfskað- andi hegðun Afbrota- hegðun Drukkinn 3+ Vímuefna- neysla Sjálfsvígs- hegðun Sjálfskað- andi hegðun Afbrota- hegðun 80 60 40 20 % 60 40 20 % Hlutfall stúlkna sem hafa sýnt tilgreinda hegðun, eftir því hvort þær segjast hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og alvarleika þess. Hlutfall drengja sem hafa sýnt tilgreinda hegðun, eftir því hvort þeir segjast hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og alvarleika þess. ■ Aldrei ■ Strípihneigð / káf á líkama ■ Káf á kynfærum ■ Kynferðismök Sláandi niðurstöður Aðalfundur Exista ehf. 30. maí 2011 EXISTA ehf. ı Ármúla 3 ı 108 Reykjavík ı Sími 550 8600 Aðalfundur Exista ehf. verður haldinn mánudaginn 30. maí 2011 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 5. hæð, Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 10:00. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2010. 2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2010 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. Ákvörðun um greiðslu arðs og jöfnun taps fyrir síðastliðið reikningsár. 3. Kosning stjórnar. 4. Kosning endurskoðunarfélags. 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 6. Tillaga stjórnar um að samþykkja starfskjarastefnu Exista ehf. 7. Önnur mál. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar félagsins skal berast skriflega til stjórnar eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á aðalfundardegi frá kl. 9:30 á fundarstað. Reykjavík, 20. maí 2011. Stjórn Exista ehf.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.